Morgunblaðið - 06.10.2001, Síða 68

Morgunblaðið - 06.10.2001, Síða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. MARGT var um manninn á Laugaveginum í gær enda blíð- skaparveður í borginni. Ýmis til- boð verða í verslunum við Lauga- veg í dag, þar sem í gangi svokallaður langur laugardagur, sem þýðir líf og fjör í miðbænum. Mikið verður um að vera jafnt ut- an dyra sem innan. Tónlist- armenn, töframaður og aðrir skemmta gestum og gangandi og skapa í sameiningu hressilega götustemmningu með þátttöku vegfarenda. Morgunblaðið/Árni Sæberg Töfrar og tónar á Laugavegi SAMKVÆMT upplýsingum frá Kaupþingi í New York hefur sam- vinna Kaupþings í New York og í Reykjavík leitt til stærstu sölu hingað til á skuldabréfum íslensks fyrirtækis til erlends fjárfestis. Sala fyritækjanna á skuldabréfum Búnaðarbankans nemur 1.260 milljónum íslenskra króna og með henni er heildarupphæð skulda- bréfa í íslenskum bönkum sem Kaupþing hefur selt erlendum fjár- festum komin í 3.000 milljónir króna. Að sögn Paul Ferrigno hjá Kaupþingi í New York er þessi sala mjög jákvæð tíðindi fyrir ís- lenskan fjármálamarkað. Hann segir að salan hafi hins vegar verið allt annað en auðveld. Til viðbótar þeim erfiðleikum sem sala á skuldabréfum lítils myntsvæðis hafi í för með sér, hafi Kaupþing staðið frammi fyrir vanda sem ekki ætti að þurfa að vera til staðar, þ.e. að íslensk skuldabréf séu ekki skráð hjá erlendum vörslufyrir- tækjum, svo sem Euroclear. Í slík- um kerfum er hægt að tryggja raf- rænt og öruggt uppgjör viðskiptanna. Þau auki ekki aðeins öryggi í viðskiptunum heldur ýti undir aukin viðskipti. Gæti þýtt vatnaskil fyrir íslenska markaðinn Ferrigno segir að íslenska ríkið bjóði erlendum fjárfestum vörslu- þjónustu og það hjálpi mikið en sé ekki fullnægjandi, því margir er- lendir fjárfestar sem gjarna vilji kaupa íslensk skuldabréf geti ekki keypt skuldabréf nema í gegnum Euroclear-kerfið. Ferrigno leggur áherslu á að flýta þurfi tengingu Íslands við Euroclear-kerfið fyrir skuldabréf. Nú nýlega var sett á fót nefnd sem vinnur að þessu markmiði með áætlun um að þetta verði komið í gagnið hér á landi eftir eitt ár, en Ferrigno segir það of langan tíma þegar hugsað sé til þeirra tæki- færa sem eru til staðar. Hann vill að þessari vinnu verði flýtt. Paul Ferrigno bætir því við að þessi opnun út í heim gæti þýtt vatnaskil fyrir íslenska markaðinn og þar með hugsanlega lægri vexti á Íslandi. Íslensk skuldabréf seld er- lendis fyrir 1,26 milljarða Skuldabréf eru ekki skráð hjá erlendum vörslufyrirtækjum EYJÓLFUR Sverrisson, fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, hefur tekið þá ákvörðun að leggja landsliðsskóna á hilluna. Eyjólfur, sem er 33 ára, leikur kveðjuleik sinn gegn Dön- um á Parken í Kaupmannahöfn í kvöld. „Þetta er eng- in skyndiákvörð- un – ég hafði alltaf hug á að hætta eftir þessa keppni. Þetta er stórleikur og ég ætla að hafa gaman af því að taka þátt í honum. Ég vil nota tækifærið og þakka fyrir allan stuðninginn sem ég hef fengið frá þjóðinni,“ sagði Eyjólfur við Morgunblaðið í Kaupmannahöfn í gær. Eyjólfur kveður á Parken  Kveðjuleikur.../B1 SÓLVEIG Pétursdóttir dómsmála- ráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi í gær nýtt frumvarp til laga gegn vændi og barnaklámi. Frumvarpið miðar að því að gera afdráttarlaust refsivert að kaupa kynlífsþjónustu af einstaklingi undir 18 ára aldri og að því að þyngja refs- ingar fyrir vörslu barnakláms. Um er að ræða hluta af endurskoðun hegningarlaga vegna kynferðisaf- brota gegn börnum. Nýtt frumvarp gegn vændi og barnaklámi  Refsivert að kaupa/12 KNATTSPYRNUSAMBAND Ís- lands áformar að byggja nýjar höf- uðstöðvar í Laugardal sem eiga að hýsa skrifstofur sambandsins og vera fræðslumiðstöð fyrir knatt- spyrnuna í landinu. KSÍ fær tug- milljóna króna styrk frá Alþjóða- knattspyrnusambandinu, FIFA, til framkvæmdanna. Eggert Magnússon, formaður KSÍ, segir að forsaga málsins sé sú að í talsverðan tíma hafi KSÍ verið að sækja eftir peningastyrk frá Alþjóðaknattspyrnusamband- inu, FIFA, sem er tilbúið að veita sambandinu styrk strax í upphafi, að upphæð 400.000 dollarar eða um 40 milljónir króna, og síðan eru ákveðin fyrirheit um áfram- haldandi styrk seinna. KSÍ þarf hins vegar að sýna fram á að það hafi lóð fyrir húsið, tilbúnar teikn- ingar og að fjármagn sé tryggt. „Það sem er að gerast í málinu í dag er að borgaryfirvöld í Reykja- vík hafa gefið okkur vilyrði fyrir lóð í Laugardalnum. Það gekk mjög vel og ég er afskaplega þakk- látur fyrir hvað borgin sýndi okk- ur mikinn skilning í því máli,“ sagði Eggert. Lóðin sem KSÍ fékk úthlutað er á mótum Engjavegar og Reykja- vegar, rétt við hringtorgið í Laug- ardal. KSÍ byggir hús í Laug- ardal með styrk FIFA  Nýjar.../B4 ♦ ♦ ♦ ÚTLIT er fyrir að útflutnings- verðmæti sjávarafurða verði um 112 milljarðar á þessu ári sem er um 16 milljarða króna aukning frá árinu 2000. Þetta kom fram í máli Arnars Sigurmundssonar, for- manns Samtaka fiskvinnslustöðva, á aðalfundi samtakanna sem fram fór í gær. Arnar sagði aukið útflutnings- verðmæti einkum koma til vegna verðhækkana á mjöli og lýsi og gengisbreytinga. Í ályktun aðalfundarins er skor- að á bankastjórn Seðlabanka Ís- lands að hafa forgöngu um lækkun vaxta sem allra fyrst. Mun hærri fjármagnskostnaður hér en í helstu viðskiptalöndum skekki samkeppnisstöðu útflutningsfyrir- tækja í harðri samkeppni þeirra á erlendum mörkuðum. Stöðugleiki í efnahagslífinu skipti miklu máli og forsendur fyrir verulegri vaxta- lækkun hafi legið fyrir í nokkurn tíma. Baráttan við verðbólguna sé aðkallandi verkefni og miklu máli skipti að verðlagsbreytingar hér á landi verði með sambærilegum hætti og í helstu viðskiptalönd- unum. Útlit fyrir 16 milljarða aukningu á útflutningsverðmæti sjávarafurða  Bjartara framundan/20

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.