Morgunblaðið - 11.11.2001, Síða 54

Morgunblaðið - 11.11.2001, Síða 54
FÓLK Í FRÉTTUM 54 SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÞRÁTT fyrir ungan aldur, en Vé- dís er ekki nema nítján ára gömul, er hún búinn að gefa út sína fyrstu breiðskífu, sálarskotna, poppaða R og B plötu sem kallast In the Caste. Platan er hin vandaðasta, prýtt svölu umslagi sem gefur vís- bendingar um innihaldið, klárt og keikt nútímapopp sem Védís tjáir með fagmannlegri rödd sinni. Þrátt fyrir að vera ekki skriðin yfir tvítugt hefur Védís verið að garfa í tónlist um þó nokkurt skeið. Fyrri ævintýri Védísar á söngsviðinu hafa aðallega átt sér stað innan veggja Verzlunarskól- ans en einnig hefur hún sungið lag með Bang Gang. Það er líka gam- an að geta þess að hún á bakrödd- ina í hinu æringjalega lagi Tví- höfða „I Miss My Bitch“ sem gefur til kynna að þessi stúlka tekur sig ekki of hátíðlega. Enda er hún hinn alúðlegasti viðmælandi, með báða fætur kirfilega niðri á jörð- inni. Kaffið Védís býr enn í foreldrahúsum og tekur þar brosandi á móti mér. Vísar mér til sætis inni í eldhúsi og býður mér kaffi eða te. Kaffið, sem er sérlega ljúffengt er þegið með þökkum. Fyrir aftan okkur hangir vegg- spjald með myndinni sem prýðir og umslag plötunnar. Á myndinni situr Védís í hrörlegum og rifnum stól íklædd jakka með her- mannamunstri. Á bakvið er hrör- legur steypuveggur, grænslikjað- ur. Védís tjáir mér að myndatakan hafi farið fram í gamla Sædýra- safninu, sem var rétt fyrir utan Hafnarfjörðinn. Svöl mynd á ein- kennilega napurlegan hátt. Það kemur á daginn að upp- runalega hafi átt að fá hina og þessa til að vinna með Védísi að plötunni en hún hafi verið því fegin að verkið hafi verið sett í hend- urnar á einum og sama manninum. Sem er enginn annar en Barði Jó- hannsson úr Bang Gang. „Það var búið að prófa ýmislegt og þetta virkaði alls ekki eins og ég vildi,“ segir Védís, rólegri röddu. „Þetta samstarf við Barða gekk mjög vel upp og ég er mjög ánægð með það. Hljómurinn á plötunni er þess vegna heildstæður. Valgeir Sigurðsson (Björk, Egill S.) vann líka með okkur. Hann kryddaði nokkur lög en hann kom þó minna að þessu en stefnt var að í upp- hafi.“ Védís segist vissulega vera óreynd í þessum efnum en engu að síður hafi henni þótt virkilega þægilegt að vinna plötuna með ein- um samstarfsfélaga en þess má geta að lögin á plötunni eru meira og minna runnin undan rifjum Vé- dísar sjálfrar. „Það má segja að „meira er minna“ hafi verið einkunnarorðin mín við gerð þessara plötu,“ segir hún. „Það hefði alveg verið hægt að hlaða meira á lögin en ég ákvað að bakka með svoleiðis hluti. Ég myndi segja að lögin standi nokk- uð vel, ein og sér.“ Védís segir að nú sé búið að koma bandi saman í kringum þessa plötu og eitthvað verði um spila- mennsku í haust og á næsta ári. „Ísland er markhópurinn í dag. Það er oft sem fólk vill æða með efnið sitt til útlanda strax en það verður ekki gert með þessa plötu. Þannig að eins og er einblínum við á Ísland en ef heppnin er með manni þá kannski gerist eitthvað úti.“ Hún segir að stefnan hafi alltaf verið að reyna fyrir sér í útlöndum en í bili ætli fólk að halda að sér höndum og bíða átekta. Mín tónlist Í poppgeira þeim sem Védís er að dýfa tám í tíðkast oft að jakka- klæddir menn stjórni ferli stjarn- anna í einu og öllu. Védís hefur ákveðnar skoðanir á þessu. „Þú getur verið tónlistarmaður, þú getur verið söngkona, þú getur verið lagahöfundur en að mínu mati ertu ekki alvöru listamaður nema þú takir að þér eitthvað verkefni og fylgir því alveg eftir. Og það hef ég verið að gera. Enda er þetta mín tónlist, mínir textar, ég átti algjörlega lokasvarið með umslagið o.s.frv. Ég hefði ekki vilj- að hafa þetta öðruvísi, ég vil alls ekki láta ráðskast með mig á neinn hátt.“ Svalt nú- tímapopp Védís Hervör Árnadóttir er ung og upprennandi söngkona með bein í nefinu. Arnar Eggert Thoroddsen þáði kaffi af stúlku og spjallaði við hana um nýju plötuna hennar. Morgunblaðið/Jim Smart Védís fór með eitt af burðarhlutverkunum í söngleiknum Wake Me Up Before You Go Go sem Verzlunarskólinn setti upp. arnart@mbl.is TENGLAR ..................................................... www.vedis.com „Að mínu mati ertu ekki alvöru listamaður nema þú takir að þér eitthvert verkefni og fylgir því al- veg eftir,“ segir Védís Hervör Árnadóttir. Umslagið góða. Védís gefur út In the Caste                

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.