Morgunblaðið - 17.01.2002, Side 23

Morgunblaðið - 17.01.2002, Side 23
NEYTENDUR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2002 23 DANSKIR neytendur telja mat- vælin sem þeir kaupa almennt séð örugg og holl, samkvæmt könnun sem Upplýsingastofnun neytenda í Danmörku hefur látið vinna. Könnunin nefnist „Trú og vantrú danskra neytenda á mat- vælum.“ Viðhorfið til ýmissa teg- unda matvara er hins vegar mis- munandi og virðist meðal annars velta á því hversu mikið þær eru unnar. „Neytendur hafa mikla trú á matvælum á borð við brauð, mjólkurvörur og kartöflur, sem færri en 10% vantreysta. Meiri vafi virðist leika á ágæti matvæla á borð við kjöt, alifugla, ávexti og grænmeti þar sem milli þriðjungur og fjórðungur að- spurðra er í vafa. Um helmingur þátttakenda lætur í ljósi van- traust á mikið unnum matvælum á borð við tilbúna rétti,“ segir ennfremur. Fram kemur að vantraust neytenda aukist eftir því sem meiri óvissa ríki um innihald og vinnsluaðferðir á tiltekinni vöru. „Óvissan gerir að verkum að mörgum neytendum finnst þeir þurfi að gera sérstakar ráðstaf- anir við innkaup og upplýsa 40– 50% aðspurðra að þeir leggi sig oft eða alltaf fram um að kaupa matvæli sem þeir telja „örugg“. Veltur það síðan á vörutegund- inni hvers konar eiginleika neyt- andinn telur örugga. „Þegar kjöt og alifuglar eru annars vegar eru það sjónarmið um lífræna ræktun sem liggja til grundvallar. Um 30% vantreysta hefðbundnu kjöti og 15% lífrænt ræktuðu. Hvað grænmeti varðar er danskt grænmeti talið öruggt og hvað mjólkurvörur áhrærir eru flestar þeirra í lagi í huga neytenda þar sem þær eru í mörgum tilfellum bæði lífrænt ræktaðar og fitusnauðar. Gott álegg er síðan annað tveggja fitusnautt eða beint frá kjöt- kaupmanninum.“ Einnig er bent á að umræða um matvæli hafi áhrif á hversu örugg þau séu talin. „Allt tal um sýklalyfjagrísi, prísundarsvín og ólystugt svínakjöt eykur vantrú neytenda á hollustu þess, meðan fallegar sögur af lífrænum svínabúskap eykur lystina á svínakjöti,“ er haft eftir Lotte Holm hjá Konunglega dýra- lækna- og landbúnaðarháskól- anum, sem hafði umsjón með rannsókninni. „Viðhorf neytenda ræðst líka af mögulegum framleiðsluhátt- um. Lífræn mjólk er fyrir hendi í lítravís en lítið til af lífrænu áleggi. Í síðara tilfellinu veltur traustið því á álitinu sem hann hefur á kjötkaupmanninum og því hvort áleggið er heimalagað, svo dæmi sé tekið." Kartöflur, mjólkurvör- ur og brauð „öruggust“ !  ' 4 ? ;+ D D  $%  ,+ F,0 GD& " G   H $  F  2 G2 D D I )  J           E E E E E E E E E  E  E E VERÐ á vínberjum er allt að því þrisvar sinnum hærra hér- lendis en í Danmörku sam- kvæmt verðkönnun sem Neytendasamtökin gerðu 15. janúar síðastliðinn. „Þannig var kílóið af vínberjum selt á tæpar 1.300 krónur í bæði Nóatúni og Nýkaupi 15. janúar (1.298 krónur í þeirri fyrrnefndu og 1.299 krónur í þeirri síðarnefndu),“ segir Jóhannes Gunnarsson, for- maður NS, á heimasíðu þeirra. Könnun Morgunblaðsins á vínberja- verði 7. janúar leiddi í ljós 721 krónu verðmun á milli verslana í höfuðborg- inni, þar sem hæsta verð var 1.299 krónur og hið lægsta 578 krónur. „Starfsmaður Neytendasamtak- anna kannaði verð á vínberjum í nokkrum verslunum í Kaupmannahöfn og reyndist kílóið af vínberj- um frá Suður-Afríku kosta frá 36 og upp í 40 danskar krónur. Miðað við opinbert viðmiðunar- gengi Seðlabanka Íslands 15. janúar sl. er verð á vínberjum í verslunum í Kaupmannahöfn á bilinu 445–494 íslenskar krónur. Þannig er verð á vínberjum frá Suður-Afríku allt að því þrefalt hærra í verslunum hér en í Kaupmannahöfn. Íslenskir neytend- ur hljóta því að spyrja sig hvort ein- okunin sem heildsöluaðilar hafa skap- að sér á þessum markaði valdi því að neytendur greiði miklu meira en ella.“ Segja s-afrísk vínber þrefalt dýrari hérlendis EGGERT Á. Gíslason, fram- kvæmdastjóri Mata ehf., gagnrýnir verðsamanburð Neytendasamtak- anna á vínberjum í Danmörku sem samtökin sendu frá sér í gær. Hann segir að samtökin hafi ekki miðað við sömu vínberjategundina og Mata hafi keypt frá Cape í S-Afr- íku. Eggert segist hafa kannað verð á grænum Cape-vínberjum í Prime- verslanakeðjunni í Danmörku og þar hafi kílóverðið verið á 60 krónur danskar eða 774 kr. íslenskar, en ekki 36–40 d.kr. eins og Neytenda- samtökin hafi haldið fram. Eggert segir að algengt kílóverð á Cape-vín- berjum í stórmörkuðum hér á landi sé 798–875 krónur. Því sé útsölu- verðið á þessari berjategund í fullu samræmi við verðþróun erlendis. Mata gagnrýnir Neytendasamtökin

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.