Morgunblaðið - 17.01.2002, Qupperneq 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2002 29
Útsalan
Mörkinni 3
hefst
18.janúar
KRINGLUNNI OG SMÁRALIND
ÚTSALA
Enn meiri verðlækkun
50% afsláttur af öllum vörum
ÍGAGNRÝNI eftir tónleikaSinfóníuhljómsveitar Íslandsí síðustu viku spyr RíkarðurÖrn Pálsson hvort hljóm-
sveitarstjórinn rússneski, sem þá
stjórnaði, Alexander Anissimov, sé
„hugsanlega á lausu sem mögu-
legur fastastjórnandi Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands í næstu fram-
tíð“. Alexander Anissimov stjórnar
Sinfóníuhljómsveit Íslands í fjórða
sinn í kvöld. Hann kom hingað til
lands með örstuttum fyrirvara fyrir
ári, til að hlaupa í skarðið fyrir Rico
Saccani fyrir sýningu á Carmen í
Laugardalshöll. Anissimov sýndi þá
strax, að hann náði frábærum tök-
um á hljómsveitinni, og á tvennum
tónleikum sem hann hefur stjórnað
síðan hefur hann vakið mikla at-
hygli fyrir framúrskarandi hljóm-
sveitarstjórn og fengið gríðargóða
dóma gagnrýnenda.
Hljómsveitin er
ung og fersk
„Það var mjög spennandi að
koma hingað fyrst og kynnast
hljómsveitinni með svo stuttum fyr-
irvara. Hljómsveitin var alveg sér-
staklega einbeitt og góð og spilaði
gríðarlega vel. Ég held að áheyr-
endur hafi líka verið ánægðir með
Carmen. Í annað skiptið sem ég
kom hingað, til að stjórna Tsjaík-
ovskíj, spilaði hljómsveitin líka
virkilega vel, og við vorum heiðruð
með komu forseta Íslands á tón-
leikana. Á tónleikunum í síðustu
viku fluttum við þýska tónlist og í
kvöld tékkneska. Þetta er hvað öðru
ólíkt í stíl, en ég kann vel við fjöl-
breytnina. Ef þú spyrðir mig um
uppáhaldstónskáldið mitt yrði það
erfitt. Mér líkar auðvitað vel við
Mozart, Beethoven og Haydn en
líka rómantíkerana, eins og Schu-
mann, Schubert, frönsku tónskáldin
Berlioz, Debussy og Ravel. Hjarta
mitt stendur þó næst tónlist Tsjaík-
ovskíjs, Rakhmaninovs, Dvoráks og
Beethovens, Richards Strauss og
Wagners. Þetta eru mínir menn. En
í hvert skipti sem ég kem inn á æf-
ingu þar sem á að æfa verk eftir ein-
hver önnur tónskáld verða þau þá
stundina mín uppáhaldstónskáld og
þess vegna eru Janacek, Smetana
og Dvorák uppáhaldstónskáldin
mín í dag.“
Anissimov hefur starfað lengi á
Írlandi og verið aðalhljómsveit-
arstjóri Írsku þjóðarhljómsveit-
arinnar í tíu ár. Í fyrra sæmdi Írski
þjóðarháskólinn hann heiðursdokt-
orsnafnbót fyrir framlag hans til
tónlistarlífs á Írlandi. En hvernig
líkar Anissimov við Sinfóníu-
hljómsveit Íslands?
„Tilfinning mín fyrir Sinfóníu-
hljómsveit Íslands er svipuð og var
með Írsku þjóðarhljómsveitina.
Hér, eins og þar, er fólk mjög hlý-
legt og viðmótsþýtt; hljómsveitirnar
eru báðar mjög góðar og ég er viss
um að hér væri gott að vera, eins og
á Írlandi. En Ísland fyrir mér er
ennþá bara Hótel Saga og spottinn
út í Háskólabíó. Það er mjög mik-
ilvægt fyrir mig að stjórna góðum
hljómsveitum. Ég hef ferðast víða
og hvar sem ég finn svona góðar
hljómsveitir líður mér ósjálfrátt
eins og heima hjá mér. Sinfón-
íuhljómsveit Íslands er þegar mjög
góð og ég tel hana eiga mikla fram-
tíð fyrir sér. Hún hljómar ung og
fersk og það er hljómur sem mér
líkar vel. Allar sinfóníuhljómsveitir
eiga sín vandamál að glíma við; líka
Berlínarfílharmónían og þessar
frægu hljómsveitir. Vandamálin eru
þó alls staðar þau sömu; jafnvægi,
inntónun, rytmi og þess háttar. En
það sem ég sé hjá Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands er að ég horfi augliti til
auglitis við fólk sem vill gera mjög
vel og leggur sig allt fram og þetta
er mjög, mjög, mjög mikilvægt. Ég
er stundum að stjórna hljómsveitum
sem eiga að vera í háum gæðaflokki
með afburðatónlistarmenn innan-
borðs, en það vantar í þá allan eld-
móð og áhuga. Það skiptir miklu
máli fyrir hljómsveit að hafa þann
neista sem Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands hefur. Á tónleikunum í síðustu
viku spilaði hún þriðju sinfóníu
Beethovens meistaralega vel. Ég
veit þetta, því ég hef stjórnað svo
ótalmörgum hljómsveitum. Þessi
frammistaða Sinfóníuhljómsveitar
Íslands var í heimsklassa. En það er
ekki bara mitt verk, heldur líka
verk hljómsveitarinnar og þeirra
stjórnenda sem hafa verið hér áður,
en einnig leiðaranna í hverri rödd,
sem mér finnst gegna mjög mik-
ilvægu hlutverki; þeir eru hægri
hönd stjórnandans. Nú ertu kannski
hissa á þessum fagurgala hjá mér í
garð hljómsveitarinnar – það er
ekki fyrir það að ég sé eitthvað sér-
staklega góður náungi; ég er að tala
af óhlutdrægni vegna þess hve vel
ég þekki heim hljómsveitanna.“
Alexander Anissimov er ekki á
því að svara spurningu blaðamanns
um það hvort honum finnist fýsilegt
að gerast aðalhljómsveitarstjóri
Sinfóníuhljómveitar Íslands, enda
sé það mál ekki til umræðu enn sem
komið er, þó svo að spurst hafi út,
að hann sé meðal þeirra sem komi
til greina. Hann er á grænni grein í
sínu starfi, stjórnar bæði austan
hafs og vestan mörgum bestu
hljómsveitum heims og á framtíðina
fyrir sér. En hann ítrekar þó að sér
þyki afar gott að koma hingað
vegna þess hvað hljómsveitin sé góð
og tilbúin til átaka. Hann segir þó
að hvað sem öðru líði sé það líka
nauðsynlegt að hljómsveitin hafi
góða gestastjórnendur og að hann
sé mjög glaður að fá slík tækifæri
hér. Anissimov telur að hér á landi
þurfi að byggja upp gott verk-
efnaval og lengra fram í tímann.
„Það er mjög mikilvægt fyrir vel-
gengni hljómsveita að réttur hljóm-
sveitarstjóri sé valinn fyrir hvert
verkefni. Það þarf þematíska list-
ræna stjórnun (dramatúrgíu), ekki
bara einn vetur fram í tímann, held-
ur nokkra. Það er ekki nóg að velja
vel stóru góðu verkin, það er ekki
síður mikilvægt að vanda vel valið á
þeim verkum sem eiga að vera með
þeim á prógrammi. Lífið er bara svo
stutt og hver mínúta hljómsveitar á
sviði svo dýr að fyrir allra hluta sak-
ir er það mikilvægt að verkefnin séu
vel valin saman bæði fyrir hlustand-
ann og þann sem borgar brúsann.
Ef við tökum tónleikana í kvöld, þá
er sellókonsert Dvoráks stóra
stykkið. Það er dásamlegt að hafa
Sinfóníettu Janaceks með; þetta er
verk sem ekki margir þekkja en frá-
bært engu að síður. Moldá eftir
Smetana er mjög vinsælt verk sem
allir þekkja, en það heyrist alls ekki
oft á tónleikum. Þetta er verk sem
fólk hlustar á heima. En það á mjög
vel við með hinum tveimur.“
„Hvað er ekki
erfiður staður?“
Bryndís Halla Gylfadóttir, ein-
leikari kvöldsins, situr í kaffistofu
Sinfóníuhljómsveitarinnar og er að
yfirfara verk næstu tónleika. Selló-
konsert Dvoráks er í flokki mestu
verka sem sellóleikari glímir við, en
Bryndís Halla hefur þó fengið tæki-
færi til að leika verkið áður; það var
1993. „Þessi konsert er rosalega
krefjandi fyrir einleikarann. Þetta
er líka einn þekktasti sellókonsert-
inn, það kunna hann svo margir og
margir hafa spilað hann vel og
margir eru líka þess vegna svolítið
hræddir við hann. Ætli þetta lýsi
ekki sambandi mínu við konsertinn
þessa stundina. Mér finnst ekkert
auðveldara að takast á við hann
núna, enda er orðið svo langt síðan
ég spilaði hann. Maður veit þó
kannski betur hvað maður hefði
viljað gera öðruvísi. Þetta er súper-
rómantískt verk og ég upplifi það
sem frekar karlmannlegt. Það er
frekar úthverft og átök milli ein-
leikarans og hljómsveitarinnar.“
Bryndís Halla segir að konsertinn
sé tæknilega erfiður. „Það var ein-
hver að ráðleggja mér að æfa bara
erfiðu staðina, en þegar við vorum
að spila fyrsta kaflann áðan hugsaði
ég með mér: hvað er ekki erfiður
staður í þessu? Ég fann ekki neitt.“
Hljóðfærið sem Bryndís Halla leik-
ur á smíðaði Hans Jóhannsson fiðlu-
smiður fyrir Bryndísi Höllu fyrir
um fjórum árum. En er það þá smíð-
að með einhverjar sérþarfir eða
óskir hennar í huga? „Já, ég er hrif-
in af dökkum tón í sellóum og við
Hans ræddum það mikið. Útlitið
skiptir líka svolitlu máli; ég vildi
hafa það gamalt í útliti. Þessir nýju
hljóðfærasmiðir gera það mjög vel,
þótt sumum þyki það hálfsér-
kennilegt að maður skuli biðja um
að hljóðfærið sé lamið og rispað til
að það líti ellilega út. Ætli þetta sé
ekki bara eitthvað sálrænt hjá
manni.“
Alexander Anissimov
stjórnar Sinfóníu-
hljómsveit Íslands í
fjórða sinn í kvöld, en
hann hefur fengið
góða dóma fyrir starf
sitt með hljómsveit-
inni. Bergþóra Jóns-
dóttir ræddi við hann
um kynni sín af Sin-
fóníuhljómsveitinni og
við Bryndísi Höllu
Gylfadóttur um Dvor-
ák og sellóið hennar.
„Þetta eru uppáhalds-
tónskáldin mín í dag“
Morgunblaðið/Ásdís
Bryndís Halla Gylfadóttir og Alexander Anissimov á æfingu í gær.
begga@mbl.is