Morgunblaðið - 08.03.2002, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 08.03.2002, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2002 41 ÓHÆTT er að segja að úrslitin á Símamótinu – Minningarmótinu um Dan Hansson hafi komið á óvart. Enginn hinna heimsþekktu stór- meistara í mótinu komst í úrslit held- ur voru það tveir tékkneskir stór- meistarar sem lítils var vænst af í upphafi mótsins sem börðust um sig- urinn. Undanúrslitin voru söguleg og í báðum viðureignunum þar urðu úrslitin þveröfug við það sem búast mátti við. Annars vegar áttust við tékkneski stórmeistarinn Tomas Oral (2.542) og Ivan Sokolov (2.659) og hins vegar Jan Votova (2.515) og Jóhann Hjartarson (2.633). Það var ekki nóg með að Tékkarnir sigruðu í báðum einvígjunum, heldur gerðu þeir það á afgerandi hátt með því að sigra 2–0 í báðum tilfellum. Það hefði orðið hápunkturinn á vel heppnuðu móti að sjá Jóhann í úrslitunum og miðað við framgang hans á mótinu fram að undanúrslitunum hefði allt eins mátt búast við því. Úrlitaeinvígið milli þeirra Tomas Oral og Jan Votava lauk einnig á af- gerandi hátt. Tomas Oral sigraði í báðum skákunum, í einungis 21 leik í þeirri síðari, og stóð því uppi sem sigurvegari mótsins. Oral var vel að sigrinum kominn, tapaði ekki skák í mótinu og sigraði í öllum sínum ein- vígjum án þess að grípa þyrfti til hraðskákanna. Hann leyfði aðeins þrjú jafntefli gegn þeim Malakhov, Jóni Viktori Gunnarssyni og Guð- fríði Lilju Grétarsdóttur. Það var Skákfélagið Hrókurinn sem skipulagði minningarmótið um Dan Hansson. Hrekkjavökuárásin Meistaramóti Taflfélagsins Hellis 2002 lauk nýlega, en eftirfarandi skák vakti tvímælalaust mesta at- hygli á mótinu. Það var þó ekki vegna þess að hún væri betur tefld en aðrar skákir heldur vegna þess hve óvenju djarflega hvítur teflir byrjunina. Í byrjun sem skákmönn- um hefur þótt heldur daufleg fórnar hvítur riddara strax í fjórða leik. Það er óvenjulegt að manni sé fórnað svo snemma tafls, hvað þá í stöðu sem al- mennt hefur verið talin bjóða upp á fá tækifæri til fjörlegrar tafl- mennsku. Skákmaður sem stýrir svörtu mönnunum og sér þessa byrj- un koma upp býr sig undir rólega taflmennsku og er alls ekki viðbúinn þeim ósköpum sem yfir dynja eftir mannsfórnina. Þetta afbrigði í Fjög- urra riddara tafli hefur hlotið nafnið Hrekkjavökuárásin og það er kannski viðeigandi heiti, því svipað og saklaus börn setja á sig ógnvekj- andi grímur á hrekkjavökunni fær sakleysisleg skákbyrjun ógnvænlegt yfirbragð með hinni óvæntu fórn. Þessi óvænta fórn hefur reyndar verið þekkt a.m.k. frá 1888 þegar Oscar nokkur Cordel getur um þennan möguleika í bókinni „Führer der Eröffnungstheorie“. Hann segir að hvítur fái í kjölfarið góða sókn- armöguleika, þótt vafasamt sé að þeir vegi upp mannsfórnina. Fjöldi þekktra byrjanafræðinga hefur fjallað um þennan möguleika síðan og undantekningalaust hafa þeir for- dæmt þessa fórn og talið að svartur fái auðunnið tafl. Þá kemur Netið til sögunnar. Árið 1996 fékk Vínarbú- inn og forritarinn Steffen Jakob áhuga á þessari byrjun. Steffen tók þekkt skákforrit, sem hægt er að nálgast á Netinu, og breytti því þannig að það tefldi þessa fórn við hvert tækifæri. Á árunum 1996–8 lét hann skákforrit sitt, sem hann nefndi Brause, tefla á ICC skákþjón- inum og safnaði þannig þúsundum skáka í þessu afbrigði, mörgum þeirra gegn sterkum stórmeisturum. Þekkingunni sem safnaðist upp í þessum skákum kom Steffen síðan skipulega á framfæri á vefsíðu sinni. Hafa verður í huga að allar skákirn- ar sem Brause tefldi voru hraðskák- ir, en engu að síður byggðist upp gríðarleg þekking á þessu afbrigði sem erfitt hefði verið að afla með öðrum hætti. Þegar fór að fréttast af góðum árangri Brause tóku önnur skákforrit og skákmenn á Netinu að beita þessu afbrigði og árangurinn var mun betri en búast mátti við í svo vafasömu afbrigði. Sigurður Daði Sigfússon hafði kynnt sér málið þeg- ar hann settist niður til að tefla gegn hinum reynda og sterka skákmanni Birni Þorsteinssyni í fimmtu umferð Meistaramóts Hellis. Hvítt: Sigurður Daði Sigfússon Svart: Björn Þorsteinsson 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Rc3 Rf6 Fjögurra riddara tafl. Einhver meinleysislegasta skákbyrjun sem hægt er að hugsa sér... eða hvað? 4. Rxe5?! Sjá stöðumynd 1 Sigurður Daði teflir og fylgist vel með á Netinu. Í samtali við hann kom fram að hann hafði viðað að sér um 6.000 skákum þar sem þessum leik er beitt. Það er ótrúlegur fjöldi skáka í byrjun sem varla hefur sést í kappskákmótum, en Netið hefur breytt mörgu varðandi skákina. Það má segja að þótt þessi möguleiki hafi verið þekktur í meira en 100 ár hafi samvinna skákmanna á Netinu breytt honum í stórhættulegt vopn, a.m.k. gegn þeim sem ekki fylgdust með þeim tilraunum sem þar fóru fram. Þetta er reyndar ekki fyrsta afbrigðið sem Netverjar taka þess- um tökum, þótt varla standist þessi fórn ströngustu skoðun. 4...Rxe5 5. d4 Rc6? Allt frá 1888 hefur verið mælt með því að hörfa frekar með riddarann til g6. Sigurður Daði hafði skoðað þessa byrjun ásamt félögum sínum kvöldið áður en hann tefldi þessa skák. Þeir höfðu hins vegar fyrst og fremst skoðað 5...Rg6 sem gerir hvítum mun erfiðara fyrir, t.d. 5...Rg6, t.d. 6.e5 Rg8 7.Bc4 d5!? 8.Bxd5 c6 9.Bb3 Be6 10.0–0 Bxb3 11.axb3 Dd7 12.Re4 a6 13.f4 Rh6 14.c3 0–0–0 o.s.frv. (Mes-Spoel, Hollenska meistaramót- ið í bréfskák 1992). 6. d5 Rb8 7. e5 Rg8 8. d6 Sjá stöðumynd 2 Þessi staða kom margoft upp í skákum Brause og Steffen Jakob kallaði þetta afbrigði „Aftur til upp- hafsins“, nafngift sem auðvelt er að skilja þegar litið er á svörtu stöðuna. Með 8. d6 lamar hvítur svörtu stöð- una. Þess má geta að vinningshlut- fall hvíts er yfir 90% í þessu afbrigði í þeim skákum sem tefldar hafa verið á Netinu. Það er erfitt að finna vörn fyrir svart, t.d. 12...Rf6 (12...b6? 13.Df3; 12...g6 13.0–0 Bg7 14.Bd4 Df4 15.Bxg7)13.0–0 Re4 14.He1 Kd8 15.Bd4 Df4 16.g3 Df5 17.Dd3 Bxd6 18. Hxe4 o.s.frv.) 8...cxd6 9. exd6 Df6 10. Rb5 Ra6 11. Bc4 De5+ 12. Be3 De4 13. De2! Hvíta staðan er einfaldlega unnin án þess að hvítur hafi leikið einn ein- asta leik frá eigin brjósti. 13...Rf6 Sjá stöðumynd 3 Allt er þetta þekkt úr skákum Brause. Hér hefur hvítur yfirleitt leikið 14. f3, en Sigurður Daði finnur enn sterkari leik. Þess má geta að þegar hér var komið sögu hafði hann einungis notað um eina mínútu af umhugsunartíma sínum. Eftir 13...b6 gæti fylgt 14.Rc3 Dxg2, t.d. 15.Bg5+ Be7 16.Bxe7 Dxh1+ 17.Kd2 Dxa1 18.Df3 Rf6 19.Dxa8 o.s.frv. 14. O-O-O! Kd8 Svartur hefur ekki tíma fyrir 14...g6 15.Hhe1 Bg7 16.Bxa7 0–0 (16...Dxe2 17.Hxe2+ Kf8 18.He7 Kg8 19.Hxf7 h5 20.Bd4, ásamt 21. He1) 17.Dxe4 Rxe4 18.Hxe4 Rb4 19.Hde1 og hvítur á unnið tafl. 15. Rxa7 Allar leiðir liggja til Rómar. Annar góður möguleiki var 15. Hhe1 með óviðráðanlegum hótunum. Hxa7 16. Bb6+ Ke8 17. Hhe1 Bxd6 18. Df3 Dxe1 19. Hxe1+ Kf8 20. Bxa7 og svartur gafst upp. Tomas Oral sigr- aði á Símamótinu SKÁK Ráðhús Reykjavíkur MINNINGARMÓTIÐ UM DAN HANSSON 4.–6. mars 2002 Daði Örn Jónsson Bragi Kristjánsson Stöðumynd 1 Stöðumynd 3 Stöðumynd 2 Bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði Glæsibæ mánud. 25. febrúar. 20 pör. Meðalskor 216 stig. Júlíus Guðmundss. – Rafn Kristjánss. 274 Sæmundur Björnss. – Olíver Kristóferss.274 Þorsteinn Laufdal – Magnús Halldórss. 242 Árangur A–V: Kristján Ólafss. – Ólafur Gíslas. 278 Magnús Oddss. – Friðrik Hermannss. 247 Ingibjörg Stefánsd. – Jóhann Lútherss. 229 Tvímenningskeppni spiluð fimmtudaginn 28. febrúar, 20 pör. Meðalskor 216 stig. Árangur N–S: Eysteinn Einarss. – Kristján Ólafss. 271 Sæmundur Björnss. – Olíver Kristófers. 259 Lárus Arnórss. – Ásthildur Sigurgíslad. 251 Árangur A–V: Júlíus Guðmundss. – Rafn Kristjánss. 262 Albert Þorsteins. – Bragi Björnsson 253 Lárus Arnórss. – Ásthildur Sigurgíslad. 251 Árangur A–V: Júlíus Guðmunds. – Rafn Kristjánsson 262 Albert Þorsteinss. – Bragi Björnsson 253 Ingibjörg Stefánsd. – Þorsteinn Davíðss. 243 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Spilakvöld Bridsskólans og BSÍ Mánudaginn 4. mars var spilaður tvímenningur. Úrslit urðu þessi: Margrét Þórisd. – Gunnhildur Sigurðard. 35 Eiríkur Eiðsson – Þórir Jóhannsson 34 Magnús Björnsson – Jónas Ágústsson 32 Ólöf Vilhjámsd. – Anna B. Stefánsd. 31 Spilað er öll mánudagskvöld í Síðumúla 37, 3. hæð. Allir velkomnir. Bridsfélag Hreyfils Lokið er tveimur kvöldum í Butl- ernum og er staða efstu para þessi: Óskar Sigurðss. - Sigurður Steingrímss. 87 Rúnar Gunnarss. - Guðm Gunnarss. 76 Ásgr. Aðalsteinss. - Sveinbj. Kristmundss.71 Eiður Gunnlaugss. - Jón Ingþórss. 68 Gísli Tryggvason - Heimir Tryggvason 67 Það taka 24 pör þátt í keppninni Spilað er á mánudagskvöldum í Hreyfilshúsinu. Toppskor hjá Skúla og Stefáni í góumóti BA Tveimur kvöldum af þremur er lokið í „Nafnlausa mótinu“ – góutví- menningi Bridsfélags Akureyrar. Stefán Stefánsson – Skúli Skúlason tóku mikinn kipp síðasta spilakvöld og náðu ríflega 70% skori. Það tryggði þeim toppsætið en staða efstu para er eftirfarandi: Skúli – Stefán 526 Grettir Frímannss. – Hörður Blöndal 484 Reynir Helgason – Örlygur Örlygsson 476 Gylfi Pálsson – Helgi Steinsson 471 Sveinn Pálss. – Jónas Róbertsson 469 LIBERA 20 mjaðmasokkabuxur með glærum tám. Þegar mikið stendur til. Kynning í dag kl. 13-17 í Lyf og heilsu, Háteigsvegi. 20% afsláttur af öllum sokkabuxum. sokkar, sokkabuxur, undirföt oroblu@islensk-erlenda.is Háteigsvegi Álfilma sem innsiglar dósina og tryggir jafnari gæði og betri endingu. Plastlok sem heldur dósinni þéttlokaðri eftir að innsiglið hefur verið rofið. Ný og betri lok á Kotasælu!Nýju tvöföldu lokin á Kotasælunni tryggja jafnari gæði og betri endingu vörunnar. Prófaðu Kotasælu í nýjum og þægilegri umbúðum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.