Morgunblaðið - 08.03.2002, Page 46

Morgunblaðið - 08.03.2002, Page 46
MINNINGAR 46 FÖSTUDAGUR 8. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ langa og viðburðaríka ævi. Það voru forréttindi að eiga samfylgd og vin- áttu hans um áratuga skeið og fyrir það stöndum við í þakkarskuld. Við vottum fjölskyldu Úlfars Þórð- arsonar samúð og hluttekningu. F.h. Íþróttabandalags Reykjavík- ur, Sigurgeir Guðmannsson. Nú er viðveru Úlfars Þórðarsonar augnlæknis lokið á meðal okkar, hans langi vinnudagur er á enda. Úlfari á ég margt að þakka í lífinu. Ég var svo heppinn að hann var enn að störfum á læknastofu sinni seint á gamlársdag fyrir 41 ári er ég átta ára gamall varð fyrir alvarlegu augn- slysi. Á sjúkrabörum kom ég á augn- læknastofuna hans í Lækjargötu rétt áður en hátíð gekk í garð. Þrátt fyrir þennan tíma var biðstofa hans þétt- setin. Fyrst heyrði ég styrka og þægilega rödd, síðan birtist mér and- lit hans er hann tók til við að með- höndla mig. Þetta atvik er mér enn í dag í fersku minni. Á þessari stundu tókst með okkur Úlfari órjúfandi vin- átta og seinna samstarf sem ég fæ seint fullþakkað. Við áttum margar ferðirnar saman út á land vegna starfa okkar og störf- uðum saman í Reykjavík, Keflavík og á Keflavíkurflugvelli. Síðustu starfs- árin hafði hann augnlæknastofu sína á sameiginlegum vinnustað okkar í Mjódd. Úlfar hvatti mig í áformum mínum og var mér góður ráðgjafi og læknir. Er ég, fyrir tuttugu árum, leitaði álits hans varðandi verslunar- rekstur svaraði hann með þeim orð- um að ,,ef járnið væri heitt gæti borgað sig að hamra það“. Hann gaf mér mörg heilræðin og eru þau mér sem lífsspeki og hvati í erli dagsins. Á því að vinna með Úlfari lærði mað- ur margt því hann fór ótroðnar slóðir við vinnu sína og kom svo miklu í verk að aðdáun og undrum sætti. Hann gerði sjálfur sem minnst úr af- rekum sínum. Úlfar var að mínu mati alltaf réttsýnn og fljótur að átta sig á því hvað skipti máli er vandi steðjaði að. Hjá honum lærði ég þá einföldu lífsins staðreynd að sé maður nógu duglegur og vinnusamur þurfi maður ekki að biðja nokkurn mann afsök- unar á árangri sínum. Hann var oft umdeildur en það var þá vegna af- kasta sinna. Frásögn Úlfars, hvort sem var af viðureign fótboltaliða, tennis, fugla- skoðunarferðum eða glímu við að opna bílinn sinn eftir að lyklarnir höfðu gleymst í svissinum, var skemmtun ein á að hlýða, slíkur var frásagnarháttur hans. Stundirnar sem við áttum saman við vinnu okkar eru með þeim skemmtilegustu sem ég minnist úr starfi mínu. Úlfar var ekki maður sem taldi aurana sína í lok vinnu- dags. Hann var dáður af sjúklingum sínum enda hafði hann í ríkum mæli það sem ég kalla „sjúklingasjarma“ og aðeins læknar af Guðs náð hafa. Úlfar var einn merkasti maður sem ég hef kynnst á lífsleiðinni og einn minn besti vinur. Fram til síðasta dags var hann fullur af lífskrafti og með skýra hugsun, það voru bara af- mælisdagarnir sem minntu mann á að senn kæmi að því að vinnudegi hans lyki. Með þessum fáu orðum minnist ég vinar míns sem mér þótti svo vænt um og votta börnum hans og fjöl- skyldu mína dýpstu samúð. Kjartan Kristjánsson. Kveðja frá Knattspyrnufélaginu Val Úlfar Þórðarson, heiðursfélagi í Knattspyrnufélaginu Val, er látinn 90 ára að aldri. Andlát hans bar brátt að og Valsmönnum og mörgum Reykvíkingum var brugðið í síðustu viku, þegar þeir sáu fána blakta í hálfa stöng að Hlíðarenda og fréttin um lát Úlfars spurðist út. Frá því Úlfar kom að félaginu árið 1946 hafa tengsl hans við félagið aldrei rofnað. Valsmenn vita að félagið var honum alla tíð ákaflega kært. Ég veit það líka að Valsmönnum var Úlfar ákaf- lega kær og þeir báru alla tíð mikla virðingu fyrir honum og hans störf- um fyrir félagið. Í mjög fróðlegum kafla í ævisögu Úlfars, sem kom út á síðasta ári, lýsir hann vel upphafsárum sínum í starfi fyrir Val og með Valsmönnum. Þar kemur fram að leitað var til hans sem utanaðkomandi manns vegna þess að óeining hafði komið upp innan félags- ins og ekki náðist samstaða um for- mann. Það var mikið happ fyrir fé- lagið að hann féllst á að koma til starfa. Undir hans stjórn og forystu var ráðist í að nýta svæðið að Hlíð- arenda sem félagið hafði fest kaup á árið 1939 en stríðið hafði komið í veg fyrir notkun þess. Að mörgu var að hyggja, en ákveðið var að ráðast fyrst í gerð malarvallar fyrir æfingar og keppni. Sá völlur var vígður árið 1949 og í eigu Vals er mynd sem sýn- ir þá saman, Úlfar stoltan formann félagsins og séra Friðrik Friðriksson taka fyrstu spyrnuna á vellinum á vígsludaginn. Síðan rak hver framkvæmdin aðra og þegar Úlfar hætti sem formaður félagsins, tók hann að sér að vera for- maður í framkvæmdanefnd um upp- byggingu á svæði Vals. Þar fór hann mikinn eins og áður og á nokkrum árum var reist fyrsta íþróttahús fé- lagsins. Það stendur enn og er notað frá morgni til kvölds af ungum sem eldri Valsmönnum. Með sínum mikla eldmóði og áhuga hreif Úlfar marga Valsmenn til dáða og fyllti þá bjart- sýni og krafti til að takast á við verk- efni, sem enginn hafði látið sér detta í hug áður. Fyrir alla sem koma að félagsmál- um í íþróttahreyfingunni er það holl lesning að kynnast þeim viðhorfum og vinnubrögðum sem Úlfar viðhafði í starfi sínu fyrir Val og íþróttahreyf- inguna alla tíð. Starfi hans fyrir fyrir Val lauk aldrei. Hann var vakandi og sofandi yfir aðstæðum að Hlíðar- enda, gróðursetti tré við knatt- spyrnuvellina og flutti þau síðar til, ef á þurfti að halda og svo mætti lengi telja. Til viðbótar störfum sín- um fyrir Val var hann síðan um margra ára skeið formaður Íþrótta- bandalags Reykjavíkur. Árið 1981 var Úlfar Þórðarson kjörinn heiðursfélagi Knattspyrnu- félagsins Vals. Hann mætti á kapp- leiki alla tíð og sótti fundi fulltrúa- ráðs félagsins vel. Í maí á síðasta ári tók hann virkan þátt í hátíðarhöldum á níutíu ára afmæli Vals og klippti á borðann þegar ný skrifstofuaðstaða félagsins var vígð og mætti síðan til allra atriða afmælisdagsins. Það var Valsmönnum mikið ánægjuefni að geta tekið þátt í að halda upp á níutíu ára afmæli hans sjálfs að Hlíðarenda, í ágúst síðast- liðnum. Við það tækifæri færði fjöl- skylda hans Val brjóstmynd af Úlfari sem komið hefur verið fyrir í húsa- kynnum félagsins. Valmenn kveðja látinn foringja og fyrir hönd þeirra flyt ég börnum hans og öðrum ættingjum innilegar samúðarkveðjur. Minningu Úlfars Þórðarsonar mun verða haldið á lofti á Hlíðarenda. Reynir Vignir. Í dag kveðjum við einn af stofn- félögum Flugbjörgunarsveitarinnar, Úlfar Þórðarson lækni, hinstu kveðju. Fyrir rúmum 50 árum stóð hann, ásamt hópi annarra flugáhuga- manna, fyrir stofnun björgunarsveit- ar sem sérhæfði sig í leitum að týnd- um flugvélum og björgun manna úr flugslysum. Úlfar hvatti til þjálfunar sveitarmanna í hjálp í viðlögum og að hópurinn væri fær um að veita full- komna aðstoð á slysstað. Stóð hann fyrir námskeiðum, ásamt Hauki Kristjánssyni lækni, fljótlega eftir stofnun sveitarinnar. Var hann síðan óþreytandi við þjálfun félaganna, þrátt fyrir mikið og vaxandi annríki. Úlfar var læknir Flugbjörgunar- sveitarinnar í fjölda ára og sýndi henni mikla tryggð og ræktarsemi. Þótti okkur sérstaklega vænt um að sjá hann á haustfundinum, síðastliðið haust, þá níræðan. Flugbjörgunarsveitin kveður þennan trausta félaga og þakkar honum fyrir samfylgdina og það veganesti sem hann gaf okkur. Fjölskyldu Úlfars sendum við okk- ar innilegustu samúðarkveðjur. Félagarnir í Flugbjörgunar- sveitinni í Reykjavík. Fyrir hönd Augnlæknafélags Ís- lands vil ég með nokkrum orðum minnast Úlfars Þórðarsonar augn- læknis. Hann er nú látinn níræður að aldri. Úlfar varð stúdent frá MR 1930 og cand. med. frá Háskóla Ís- lands 1936. Augnlækningar nam hann við Háskólasjúkrahúsið í Berlín og Ríkisspítalann í Kaupmannahöfn og fékk sérfræðileyfi í augnlækning- um 1940. Áratugum saman sinnti Úlfar læknisverkum, bæði í Reykja- vík og víðar, því þær voru ófáar augnlæknaferðirnar út á land. Úlfar hóf störf á Landakotsspítala 1942 og starfaði samfleytt þar við augnlækningar til 1981 eða tæp fjörutíu ár. Hann starfaði einnig á augnlæknastofu sinni í Reykjavík í um sextíu ár og var stundum unnið þar langt fram á kvöld. Starfsorka hans var með ólíkindum. Það er erfitt fyrir okkur sem störfum við augn- lækningar í dag að gera okkur í hug- arlund þær starfsaðstæður sem voru fyrir hendi áður fyrr, því hin síðari ár hefur tækninni fleygt fram og auð- veldað okkur starfið jafnframt sem það hefur átt sér stað aukin sérhæf- ing og augnlæknum fjölgað. Það er því ljóst að á árum áður þurftu menn oft að vinna við erfiðar aðstæður og ekki síst að hafa mjög víðtæka þekk- ingu. Úlfar var óvenju afkastamikill í sínu starfi og ekki síður óvenju far- sæll læknir. Auk þess að sinna augn- lækningum var Úlfar trúnaðarlækn- ir Flugmálastjórnar 1962–1997 auk fjölda annarra starfa. Hann var for- maður byggingarnefndar Borgar- spítalans 1973–1978 og sat í ótal nefndum og stjórnum tengdum heil- brigðismálum borgarinnar. Úlfar stofnaði rannsóknarsjóð við Borgar- spítalann til minningar um foreldra sína og son sinn Þórð. Sjóður þessi hefur styrkt rannsóknir í læknis- fræði við spítalann um árabil og gerir enn. Fyrir okkur augnlækna gegndi Úlfar mörgum trúnaðarstörfum, var í ritstjórn tímarits norrænna augn- lækna í tuttugu ár, skipulagði nor- ræn augnlæknaþing og sat í ýmsum stjórnum. Við minnumst Úlfars með virðingu og þakklæti og erum hreykin af því að hafa átt slíkan kollega. Við send- um aðstandendum öllum innilegar samúðarkveðjur. Fyrir hönd Augnlæknafélags Ís- lands, Elínborg Guðmundsdóttir, formaður. Með Úlfari Þórðarsyni er fallinn í valinn einn merkasti íþróttafrömuð- ur síðustu aldar. Hann var allt í senn leiðtogi, frumkvöðull og eldhugi. Og þó fyrst og fremst mannvinur. Úlfar klifraði ekki upp mannvirðingarstig- ann vegna hégóma eða framgirni. Framhleypni var ekki hans stíll. Hann valdist til forystu vegna eigin verka, einlægs áhuga, mannkosta og fágætrar atorku. Eins og hann átti kyn til. Það áttu og eiga þeir sam- merkt, bræðurnir frá Kleppi, að geisla af lífsorku og lífsstíl, sem smit- aði út frá sér, gefandi, fagnandi, örv- andi. Úlfar stundaði íþróttir á yngri ár- um, einkum sund og sundknattleik og sem slíkur keppti hann fyrir hönd Íslands á Olympíuleikunum í Berlin árið 1936. Lengi lék hann sér í bad- minton með jafnöldrum sínum og var jafnan léttur á fæti og góður til heilsu. Hans vettvangur var þó lengst af innan Knattspyrnufélags- ins Vals og Valsmenn voru öfunds- verðir af þessum forystumanni sín- um, sem gerði félagið aftur að því geðþekka og mannbætandi athvarfi að Hlíðarenda, sem Valsmenn geta verið stoltir af. Úlfar og hans kynslóð sköpuðu þetta andrúmsloft, undir kjörorðinu: Valsmenn, Valsmenn, léttir í lund. Sú ljúfmennska stendur vel fyrir sínu enn þann dag í dag. En Valsmenn áttu hann ekki alveg einir út af fyrir sig. Úlfar var lengi formaður Íþróttabandalags Reykja- víkur og auðvitað var hann vinsæl- asti augnlæknirinn og vinsælasti borgarfulltrúinn og ráðhollur vel- unnari allra þeirra sem nálægt íþróttum og íþróttstarfi komu. Sjálf- ur átti ég vinskap Úlfars og liðveislu vísa um langan aldur og allt voru það skemmtilegar stundir og gefandi. Úlfar Þórðarson var þjóðsagna- persóna og flestar voru þær sögur sprottnar af tengslum hans við Val og völlinn og þær bera flestar vitni um kraftinn og glensið í persónuleika hans og lífi. Hann var engum líkur, hann Úlfar. Blessuð sé minning hans. Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ. Úlfar Þórðarson var löngu orðinn þjóðsagnapersóna er leiðir okkar lágu saman. Kvöld eitt fyrir hartnær tveimur áratugum hringdi Úlfar í mig og sagði snöggur á lagið: „Það er fundur í kvöld.“ Ég varð eitt spurn- ingarmerki og tuggði upp eftir hon- um: „Fundur í kvöld?“ „Já stjórnar- fundur í kvöld,“ sagði hann. „Í hvaða félagi?“ spurði ég alveg forviða. „Í Alexander von Humboldt-félaginu.“ „Ég veit nú ekki til þess að ég sé þar í stjórn.“ „Þá tilkynni ég þér það hér með og fundurinn verður hjá þér klukkan hálfníu.“ „Hjá mér klukkan hálfníu?“ Jájá, sagði Úlfar, en auðvit- að var hann að boða til fundar á sínu heimili. Hann átti það til að vera dá- lítið stríðinn, en alltaf var það vel meint. Meðan Úlfar var formaður hélt hann alla stjórnarfundi á heimili þeirra Unnar. Þangað var gott að koma, mikið menningarheimili. Því er ekki að neita að ég var dálítið kvíð- inn að fara að vinna með Úlfari, vegna aldursmunarins, en annað kom á daginn. Ekkert kynslóðabil, enda var Úlfar síungur á líkama og sál. Þarna hófst samstarf og vinátta millum okkar sem aldrei hefur borið skugga á. Það var virkilega gaman að starfa með Úlfari. Hann var svo mikill eld- hugi, stórhuga og víðsýnn, að hann kom hlutum til leiðar, sem hefði ekki hvarflað að nokkrum manni að myndu nást fram. Hann sá aldrei ljón eða birni á veginum. Fyrir störf sín við að efla menningar- og vísinda- leg tengsl Íslands og Þýskalands var Úlfar sæmdur þýskum riddarakrossi og var vel að þeim heiðri kominn. Úlfar lét sér afar annt um Humboldt- félagið, ekki aðeins árin sem hann var formaður, heldur alla tíð. Hvort sem um var að ræða almenna fé- lagsfundi, skógræktarferðir í Heið- mörk eða Þýskalandsferðir félagsins var hann með og alltaf var hann hrókur alls fagnaðar. Óþrjótandi sagnabrunnur, enda víðlesinn og allt- af var stutt í húmorinn. Var þá stundum vitnað í góða dátann Svejk. Þegar Úlfar var gerður að heið- ursfélaga í Humboldt-félaginu sagði hann að gerð hefðu verið mistök. Það hefði átt að útnefna þrjá heiðurs- félaga. Þannig var Úlfar Þórðarson. Mér finnst það viss forréttindi að hafa átt þess kost að kynnast og starfa með jafnmiklum ágætismanni og Úlfari. Við Humboldt-félagarnir munum sakna hans. Við Helga send- um börnum hans, Ellen, Sveini og Unni, og öðrum aðstandendum inni- legar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning hans. Sigfús A. Schopka. Úlfar Þórðarson var einn þeirra, sem ruddu brautina á sviði íslenskra flugmála. Hans hlutverk var að leggja grunninn að fluglækningum hér á landi, sem er ein af forsend- unum allrar nútíma flugstarfsemi. En hann var ekki aðeins afburða vel að sér um alla þætti fluglækninga heldur hafði hann á langri ævi aflað sér mikillar þekkingar á flestum mál- efnum flugsins. Áhugi Úlfars á flugi vaknaði þegar á æskuárunum, eins og algengt var hjá ungum mönnum á þriðja og fjórða áratug síðustu aldar, þegar flugsamgöngur voru að hefjast um allan heim. Rekstur Flugfélags Íslands á árunum frá 1928–31 hefur vafalaust átt sinn þátt í því að ýta undir þennan áhuga. Úlfar gerði hins vegar meira en flestir aðrir, því hann hélt til flugnáms í Englandi árið 1932 upp á eigin spýtur. Hefur það verið mikil bjartsýni á þeim tíma, árið sem Flugfélag Íslands lagði upp laupana, heimskreppa skollin á og ekki útséð um hvert framhaldið yrði á flugi hér á landi. Svo fór, að Úlfar sneri sér að lækn- isfræðinni, þótt tengsl hans við flug- málin rofnuðu aldrei. Varð það til mikilla heilla fyrir íslensk flugmál, því hann átti eftir að verða trúnaðar- læknir Flugmálastjórnar um nær fjögurra áratuga skeið. Sá kafli í lífi hans hófst árið 1958, þegar Agnar Kofoed-Hansen flugmálastjóri fékk Úlfar til að fara til sex mánaða dvalar í Bandaríkjunum til að leggja stund á fluglækningar. Sú þjálfun átti eftir að reynast íslenskum flugmönnum og þar með íslenskum flugmálum notadrjúg, ekki aðeins við beint eft- irlit hans með heilsufari flugmanna, heldur einnig vegna þeirrar þekking- ar, sem hann miðlaði til annarra lækna, sem komu til liðs við hann á vettvangi fluglækninga. Verða þessi störf hans í þágu íslenskra flugmála seint fullþökkuð. Starfsmenn Flugmálastjórnar eiga Úlfari einnig margt að þakka. Hann var ætíð reiðubúinn til aðstoð- ar ef eitthvað bjátaði á um heilsufarið auk þess að vera skemmtilegur og góður félagi á góðri stund. Hann kunni ógrynni af sögum um menn og málefni, sem var jafnan skemmtilegt að hlusta á, enda bjó Úlfar yfir ein- stakri kímni- og frásagnargáfu. Það sem mönnum verður þó minnisstæð- ast er hversu mikla umhyggju hann bar fyrir velferð flugmanna jafnt og starfsmanna Flugmálastjórnar. Um langt árabil stóð hann t.d. fyrir því að starfsmenn stofnunarinnar væru bólusettir fyrir inflúensu og er það hefð, sem enn er í heiðri höfð. Hann sýndi ræktarsemi sína í verki með að koma reglulega við á starfsstöðvum stofnunarinnar fram á það síðasta og fylgjast með því sem þar var að ger- ast. Aldrei staldraði hann þó lengi við því hann hafði ætíð mörgum hnöpp- um að hneppa og var ekki líklegur til að tefja menn frá störfum sínum. Því er ljóst að Úlfars verður saknað sem góðs vinar og minnisstæðs einstak- lings, sem bar umhyggju fyrir sam- ferðamönnum sínum og gaf lífinu lit. Fyrir hönd Flugmálastjórnar og starfsmanna hennar vil ég að leið- arlokum þakka Úlfari fyrir framlag hans til stofnunarinnar og íslenskra flugmála og sendi fjölskyldu hans samúðarkveðjur. Þorgeir Pálsson, flugmálastjóri. Úlfar Þórðarson læknir og fyrr- verandi formaður Íþróttabandalags Reykjavíkur er látinn á nítugasta og fyrsta aldursári. Með Úlfari er geng- inn einstakur maður sem verður öll- um þeim sem störfuðu með honum og kynntust sérstaklega eftirminn- anlegur. Fyrir nær þrjátíu árum þegar ég tók sæti í stjórn Íþrótta- bandalagsins kynntist ég Úlfari vel og átti í allmörg ár eftir að eiga mikið og gott samstarf við hann bæði að íþróttamálum og síðar að nokkru leyti að borgarmálum. Úlfar var for- maður ÍBR í sautján ár, lengur en nokkur annar, en hafði áður bæði verið formaður Sundfélagsins Ægis og Knattspyrnufélagsins Vals. Þá sat hann í nokkur ár í stjórn Sundsam- bands Íslands. Ég hygg að það hafi liðið hálf öld frá því að hann fyrst tók við stjórnunarstörfum hjá íþrótta- hreyfingunni í Reykjavík þar til að hann hætti sem formaður ÍBR 1984. Það er því mikið og tímafrekt starf sem Úlfar vann fyrir íþróttalífið í borginni og fáir geta státað af jafn miklum árangri og Úlfar í þessum efnum enda maðurinn óvenju hug- myndaríkur og framsýnn. Ekki verð- ur það allt tíundað hér, en það veit ég að bæði Valsmenn og Ægismenn munu nú minnast forustumanns sem með öðrum lagði grunninn að því sem félögin eru í dag. Það sama má segja um Íþróttabandalagið. Við sem störfuðum með honum þar fundum hvað þekking og reynsla skipti miklu máli, svo ekki sé talað um það traust sem forustumenn Reykjavíkurborg- ar báru til hans og skipti þá ekki máli hvort um var að ræða stjórnmála- eða embættismenn. Það traust skipti ÚLFAR ÞÓRÐARSON

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.