Morgunblaðið - 05.11.2002, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.11.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Netsalan ehf. Garðatorgi 3, 210 Garðabæ Sími 565 6241, fax 5 444 211, netf.: netsalan@itn.is Opið mán.–fös. kl. 10.00–18.00, lau. 10.00–12.00. OVERLAND og LIMITED 2003 ÁRG. ER KOMIN JEEP GRAND CHEROKEE NETSALAN „ÞAÐ hefði mátt búast við því að ég næði 21. sæti, en ég náði því sjöunda,“ segir Ingvar Ás- mundsson skák- maður sem lauk keppni um helgina á heimsmeist- aramóti öldunga í skák í Naumburg í Þýskalandi. Fyrir mótið var Ingvar í 21. sæti miðað við ELO skák- stigafjölda og mið- aði væntingar sínar á mótinu við það. Þegar taflið hófst kom annað á dag- inn. Ingvar náði átta vinningum og tap- aði aðeins einni skák, þeirri sem hann tefldi við sig- urvegara mótsins, Josef Petkevitch, sem hlaut 8½ vinn- ing. Tefldar voru ellefu umferðir og náði spennan há- marki í 9. og 10. umferð. „Í níundu umferð tefldi ég við Rússann Kar- asov, sem var talinn einna sig- urstranglegastur á mótinu. Skákin varð 99 leikir og ég vann hana að lokum þótt ég hefði á tímabili aðeins lakara tafl og berðist fyrir jafn- tefli.“ Í tíundu umferð lenti Ingvar á móti Rússanum Timanov og háði harða baráttu. „Hann fékk betra tafl í byrjun en þegar ég hafði náð þokkalegri stöðu, lék ég illa af mér og lenti í mjög erfiðri vörn sem stóð í 50 leiki, áður en skákinni lauk með jafntefli.“ Þetta er í annað sinn sem Ingvar teflir á heimsmeistaramóti öldunga, en hann keppti á mótinu árið 1996 en náði þó ekki eins góðum ár- angri og nú. 255 þátttakendur kepptu að þessu sinni á mótinu, sem er gríð- armikil fjölgun frá 1996. Ingvar er FIDE- meistari og hef- ur teflt á þrem- ur mótum í röð á rúmum mán- uði, fyrst í Grikklandi í Evrópumeist- aramóti fé- lagsliða með skáksveit Hellis. Þaðan fór hann til Ítal- íu á Evr- ópumeist- aramót öldunga og nú síðast tefldi hann í Þýskalandi á heimsmeist- aramótinu. Ingvar greind- ist með krabba- mein í munni og kjálka snemma árs 2000 og varð að láta af störfum sem skólameistari Iðnskólans í Reykjavík vegna veikindanna. „Ég var settur strax í geislameðferð og því næst í skurðaðgerð þar sem skorið var úr kjálkabeininu og sett framhandleggsbein í staðinn. Það gekk vel og ég náði mér ágætlega og tel mig vera búinn að ná góðri heilsu á ný,“ segir Ingvar. En hvað er framundan í skákinni? „Mér finnst rosalega gaman að tefla og nú hef ég nógan tíma til þess. Ef ég fæ áhugaverð tækifæri til að taka þátt í mótum, þá mun ég taka þeim, en það verður bara að koma í ljós.“ Ingvar Ásmundsson að jafna sig eftir alvarleg veikindi Náði sjöunda sæti á HM öldunga Morgunblaðið/Kristinn Ingvar Ásmundsson: „Hef nógan tíma til að tefla.“  Með AM-áfanga/49 DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra, sagði í fyrirspurnartíma á Alþingi í gær, að það kynni að vera umhugs- unarefni fyrir bankana að huga að breytingum á verðtryggðum vöxt- um; ekki bara útlánsvöxtum heldur einnig innlánsvöxtum, sem væru töluvert hærri hér á landi en víðast hvar annars staðar. Þetta kom m.a. fram í svari ráð- herra við fyrirspurn Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstrihreyf- ingarinnar – græns framboðs, á Al- þingi í gær, um vaxtaþróun í landinu í kjölfar þess að Seðlabankinn hefði lækkað stýrivexti sína um samtals 4,5% á síðustu 18 mánuðum. Steingrímur sagði að þegar athug- að væri hvernig markaðurinn hefði brugðist við fyrrgreindum lækkun- um Seðlabankans kæmi í ljós að vextir á óverðtryggðum lánum hefðu fylgt lækkununum nokkuð vel, sömuleiðis vextir á verðtryggðum lánum á almennum markaði, en ekki í bankakerfinu. „Sú merkilega staðreynd blasir við að vextir á verðtryggðum lánum í bankakerfinu hafa nánast ekkert lækkað,“ sagði Steingrímur. Hann sagði að sú staðreynd vekti upp margar spurningar um stöðu banka- kerfisins og ennfremur um það hvort samkeppnin væri nægjanlega virk. Forsætisráðherra í fyrirspurnartíma á Alþingi Bankar hugi að vaxtabreytingum  Landsbankinn telur/14 „ÞAÐ var tekið mjög vel á móti mér, alls staðar nema einu sinni. Það var kona sem sagðist ekkert vilja með kirkjuna hafa og skellti á mig,“ sagði Erla Rut Káradóttir sem var eitt þeirra 2.500 ferming- arbarna sem gengu í hús víða á landinu í gær til að safna peningum fyrir Hjálparstarf kirkjunnar í Afr- íku. Erla Rut tilheyrir Grensássókn og gekk í hús í Efstaleiti, en um 40 fermingarbörn úr Grensássókn voru í söfnunarstarfinu í gær- kvöldi. Þeirra á meðal var Erna Hrund Hermannsdóttir. „Það gekk mjög vel að safna. Við fórum í Hvassaleitið og fengum 500 til 1.000 krónur frá hverjum.“ Hún sagði fólk sums staðar hafa verið sér meðvitandi um þörfina á fé til bágstaddra í Afríku, þá einkum hina eldri. Þetta er í fjórða sinn sem íslensk fermingarbörn safna fyrir Hjálp- arstarf kirkjunnar, en prestar fræða börnin um erfiðleika sem jafnaldrar þeirra eiga við að etja í fátækum löndum Afríku, s.s. vatns- skort, fáa möguleika til menntunar og lélega heilsugæslu. Gylfi Þór Sigurðsson úr Grens- ássókn safnaði fé úr tveimur hverf- um í gærkvöldi og kom með þungan bauk til baka eins og margir félaga hans, sem fóru heldur ekki varhluta af húðarrigningu í höfuðborginni í gær. „Það var misjafnt hvernig fólk tók á móti okkur, sumir vildu ekk- ert með okkur hafa og skelltu á okkur,“ sagði hann. „En við fengum 500 til 1.000 krónur frá öðrum.“ Hjalti Ásgeirsson, félagi Gylfa, hafði svipaða sögu að segja, en fannst söfnunin samt mjög skemmtileg. Morgunblaðið/Kristinn Söfnunarbaukarnir sigu vel í en það veit á gott. Þau ættu að vita allt um það, fermingarbörnin úr Grensássókn, sem söfnuðu fé handa jafnöldrum sínum í Afríku. „Gekk mjög vel að safna“ FÉLAG í eigu hjónanna Ruthar S. Gylfadóttur og Kolbeins Kristins- sonar, forstjóra Myllunnar-Brauðs hf., hefur gert samning um kaup á 68,73% hlutafjár í félaginu. Eignar- hlutur félagsins eftir kaupin er um 80% af útgefnu hlutafé. Kolbeinn segir að félagið sé að kaupa hlut sem var í eigu fjölskyldu hans. Jafnframt verði leitað eftir samningum við aðra eigendur um kaup á hlutafé þeirra. Samningurinn sé gerður með fyrirvara um að sam- komulag náist um þau kaup. „Þetta eru tímamót í fjölskyld- unni,“ segir Kolbeinn. „Ég hef starf- að hjá fyrirtækinu í 25 ár og var orð- inn sá eini úr fjölskyldunni sem var hjá fyrirtækinu. Þetta eru því eðli- lega tímamót.“ Kolbeinn segir að rekstrinum verði haldið áfram eins og verið hef- ur. Engar breytingar séu fyrirhug- aðar. Stofnun Myllunnar-Brauðs hf. má rekja til ársins 1959, þegar hjónin Kristinn Albertsson og Dýrleif Jóns- dóttir stofnuðu Bakaríið Álfheimum 6 í Reykjavík. Þau stofnuðu svo Brauð hf. ásamt fleirum árið 1963. Fyrirtækið hefur um árabil verið stærsta heildsölubakarí landsins, auk þess sem það á ráðandi hlut í heildsölubakaríi í Bandaríkjunum. Íslandsbanki veitti ráðgjöf við kaupin og annast fjármögnun. Gengið frá kaupum á meiri- hluta í Myllunni-Brauði hf. FYRSTI vinningur í lottóinu á laugardag er sexfaldur og stefnir vinningsupphæðin í 50 milljónir króna, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Íslenskri getspá. Þá stefnir fyrsti vinningurinn í Víkinga- lottóinu, sem er tvöfaldur að þessu sinni, í 250 milljónir króna. Í fréttatilkynningu segir að sú staða komi ekki oft upp að vinningar í báðum leikjum séu margfaldir. Margfaldir lottóvinningar ÍSLENSKU skákliðin á ólymp- íuskákmótinu í Slóveníu töpuðu bæði viðureignum sínum í gær. Í opnum flokki töpuðu Íslend- ingar fyrir Ítölum, 2½:1½, og kvennaliðið tapaði 2:1 fyrir Skotum. Karlaliðið er í 50.–59. sæti með 19 vinninga og kvennaliðið er 56.–62. sæti. Tap gegn Ítöl- um og Skotum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.