Morgunblaðið - 05.11.2002, Blaðsíða 50
DAGBÓK
50 ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Goða-
foss og Arnarfell koma í
dag.
Hafnarfjarðarhöfn: Brú-
arfoss kom til Straums-
víkur í gær. Bremon fór í
gær.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Hamraborg
20a. Fataúthlutun þriðju-
daga kl. 17–18.
Mannamót
Aflagrandi 40. Sam-
söngur kl. 14, stjórnandi
Kári Friðriksson. Versl-
unarferð í Hagkaup á
morgun kl. 10. Skráning
s. 562 2571.
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta og opin
handavinnustofa, kl. 9–
12.30 bókband og öskju-
gerð, kl. 9.30 dans, kl.
9.30–10.30 Íslandsbanki
á staðnum, kl. 13–16.30
opnar handavinnu og
smíðastofur, kl. 10–16
pútt.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
13 hárgreiðsla, kl. 8.30–
14.30 böðun, kl. 9–9.45
leikfimi, kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 9–17 fótaað-
gerð, kl. 10–11.30 sund,
kl. 13–16 leirlist, kl. 14–
15 dans.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið er
opið mánu- og fimmtu-
daga.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9–14 aðstoð við
böðun, kl. 9–16.45 hár-
greiðslustofan opin, kl.
10–11 samverustund, kl.
14 félagsvist.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 opin handa-
vinnustofan, kl. 9–16
vefnaður, kl. 10–13 opin
verslunin, kl. 13.30
myndband.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
opin vinnustofa, tré-
skurður, kl. 10 leikfimi,
kl. 12.40 verslunarferð í
Bónus, kl. 13.15–13.45
bókabíllinn, hárgreiðslu-
stofan opin 9–14.
Félagsstarfið, Lönguhlíð
3. Kl. 8 böðun, kl. 10 hár-
snyrting, kl. 11 leikfimi,
kl. 13 föndur og handa-
vinna.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Opið hús í
Holtsbúð 6. nóv. kl. 13.30
Spilað o.fl. Bridgenám-
skeið byrjar 6. nóv. á
Garðabergi kl. 13 og
verður í 5 miðvikud. fyrir
jól og 5 miðvikud. eftir
jól. Skráning hjá Hönnu í
s. 565 6838 eða Margréti í
síma 820 8571. Allir vel-
komnir. Byrjenda-
námskeið í spænsku
byrjar 7. nóv. kl. 17
Skráning hjá Margréti í
s. 820-8571 eftir hádegi.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Félagið hefur
opnað heimasíðu
www.feb.is. Kaffistofan
er lokuð vegna breytinga
í Glæsibæ. Þriðjud.: Skák
kl. 13, alkort spilað kl.
13.30. Baldvin Tryggva-
son verður með fjár-
málaráðgjöf 7. nóv. panta
þarf tíma. Árshátíð FEB
verður haldin í Ásgarði
föstud. 15. nóv. Húsið
opnað kl. 18, borðhald
hefst kl. 19. Miðapant-
anir á skrifstofu FEB.
Silfurlínan er opin á
mánu- og miðvikudögum
kl. 10–12. Skrifstofa fé-
lagsins er að Faxafeni 12
s. 588 2111. Félagsstarfið
er í Ásgarði, Glæsibæ.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Handa-
vinna og brids kl. 13.30.
Föstudaginn 8 nóv. dans-
leikur í Hraunseli kl.
20.30 Caprí tríó leikur
fyrir dansi.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, frá hádegi spila-
salur opinn, kl. 13 boccia.
Miðvikud. 13. nóv. heim-
sókn til eldri borgara í
Rangárþingi, skráning
hafin. Allar uppl. um
starfsemina á staðnum
og í s. 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.30 glerlist, handa-
vinnustofan opin, leið-
beinandi á staðnum kl.
10–17, kl. 14 þriðjudags-
ganga og boccia, kl. 17.15
og kl. 16. 15 kínversk
leikfimi. Handverks-
markaður verður
fimmtud. 7. nóv. kl. 13.
Panta þarf borð sem
fyrst. Nokkur pláss laus í
kínverskri leikfimi, stóla-
leikfimi og málm- og silf-
ursmíði.
Gullsmári, Gullsmára 13.
Kl. 9.15 postulínsmálun,
kl. 10 ganga, handa-
vinnustofan opin kl. 13–
16, leiðbeinandi á staðn-
um, kl. 17 línudans, kl. 19
gömlu dansarnir.
Hraunbær 105. Kl. 9
postlínsmálun og gler-
skurður, kl. 10 boccia, kl.
11 leikfimi, kl. 12.15
verslunaferð, kl. 13
myndlist og hárgreiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun og boccia, kl. 9.45
bankaþjónusta, kl. 10.30
Söngstund við píanóið, kl.
13 handavinna, kl. 13.30
helgistund. Fótaaðgerðir
hársnyrting. Allir vel-
komnir.
Korpúlfarnir, eldri borg-
arar í Grafarvogi. Vatns-
leikfimi í Grafarvogslaug
á þriðjud. kl. 9.45 og
föstud. kl. 9.30. Uppl. í s.
5454 500.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa og
tréskurður, kl. 10–11
boccia, kl. 9–17 hár-
greiðsla, kl. 14–15 jóga.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9. 15–16
bútasaumur og postulíns-
málun. kl. 9.15–15.30 alm.
handavinna, kl. 13–16
frjáls spil, brids tvímenn-
ingur. Fimmtud. 7. nóv.
kl. 10.30 helgistund.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9 hárgreiðsla, kl. 9.30
glerskurður og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir og leikfimi, kl. 13
handmennt m.a. mósaik,
kl. 14 félagsvist.
Háteigskirkja. Eldri
borgarar á morgun mið-
vikudag, kl. 11 samvera,
fyrirbænastund og stutt
messa í kirkjunni, allir
velkomnir, súpa í Setrinu
kl. 12, spil kl. 13.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leikfimi
kl. 11.15 í Digra-
neskirkju.
Bridsdeild FEBK, Gjá-
bakka. Brids í kvöld kl.
19.
Félag áhugamanna um
íþróttir aldraðra. Leik-
fimi í Bláa salnum kl. 11.
Sjálfsbjörg félag fatl-
aðra, Hátúni 12, kl. 20
bingó.
Karlakórinn Kátir karl-
ar, æfingar á þriðjud. kl.
13 í Félags- og þjónustu-
miðstöðinni Árskógum 4.
Söngstjóri Úlrik Ólason.
Tekið við pöntunum í
söng í s. 553 5979 Jón, s.
551 8857 Guðjón eða s.
553 2725 Stefán.
Félag ábyrgra feðra.
Fundur í Shell-húsinu,
Skerjafirði, á mið-
vikudögum kl. 20, svarað
í s. 552 6644 á fund-
artíma.
ITC deildin Fífa í Kópa-
vogi fundur á morgun
miðvikudag kl. 20.15, í
Alþjóðahúsinu, Hverf-
isgötu 18, Reykjavík. All-
ir velkomnir. Uppl. í s.
554 2045.
Kvenfélagið Fjallkon-
urnar heldur fund í dag í
safnaðarheimili Fella- og
Hólakirkju kl. 20. Konur
eru beðnar að mæta með
myndir úr sumarferðinni.
Kvenfélag Fríkirkjunnar
í Hafnarfirði heldur fund
þriðjud. 5. nóv. í safn-
aðarheimilinu við Linn-
etsstíg kl. 20.30.
Hringurinn. Á morgun
kl. 18.30 félagsfundur á
Ásvallagötu 1.
Hallgrímskirkja. Opið
hús fyrir eldri borgara
miðvikudaginn 6. nóv. kl.
14. Einsöngvararnir
Erna Blöndal og Örn
Arnarson syngja.
Hugvekju flytur sr. Jón
Bjarmann, bílferð fyrir
þá sem þess óska,
allir velkomnir. Uppl.
veitir Dagbjört í s.
510 10340.
Minningarkort
Samtök lungnasjúk-
linga. Minningarkort eru
afgreidd á skrifst. félags-
ins í Suðurgötu 10 (bak-
húsi) 2. h., s. 552-2154.
Skrifst. er opin miðvikud.
og föstud. kl. 16–18, utan
skrifstofutíma er sím-
svari. Einnig er hægt að
hringja í s. 861-6880 og
586-1088. Gíró- og kred-
itkortaþjónusta.
Minningarkort MS fé-
lags Íslands eru seld á
skrifstofu félagsins,
Sléttuvegi 5, 103 Rvk.
Skrifstofan er opin mán.–
fim. kl.10–15. S. 568-
8620. Bréfs. 568-8621.
Tölvup. ms@msfelag.is.
FAAS, Félag aðstand-
enda alzheimer-
sjúklinga. Minning-
arkort eru afgreidd alla
daga í s. 533-1088 eða í
bréfs. 533-1086.
Í dag er þriðjudagur 5. nóvember,
309. dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Gleð þú sál þjóns þíns, því að til þín,
Drottinn, hef ég sál mína.
(Sálm. 86, 4.)
K r o s s g á t a 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
LÁRÉTT:
1 húfu, 8 messuklæði, 9
tekur, 10 starf, 11 magr-
an, 13 endurskrift, 15 él,
18 bjargbúar, 21 hrós, 22
hugleysingi, 23 manns-
nafns, 24 gráti nær.
LÓÐRÉTT:
2 drykkfelldur, 3 reyfið, 4
snjóa, 5 fær af sér, 6
óblíður, 7 þurrð, 12 ill-
deila, 14 illmenni, 15
hrím, 16 logi, 17 kátt, 18
dögg, 19 hóp, 20 gang-
setja.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 skrök, 4 fegin, 7 ríkur, 8 Regin, 9 tún, 11 port,
13 bana, 14 eyddi, 15 þjöl, 17 káta, 20 hné, 22 negul, 23
tregt, 24 illur, 25 riðla.
Lóðrétt: 1 skróp, 2 rýkur, 3 kort, 4 forn, 5 gegna, 6
nenna, 10 úldin, 12 tel, 13 bik, 15 þandi, 16 öngul, 18
áreið, 19 aftra, 20 hlýr, 21 étur.
Klassík FM 100,7
ÉG vil taka undir orð Sig-
ríðar Einarsdóttur í Vel-
vakanda sl. fimmtudag 24.
okt. um Klassík FM 100,7
sem nú hefur hætt. Ég hafði
oft ánægju af að hlusta á
þessa stöð og sakna hennar.
Æskilegt og eðlilegt er að
Ríkisútvarpið kynni og
flytji meiri klassíska tónlist,
gjarnan með sérrás. Ef það
þykir of mikið fyrirtæki
mætti nýta Rás 2 betur en
nú er gert með því að hún
notaði þriðjung sendingar-
tíma síns fyrir klassíska
tónlist. En tónlist á Rás 2 er
nú mjög einhæf og klassísk
verk heyrast þar varla. Rás
2 gæti gegnt mikilvægu
hlutverki með því að kynna
fjölbreytta tónlist. En þá
þurfa allar tegundir að vera
fluttar og nöfn verka og
höfunda að vera kynnt.
Slíkt mundi hafa mikil áhrif
á tónlistarmenntun og
smekk almennings.
Kristinn Björnsson,
sálfræðingur.
Bónda svarað
Í VELVAKANDA sunnu-
daginn 27. október síðast-
liðinn birtust hugleiðingar
bónda um verð fyrir ærkjöt.
Mig, sem neytanda og
skattgreiðanda, langar að
fá svör við spurningum sem
kvikna við lestur svona hug-
leiðinga.
Mig langar til að bóndi
þessi upplýsi hvað hann fái í
beingreiðslur frá ríkinu
mánaðarlega ef hann kýs að
hafa þessar verðlausu ær
sínar á fæti. Einnig mætti
hann upplýsa þjóðina um
það hvað hann fái fyrir slát-
urlambið.
Neytandi og
skattgreiðandi.
Til Fróða hf.
AÐ kvöldi 28.10. sl. hringdi
síminn hjá mér og hinum
megin á línunni var sölu-
maður hjá Fróða að bjóða
mér bindandi áskrift að Séð
og heyrt í 3 mánuði. Ég var
ekki viss fyrr en sölumað-
urinn sagði mér verðið á
hverju blaði og fullvissaði
mig um að ég fengi ein-
hverja tvo miða sem hvor
um sig innihéldi vinning að
lágmarki 2.000 kr. Fannst
mér það furðulegt svo ég
spurði aftur og hann svar-
aði á sama veg.
Síðan komu þessir tveir
miðar og hvorugur innihélt
vinning. Þá hringdi ég í
Fróða, þar sem loforð sölu-
mannsins stóðust ekki, til
að leita svara um hvað ég
hefði ekki skilið og varð enn
meira hissa því ég fékk frá
símadömunni lítið annað en
dónaskap ásamt setningu
sem ég ekki enn skil: „Þú
hlýtur að geta hugsað fyrir
þig sjálf.“
Vissulega get ég það og
vildi því fá að tala við yfir-
mann söludeildar. Ég beið
en aldrei tók hann upp tólið.
Vil ég því að hann hringi í
mig og útskýri fyrir mér þá
hluti sem mér er sagt í
óbeinum orðum af hans
fólki að mig skorti vitsmuni
til að átta mig á. Ég vænti
þess að það samtal muni
einkennast af kurteisi.
Virðingarfyllst,
Hólmfríður Eygló
Gunnarsdóttir.
Dýrahald
Frá Dýra-
verndunarfélagi
Reykjavíkur
ÓHEIMILT er að hafa
hvers konar kofa eða kassa
með kanínum eða dúfum á
lóðum húsa nema með leyfi
Umhverfis- og heilbrigðis-
stofu Reykjavíkur, sam-
kvæmt heilbrigðisreglu-
gerð nr. 149/1990 og
úrgangsreglugerð nr. 805/
1999 grein 6.3. Eigendur
kanínu- eða dúfnahúsa (eða
kassa) þurfa að sækja um
leyfi fyrir þeim til Um-
hverfis- og heilbrigðisstofu
Reykjavíkur, Mengunar-
varnir, Skúlagötu 19, 101
Reykjavík, sími 563 2725.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Víkverji skrifar...
FORELDRAR barna á skólaaldriþekkja eflaust flestir hversu
mikil röskun felst í hinum svokölluðu
starfsdögum, sem reglulega eru í
skólum og leikskólum. Þessa daga
liggur hefðbundin starfsemi skólanna
niðri og foreldrar verða því að finna
einhverjar leiðir til að hafa ofan af
fyrir börnunum. Það getur reynst erf-
itt ef báðir foreldrar eru útivinnandi
og eiga erfitt með að taka sér frí.
Sumir bregða á það ráð að taka börn-
in með sér í vinnuna, aðrir skiptast á
að vera heima hjá börnunum, sumir
reyna að koma þeim fyrir hjá ætt-
mennum og loks eru eldri börn stund-
um látin vera ein heima.
Nú hefur ofan á þetta allt saman
bæst eitthvað sem kallað er vetrarfrí
þar sem skólabörnum er gefið frí í tvo
daga. Víkverji á mjög erfitt með að
skilja tilgang þessara frídaga ekki
síst þar sem ekkert samræmi virðist
vera á milli mismunandi skóla hvenær
þessi frí skella á. Því geta foreldrar
lent í því að börn þeirra séu ekki í fríi
á sama tíma sem torveldar mjög allar
tilraunir til að skipuleggja sameigin-
legt frí fjölskyldunnar á þessum tíma.
Raunar er vetrarfríið það stutt og á
þeim tíma árs að fæstir eru í þeim
hugleiðingum að taka sér frí og leggja
hugsanlega land undir fót. Fyrir
marga auka þessi frí því einungis á
það álag sem er á barnafjölskyldum
og börnin líklega dauðfegin þegar þau
komast aftur í skólann.
x x x
FARÞEGAR í flugi eru yfirleittmjög fegnir þegar matur er bor-
inn fram enda fátt annað hægt að
gera þá klukkutíma sem millilanda-
flug varir en að lesa, fylgjast með
skemmtidagskrá á sjónvarpsskjá ef
viðkomandi flugfélag býður upp á
slíkt og neyta þeirra veitinga, sem
bornar eru fram. Víkverji hefur hins
vegar nú í tvígang fengið fiskrétt í
millilandaflugi Flugleiða, sem vakti
litla kátínu hans og annarra farþega.
Um er að ræða kringlótta sneið af ein-
hvers konar fiskstöppu, er í útliti
minnir helst á gamla fiskbúðinginn,
sem Víkverji minnist frá æskuárum
sínum. Þessi kaldi fiskréttur var nær
alveg bragðlaus og með honum var
vægast sagt sérstakt meðlæti. Sósa
er minnti helst á graflaxsósu hvað
bragð varðar, couscous og rækjur.
Þetta var óneitanlega frumleg sam-
setning en umdeilanlegt hversu vel
heppnuð hún var.
x x x
NÚ á dögunum gengu í gildi lög erbanna ökumönnum að tala í far-
síma við akstur. Víkverji er einn
þeirra er í gegnum tíðina hefur verið
duglegur við að masa og aka án þess
að nota handfrjálsan búnað og hélt
því áfram fram á síðasta dag.
Víkverji er þó fús til að viðurkenna
að þessi lög eiga fyllilega rétt á sér.
Þótt hann vilji ekki viðurkenna að far-
símamasið hafi haft slæm áhrif á
aksturslag hans sjálfs hefur hann
ítrekað orðið vitni að því að aðrir öku-
menn virðast eiga erfitt með að sam-
ræma þetta tvennt. Hins vegar er
spurning hvort að ekki sé rétt að
ganga lengra og leggja bann við að
ökumenn séu yfirhöfuð að gera aðra
hluti við stýrið en að einbeita sér að
akstri. Víkverji er til dæmis sann-
færður um að reykingar og athafnir
er þeim tengjast, t.d. þegar ökumenn
ná sér í sígarettur og kveikja í þeim,
geti ekki síður orðið til að menn missi
einbeitinguna.
Borgarstjórnarfulltrúar
minnihlutans, þeir Björn
Bjarnason og Guðlaugur
Þór Þórðarson, hafa að
undanförnu fjallað ítarlega
um kostnað og hagnað af
Línu.Neti og haft miklar
áhyggjur af því fjármagni
sem lagt hefur verið í fyr-
irtækið.
Þar er þó um að ræða
stofnun sem þjónar íbúum
og fyrirtækjum Reykjavík-
ur og því væri gaman að sjá
jafnítarlega umfjöllun af
þeirra hálfu um tíu- til tutt-
ugufalt meiri væntanlegar/
mögulegar áhættufjárfest-
ingar Reykjavíkurborgar í
Kárahnjúkavirkjun, mann-
virki í öðrum landshluta
sem á að þjóna erlendu fyr-
irtæki næstum eins langt
frá Reykjavík og hægt er
að komast á Íslandi.
Hvergi hefur verið sýnt
fram á með tölum að hagn-
aður geti orðið af verkinu
svo þátttaka borgarsjóðs
Reykjavíkur í þessu æv-
intýri öllu ætti því að vera
gersamlega út í hött.
Ekki verður amalegt fyr-
ir okkur andstæðinga
Kárahnjúkavirkjunar að fá
svo öfluga stuðningsmenn í
lið með okkur.
Heidi Kristiansen.
Lína.Net og Kárahnjúkar