Morgunblaðið - 05.11.2002, Blaðsíða 43
Það var mikill heiður að fá að
kynnst þessum manni og koma inn á
heimili hans, það eitt var efni í marg-
ar bíómyndir, þvílík undraveröld.
Hann var frábær listamaður. Mjög
afkastamikill, stundum sagðist hann
hafa verið að teikna svolítið, þá stóðu
staflarnir eftir hann af teikningum.
Alveg einstök persóna sem ég
hefði ekki viljað missa af að alast upp
með, frábær frændi.
En nú er komið að því að okkar
leiðir skilja þangað til seinna Doddi
minn.
Hvíldu í friði, þín frænka
María Björk Gunnarsdóttir.
Doddi var fæddur og uppalinn í
Reykjavík og var mikill Reykvíking-
ur. Hann var líka mikill náttúruunn-
andi. Það var mjög gaman að ferðast
með honum og fara í gönguferðir þar
sem hann fræddi okkur um plönt-
urnar, hvað þær hétu og hvað mætti
nýta þær í. Og fróður var hann um
allt milli himins og jarðar. Ég spurði
hann einu sinni að því hvort hann
vissi allt, ég verð að játa að ég hef
ekkert vit á bílum og vélum svaraði
hann. Öll þessi tuttugu og fimm ár
sem ég hef þekkt Dodda hefur hann
verið heilsuhraustur, í mesta lagi
fengið smá kvef. Hann hafði sínar
aðferðir, sagði að hugurinn réði því
mikið hvort maður veiktist eða ekki.
Hann tíndi jurtir sem hann bjó til
seiði úr og drakk, gerði alltaf leik-
fimisæfingar og borðaði það sem
honum fannst gott. Hann sagði oft að
hann ætlaði að verða 200 ára.
Hann var alltaf rausnarlegur heim
að sækja, dró fram kræsingar af
ýmsu tagi til að metta bæði maga og
huga. Hann túlkaði náttúruna á al-
veg sérstakan hátt í myndunum sín-
um. Alltaf var skemmtilegt að opna
jólapakkana frá Dodda, hann var
galdramaður í að finna sniðuga hluti.
Þær voru bæði fróðlegar og
óvenjulegar skoðanir hans en hann
víkkaði út það mannlega litróf sem
við lifum í og gerði það auðugra.
Hvíl þú í friði,
Þórdís (Dísa).
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2002 43
Doddi samdi svo skemmtilegar
sögur. Þær voru ekki allar sannar
en mér fannst þær bara skemmti-
legar. Ég sá Dodda oft. Hann var
góður við dýrin og í uppáhaldi hjá
kettinum okkar. Hann Doddi
teiknaði sniðugar, skemmtilegar
og flottar myndir. Við eigum
margar myndir eftir Dodda. Hann
var góður frændi. Guð blessi
Dodda.
Snæbjörg G. Gunnarsdóttir.
HINSTA KVEÐJA
Blómastofa Friðfinns,
Suðurlandsbraut 10,
sími 553 1099, fax 568 4499.
Opið til kl. 19 öll kvöld
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
Okkar ástkæri sambýlismaður, faðir, tengda-
faðir og afi,
DANÍEL S. LÁRUSSON,
Óðinsgötu 8,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykja-
vík í dag, þriðjudaginn 5. nóvember, kl. 13.30.
Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna,
Dóróthea Magnúsdóttir,
Árný Daníelsdóttir, Hörður Harðarson,
Daníel Sigurður, Tómas Atli,
Orri og Darri,
Brynja Daníelsdóttir,
Knútur Rafn Ármann, Helena Hermundardóttir.
Ástkær eiginmaður minn,
GUÐMUNDUR JÓNSSON
rafvirkjameistari,
Hæðargarði 33,
Reykjavík,
sem andaðist miðvikudaginn 30. október sl.,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju í dag,
þriðjudaginn 5. nóvember, kl. 15.00.
Fyrir hönd vandamanna,
Herdís Sigurðardóttir Lyngdal.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
SIGURÐUR DAGNÝSSON,
Miðvangi 8,
Hafnarfirði,
lést á Hrafnistu Hafnarfirði sunnudaginn
3. nóvember.
Helga Sveinsdóttir,
dætur, tengdabörn,
barnabörn og langafabörn.
Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, afi
og bróðir,
JÓHANNES B. SVEINBJÖRNSSON,
Sæviðarsundi 35,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Áskirkju fimmtudaginn
7. nóvember kl. 13.30.
Halla Hjálmarsdóttir,
Margrét J. S. Jóhannesdóttir,
Ólafur Daði Jóhannesson,
Viktor Már Kristjánsson,
Maríanna Rún Kristjánsdóttir
og systkini hins látna.
Frænka okkar,
JÓHANNA JOHNSON,
766 Shackleton Drive,
Richmond BC,
Kanada,
andaðist þriðjudaginn 29. október sl. Jarðarför hefur farið fram.
Fyrir hönd aðstandenda,
Halldóra Ingibjörnsdóttir, Ólafur Ingibjörnsson.
Konan mín og systir okkar,
NORMA MOONEY,
Sarpsborg,
Noregi,
er látin.
Útförin hefur farið fram.
Gunnar Berg,
Ellen Mooney, Karl Mooney.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
GERDA GUÐMUNDSSON,
Frederiksborg Allé 23,
Randers, Danmörku,
lést fimmtudaginn 31. október.
Útförin fer fram frá Aðventukirkjunni í Randers
í dag, þriðjudaginn 5. nóvember, kl. 11.00.
Sonja Danielsen, Jens Danielsen,
Harrí Guðmundsson, Sunneva Guðmundsson,
Eric Guðmundsson, Laila Panduro,
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir mín, amma og systir,
GUÐMUNDÍNA ÞÓRUNN
SAMÚELSDÓTTIR,
Heiðargerði 24,
Akranesi,
lést á heimili sínu aðfaranótt mánudagsins
4. nóvember.
Þórunn Selma,
Hafþór Örn,
Albert Máni
og systkini hinnar látnu.
Maðurinn minn,
INGVI ÞORGEIRSSON,
Klapparstíg 16,
Ytri Njarðvík,
er látinn.
Útförin fer fram frá Ytri Njarðvíkurkirkju föstu-
daginn 8. nóvember kl. 14.00.
Guðbjörg Böðvarsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn
Eiginkona mín og systir okkar,
SIGRÍÐUR ÁSTA HOUDLETTE,
(SIDDÝ GUÐMUNDS)
lést í Kaliforníu fimmtudaginn 24. október sl.
Útförin hefur farið fram.
Greg Houdlette
og systkini hinnar látnu.
Elskulegur eiginmaður minn,
ÓSKAR GUÐMUNDSSON,
Nesvegi 70,
Reykjavík,
er látinn.
Jarðarförin auglýst síðar.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Erla Friðriksdóttir.