Morgunblaðið - 05.11.2002, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 05.11.2002, Blaðsíða 17
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2002 17 Slitþolin dönsk og þýsk gólfteppi sem seld hafa verið á Íslandi í tugum þúsunda fermetra. DuPont Antron XL polyamid garn. Vel hljóðeinangrandi og auðveld í þrifum. Hafa hlotið sérstaka viður- kenningu fyrir að innihalda engin ofnæmisvaldandi efni. Eldtefjandi og samþykkt til notkunar á flóttaleiðir. Fjölbreyttir möguleikar í litum og útliti. Mælum út og gerum verðtilboð án kostnaðar. ...frá Gólfefnum - Teppalandi Gólfteppi fyrir stigahús Ex-Dono gólfteppi. Fáanlegt í 52 mism. litum.Yfir 50.000 m2 seldir hér á landi sl.12 ár. Fákafeni 9 • Sími 515 9800 • netfang golfefni@golfefni.is • Opið virka daga kl. 8-18 og laugard. kl. 11-14 Reykjanesbær • Hafnargötu 90 • Sími 420 9800 • Opið virka daga kl. 9 - 18 og laugardaga kl. 10-13 GÓLFEFNI T E P P A L A N D NÝR inflúensufaraldur, sem gæti kostað þúsundir manna lífið, gæti einhvern tíma farið að herja í Evr- ópu, að því er fram kemur á fréttavef BBC. Vísindamenn frá Evrópu hitt- ast á fundi á Möltu í vikunni til að ræða fyrirbyggjandi aðgerðir til að koma í veg fyrir að slík farsótt breið- ist út og hvetja til aukins viðbúnaðar. Þótt hefðbundin inflúensa hafi verið tiltölulega væg síðustu tvo vet- ur segja vísindamenn það aðeins spurningu um tíma hvenær nýtt og mun skæðara afbrigði verði til. Þeir segja að faraldurinn komi ekki til með að verða eins skæður og „spænska veikin“ svonefnda var árið 1918, en allt að 30 milljónir Evrópu- búa dóu þá af hennar völdum, mun fleira fólk en féll í heimsstyrjöldinni fyrri 1914–1918. Haraldur Briem sóttvarnalæknir segir að Íslendingar taki þátt í sam- ráðsfundum fulltrúa sóttvarna í ríkj- um Evrópska efnahagssvæðisins og þar sé oft rætt um viðbúnað vegna hugsanlegra nýrra afbrigða inflú- ensu. „Við vitum að uppstokkun á veirunni gerist á nokkurra áratuga fresti og nú er orðið nokkuð langt síðan það gerðist síðast. Fyrir nokkrum árum kom upp sýki í Hong Kong sem smitaðist í menn úr kjúk- lingum og var banvæn. Sem betur fer kafnaði hún í fæðingu vegna þess að hún smitaðist ekki milli manna. Það sem venjulega er í gangi á hverju ári er það sem við köllum mótefnaskrið, þ.e. smábreytingar frá ári til árs. En afbrigðin eru skyld og við erum að hluta til varin svo að þetta verður ekki svo slæmt en það gæti gerst ef upp kæmi nýr stofn og engin vörn væri til staðar. Það gerð- ist 1918 og þá voru fórnarlömbin ekki síst fólk á besta aldri en ekki gamalt fólk. Ekki er alveg ljóst hvers vegna sóttin valdi fremur yngra fólk, aldursdreifingin var allt önnur en þegar inflúensa herjar núna, mótefni dvína yfirleitt með aldrinum.“ Haraldur segir að oft sé bent á að aukin ferðalög milli fjarlægra heims- hluta geti aukið hættuna á mann- skæðum farsóttum, þær berist fljót- ar en áður gerðist. Ljóst sé að ef slíkt gerist muni m.a. verða gripið til ein- angrunar hér og annars staðar. „En sjálfur hef ég stundum velt því fyrir mér af hverju ekki sé meira um að slíkar sóttir berist milli landa núna. Er hugsanlegt að það að við erum nú ein heimsbyggð en ekki ein- angruð með sama hætti og áður sé ekki endilega ókostur, það geti einn- ig verið kostur? Við vitum af sögulegri reynslu að einangrun er mjög hættuleg. Bólu- sóttin fór svo illa með okkur á Íslandi af því að hún kom ekki nema tvisvar eða þrisvar á einni öld og fór þá um eins og eldur í sinu. Hjá stóru Evr- ópuþjóðunum varð þetta hins vegar smám saman barnasjúkdómur. Ein- angrun getur átt rétt á sér við vissar kringumstæður en í henni eru líka fólgnar hættur,“ segir Haraldur Briem sóttvarnalæknir. Ný afbrigði inflúensuveirunnar gætu reynst hættuleg Hvatt til aukins viðbúnaðar ARIEL Sharon, forsætisráðherra Ísraels, stóð í gær af sér þrjár van- trauststillögur í Knesset, ísraelska þinginu. Þingið samþykkti einnig til- nefningu Shauls Mofaz, hershöfð- ingja í varaliðinu og fyrrverandi yf- irmanns herráðsins, í embætti varnarmálaráðherra landsins. Mofaz tekur við af Binyamin Ben Eliezer, leiðtoga Verkamannaflokksins sem rauf samstarfið við Sharon í liðinni viku. Mofaz hefur hvatt til þess að Yass- er Arafat, leiðtogi Palestínumanna, verði rekinn í útlegð og einnig hefur hann gagnrýnt Óslóarsamkomulagið frá 1993 þar sem ákvæði eru um að Palestínumenn fái sjálfsstjórn. Yfir- leitt er gert ráð fyrir að Ísraelsher skipti sér ekki af stjórnmálum og hraður frami Mofaz veldur mörgum þingmönnum áhyggjum. Fyrsta vantrauststillagan var lögð fram af miðflokknum Shinui og önn- ur af Meretz-flokknum sem er mjög hófsamur. 51 þingmaður greiddi til- lögunum atkvæði en alls eru þing- menn Knesset 120. Þriðja van- trauststillagan var lögð fram af hópi arabískra þingmanna en var einnig felld. Talsmenn Palestínumanna gagn- rýndu Sharon harkalega í gær fyrir að halla sér í enn frekari mæli en fyrr að harðlínumönnum og draga þannig úr líkum á friðarsamningum. „Stjórn þar sem Shaul Mofaz fer með varnarmálin getur aðeins haft eina stefnu: að meira land verði her- numið og efnt verði til fleiri hryðju- verka gegn palestínsku þjóðinni,“ sagði Yasser Abed Rabbo, ráðherra upplýsingamála í Palestínustjórn. Eftir brottför ráðherra Verka- mannaflokksins verður Sharon að styðjast við þingmenn úr röðum heittrúarmanna sem margir vilja ekki að reynt sé að semja við Palest- ínumenn og mæla jafnvel með því að þeir verði hraktir af svæðum sínum til annarra arabalanda. Shimon Per- es, sem var utanríkisráðherra úr röðum Verkamannaflokksins þar til í liðinni viku, sagðist í gær búast við að efnt yrði til kosninga fyrir tímann en kjörtímabilið rennur ekki út fyrr en eftir ár. Á hinn bóginn hafnaði Sharon í gær skilyrði sem Benjamin Netanyahu, fyrrverandi forsætis- ráðherra úr Likudflokki Sharons, setti á sunnudag fyrir því að taka við embætti utanríkisráðherra en Net- anyahu vill að boðað verði strax til kosninga. Sagði Sharon að það væri ábyrgðarlaust að efna nú til kosn- inga. Talið er að Netanyahu hyggist reyna að hrifsa leiðtogasætið í Likud af Sharon. Amnesty gagnrýnir Ísraela Mannréttindasamtökin Amnesty International segja í ítarlegri skýrslu sem birt verður á næstunni að „öruggar vísbendingar“ séu um að Ísraelsher hafi drýgt stríðsglæpi í árásum á borgirnar Jenin og Nablus í sumar. Er meðal annars sagt að herinn hafi tekið fólk af lífi án dóms og laga, beitt pyntingum gegn föng- um, komið í veg fyrir mannúðarhjálp og vopnlausir Palestínumenn hafi verið notaðir sem „mennskir skildir“ í átökunum. Talsmenn Ísraelsstjórn- ar sögðu að verið væri að kanna ein- stök atriði í þessum ásökunum en bentu á að mannfall í röðum óbreyttra borgara hefði orðið í hörð- um bardögum þar sem palestínskir vígamenn hefðu skýlt sér á bak við óbreytta borgara. Stjórn Sharons stóðst áhlaupið Mannréttindasamtökin Amnesty saka Ísraela um stríðsglæpi Jerúsalem. AFP, AP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.