Morgunblaðið - 05.11.2002, Blaðsíða 52
KVIKMYNDIR
52 ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
AÐDÁENDUR Walters Hills eru
orðnir langeygir eftir batamerkjum
frá þessum sögufræga spennumynda-
leikstjóra sem gerði hvert stórvirkið á
fætur öðru á uppgangstíma sínum
sem hófst með Hard Times (’75), eða
Street Fighter einsog hún nefnist í
Evrópu. Í kjölfarið fylgdu The Driver
(’78), The Warriors (’79), The Long
Riders (’80), Southern Comfort (’81)
og 48 Hours (’82); Fimm myndir hver
annarri betri og vinsælli. Síðan var
engu líkara en Hill missti dampinn, að
Crossroads (’86) einni undanskilinni.
Hill hefur verið nógu iðinn við kolann,
framleiðendur eru ekki enn búnir að
gleyma afrekum hans á áttunda og ní-
unda áratugnum þrátt fyrir fjölda
ruslmynda á borð við Red Heat (’89),
Last Man Standing (’96) og ofurskell-
inn Supernova (’98).
Það hlaut að koma að því, Hill er að
hressast. Undisputed er umtalsverð
framför á ferli sem var við það að
lognast útaf. Hann er aftur kominn á
heimaslóðir, búinn að finna ræturnar
að nýju í gamla, góða B-karlrembu-
hasarnum. Á góðum degi kann enginn
betur til verka en Hill á þeim vett-
vangi.
Undisputed er einföld og sterk
átakasaga tveggja harðsoðinna
hnefaleikakappa og umhverfið þröngt
og hráslagalegt. Persóna annars
þeirra, James „Iceman“ Chambers
(Ving Rhames), virðist byggð á Mike
Tyson – bæði andlega sem líkamlega.
Rhames hefur komið við í ræktinni,
smellir að auki á sig Neanderdalssvip
hnefaleikakappans ógurlega með
þeim árangri að þeir gætu sem hæg-
ast verið tvíburar! Hinn er Monroe
Hutchen (Wesley Snipes), en garp-
arnir eru í fremstu röð í íþrótt sinni þó
hlutskipti þeirra sé ólíkt. Chambers
er forríkur, vanstilltur heimsmeistari
í íþróttinni og lifir hátt en Hutchen
þótti meistaraefni í hnefaleikum er
hann varð mannsbani og hefur setið í
áratug í öryggisfangelsinu Sweet-
water í Mojave-eyðimörkinni. Þar
hefur hann verið hinn ósigrandi
meistari í mótum sem komið er á milli
fanganna.
Vandræðagripurinn Chambers á
erfitt með að halda sig réttu megin
laganna, er dæmdur fyrir nauðgun og
skyndilega kominn á sömu slóðir og
Monroe, í Sweetwater. Innan veggja
fangelsisins er einnig Mendy Ripstein
(Peter Falk), gamalreyndur mafíósi
og veðmálafíkill og ekki líður á löngu
uns meistarakeppni aldarinnar í sögu
tukthúsmanna liggur í loftinu.
Hill byggir spennuna upp hægt og
sígandi með eilífu áreiti á milli Ís-
mannsins og samfanganna og meist-
aranna tveggja. Gerir það sem hann
kann best – að segja sögu vafninga-
laust. Færa sig hægt en ákveðið nær
og nær hápunktinum sem er sann-
kölluð flugeldasýning þegar þessir
tveir kraftmiklu pólar mætast í
hringnum í tilkomumiklum og vel út-
færðum bardagaaatriðum. Við erum
stödd í hringleikahúsi Rómverja,
hnefaleikarar eru skylmingaþrælar
samtímans. Áhorfandinn vill sjá sem
hrikalegust átök uns annar liggur.
Það er hápunkturinn, hvað svo sem
menn tala um „hina“ göfugu sjálfs-
varnaríþrótt, ólympíska hnefaleika,
og þar fram eftir götunum. Í heimi
hnefaleika snýst allt um bardaga
hinna bestu, allt frá tímum Jacks
Johnsons, nafna hans Dempseys,
Clays, Foremans, Listons, Tysons.
Þessar vígvélar eru það sem gera
hnefaleikana eftirsótta hér sem alls
staðar annars staðar.
Hill tekst að koma flæði á adren-
alínið og heldur áhorfandanum við
efnið frá upphafsatriðinu allt til loka.
Nýtur vel samsetts leikhópsins, en
þeir voru jafnan eitt af aðalsmerkjum
mynda leikstjórans á gullaldarárun-
um. Hér eru hárréttir menn í hverju
rúmi: Snipes og Rhames eru eins
raunverulegir þungaviktarmeistarar
og hægt er að snara fram á borðið í
Hollywood. Hrikalegir og ógnvekj-
andi skrattakollar með vitið í vöðv-
unum. Síðan kemur heill skari af vel
völdum skapgerðarleikurum sem
galdra fram litsterkan trantaralýð
sem unun er á að horfa: Wes Studi,
Michael Rooker, Fisher Stevens og
ekki má gleyma Falk sem er dæma-
laust góður sem fyrrum valdamikill
mafíósó. Nú hálfútbrunninn, fótfúinn
gráskeggur með sterk sambönd utan
sem innan múrsins svo harðsvíruð-
ustu tukthúslimum og fangelsisyfir-
völdum stendur stuggur af. Það
leynir sér ekki að Hill er kominn á
skrið og aldrei að vita nema hann
komist á flug að nýju.
Tuskast í tukthúsinu
KVIKMYNDIR
Laugarásbíó
UNDISPUTED (ÓUMDEILDUR) ½
Leikstjóri: Walter Hill. Handrit: David
Giler og Walter Hill. Kvikmyndatöku-
stjóri: Lloyd Ahern. Tónlist: Stanley
Clarke. Aðalleikendur: Wesley Snipes,
Ving Rhames, Peter Falk, Wes Studi,
Michael Rooker, Fisher Stevens, Brad
Krevoy, Andrew Sugerman, Dennis
Arndt. Sýningartími 95 mín. Miramax.
Bandaríkin 2002.
Sæbjörn Valdimarsson
Ving Rhames og Wesley Snipes
vígalegir.
ÞAÐ ER hreinlega sorglegt að sjá
leikstjórann Andrew Niccol, sem er
höfundur mynda á borð við Gattaca
og handritshöfundur að The Truman
Show, senda frá sér jafn hroð-
virknislega kvikmynd og Simone er.
Fyrrnefndar myndir Niccols voru
nefnilega hver um sig kvikmyndir af
hæsta gæðaflokki sem tóku á
áleitnum spurningum um áhrif
tækninýjunga í vestrænum samtíma.
Hið alltumvefjandi fjölmiðla- og
eftirlitssamfélag var tákngert á eft-
irminnilegan hátt í The Truman
Show og hugsanleg áhrif líftækni og
erfðatilrauna voru gerð að viðfangs-
efni í Gattaca. En í Simone hefur
Niccol algerlega brugðist bogalistin,
því þótt umfjöllunarefnið sé á svip-
uðum slóðum og áður. Í myndinni
segir frá reyndum leikstjóra í Holly-
wood (Al Pacino) sem er á botni fer-
ils síns þegar hann tekur upp á því að
búa til tölvuunna leikkonu og kynna
hana sem raunverulega manneskju.
Þetta tekst honum eftir að brjálaður
aðdáandi hans arfleiðir hann að þar
til gerðu forriti. Og með tölvuver-
unni Simone er ný stjarna fædd,
stjarna sem dýrkuð er sem aldrei
fyrr þrátt fyrir að hún sé ekki einu
sinni raunveruleg. Skírskotanir sög-
unnar eru fljótar að koma upp í hug-
ann, verið er að vísa til ímyndamót-
unar og stjörnudýrkunar, mörk
veruleika og tilbúnings í fjölmiðla-
samfélaginu, o.s.frv, auk þess sem
gamla góða Frankenstein-minnið
um hinn drambsama uppfinninga-
mann, sem étinn er af eigin uppfinn-
ingu gengur hér aftur. Sem sagt
ágætis efniviður til að vinna með, en
gallinn er sá að þetta er allt saman
einfaldað úr hófi fram, sagan sjálf er
klaufalega smíðuð og allar skírskot-
anir sögunnar útskýrðar svo skil-
merkilega og á svo óþjálan hátt að
þær missa marks.
Hið fínasta leikaralið hefur verið
kallað til og hjálpar það lítið til.
Catherine Keener á þar sterkan leik
en aðrir reynast fórnarlömb lélegs
handrits, ekki síst Al Pacino sem
bætir hér enn einni viðbrenndri
fjöðrinni í hattinn sinn. Mér er það
hreint óskiljanlegt hvernig höfundur
snilldarhandrits kvikmyndarinnar
The Truman Show getur skrifað
svona lélegt handrit í tilfelli Simone.
Niccol bregst bogalistin
Reuters
Al Pacino bætir við „enn einni við-
brenndri fjöðrinni í hattinn sinn“,
segir í umsögn um Simone.
KVIKMYNDIR
Regnboginn, Sambíóin
SIMONE Leikstjórn og handrit: Andrew Niccol.
Kvikmyndataka: Edward Lachman. Aðal-
hlutverk: Al Pacino, Rachel Roberts,
Catherine Keener, Evan Rachel Wood,
Winona Ryder. 115 mín. Bandaríkin. New
Line Cinema, 2002.
Heiða Jóhannsdóttir
Kvöldverður fyrir og eftir sýningar
Miðasala er opin frá kl. 10-16 virka daga,
kl. 14-17 um helgar, frá kl. 19 sýnd.
Ósóttar pantanir seldar 4 dögum fyrir
sýningar. Sími 562 9700
Fös 8/11 kl. 21 Uppselt
Fös 8/11 kl. 23 Aukasýning Örfá sæti
Lau 9/11 kl. 21 Uppselt
Lau 9/11 kl. 23 Aukasýning Örfá sæti
Fim 14/11 kl. 21 Örfá sæti
Fös 15/11 kl. 21 Uppselt
Lau 16/11 kl. 21 Uppselt
Lau 16/11 kl. 23 Aukasýning Örfá sæti
Fim 21/11 kl. 21 Nokkur sæti
Fös 22/11 kl. 21 Uppselt
Lau 23/11 kl. 21 Nokkur sæti
Fös 29/11 kl. 21 Örfá sæti
Lau 30/11 kl. 21 Nokkur sæti
Fim 5/12 kl. 21
Fös 6/12 kl. 21 50. sýning
Munið gjafakortin!
Restaurant
Pizzeria
Gallerí - Café
Bjóðum einnig upp á
notalega aðstöðu,
fyrir 15 til 30 manna hópa,
í Djúpinu og Galleríinu.
Hafnarstræti 15, sími 551 3340
Stóra svið
SÖLUMAÐUR DEYR e. Arthur Miller
5. sýn Blá kort - fö 8/11 kl 20,
Fi 14/11 kl 20 , su 17/11 kl 20, fö 22/11 kl 20
HONK! LJÓTI ANDARUNGINN
e. George Stiles og Anthony Drewe
Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna
Su 10/11 kl 14,Su 17/11 kl 14
Lau 23/11 kl 20 ATH: Kvöldsýning, Su 24/11 kl 14
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney
Lau 9. nóv kl 20 - 60. sýning - AUKASÝNING
Lau 16. nóv kl 20 - AUKASÝNING
Fim 21. nóv kl 20 - AUKASÝNING
Fö 29. nóv kl 20 - AUKASÝNING
KRYDDLEGIN HJÖRTU e. Laura Esquivel
Fi 7/11 kl 20, Fö 15/11 kl 20,Lau 30/11 kl 20
Síðustu sýningar
JÓN OG HÓLMFRÍÐUR e. Gabor Rassov
frekar erótískt leikrit í þrem þáttum
Fi 7/11 kl 20, Lau 9/11 kl 20
AND BJÖRK, OF COURSE ..
e. Þorvald Þorsteinsson
Fö 15 nóv. kl 20 - AUKASÝNING Allra síðasta sinn
Nýja sviðið
Þriðja hæðin
Litla svið
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Miðasala: 568 8000
HERPINGUR e. Auði Haralds og
HINN FULLKOMNI MAÐUR e.Mikael Torfasoní
samstarfi við DRAUMASMIÐJUNA
Fi 7/11 kl 20 , Fö. 8/11 kl. 20
SUSHI NÁMSKEIÐ
með Sigurði og Snorra Birgi
Í kvöld kl 20
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare
í samstarfi við VESTURPORT
Frumsýning lau 9/11 kl 17
Ath. breyttan sýningartíma
15:15 TÓNLEIKAR
Lau 9/11 Ólafur Kjartan Sigurðsson. Ferðalög
Veisla í Vesturporti!
..ef ykkur langar til að eiga stund
þar sem þið getið velst um af
hlátri, ekki missa af þessari leiksýn-
ingu... (SA, Mbl.)
fös 8. nóv. kl. 21 örfá sæti
lau. 9. nóv. kl. 23.30
fim. 14. nóv. kl. 21.00
lau. 16. nóv. kl. 23.30
Ósóttar pantanir seldar tveimur
dögum fyrir sýningu
Vesturport, Vesturgata 18
Miðasala í Loftkastalanum,
Sími 552 3000
loftkastali@simnet.is
www.senan.is
Hamlet
eftir William Shakespeare.
Leikstjóri: Sveinn Einarsson.
Síðasta sýning lau. 9. nóv. kl. 19 upp-
selt
Miðasölusími sími 462 1400
www.leikfelag.is
SKÝFALL
eftir Sergi Belbel
Mið. 6. nóv. kl. 20
Fim. 7. nóv. kl. 20
Fös. 8. nóv. kl. 20
Takmarkaður sýningafjöldi!
552 1971, nemendaleikhus@lhi.is
"Grettissaga er stórkostleg leikhúsupplifun."
S.S og L.P. Rás 2
Grettissaga saga Grettis
leikrit eftir Hilmar Jónsson byggt á Grettissögu
föst 8.nóv. kl. 20 nokkur sæti , lau 9. nóv kl. 20 nokkur sæti , lau 16. nóv kl. 20, lau 23. nóv kl. 20, laus sæti,
Sellófon eftir Björk Jakobsdóttur
mið 6. nóv, uppselt, fim 7. nóv. AUKASÝNING, örfá sæti, sun 10. nóv, uppselt, þri 12. nóv, uppselt,
mið 13, nóv, uppselt, sun 17. nóv, uppselt, þri. 19. nóv, örfá sæti mið 20. nóv, uppselt,
sun 24. nóv, uppselt, þri 26. nóv, uppselt, mið 27. nóv, uppselt, sun 1. des. örfá sæti.
Sýningarnar á Sellófon hefjast kl 21.00