Morgunblaðið - 05.11.2002, Blaðsíða 53
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2002 53
ÞÓTT nóvembermánuður sé ekki
nema nýhafinn þá eru jólin kom-
in í verslunarmiðstöðvum á Ís-
landi og bíóhúsum vestra.
Santa Clause 2, eða Jóla-
sveinninn 2, önnur myndin í röð-
inni þar sem handlagni heim-
ilisfaðirinn hann Tim Allen
treður sér og ístrunni sinni allri
ofan í reykháfa ungra og
þægra barna, var nefnilega
langvinsælasta myndin um
helgina og hefur ugglaust kom-
ið hálfri þjóðinni í jólaskap, löngu
áður en slíkt þykir tímabært.
Hvað svo sem mönnum finnst um
að jólamyndir skuli vera frum-
sýndar tæpum tveimur mánuðum
fyrir jól þá var bandaríska þjóðin
vel móttækileg fyrir smá jóla-
stemningu. Gagnrýnendur eru og
margir á því að önnur myndin
slái hinni fyrri frá 1994 við, sé í
senn fyndnari og hlýlegri, fyrst
og fremst vegna góðrar frammi-
stöðu Tims Allens.
Ekki gekk I Spy með Eddie
Murphy og Owen Wilson eins vel
í mannskapinn en hún náði þó
þriðja sætinu og rétt náði að
skáka toppmyndinni frá því í síð-
ustu viku, galgopamyndinni Jack-
ass: The Movie.
Um næstu helgi má búast við
því að Jóli blessaður neyðist til
að víkja fyrir rappstjörnunni Em-
inem en þá verður frumsýnd 8
Mile, fyrsta myndin er skartar
honum í aðalhlutverki.
Bíóaðsóknin í Bandaríkjunum
Jóla-
sveinninn
er kominn!
!!
" #$ %$
&'()
!(
"
*+,
-.+/
-0+,
-1+-
2+/
/+2
0+2
0+
+3
-+3
*+,
20+*
-0+,
0+/
-+
-./+
--1+/
--+,
..+*
0+2
Tim Allen er farinn að kunna vel við sig í hlutverki Jóla gamla. Reuters
ÞAÐ hljómar ekkert of vel
þegar maður fréttir að fast-
eignasalar séu farnir að brjótast
inn á tónlistar-
markaðinn, ég
verð nú bara að
viðurkenna það.
En … enga for-
dóma takk fyrir.
Því Unfolding
kemur skemmti-
lega á óvart.
Tónlistin er einfalt rokk og
ról, flutt af krafti og ástríðu þar
sem söngurinn er hvað eftir-
tektarverðastur, en hann er
hressilega hrár og rifinn. Sér-
staklega er Hálfdan skemmti-
lega rokkaður og lífsreyndur í
túlkun sinni, hljómar eins og
hann hafi flækst á milli knæpna
og kráa Bandaríkjanna í tugi
ára, með sönginn sem sitt lifi-
brauð. Þessi Ameríkutenging
liggur nokkuð sterkt í gegnum
diskinn, veri það nafn sveitar-
innar, mynd á umslagi, laga-
smíðar eða heildarbragur. Þessi
vinkill gefur disknum visst sér-
kenni, sem veldur því að maður
dokar lengur við en ella. Hljóm-
sveitin nær nefnilega þessum
óhamda kúrekablæ, sem um-
slagið gefur til kynna bara
býsna vel. Manni verður hugsað
til erki-amerískra banda eins og
Green on Red; „Slash“-sveita
eins og Del Fugeos og manna
eins og John Cougar Mellen-
camp (í ögn rokkaðri útgáfu).
Því þarf ekki að koma á óvart
að hér er breitt yfir lög þeirra
Smithereens og Counting
Crows, og það meira að segja
nokkuð skammlaust.
Hljómur er hrár og þjónar
það heildaráferðinni vel. Þó
virðist röddin full framarlega –
eða þá að hljóðfærin eru of aft-
arlega. Sérstaklega er gítar-
hljómurinn kæfður. Stundum –
og það er í undantekningartil-
fellum – ber viðvaningsháttur
lögin svo ofurliði, samsöngur
Hálfdans og Sigríðar er t.a.m.
ekki að ganga upp og í einstaka
lögum flýtur reynsluleysið upp á
yfirborðið.
En þessar umkvartanir eru
tittlingaskítur, þegar litið er til
heildarinnar. Sem er hrátt og
fjörugt rokk, flutt af smitandi
einlægni og áhuga. Og það af
fasteignasölum!? Já, þessi ver-
öld maður…
Tónlist
Rokkum
húsið!
Los Angeles
Unfolding
Fold Fasteignasala
Unfolding, plata hljómsveitarinnar Los
Angeles. Hana skipa Hálfdan Stein-
þórsson (hljómgítar og söngur), Sig-
ríður Sif Sævarsdóttir (söngur og slag-
verk) og Viðar Böðvarsson (hljóm- og
rafgítar). Til aðstoðar voru Fjalar Jó-
hannsson (rafbassi), Jón Indriðason
(trommur, slagverk og aðstoð við
hljóðblöndun), Lárus Magnússon (raf-
gítar), Lovísa Fjeldsted (selló) og
Snorri Barón Jónsson (hljóm- og rafgít-
ar). Lög eftir Hálfdan og Viðar en einn-
ig eiga Diamond, DiNizio, Cohen,
Duritz og Bryson lög. Upptaka var í
höndum Axels Einarssonar en um
hljóðblöndun sá Þórir Úlfarsson.
Arnar Eggert Thoroddsen