Morgunblaðið - 05.11.2002, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 05.11.2002, Blaðsíða 47
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2002 47 HELGIN var frekar annasöm og töluvert um útköll vegna ölvun- ar aðfaranótt sunnu- dags. Tilkynnt var um 26 innbrot, 20 þjófnaði og 24 sinnum tilkynnt um skemmdarverk. Þá var 5 öku- tækjum stolið um helgina. Tilkynnt var um 5 bruna en allir voru þeir taldir minniháttar. Um helgina var tilkynnt um 39 umferðaróhöpp og var í 3 þeirra um minniháttar slys á fólki að ræða sem ætlaði sjálft á slysadeild en í einu tilfelli voru aðilar fluttir á slysadeild í sjúkrabifreið en meiðsl þeirra talin minniháttar. 20 öku- menn voru kærðir fyrir of hraðan akstur og 11 voru grunaðir um að vera ölvaðir við aksturinn. Mikið eftirlit var með ölvunarakstri bæði aðfaranótt laugardags og sunnu- dags, öll umferð á ákveðnum göt- um stöðvuð og rætt við ökumenn. Svo virðist sem ökumenn virði bann við notkun farsíma við akst- urinn því aðeins einn var um helgina kærður fyrir það brot. Um miðjan dag á föstudag var lögregla og slökkvilið kallað að húsi við Suðurlandsveg en þar hafði fjögurra ára stúlka fest hönd milli stafs og hurðar. Tókst að losa stúlkuna með því að spenna hurð- ina frá stafnum með kúbeini. Stúlkan var flutt á slysadeild. Á laugardagsmorgun var beðið um aðstoð í íbúð í austurborginni vegna þess að þar hefði fyrrum kærasta húsráðanda ruðst inn og væri að rústa íbúðina. Er lögreglu- menn komu á vettvang kom í ljós að konan hafði skemmt eigur hús- ráðanda og gengið í skrokk á hon- um. Stúlkan var handtekin og fjar- lægð af vettvangi. Veski stolið úr innkaupakerru Á laugardag var kona að versla í stórmarkaði í austurborginni er hún veitti því athygli að búið var að taka veski hennar sem hún hafði haft í innkaupakerru. Gerði hún strax ráðstafanir og tilkynnti að greiðslukorti, sem var í veskinu, hefði verið stolið. Nokkru síðar er hún beið við af- greiðslukassann veitti hún því at- hygli að kona var að reyna að greiða fyrir vörur, með greiðslu- kortinu hennar en tókst ekki þar sem kortið var lokað. Var kallað eftir aðstoð lögreglu sem handtók hina fingralöngu konu og færði á lögreglustöð til viðræðna. Illviðráðanlegur unglingur Tvö fimmtán ára ungmenni, pilt- ur og stúlka, voru aðfaranótt sunnudags handtekin í austur- borginni eftir að hafa skemmt bif- reið með því að sparka í hana og ganga á vélarhlífinni. Voru þau flutt á lögreglustöðina. Er móðir drengsins kom að sækja hann var hann mjög æstur en hann hafði all- an tímann verið æstur og illviðráð- anlegur. Hann barði og sparkaði frá sér í bifreið móður sinnar og þá barði hann og sló til móður sinnar. Réð hún ekkert við drenginn og var hann því aftur færður inn á lög- reglustöðina. Haft var samband við barnaverndarfulltrúa sem fékk vistun fyrir drenginn á viðeigandi stofnun. Á sunnudag var tilkynnt að verið væri að brjótast inn í fyrirtæki í austurborginni. Starfsmaður sá til bifreiðar við húsið. Í ljós kom að stolið hafði verið tölvubúnaði fyrir milljónir. Nokkru síðar var til- kynnt um grunsamlega menn, í götu ekki alllangt frá, sem væru að bera eitthvað inn í gám. Er lög- reglan kom á staðinn lögðu menn- irnir á flótta en þeir náðust síðar og voru færðir í fangageymslu. Neyðarblys frá erlendum togara í Reykjavíkurhöfn Um 4.20 var tilkynnt að neyð- arblys sæist í eða við Reykjavík- urhöfn. Komu margar tilkynning- ar, meðal annars sáu lögreglumenn á eftirlitsferð blysin. Við eftir- grennslan lögreglu kom í ljós að blysunum hafði verið skotið upp frá erlendum togara sem var í Reykjavíkurhöfn en þar mun áfengi hafa verið haft um hönd. Málið er í rannsókn. Úr dagbók lögreglu 1.–4. nóvember Sló til móður sinnar og var handtekinn aftur Fundur hjá Krafti Kraftur, stuðn- ingsfélag ungs fólks, sem greinst hefur með krabbamein, og að- standenda, verður með fund þriðjudaginn 5. nóvember kl. 20 í húsi Krabbameinsfélagsins í Skóg- arhlíð 8, á 4. hæð. Sólveig Eiríks- dóttir hjá Grænum kosti fjallar um hvernig á að skipta um mat- aræði og Arnhildur S. Magn- úsdóttir kynnir jóga fyrir þá sem ganga í gegnum eða hafa lokið krabbameinsmeðferð. Opin málstofa í Alþjóðahúsi Í kvöld, kl 20 verður málstofa í Al- þjóðahúsi, Hverfisgötu 18, um sjálfsmynd ungra Albana í Dan- mörku ættaðra frá Makedóníu. Sesselja Ólafsdóttir skýrir frá nið- urstöðum MA-ritgerðar sinnar í mannfræði við Kaupmannahafn- arháskóla um það hvernig ungir Albanar hafa tækifæri, í gegnum menntun sína, til að efla albanskt þjóðerni sitt, samhliða aðlögun þeirra að dönsku samfélagi. Þátt- taka er ókeypis og allir velkomnir. Málstofa í HÍ á vísindadögum Málstofa verður haldin í Háskóla Íslands í samstarfi við RÚV í til- efni Vísindadaga 2002 og fer fram í Hátíðasal Háskólans í aðalbygg- ingu, í dag, þriðjudaginn 5. nóv- ember, kl. 17–19. Orkumál og orkurannsóknir, staða og framtíð- arsýn, samstarfsverkefni Orku- stofnunar og Háskóla Íslands. Þar verður m.a. rætt um hlutverk rík- isins í orkuiðnaði, grunnrann- sóknir, umhverfismál og nýsköpun í orkuiðnaði. Framsögumaður er Þorkell Helga- son orkumálastjóri og stjórnandi umræðu er Ævar Kjartansson. Þátttakendur í pallborðsumræðum verða Ingvar Friðleifsson, starfs- maður Orkustofnunar og for- stöðumaður Jarðhitaskóla Samein- uðu þjóðanna, Sveinbjörn Björnsson, deildarstjóri á Orku- stofnun, Þorsteinn Ingi Sigfússon, prófessor við raunvísindadeild HÍ, og Þóra Ellen Þórhallsdóttir, pró- fessor við raunvísindadeild HÍ. Í DAG Málstofuröð í HÍ á vísindadög- um Þessa viku verða málstofur í Háskóla Íslands. Þær eru haldnar í samstarfi við RÚV, í tilefni Vís- indadaga 2002 og fara allar fram í Hátíðasal Háskólans í Aðalbygg- ingu. Miðvikudagurinn 6. nóvember, kl. 17–19: Rekstrarform heilbrigð- isþjónustu, málstofa skipulögð af hjúkrunarfræðideild. Framsögu flytja Rúnar Vilhjálmsson prófess- or og Kristín Björnsdóttir, dósent í hjúkrunarfræðideild. Stjórn pall- borðsumræðna er Margrétar S. Björnsdóttur, framkvæmdastjóri, þátttakendur í pallborði eru, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir alþing- ismaður, Elsa Friðfinnsdóttir, að- stoðarmaður heilbrigðisráðherra, og Sverrir Jónsson læknir. Fimmtudagurinn 7. nóvember kl. 17–19: Islam? Vesturlönd. Við- fangsefnið verður „Hefur umræð- an um átökin fyrir botni Miðjarð- arhafs og atburðina 11. september orðið til þess; að auka skilning Vesturlandabúa á trúarbragða- og menningarheimi Islam eða til þess að auka fordóma?“ Framsögu flyt- ur Lilja Hjartardóttir, stjórnmála- fræðingur og verkefnisstjóri fé- lagsvísindadeild, en umræðum stjórnar Friðrik Rafnsson, þýðandi og bókmenntafræðingur. Þátttak- endur í pallborðsumræðum eru Salmann Tamimi, formaður félags múslima, Viðar Þorsteinsson og séra Þórhallur Heimisson. Laugardagurinn 9. nóvember, kl. 17–19: Umræður um stofnun sam- taka um „Íslenska erfðamengið“. Samtök fulltrúa þeirra er tengjast rannsókna- og þróunarstarfi í líf- tækni og erfðavísindum á Íslandi. Markmið slíkra samtaka yrði að vera vettvangur samráðs og fjár- mögnunar grunnrannsókna og ný- sköpunar í líftækni og erfðavís- indum. Gísli Pálsson, prófessor í mannfræði, flytur framsögu en Stefán Jökulsson, félagsfræðingur og útvarpsmaður, stjórnar um- ræðum. Þátttakendur í pallborðs- umræðum eru, Ari Skúlason, fram- kvæmdastjóri Aflvaka, Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, Magnús Karl Magnússon, Læknir og Salvör Nordal, forstöðumaður Sið- fræðistofnunar. Laugardaginn 9. nóvember verða námskeið fyrir börn og unglinga í viðskipta- og hagfræðideild einnig verða námskeið í eðlisfræði: „Til- raunir með ljós“ og í læknisfræði: „Hvað gerist við hreyfingu?“ Sunnudaginn 10. nóvember er námskeið fyrir börn og unglinga í eðlisfræði: „Þurrís og hamskipti efna“. Hönnunarsamkeppni og opið hús hjá viðskiptadeild sunnudaginn 10 nóvember: Verkfræðideild og Barnasmiðjan, kl. 14–16. Hönn- unarsamkeppni í sal 3 í Há- skólabíói milli hópa af mið og efsta stigi ólíkra grunnskóla. Opið hús hjá heimspekideild laug- ardaginn 9. nóvember. Ýmsar uppákomur í Nýja Garði og Árna- garði. Sunnudag 10. nóvember verður op- ið hús hjá viðskiptafræðideild í Odda, fyrir þátttakendur í nám- skeiðum, aðra grunnskólanem- endur og fjölskyldur þeirra. Námstefna á vegum Tölvudreif- ingar og Microsoft Námstefna verður haldin á vegum Tölvudreif- ingar og Microsoft um nýjustu og heitustu málin í upplýsinga- tækninni helgina 9.–10. nóvember. Kynnt verður Microsoft-tækni út frá íslenskum forsendum. Sérfræð- ingar í íslenskum tölvuiðnaði kynna efni frá Microsoft og miðla sinni þekkingu og reynslu, ásamt þremur erlendum sérfræðingum frá Microsoft. Námstefnan verður tvíþætt, annars vegar verður leit- ast við að svara tæknilegum spurn- ingum og hins vegar um hugbúnað. Stjórnendalína verður svo þriðja brautin. Þar verður lögð áhersla á gildi upplýsingatækninnar í stjórn- un og hagræðingu hjá fyr- irtækjum. Námstefnan er byggð á þeim ráðstefnum sem Microsoft heldur um þessar mundir í Banda- ríkjunum í tengslum við útgáfur nýjustu forritanna. Sýndar verða nýjungar svo sem: .NET server, Office 11, Tablet PC o.fl, segir í fréttatilkynningu. Dagskrá námstefnunnar er að finna á vefslóðinni: http:// www.td.is/EXP2002/default.htm Á NÆSTUNNI Minnst verslunareinokunar Á vegum Sagnfræðistofnunar Há- skóla Íslands starfar hópur að verkefninu Saga íslenskrar utan- landsverslunar 900–2002 og hefur hann undirbúið samkomu til að minnast þess að liðin eru 400 ár frá upphafi verslunareinokunar á Íslandi. Samkoman verður haldin miðvikudaginn 6. nóvember í Nor- ræna húsinu. Dagskráin hefst kl. 16 með ávarpi Valgerðar Sverr- isdóttur viðskiptaráðherra. Erindi halda: Helgi Þorláksson prófessor, Gísli Gunnarsson prófessor, Anna Agnarsdóttir dósent og Halldór Bjarnason, styrkþegi Rannís. Pall- borðsumræður og fyrirspurnir undir stjórn Birgis Þórs Runólfs- sonar dósents og Guðmundar Jónssonar dósents. Þátttakendur: Andrés Magnússon, fram- kvæmdastjóri Samtaka verslunar- innar – FÍS, Edda Rós Karls- dóttir, forstöðumaður greiningardeildar Búnaðarbanka Íslands, Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, og Jóhannes í Bónus. Málþing í Lögbergi Málþing verð- ur haldið, miðvikudaginn 6. nóv- ember kl. 12.15, í stofu L-101 í Lögbergi, á vegum lagadeildar Há- skóla Íslands og umboðsmanns Al- þingis. Framsögumenn verða umboðs- maður rússneska þingsins, pró- fessor Oleg Mironov, og Björg Thorarensen, prófessor við laga- deild Háskóla Íslands. Málþingið er opið lögfræðingum, laganemum og öðrum þeim, sem áhuga hafa á efninu. Fyrirlestur um fötlunarrann- sóknir Sigríður Einarsdóttir flyt- ur erindið Að vera í sérdeild: Átján fyrrverandi nemendur lýsa reynslu sinni. Fyrirlesturinn er í stofu 101 í Odda, Háskóla Íslands miðviku- daginn 6. nóvember kl. 13 og er öllum opinn. Fyrirlesturinn er byggður á eigindlegri rannsókn sem gerð var á árunum 1999–2001 meðal ungs fólks sem lauk grunn- skólanámi í almennum sérdeildum. Fjallað verður um reynslu þátttak- enda og upplifun af því að vera í sérdeild, líðan þeirra, námið og námsárangur og félagslega stöðu í skólanum. Einnig verður fjallað um gengi ungmennanna í fram- haldsnámi og atvinnulífi, eftir að grunnskóla lauk. Málstofa sálfræðiskorar Mið- vikudaginn 6. nóvember flytur Anna Kristín Newton, M.Sc., er- indið Reiðivandamál íslenskra fanga. Anna Kristín lauk námi í réttarsálfræði við háskólann í Kent í Bretlandi árið 2000. Hún starfaði samhliða náminu í bresku fangelsi, Dovers Young Offender Institute, og starfar nú hjá Fangels- ismálastofnun, segir í frétta- tilkynningu. Kynning á Bowen-tækni Kynn- ingarfundur um Bowen-tækni, sem er fólgin í léttum strokum þvert á vöðva, bandvef og sinar líkamans, verður haldinn á morgun, miðviku- daginn 6. nóvember, kl. 20 á Laugavegi 43 (Sálfræðiþjónusta Gunnars Gunnarssonar) . Einnig verður byrjendanámskeið í Bowen- tækni dagana 9.–12. nóvember. Kennari er Julian Baker. Skráning á netfangi: jmsig@simnet.is. Á MORGUN Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500. www.flis.is  netfang: flis@flis.is flísar mbl.isFRÉTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.