Morgunblaðið - 05.11.2002, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 05.11.2002, Blaðsíða 37
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2002 37 BYLTING varð í styrkveitingum til íþróttahreyfingarinnar með gerð nýs samstarfssamnings milli Íþróttabandalags Hafnarfjarðar (ÍBH) og Hafnarfjarðarbæjar. Á síð- ustu árum hafa sveitarfélögin í Suð- vesturkjördæmi gert samninga til að styrkja rekstur barna- og unglinga- starfs íþróttafélaganna. Þeir samn- ingar eru öðrum til fyrirmyndar og hafa eflt starf félaganna. Þessi samningur er sérstakur að því leyti að æfingagjöld hjá iðkendum 10 ára og yngri eru nánast felld niður. Gagnvart fjölskyldunni er þetta mik- il búbót og jafnframt hvatning til að senda börnin í íþróttir. Það er löngu viðurkennt að íþróttahreyfingin gegnir mikilvægu hlutverki í for- vörnum gegn neyslu vímuefna. Rannsóknir sýna skýrt fram á að þau börn og unglingar sem stunda íþrótt- ir neyta síður vímuefna og tóbaks. Jafnframt eru þau betur upplögð til náms og annara starfa sem bíða á degi hverjum. Ég hef áður minnst á að íþróttafélögin eru fyrst og fremst þjónustuaðilar fyrir sveitarfélögin. Rekstur félaganna snýst ekki lengur um áhugamennsku nokkurra ung- menna heldur eru þetta félög sem í eru allt frá nokkur hundruð iðkend- um upp í nokkur þúsund. Þau eru rekin af sjálfboðaliðum fyrir iðkend- ur, foreldra og sveitarfélögin. Þess vegna eiga þau rétt á styrkjum. Samfylkingin í Hafnarfirði og ÍBH eiga mikilnn heiður skilinn fyrir þennan samning og ég mun ekki liggja á liði mínu við að breiða hann út innan íþróttahreyfingarinnar. Þegar styrkir til íþróttamála eru skoðaðir kemur í ljós að sveitarfélög í öðrum kjördæmum standa mjög höllum fæti í samanburði við sveit- arfélög í Suðvesturkjördæmi. Það er okkur öllum umhugsunarefni. Ég hef ætíð barist fyrir auknum styrkj- um til íþróttahreyfingarinnar, hvort heldur er frá ríki eða bæ. Áhugaleysi ríkisins til að styrkja íþróttahreyf- inguna er sér kapítuli og núverandi ríkisstjórn til skammar. Það er efni í aðra grein sem ég mun reifa síðar. Auknir styrkir til íþrótta Eftir Valdimar Leó Friðriksson Höfundur stefnir á 4. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvest- urkjördæmi. „Ég hef ætíð barist fyrir auknum styrkjum til íþróttahreyf- ingarinnar, hvort heldur er frá ríki eða bæ.“ ÉG hvet Samfylkingarfólk í Suð- urkjördæmi til að tryggja Jóhanni Geirdal öruggt sæti í flokksvalinu 9. nóv. Jóhann hefur gegnt ýmsum trún- aðarstörfum. Hann var í stjórn Kaup- félags Suðurnesja, formaður UMFK þegar landsmót UMFÍ var haldið í Keflavík og Njarðvík. Formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja og í bæjarstjórn í Keflavík, síðar Reykjanesbæ. Jóhann sinnir vel því sem hann tekur að sér. Hann er sanngjarn og leitast við að sameina krafta þeirra sem með honum starfa. Þetta kom best í ljós við mótun nýs stjórnmálaafls. Þar var Jóhann í forystu. Hann lagði áherslu á það sem sameinaði fólk í stað þess sem sundraði. Það mætti vera öðrum til eftirbreytni. Mat fólks á störfum Jóhanns sést á því að hann hefur í tvígang sigrað í opnu prófkjöri og hefur forskot hans vaxið. Það er svona maður sem við þurfum til að efla starf í nýju kjör- dæmi. Ég treysti honum til að halda á lofti málefnum jafnaðar og félagshyggju. Ég veit að hann mun vera í nánu samstarfi við fólkið í kjördæminu. Jóhann Geirdal í öruggt sæti Eyjólfur Eysteinsson skrifar: Úr • Skart • Silfurborðbúnaður www.erna.is Ársskeið sterling silfur Tilvalin gjöf við öll tækifæri Sif gullsmíðaverkstæði Laugavegi 20b s. 551 4444 Gull- og silfursmiðjan Erna Skipholti 3 s. 552 0775 Verð 5.900 ÍSLENDINGAR þarfnast Jó- hönnu Sigurðardóttur í sterkri stöðu á Alþingi. Jóhanna hefur þegar markað djúp spor í íslenskri stjórnmálasögu. Hún hefur barist í þágu réttlætis og jöfnuðar, ekki síst í þágu þeirra þjóð- félagshópa sem mest hafa þurft á að halda. Hún er óhrædd við að velgja valdhöfum undir uggum, en er jafnframt hreinskiptin og heiðarleg. Hún hefur allt til að bera sem góðan stjórnmálamann prýðir enda hefur hún um langa hríð verið ein af vinsælustu stjórnmálamönnum þjóðarinnar. Í komandi kosningum ætlum við jafnaðarmenn að sækja fram. Samfylkingin þarfnast því öflugra forystumanna í báðum kjördæm- unum Reykjavíkur. Hún þarf á því að halda að Össur Skarphéðinsson og Jóhanna Sigurðardóttir fái glæsilega kosningu í 1. og 2. sæt- ið, forystusætin í Reykjavík. Nýt- um prófkjörið hinn 9. nóvember næstkomandi til að styrkja okkar forystumenn, styrkja Samfylk- inguna og sækja fram. Stillum upp okkar sterkasta lista, kjósum Öss- ur númer eitt og Jóhönnu númer 2. Ísland þarfnast Jóhönnu Hrannar Björn Arnarsson, fv. borg- arfulltrúi, skrifar: ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 19 18 8 1 0/ 20 02 Nýbýlavegi 2 • 200 Kópavogi • S 570 5300 • www.arctictrucks.is markaður jeppamannsins ProComp Dekkin eru fyrir 15" og 16" felgur - einstaklega mjúk og hljóðlát. Góð í blönduðum akstri. Þau fást í stærðum 33" og 35" og eru neglanleg. Ein þau alflottustu! Heilsárs- og gróft munstur. Mynstur dekkja Stundum er sagt að líkja megi tiltrú manna á einstökum gerðum dekkja við trúarbrögð. Hvað sem um það má segja er staðreynd að sum dekk henta betur en önnur við ákveðnar aðstæður. Meðfylgjandi tafla sýnir virkni mismunandi gerða dekkja. Aðstæður Í blautum snjó og slabbi Í drullu Í þurrum snjó Á þjöppuðum snjó Á ís Hljóð Grófmynstruð dekk Góð Góð Sæmileg Frekar slæm Frekar slæm Frekar slæm Fínmynstruð dekk Frekar slæm Sæmileg Góð Góð Sæmileg Góð Nokkrir gangar af 33” og 35” Xterrain ProComp dekkjum með allt að 30% afslætti. markaður jeppamannsins mikið úrval jeppadekkja RÉTTU DEKKIN 305/75R16 315/75R16 33/12,5R15 35/12,5R15 P r o C o m p e t i t i o n T i r e C o m p a n y ® Chaparral AP Dekkin eru með fjögurra bita heilsársmynstri, mikið skorin og boruð fyrir nagla. Reynast einstaklega vel í hálku 225/75R15 30/9,5R15 265/75R16 285/75R16 31/10,5R15 32/11,5R15 33/12,5R15 35/12,5R15 HJÁ OKKUR ÞÚ FÆRÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.