Morgunblaðið - 05.11.2002, Síða 21

Morgunblaðið - 05.11.2002, Síða 21
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2002 21 NEFIÐ á honum er gríðarlega stórt og hann hnusar út í loftið. Það er Gáttaþefur sem þarna er á ferð eins og hann kemur fyrir sjónir manna á jólasveinaskeiðinni í ár en hönnuður hennar er Arna María Kristjánsdóttir, nemandi í 7. bekk Melaskóla, sem tók við viðurkenningu fyrir verkið í Melaskóla í gær. Þetta er í áttunda skiptið sem efnt er til samkeppni meðal 11–12 ára grunnskóla- barna á Reykjavíkursvæðinu um hönnun jólasveinaskeiðarinnar en það er Gull- og silfursmiðjan Erna sem framleiðir skeiðina. Áður hafði fyrirtækið útbúið þrjár skeiðar eftir gömlum mótum sem fundust í fyr- irtækinu. Verkefnið er unnið í samvinnu við Fræðslumiðstöð Reykjavíkur og Félag íslenskra myndlistarmanna. Reyndi að gera mjóa mynd Um 220 hugmyndir bárust í samkeppn- ina að þessu sinni en sem fyrr segir var það Arna María í Melaskóla sem var hlut- skörpust. „Ég teiknaði hann aftan frá þannig að hann horfir upp og húfan lafir niður,“ segir hún. „Ég var að reyna að finna leið til að gera mjóa mynd því ég hélt að hún ætti að vera eins og skeiðin í laginu. Fyrst prófaði ég að teikna hann þannig að maður horfði beint á hann en þá sást ekki nógu vel að hann væri með stórt nef.“ Hún segist teikna mikið alla jafna og hafa gaman af myndlistartímunum í skólanum auk þess sem hún sæki myndlistarnámskeið. Þetta er þó í fyrst sinn sem hún tekur þátt í samkeppni af þessu tagi og því hefur hún ekki áður unnið til verðlauna fyrir list sína. En hvernig tilfinning var það að hampa verðlaununum. „Það var bara skemmti- legt,“ segir Arna og bætir því við að hún sé ánægð með hvernig til tókst með skeiðina. Hún veit þó ekki hvort hún muni borða jólagraut með skeiðinni í ár. „Alla vega ætla ég að borða eitthvað með henni,“ segir hún svo ákveðin. Morgunblaðið/Jim Smart Arna María Kristjánsdóttir verðlaunahafi og Ragnhildur Sif Reynisdóttir, gullsmiður hjá Gull- og silfursmiðjunni Ernu, við verðlaunaafhendinguna í Melaskóla gær. Vesturbær Verðlaunateikning Örnu Maríu af Gáttaþef. Nefstór á jólaskeið SKIPULAGSSTOFNUN ríkisins gerir ekki athugasemdir við að Garðabær taki um 13,5 hektara spildu á Hraunsholti eignarnámi. Eins og greint hefur verið frá hafa viðræður bæjaryfirvalda og landeig- enda um verð landsins ekki borið ár- angur. Bærinn hefur ekki verið reiðubúinn til að greiða nema hluta þess verðs sem sölutilboð landeig- enda hljóðaði upp á þar sem stærsti hluti landsins nýtist ekki undir byggð. Í umsögn Skipulagsstofnunar kem- ur fram að í gildi sé deiliskipulag fyrir svæðið sem geri ráð fyrir einbýlis- húsalóðum við Brekkuás og Brúnás. Á fundi bæjarráðs Garðabæjar var bæjarstjóra falið að vinna að fram- lagningu beiðnar um eignarnám landsins eftir að umsögn Skipulags- stofnunar var lögð fram. Ekki á móti eignarnámi Hraunsholts Garðabær GATNAGERÐ er hafin í Hvarfi III við Vatnsenda en hverfið er iðn- aðarsvæði sem rísa á meðfram Breiðholtsbraut. Í fyrsta áfanga verða göturnar Ögurhvarf, Urðar- hvarf og Vatnsendahvarf lagðar. Að sögn Þórarins Hjaltasonar, bæjarverkfræðings í Kópavogi, er byrjað á götunni Ögurhvarfi sem er austarlega í hverfinu. Verið sé að bíða með að hefja framkvæmdir við Urðarhvarf, sem sé stærri gata vestar í hverfinu en enn eigi eftir að hnýta lausa enda í skipulagi þess svæðis. Þá sé reiknað með að seinna verið ráðist í framkvæmdir við Vatnsendahvarf en það er tengibraut sem koma á milli Breið- holtsbrautar og nýs Vatnsendaveg- ar sem fyrirhugaður er ofan við nú- verandi byggð. Þórarinn segir standa til að hverfið verði orðið byggingarhæft næsta sumar og eru verklok gatn- anna áætluð þá. Það er verktaka- fyrirtækið Jarðvélar ehf. sem hefur verkið með höndum en tilboð þeirra hljóðaði upp á tæpa 41 millj- ón króna. Aðkoma að hverfinu breytist Að sögn Stefáns L. Stefánssonar, deildarstjóra framkvæmdadeildar Kópavogsbæjar, munu þessar vegaframkvæmdir breyta aðkomu að Vatnsendahverfinu á þann hátt að ekið verði inn í hverfið frá Breiðholtsbraut um Vatnsenda- hvarf og nýjan Vatnsendaveg í stað eldri Vatnsendavegar sem nú er notaður. Þeirri götu verði síðan lokað fyrir bílaumferð og nafni hennar breytt en líklegt sé að hún verði áfram notuð sem reiðleið. Ráðgert er að þessi breyting verði komin um miðbik næsta árs. Gatna- gerð í Hvarfi III hafin Vatnsendi Morgunblaðið/Árni Sæberg Ögurhvarf heitir vegurinn sem þarna er verið að leggja en hann er ein- ungis fyrsta skrefið í frekari gatnaframkvæmdum á svæðinu. Reykjavíkur sem úrskurðaði því í vil en málinu var áfrýjað til Hæstaréttar sem staðfesti úr- skurðinn á föstudag. Að sögn Einars Arnar Stef- ánssonar, framkvæmdastjóra Þróunarfélagsins, hefur Mark- aðstorgið ehf. ekki greitt leigu frá því í janúar á þessu ári og málareksturinn hefur staðið yfir frá því í júní síðastliðinum. Að- spurður hvort rekstur Kola- portsins verði borinn út segir hann engar ákvarðanir hafa ver- ið teknar í þeim efnum. Hann segir stjórn félagsins munu koma saman í dag og ræða mál- ið og búast megi við ákvörð- unum um framhaldið í þessari viku. ÓLJÓST er um framtíð Kola- portsins eftir dóm Hæstaréttar síðastliðinn föstudag þar sem úrskurðað var að heimilt væri að bera reksturinn út af fyrstu hæð Tollhússins við Tryggva- götu vegna vangoldinnar leigu. Búast má við að leigusalar kom- ist að einhverri niðurstöðu í þessari viku um til hvaða að- gerða verði gripið. Þróunarfélag miðborgarinnar er með húsnæðið á leigu hjá Fasteignum ríkissjóðs og áfram- leigir það til Markaðstorgsins ehf., rekstraraðila Kolaportsins. Félagið kærði vanefndir á leigu- samningi til Héraðsdóms Kolaportið borið út? Miðborg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.