Morgunblaðið - 05.11.2002, Síða 22
EFNT var til mótmæla gegn
Kárahnjúkavirkjun við tröppur
Akureyrarkirkju á sunnudag. Þar
safnaðist saman nokkur hópur
fólks, um 30 manns og var lesið og
sungið úr Sóleyjarkvæði, spjallað
og hugað að framtíðinni. Nokkur
hópur fólks hefur um skeið verið
að ræða leiðir til að vekja fólk til
umhugsunar um umhverfisleg,
samfélagsleg og efnahagsleg áhrif
stórvirkjana og stóriðju að sögn
Valgerðar Bjarnadóttur, en að
hennar sögn finnst mörgum um-
ræðan einsleit.
Ákveðið var að efna til mótmæla
á þessum sama stað í hádeginu á
föstudögum, kl. 12.05.
Ólafur Valsson sagðist hafa átt
þess kost að skoða það svæði sem
færi undir vatn og að sínu mati
væri þar um að ræða eitt stórkost-
legasta landsvæði hér á landi. „Ég
hugsa til þess með hryllingi ef
þessu landi verður fórnað,“ sagði
Ólafur sem fór í skoðunarferð
þarna um fyrr í haust. „Ég hafði
ekki mikla hugmynd um hvernig
þetta svæði liti út, en komst að
raun um að það er stórfenglegt og
þykir því mikið glapræði verði því
fórnað,“ sagði Ólafur.
Morgunblaðið/Kristján
Mótmæltu Kára-
hnjúkavirkjun
VALDÍS Hallgrímsdóttir endurtók
leikinn frá því í fyrra og sigraði
með glæsibrag í kvennaflokki í
keppni um Þrekmeistara Íslands
2002. Hún gerði gott betur og varð
líka Þrekmeistari í flokki 39 ára
og eldri og hún sigraði einnig í
liðakeppni kvenna ásamt félögum
sínum í Ljónynjunum. Lárus Mik-
ael frá Ísafirði sigraði í karla-
flokki og Þorsteinn Hjaltason frá
Akureyri í flokki 39 ára og eldri. Í
liðakeppni karla sigraði liðið
Word Class Austurstræti.
Keppnin fór fram í Íþróttahöll-
inni á Akureyri sl. laugardag og til
leiks mættu tæplega 100 kepp-
endur víðs vegar af landinu. Val-
dís sigurvegari kom þó alla leið
frá Noregi en hún hefur verið bú-
sett þar undanfarin ár. Alls var
keppt í 10 greinum og eru keppn-
isgreinarnar vel kunnar því fólki
sem stundar æfingar sínar í lík-
amsræktarstöðvum landsins og
reyna mikið á styrk og úthald.
Guðrún Ragnarsdóttir frá Vest-
mannaeyjum hafnaði í öðru sæti í
kvennaflokki og Hrönn Ein-
arsdóttir frá Akureyri í því þriðja.
Fyrstu þrjár konurnar voru einnig
gjaldgengar í eldri flokkinn og
fóru því heim með þau verðlaun
líka. Pálmar Hreinsson frá Kópa-
vogi varð í öðru sæti í karlaflokki
og Þorsteinn Hjaltason frá Ak-
ureyri í því þriðja.
Klappstýrurnar frá Akureyri
sigruðu í liðakeppni kvenna 39 ára
og eldri og Tannlæknarnir og
endajaxlarnir frá Akureyri í liða-
keppni karla 39 ára og eldri.
Fjöldi fólks fylgdist með spenn-
andi keppni í Höllinni á laugardag.
Bræðurnir Þorsteinn og Jón Hjaltasynir etja kappi. Lárus Mikael sigraði í karlaflokki.
Þrefaldur sigur Valdísar
Morgunblaðið/Kristján
Valdís Hallgrímsdóttir á hlaupabrettinu í liðakeppninni. Félagar hennar í
Ljónynjunum hvetja hana til dáða, Bryndís Jóhannesdóttir, Birgitta Guð-
jónsdóttir, Ruth Viðarsdóttir og Þórhalla Andrésdóttir.
AKUREYRI
22 ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BÆJARSTJÓRN Akureyrar sam-
þykkti á síðasta fundi sínum til-
lögu Kristjáns Þórs Júlíussonar
bæjarstjóra þess efnis að fela jafn-
réttis- og fjölskyldunefnd að fylgj-
ast skipulega og faglega með þró-
un grunnlauna og aukagreiðslna til
karla og kvenna sem starfa hjá
Akureyrarbæ. Tillaga Oktavíu Jó-
hannesdóttur bæjarfulltrúa sem
lögð var fram á sama fundi, um að
bæjarstjórn láti gera allsherjar-
könnun á launamun kynjanna hjá
bænum, náði ekki fram að ganga.
Í tillögu bæjarstjóra kemur
fram að ekki verði að svo stöddu
ráðist í framkvæmd nýrrar heild-
arrannsóknar á launum starfs-
manna Akureyrarbæjar en þess í
stað vinni jafnréttis- og fjölskyldu-
nefnd að þessu verkefni. Nefndinni
er ætlað að bera skipulega saman
grunnlaun og aukagreiðslur til
karla og kvenna á einstökum
vinnustöðum hjá Akureyrarbæ,
nefndin leiti skýringa á óeðlilegum
launamun, ef hann kemur í ljós
innan eða milli vinnustaða bæj-
arins hjá starfsfólki í sambæri-
legum störfum. Einnig er nefnd-
inni ætlað að gera tillögur til
bæjarráðs um úrbætur ef niður-
stöður athugana leiða í ljós að fag-
legra sjónarmiða sé ekki gætt við
ákvörðun launakjara eða ef yfir-
vinnumagn á einstökum vinnustöð-
um er meira en samrýmist fjöl-
skyldustefnu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn felur jafnréttis- og
fjölskyldunefnd verkefni
Fylgst verði
með launaþróun
starfsmanna
Skarðshlíð fjöl-
mennasta gatan
SKARÐSHLÍÐ er sem fyrr fjöl-
mennasta gatan á Akureyri en á
síðasta ári bjuggu þar 520 manns.
Snægil er næstfjölmennasta gatan
líkt og undanfarin þrjú ár en í
fyrra bjuggu 385 manns við göt-
una. Við Vestursíðu bjuggu 355
manns, við Tjarnarlund um 330
manns og við Hjallalund um 300
manns.
Síðuhverfi er fjölmennasta
hverfi bæjarins með rúmlega 2.760
íbúa á síðasta ári. Í Lundarhverfi
bjuggu rúmlega 2.200 manns í
fyrra, rúmlega 2.000 manns í Hlíð-
arhverfi og á Norðurbrekku, um
1.380 manns á Oddeyri og um
1.280 manns á Suðurbrekku. Í
Giljahverfi bjuggu um 1.390 manns
á síðasta ári en þar hefur orðið
mesta fjölgunin á undanförnum ár-
um, enda hverfið enn að byggjast
upp. Árið 1995 voru íbúar Gilja-
hverfis aðeins um 500.
Íbúar á Akureyri í lok síðasta
árs voru 15.635. Fyrir sunnan
Glerá bjuggu 8.784 en norðan við
ána 6.851. Þessar tölur er að finna
í ritinu Staðreyndir í tölum 2002,
sem Akureyrarbær gefur út.
EIGENDUR fyrirtækjanna Sjafn-
ar, Mjallar og Hörpu-Sjafnar ætla
að leggja hálfa milljón króna í söfn-
unarsjóð til stuðnings Sigrúnu
Maríu Óskarsdóttir og fjölskyldu.
Hún lenti sem kunnugt er í um-
ferðarslysi í Danmörku á liðnu
sumri og varð Sigrún María, 8 ára,
fyrir alvarlegum áverkum í slysinu
og er nú bundin hjólastól.
Ákveðið hefur verið að tvo
næstu mánuði, nóvember og des-
ember, renni ákveðin upphæð af
hverjum seldum lítra af málningu
frá Hörpu-Sjöfn í verslun fyrirtæk-
isins á Austursíðu til fjölskyldunn-
ar sem og andvirði 5% af stað-
greiðsluviðskiptum í þvottahúsi og
fatahreinsun Mjallar til áramóta.
Slysið í sumar hafði mikil og
ófyrirséð fjárútlát í för með sér fyr-
ir fjölskylduna, m.a. vegna kaupa á
bíl og hentugra húsnæði og vilja
fyrirtækin með þessum hætti
leggja sitt af mörkum til að styðja
við bak fjölskyldunnar.
Sjöfn, Mjöll og Harpa-Sjöfn
Styðja fjölskyldu
um hálfa milljón
Morgunblaðið/Kristján
Ingi Pétursson, Valtýr Hreiðars-
son, Björgúlfur Þórðarson, Þráinn
Guðjónsson og Gunnar Helgason
skiptast á gömlum skátasögum.
SKÁTAR á Akureyri héldu tvöfalda
afmælisveislu sl. laugardag, í tilefni
þess að skátastarf á Íslandi á 90 ára
afmæli og að á þessu ári eru liðin 70
ár frá því að skátaskálinn Fálkafell
ofan Akureyrar var reistur. Að
Hömrum, útilífs- og umhverfis-
miðstöð skáta, var haldinn fjöl-
skyldudagur, þar sem m.a. var farið
í létta leiki. Einnig komu yngri og
eldri skátar saman í Fálkafelli, þar
sem var opið hús um miðjan daginn
í tilefni afmælisins. Boðið var upp á
kakó og kringlur og þar voru rifj-
aðar upp gamlar og nýjar sögur úr
skátastarfinu. Um kvöldið fór svo
hin árlega Fálkafellsveisla fram.
Sögur úr skátastarf-
inu rifjaðar upp