Morgunblaðið - 05.11.2002, Side 23

Morgunblaðið - 05.11.2002, Side 23
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2002 23 SAMSTEYPA þriggja verktakafyr- irtækja, Háfells ehf., Jarðvéla ehf. og Eyktar ehf., átti lægsta tilboðið í fyrsta áfanga tvöföldunar Reykja- nesbrautar, frá Hvassahrauni og upp á Strandarheiði. Tilboð fyrir- tækjanna var 377 milljónum undir kostnaðaráætlun. Í ljósi þessa leggja fulltrúar áhugahóps áherslu á að flýtt verði framkvæmdum við breikkunina og henni lokið. Í þessum fyrsta áfanga felst að Reykjanesbrautin verður tvöfölduð úr Hvassahrauni, um Kúagerði og upp á Strandarheiði, alls um 8,6 km. Jafnframt verða byggð tvenn mislæg gatnamót, á vegamót Vatnsleysustrandarvegar og við Hvassahraun, og tilheyrandi tengi- vegir. Sex verktakar buðu í verkið og ríkti nokkur spenna þegar tilboðin voru opnuð hjá Vegagerðinni í gær. Stór og virt verktakafyrirtæki voru með hagstæð tilboð, að því er virt- ist, Ístak bauðst til að vinna verkið fyrir 637 milljónir, Suðurverk bauð 626 milljónir og Íslenskir aðalverk- takar buðu 622 milljónir. Lægsta tilboðið kom svo upp úr síðasta um- slaginu sem opnað var, litlu lægra en næstu tilboð. Það var frá sam- steypu Háfells ehf., Jarðvéla ehf. og Eyktar ehf. sem sameiginlega buðu 616 milljónir, miðað við mal- bikað slitlag. Vegagerðin hafði áætlað að kostnaður yrði 993 millj- ónir þannig að tilboð fyrirtækjanna er um 62% af áætlun. Íslenskir aðalverktakar áttu hins vegar lægsta tilboð, miðað við steypt slitlag, 673 milljónir kr. Er það tæplega 62% af kostnaðaráætl- un Vegagerðarinnar sem hljóðaði upp á 1090 milljónir kr. Ekki sérstaklega spennandi Fulltrúum lægstbjóðendanna létti þegar ekki komu fram fleiri til- boð. Ingi Guðmundsson og Eiður Haraldsson hjá Háfelli sögðu þó að opnun tilboðanna hefði ekki verið neitt sérstaklega spennuþrungin stund fyrir þá, þeir hafi verið alveg rólegir. Sögðu þeir gott að sjá næstu tilboð svona stutt undan. Félögin skipta þannig með sér verkum að byggingafélagið Eykt mun byggja mislægu gatnamótin en Háfell og Jarðvélar annast jarð- vinnuna. Starfsmenn Vegagerðarinnar munu nú yfirfara tilboðin og taka síðan upp viðræður við lægstbjóð- endur. Jónas Snæbjörnsson um- dæmisstjóri telur að það geti tekið tvær til fjórar vikur. Hann segir gert ráð fyrir að framkvæmdir hefjist upp úr áramótum en verk- takinn á að skila verkinu fullklár- uðu eftir tvö ár, 1. nóvember 2004. Vegagerðin hefur ekki fengið fram- kvæmdaleyfi hjá Vatnsleysustrand- arhreppi og á eftir að ganga frá samningum við landeigendur. Segir Jónas að unnið sé að þeim málum en framkvæmdaleyfið sé háð nauð- synlegum breytingum á aðalskipu- lagi hreppsins. Jónas kveðst ánægður með til- boðin. Þau séu heldur lægri en hann hafi átt von á. Spurður um skýringar á því segir Jónas að áreiðanlega sé gott ástand á mark- aðnum núna. Þá sé þetta óvenju- stórt verk á þessu svæði. Verktakar geri sjálfsagt ráð fyrir því að geta unnið við vegagerðina mestan hluta ársins og þeir geti unnið án trufl- unar af umferð um brautina. Fulltrúar áhugahóps um tvöföld- un Reykjanesbrautar voru við- staddir opnunina. Lýsti Steinþór Jónsson, forsvarsmaður hópsins, ánægju með tilboðin og í tilefni dagsins afhenti hann verktökum og Vegagerðarmönnum pakka af Suð- urnesjakaffi frá Kaffitári. Vilja flýta framkvæmdum Steinþór segir að miðað við það verð sem verktakar bjóði í fyrsta áfanga geti sparnaður við heildar- verkið numið allt að milljarði, mið- að við kostnaðaráætlun. Hann segir að í ljósi þessa telji áhugahópurinn mikilvæt að flýta framkvæmdum sem kostur er og bjóða lægstbjóð- anda að ljúka verkinu á sömu ein- ingaverðum. Áhugahópurinn mun beita sér fyrir því að þingmenn kjördæmis- ins sjái til þess að á næstu vega- áætlun verði veitt fé til að ljúk breikkun Reykjanesbrautarinnar, úr Hvassahrauni í Reykjanesbæ. Steinþór segir að hópurinn muni einnig minna á loforð sem þing- menn og fleiri gáfu um að raunhæft væri að ljúka verkinu á árinu 2004, ef tilboð yrðu hagstæð. Niðurstaða dagsins gæfi vissulega tilefni til þess að loforðin geti ræst. Tilboð 377 milljón- um undir áætlun Morgunblaðið/Jim Smart Vegamálastjóri og aðstoðarmenn hans fylgjast með opnun tilboða, f.v.: Jón Rögnvaldsson, Helgi Hallgrímsson og Jóhann Bergmann deildarstjóri. Reykjanesbraut SÁ skemmtilegi atburður átti sér stað á fimmtugasta starfsári Holta- skóla í Keflavík að fjölga varð nefndarmönnum í foreldrafélagi skólans vegna áhuga foreldra á að starfa í félaginu. Þetta er að öllum líkindum einsdæmi. „Á fyrsta fundinum sem ég sat kom fram að alltaf hafi þurft að biðja fólk um að starfa í félaginu en nú gáfu svo margir sig fram,“ sagði Albert Eðvaldsson, nýskipaður for- maður félagsins, í samtali við Morg- unblaðið. Albert taldi ástæðuna þá að aukinn áhugi væri hjá foreldrum á foreldrastarfi í skólunum. „For- eldrar vilja fylgjast betur með og taka meiri þátt í starfi skólanna.“ Holtaskóli fagnaði 50 ára afmæli sl. laugardag við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu við Sunnubraut. Í til- efni þessa merka áfanga var nýtt skólamerki afhjúpað og í lok hátíð- arinnar sungu allir nemendur og starfslið skólans nýjan skólasöng. Einnig var saga skólans rakin, en hann hét upphaflega Gagn- fræðaskólinn í Keflavík. Það var ekki fyrr en með einsetningu grunnskólanna sem farið var að kenna á öllum stigum. Fram kom í máli Jónínu Guðmundsdóttur að- stoðarskólastjóra að foreldrafélag skólans væri sérstaklega öflugt og sá einstaki atburður gerðist í haust- byrjun að fjölga þurfti í félaginu sökum áhuga foreldra á að starfa í því. Blaðamaður leitaði skýringa hjá formanninum, Albert Eðvalds- syni. „Þegar fráfarandi formaður hafði samband við mig í september og fór þess á leit að ég tæki við for- mennskunni sagðist ég taka það að mér ef ég mætti taka með mér tvo aðila sem ég vildi starfa með. Síðan kom á daginn að þeir sem höfðu verið í stjórn vildu starfa áfram og einnig gáfu nýir sig fram. Við ákváðum að nýta allt þetta viljuga fólk og stækka stjórnina úr 7 í 10. Nú höfum við 5 aðalmenn og 5 varamenn en allir mæta á fundi einu sinni í mánuði.“ Albert segir þessa þróun mjög ánægjulega og markvisst sé unnið að því að bæta samband heimila og skóla. „Í hverri bekkjadeild skólans eru þrír bekkjafulltrúar sem eru tengiliðir bæði við foreldrafélagið og starfslið skólans. Þetta er í anda stefnu samtakanna „Heimili og skóli“. Þá er starfandi félag í Reykjanesbæ sem er samstarfs- félag foreldraráðs bæjarins og allra foreldrafélaganna í grunnskólanna í Reykjanesbæ (FFGÍR) og þar er fundað einu sinni í mánuði, þar sem áhersla er lögð á samvinnu. Einnig eru hugmyndir uppi um að gefa út handbók fyrir foreldrafélögin svo félögin hafi nægjar upplýsingar í höndunum þegar nýir félagsmenn taka til starfa. Stundum á algjör endurnýjun sér stað í félögunum og þá er gott að geta gripið til slíkrar handbókar,“ sagði Albert. Foreldrafélagið afhenti Holta- skóla fána með nýja skólamerkinu á afmælishátíðinni á laugardag. Nýja merkið er hannað af Jóni Ágústi Pálmasyni. Það sýnir holtasóley vaxa í skjóli húss og táknar nem- endur Holtaskóla sem vaxa og dafna í skjóli skólans. Fáninn var dreginn að húni að skátasið á lóð skólans að afmælishátíð lokinni. Nýtt merki og nýr skólasöngur á hálfrar aldar afmæli Holtaskóla Urðu að fjölga í foreldrafélaginu Keflavík Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Nemendur í 1-C taka undir í nýjum skólasöng. Lagið er eftir Guðmund Hermannsson, fv. kennara við skólann, og Ásgeir Árnason kennara. Ármúla 21, 108 Reykjavík Sími 533 2020 Fax 533 2022 www.vatnsvirkinn.is 70 mm og 100 mm þakniðurföll í miklu úrvali, með og án sjálvirks hitaþráðar. Áfastur PVC- eða tjörudúkur. Fleiri stærðir fáanlegar. ÞAKNIÐURFÖLL

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.