Morgunblaðið - 05.11.2002, Qupperneq 36
UMRÆÐAN
36 ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Prófkjör
Prófkjör stjórnmálaflokkanna vegna þingkosninganna í maímánuði
nk. fara fram í vetur. Af því tilefni birtir Morgunblaðið greinar fram-
bjóðenda og stuðningsmanna. Þær er einnig hægt að nálgast undir
liðnum prófkjör á forsíðu mbl.is.
ÞAÐ er engin ástæða til þess að
heimila erlendar fjárfestingar í ís-
lenskum sjávarútvegi og þess
vegna tilefni til þess að andmæla
því sjónarmiði sem kemur fram í
leiðara Morgunblaðsins sl. föstu-
dag um þau mál. Það er ekkert
sem knýr á um slíka heimild og
augljóst að erlend fjárfesting væri
hrein ávísun á það að útlendingar
fengju afnotarétt í íslenskri fisk-
veiðilandhelgi. Gegn slíku verður
hins vegar að snúast af fullri
hörku.
Við þurfum ekki erlenda
sérþekkingu
Menn segja að það knýi á um
heimild útlendinga til fjárfestingar
í sjávarútvegi okkar að íslensk
sjávarútvegsyrirtæki séu að fjár-
festa í erlendum sjávarútvegsfyr-
irtækjum. Þetta er ekki sambæri-
legt. Menn eru að kalla eftir okkar
fjárfestingu, vegna þeirrar sér-
þekkingar sem við höfum.
Enginn lætur sér detta það í
hug að okkur skorti erlenda sér-
þekkingu inn í okkar sjávarútveg.
Við erum með sjávarútveg í
fremstu röð. Þessar gagnkvæmn-
isröksemdir eiga því einfaldlega
ekki við.
Eru fjárfestar áhugalausir
um sjávarútveginn?
Því er líka haldið fram að ís-
lensk sjávarútvegsfyrirtæki sitji
ekki við sama borð og önnur fyr-
irtæki á íslenskum markaði, vegna
þess arna, séu ef til vill annars
flokks kostur á hlutabréfamark-
aðnum. En er þetta svona í raun-
veruleikanum? Finnst mönnum að
hræringar síðustu mánaða í ís-
lenskum sjávarútvegi bendi til
þess að skortur sé á fjárfestum inn
í öflug og góð íslensk sjávarút-
vegsfyrirtæki? Varla.
Heimildir til erlendrar
fjárfestingar
Fyrir nú utan það að heimildir
útlendinga til óbeinna fjárfestinga
eru all nokkrar og líklega rýmri en
menn gera sér almennt grein fyrir.
Á það benti til dæmis Árni M.
Mathiesen sjávarútvegsráðherra
fyrir nokkru. Svo má líka vekja at-
hygli á að stóru sölufyrirtækin
okkar SÍF og SH sem eru skráð á
markaði eru þannig í sveit sett að
þar geta útlendingar fjárfest.
Spyrja má af hverju það hafi ekki
gerst í ríkari mæli.
Þeir þurfa á okkur að halda
Sjávarútvegur á Íslandi hefur
mikla sérstöðu. Þetta er alvöru at-
vinnugrein, tæknivædd, framfara-
sinnuð og án ríkisstyrkja sem hef-
ur verið og er enn burðarás
þeirrar lífskjarasóknar sem hér
hefur staðið í heila öld a.m.k. Sjáv-
arútvegsauðlindin er okkur ómet-
anleg og ekkert getur komið í
staðinn ef við missum á henni tök.
Það er eðlilegt að þjóðir með
veikan sjávarútveg kalli eftir fjár-
magni og sérþekkingu frá okkur.
En það þýðir ekki að við eigum að
kalla yfir okkur Unilever og aðra
þá erlendu auðhringi sem gætu
með auðveldum hætti tekið okkar
sjávarútveg í nefið án þess að
finna fyrir því.
Erlendar fjárfest-
ingar í sjávarút-
vegi? – Nei, takk!
Eftir Einar K.
Guðfinnsson
Höfundur er formaður sjávarútvegs-
nefndar Alþingis.
„Okkur
skortir ekki
erlenda sér-
þekkingu
inn í okkar
sjávarútveg.“
BJÖRN Bjarnason fyrrverandi
menntamálaráðherra kom á fjár-
mögnunarkerfi fyrir háskólastigið í
landinu, sem er óviðunandi fyrir rík-
isskólana og ávísun á verulegt for-
skot fyrir einkaskólana.
Ríkis- og einkaháskólar fá sömu
fjárupphæð fyrir hvern nemanda.
Einkaskólarnir bæta síðan við skóla-
gjöldum, Háskólinn í Reykjavík um
180 þúsund krónum á ári, sem eru
um 50% af framlagi ríkisins í laga- og
viðskiptadeild, en framlag ríkisins til
tölvunarfræði er hærra og nema
skólagjöld þar um 30% af framlagi
ríkisins.
Háskóla Íslands og öðrum ríkishá-
skólum er ekki heimilt að taka skóla-
gjöld samkvæmt ákvörðun Alþingis.
Auk þess verða fjölmennar deildir
Háskóla Íslands s.s. lagadeild og við-
skiptadeild að greiða af því ríkis-
framlagi sínu um þriðjung til fá-
mennra kennslugreina sem ekki
standa undir sér samkvæmt reikni-
líkani menntamálaráðuneytis. Þetta
eru námsgreinar sem nauðsynlegt er
talið að bjóða kennslu í, svo sem er-
lend tungumál sem kennd eru í Há-
skólanum.
Þessi samkeppnis- og aðstöðu-
munur milli einka- og ríkisháskóla
gengur ekki. Ég þekki dæmi um
kennara sem hafa verið keyptir frá
Háskóla Íslands til Háskólans í
Reykjavík, laun þeirra tvöfölduð en
kennsluskylda minnkuð verulega.
Á háskólafundi Háskóla Íslands
var eftirfarandi samþykkt: „Nokkr-
ar námsgreinar og deildir Háskóla
Íslands, einkum lagadeild og við-
skipta- og hagfræðideild, horfast í
augu við samkeppni við innlenda
skóla sem njóta framlaga úr ríkis-
sjóði. Háskólafundur fer þess á leit
við menntamála- og fjármálaráðu-
neyti að Háskólanum verði gert
kleift að mæta þessari samkeppni á
jafnréttisgrundvelli. Vilji stjórnvöld
að áfram verði boðið upp á nám í
ýmsum fámennum greinum við Há-
skóla Íslands er eina leiðin að auka
fjárveitingar til skólans.“
Menntamálaráðherra hefur ný-
verið heimilað Háskólanum á Akur-
eyri að koma á laganámi. Þar er fyrir
viðskipta- og tölvunarfræðinám, sem
á í mjög ójafnri samkeppni við
einkaháskólana. Ætlar ráðherra Há-
skólanum á Akureyri og Háskóla Ís-
lands að keppa á þessum forsend-
um? Vill hann að ríkisháskólarnir
visni meðan einkaháskólar dafna?
Það verður að koma á réttlátari sam-
keppni, þar sem keppt er á grund-
velli gæða menntunar en ekki mis-
munandi fjárhagsstöðu.
Stöndum vörð
um Háskóla
Íslands
Eftir Ástu Ragnheiði
Jóhannesdóttur
Höfundur er alþingismaður og sæk-
ist eftir 3. sæti í prófkjöri Samfylk-
ingarinnar í Reykjavík.
„Þessi sam-
keppnis- og
aðstöðu-
munur milli
einkahá-
skóla og ríkisháskóla
gengur ekki.“
ÉG trúði ekki mínum eigin aug-
um þegar ég las Moggann sl.
föstudag og sá þar hvatningar-
grein eftir formann framkvæmda-
stjórnar Samfylkingarinnar, Stef-
án Jón Hafstein, en þar hvetur
hann flokksfólk í Suðurkjördæmi
til að kjósa Margréti Frímanns-
dóttur í 1. sæti í komandi próf-
kjöri. Er það virkilega svo í þess-
um flokki, að þeir sem kosnir hafa
verið til að stýra flokknum nú um
stundir, séu þar til að þjóna hver
öðrum? Er það þeirra pólitík?
Getur það verið, að formaður
framkvæmdastjórnar telji sig
eiga allan sinn pólitíska frama
undir núverandi flokksforystu?
Illa finnst mér komið fyrir þessum
flokki mínum. Um leið og Stefán
Jón Hafstein hvetur kjósendur
Samfylkingarinnar í Suðurkjör-
dæmi til að setja Margréti Frí-
mannsdóttur í fyrsta sæti segir
hann, að þeir aðrir frambjóðendur
sem eru í kjöri séu ekki jafn góðir
þegar til framtíðar flokksins er lit-
ið, eða hvað? Stefán telur að
flokksmenn eigi að kjósa Margréti
af því að hún er varaformaður,
ekki vegna þess að hún sé öflugur
þingmaður. Nei, vegna þess að
hún er varaformaður, það eitt
skiptir máli að mati Stefáns Jóns.
Auðvitað er þessi samtrygging
flokksforystu Samfylkingarinnar
með öllu óþolandi og flokksfólki
ekki bjóðandi. Samfylkingin í hinu
nýja Suðurkjördæmi þarf að fá
nýtt og kraftmikið fólk til forystu
og sem betur fer eru þar margir í
boði.
Guðmundur Oddsson
Stefán, svona
gera menn ekki!
Höfundur er fyrrverandi formað-
ur framkvæmdastjórnar Alþýðu-
flokksins.
ÞEGAR stjórnvöld höfðu svikið öll
loforð sín um sættir í sjávarútvegs-
málum og sett á málamynda auð-
lindagjald, lýsti fyrrverandi formað-
ur framkvæmdaráðs Samfylkingar-
innar, Ágúst Einarsson kvótagreifi,
yfir því, að ríkisstjórnin væri búin að
taka deilumálið um fiskveiðistjórn-
ina út af dagskrá.
Sem sagt: Málinu lokið og grip-
deild hans og annarra lénsherra á
þjóðarauðlindinni fullkomnuð.
Í beinu framhaldi af því tekur
Samfylkingin á dagskrá sína inn-
göngu Íslands í Evrópusambandið,
og lýsir því yfir að það sé brýnast
mála til úrlausnar. Stefndi málinu
síðan til allherjaratkvæðagreiðslu í
flokki sínum svo sem eins og til end-
anlegrar afgreiðslu.
Um öll efnisatriði, sem varðar að-
ild að ESB, verður ekki fjallað í
þessu greinarkorni, enda ástæðu-
laust. Sá, sem hér heldur á penna, er
Evrópusinni, en hann sér ekki
ástæðu til að eyða tíma sínum í að
gaumgæfa mál, sem er með öllu
óumræðuhæft eins og sakir standa.
Það er óþarft í því sambandi að
nefna nema eitt atriði, sem útilokar
aðild Íslands að ESB, en þau kunna
að vera miklu fleiri, sem kæmu þá til
athugunar síðar. Þetta úrslitaatriði
er reglur ESB í sjávarútvegsmálum.
Með inngöngu Íslands í ESB
myndi yfirstjórn fiskveiðimála
landsins flytjast til Brüssel. Um ein-
hverjar undanþágur okkur til handa
í því efni er marglýst yfir að ekki
komi til greina af þeim, sem fremstir
fara með völdin í ESB. Allt annað er
óráðstal og óleyfilegur málatilbúnað-
ur.
Inngöngunni fylgir athafnafrelsi
fjárfesta í Evrópu á íslenzkum fjár-
málamarkaði. Um það eru allir sam-
mála, einnig þeir, sem á inngöngu
klifa.
Til hvers myndi það leiða þegar í
stað?
Ýmsar stórþjóðir innan ESB, og
gamalgrónar fiskveiðiþjóðir, myndu
óðar í bili kaupa upp öll fiskveiðirétt-
indin á Íslandsmiðum. Kynni enda
að vera að þeir hittu fyrir gíruga
sölumenn, sem hafa slegið eign sinni
á aðalauðlind Íslands í skjóli ríkis-
valds, og vildu koma þeim verðmæt-
um í lög áður en þau verða af þeim
tekin.
Það eru meinleg örlög Samfylk-
ingarinnar að vera að kalla þríklofin í
afstöðu til fjölmargra mikilvægra
þjóðmála. Eitt af þeim er fiskveiði-
stjórnin. Undir álit auðlindanefndar
skrifuðu þrír þingmenn Samfylking-
ar fyrirvaralaust. Var þó önnur aðal-
niðurstaða nefndarinnar kjörleið
stjórnvalda, sem fulltrúar lénsherr-
anna í nefndinni kusu sér að sjálf-
sögðu.
Þjóðvakamenn í Samfylkingu hafa
fylgt fjárhaldsmanni sínum ótrauðir.
Jóhann Ársælsson, ásamt sam-
þingmanni sínum Gísla Einarssyni
eru þeir einu sem frá öndverðu hafa
beitt sér af einurð og hörku gegn
óstjórn fiskveiðanna og orðið drjúg-
um ágengt. Verður að telja að meiri-
hluti þingmanna Samfylkingarinnar
fylgi þeim nú að málum og ber að
fagna því. Á það mun reyna, ef Sam-
fylking sezt að samningaborði við
núverandi ríkisstjórnarflokka um
stjórn landsins hvort hún setur fisk-
veiðistjórnina á dagskrá og heldur
henni þar.
Ömurlegasta málið, sem tveir
þriðju hlutar þingmanna Samfylk-
ingar tóku á dagskrá sína, var hjá-
seta við ótrúleg þingsafglöp fólgin í
tuttuguþúsundmilljónakróna ríkis-
ábyrgð til handa deCODE, og tóku
þar með ábyrgð á málatilbúnaðinum.
Spurning: Er það fráleita mál enn
á dagskrá þeirra?
Dagskráin
Eftir Sverri
Hermannsson
„Ömurleg-
asta málið,
sem tveir
þriðju hlutar
þingmanna
Samfylkingar tóku á
dagskrá sína, var hjá-
seta við ótrúleg þings-
afglöp.“
Höfundur er formaður Frjálslynda
flokksins.
GUÐMUNDUR Árni er enginn
nýgræðingur í stjórnmálum.
Hann hefur margsýnt það og
sannað, að hann er einhver öfl-
ugasti talsmaður
jafnaðarstefnunnar
hér á landi. Hann á
glæsilegan feril að
baki sem bæj-
arstjóri í Hafn-
arfirði og síðar
sem alþingismaður.
Guðmundur Árni hefur sýnt það,
að hann eflist í mótlæti og er
ávallt tilbúinn að taka slaginn þar
sem hann er harðastur. Hann er
hugsjónamaður, kjörinn til for-
ystu í flokki félagshyggju og jafn-
aðar.
Ég hef orðið þeirrar ánægju að-
njótandi um árabil að vera sam-
verkamaður Guðmundur Árna. Við
sátum saman í bæjarstjórn Hafn-
arfjarðar um árabil ásamt mörgu
góðu fólki. Eftir glæsilegan sigur
jafnaðarmanna árið 1986 leiddi
Guðmundur Árni glæsilegt upp-
byggingar- og framfaraskeið í
Hafnarfirði. Ég efa ekki að við öll
sem komum að því verki minn-
umst þess tíma með allnokkru
stolti og ánægju.
Mikið vatn hefur runnið til sjáv-
ar frá því að Alþýðuflokkurinn í
Hafnarfirði vann glæsta sigra á
árunum 1986–94. Samfylkingin
hefur orðið til og að henni stendur
breiðfylking jafnaðarmanna og fé-
lagshyggjufólks. Samfylkingin er í
bullandi sókn í íslensku samfélagi.
Hún hefur á að skipa öflugu fólki
og vaskri forystusveit. Þrátt fyrir
að ég sé fluttur burt af suðvest-
urhorninu vil ég hvetja alla mína
gömlu félaga til að veita Guð-
mundi Árna gott brautargengi í
prófkjöri Samfylkingarinnar í Suð-
vesturkjördæminu hinn 9. nóv-
ember nk. og styðja Guðmund
Árna í fyrsta sætið.
Bestu kveðjur að austan.
Guðmund Árna
í 1. sætið
Tryggvi Harðarson skrifar:
PIPAR OG SALT
Klapparstíg 44 Sími 562 3614
MORTEL
Marmara-
mortel
hvít/græn
Verð frá kr. 1.600