Morgunblaðið - 05.11.2002, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 05.11.2002, Qupperneq 44
KIRKJUSTARF 44 ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ FUNDUR í Safnaðarfélagi Digraneskirkju verður haldinn fimmtudaginn 7. nóvember kl. 20.30 í safnaðarsal kirkjunnar. Gestur kvöldsins og ræðumaður er Þorsteinn Haukur Þorsteins- son tollfulltrúi. Hann flytur er- indi um forvarnir og fíkniefni og hefur hundinn Bassa meðferðis. Bassi er mörgum að góðu kunn- ur því hann heimsækir ferming- arbörnin á hverju ári. Eftir umræður og kaffi tökum við lagið saman við undirleik Þorsteins Hauks. Stundinni lýk- ur með helgistund í umsjá prests í kirkjuskipinu. Trú og bókmenntir NÁMSKEIÐ um trú og bók- menntir hefst í Leikmannaskól- anum miðvikudaginn 6. nóv- ember. Kennarar á námskeiðinu eru dr. Hjalti Hugason prófessor og Ásdís Egilsdóttir dósent. Á námskeiðinu verða skoðaðir bókmenntatextar í ljósi kirkju- legra og trúarlegra aðstæðna á ritunartíma og í tengslum við samtímann. Námskeiðið er í fjögur skipti, á miðvikudögum kl. 20–22, 6.–27. nóvember og er kennt í stofu 5 í Aðalbyggingu Háskóla Íslands. Hægt er að skrá sig og fá frek- ari upplýsingar á vef Leik- mannaskólans www.kirkjan.is/ leikmannaskoli <http:// www.kirkjan.is/leikmanna- skoli> eða í síma 535 1500. Digraneskirkja Fundur í Safn- aðarfélagi Digraneskirkju Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa kl. 10–14 í neðri safnaðarsal kirkjunnar. Byrj- að á kaffisopa og kl. 10.30 er boðið upp á skemmtigöngu um Laugardalinn eða upp- lestur úr góðum bókum fyrir þá sem ekki treysta sér í gönguna. Bæna- og fyrirbæna- stund kl. 12. Fólk sem býr eða starfar í sókninni er hvatt til að koma og eiga kyrrð- arstund í önnum dagsins. Fyrirbænum má koma til starfsfólks kirkjunnar. Að lokinni bænastund gefst þátttakendum kostur á léttum hádegisverði. Tólfsporafundur í kvöld kl. 19. Bústaðakirkja. TTT-æskulýðsstarf fyrir 10–12 ára kl. 17. Grensáskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12. Orgelleikur, ritningarlestur, altaris- ganga, fyrirbænir. Léttur hádegisverður að samverustund lokinni. 10–12 ára starf KFUM&K kl. 17. Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Laugarneskirkja. Fullorðinsfræðsla Laug- arneskirkju kl. 20. Sr. Jón Bjarman, fyrrum sjúkrahúsprestur, fjallar um hlutverk og líðan aðstandenda þess sem er sjúkur. Engin skráning. Þægilegt að vera með. Gengið inn um dyr á austurgafli kirkjunnar. Þriðjudagur með Þorvaldi kl. 21. Lofgjörð- arstund þar sem Þorvaldur Halldórsson leiðir sönginn við undirleik Gunnars Gunn- arssonar, en sóknarprestur flytur guðs orð og bæn. Fyrirbænaþjónusta kl. 21.30 í umsjá Margrétar Scheving sálgæsluþjóns og bænahóps kirkjunnar. (Sjá síðu 650 í Textavarpi.) Neskirkja. Litli kórinn – kór eldri borgara kl. 16.30. Stjórnandi Inga J. Backman. All- ir velkomnir. Foreldramorgnar miðvikudag kl. 10–12. Mataræði ungbarna. Hjúkrun- arfræðingur frá heilsugæslunni á Seltjarn- arnesi sér um efnið. Umsjón Elínborg Lár- usdóttir. Seltjarnarneskirkja. Foreldramorgunn kl. 10. Kirkjuprakkarar (7–9 ára) kl. 16. Kirkjustarf TTT (10–12 ára) kl. 17.30. Árbæjarkirkja. Foreldramorgunn í safnað- arheimilinu kl. 10–12. Hittumst, kynn- umst, fræðumst. STN – Starf fyrir 7–9 ára börn kl. 16.15–17.15. Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjónusta með altarisgöngu kl. 18.30. Bænaefnum má koma til sóknarprests í viðtalstímum hans. Digraneskirkja. Kirkjustarf aldraðra hefst kl. 11.15 með leikfimi ÍAK. Helgistund í umsjá Kjartans Sigurjónssonar organista. Samverustund. Kaffiveitingar. KFUM- &KFUK í Digraneskirkju fyrir 10–12 ára krakka kl. 17–18.15. Fræðslusalur opinn fyrir leiki frá 16.30. Unglingakór Digranes- kirkju kl. 17–19. Alfa-námskeið kl. 19. Kvöldverður, fræðsla, umræðuhópar. Kennari Halldór Konráðsson. (Sjá nánar: www.digraneskirkja.is) Fella- og Hólakirkja. Fjölskyldustund í safnaðarheimili á þriðjudagsmorgun kl. 10–12 í umsjón Lilju G. Hallgrímsdóttur djákna. Kristín Axelsdóttir, hjúkrunarfræð- ingur og djáknanemi, svarar fyrirspurnum foreldra. Kaffi og notalegheit þar sem heimavinnandi foreldrar hittast í góðu um- hverfi kirkjunnar. Starf fyrir 11–12 ára stúlkur kl. 16.30. Grafarvogskirkja. Opið hús fyrir eldri borg- ara kl. 13.30–16. Helgistund, handa- vinna, spil og spjall. Kaffiveitingar og alltaf eitthvað gott með kaffinu. Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 8. bekk Rimaskóla kl. 20– 22. Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 9. og 10. bekk í Grafarvogskirkju kl. 20–22. Hjallakirkja. Prédikunarklúbbur presta í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra er í Hjallakirkju kl. 9.15–10.30. Umsjón Sig- urjón Árni Eyjólfsson. Kópavogskirkja. Foreldramorgunn í dag kl. 10–12 í safnaðarheimilinu Borgum. Seljakirkja. Mömmumorgunn. Opið hús milli kl. 10 og 12. Kaffi og spjall. Æsku- lýðsfundur fyrir 13 ára unglinga (ferming- arbörn) kl. 20. Vídalínskirkja. Opið hús fyrir eldri borgara í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli kl. 13–16 á vegum kirkjunnar. Spilað og spjallað. Helgistund kl. 16. Fjölbreytt æskulýðs- starf fyrir 9–12 ára stúlkur í safnaðarheim- ilinu Kirkjuhvoli kl. 17.30–18.30 í umsjón KFUK. Víðistaðakirkja. Barnastarf fyrir 8–9 ára börn í dag kl. 17. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10–12 ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi, Vonarhöfn frá kl. 17–18.30. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús fyrir 7–9 ára börn kl. 16.30–18. Æskulýðsstarf 8. og 9. bekkur kl. 20–22. Hveragerðiskirkja. Kl. 10 foreldramorg- unn. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 15 kirkjuprakkarar, kirkjustarf 6–8 ára krakka. Furðufatadagur. Um að gera að mæta í furðulegum fötum. Barnafræðar- arnir. Kl. 20 fundur um sorg og missi í Safnaðarheimilinu. Stutt erindi um sorg- arviðbrögð og spjall í umsjá sóknarprests. Keflavíkurkirkja. Fermingarundirbúningur í Kirkjulundi kl. 14.30–15.10, 8.B í Holta- skóla & 8. I.M. í Myllubakka. Kl. 15.15– 15.55, 8.A í Holtaskóla & 8. B í Myllu- bakkaskóla. Áfallahjálp og sorgarvinna í minni sal Kirkjulundar kl. 20.30. Grindavíkurkirkja. Foreldramorgnar alla þriðjudaga kl. 10–12. Hveragerðiskirkja. Kl. 10 foreldramorg- unn. Þórður Birgisson tannlæknir ræðir um tannvernd barna. Borgarneskirkja. TTT tíu – tólf ára starf alla þriðjudaga kl. 17–18. Helgistund í kirkjunni sömu daga kl. 18.15–19. Þorlákskirkja. Fermingarfræðsla í dag kl. 13.40. Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomnir. Kefas. Brauðsbrotning og bænastund kl. 20.30. Allir velkomnir. Aðaldeild KFUK, Holtavegi 28. Fundur í kvöld kl. 20. Sr. Helga Soffía Konráðsdótt- ir fjallar um spekina. Allar konur velkomn- ar. Akureyrarkirkja. Morgunsöngur kl. 9. Fermingarfræðsla kl. 15.30 í safnaðar- heimili. Hópur 2: 8.B Brekkuskóla og 8. bekkur Oddeyrarskóla. Safnaðarstarf MINNINGAR Kæri frændi, mig langar bara að kveðja þig með einum litlum pistli um viðburðaríkt líf þitt. Gísli Gíslason var einn af fjórtán systkinum, númer tólf í röðinni og missti móður sína snemma, bara sautján ára gamall. Ungur fór hann út á vinnumarkaðinn, í fiskvinnu í landi og til sjós. Hann sagði mér margar sögurnar um hörkuna í þá daga. Seinna vann hann líka á Kefla- víkurflugvelli um tíma áður en stóru breytingarnar urðu. Hann var alltaf mikill ævintýra- maður og nítján ára gamall kvaddi hann systkini sín og föður og réð sig á færeyska skútu sem sigldi til Nor- egs þar sem hann munstraði sig á norskan fraktara og þannig sigldi hann um öll heimsins höf. Fyrst sem „messagut“, svo sem „motorman“ og aðstoðarvélstjóri. Í rúm fimm ár sigldi hann um heiminn en átti ekk- ert fast heimili nema skipin sem hann sigldi á. Stoppaði vanalega frekar stutt í hverri höfn nema kannski þegar skipt var um skips- GÍSLI GÍSLASON ✝ Gísli Gíslasonfæddist á Akra- nesi 22. september 1930. Hann lést á sjúkrahúsinu í Stav- anger í Noregi 24. október síðastliðinn. Foreldrar hans voru Gísli Einarsson og Halldóra Þorsteins- dóttir frá Akranesi. Gísli var þriðji yngst- ur í syskinahópi af fjórtán og eru fjögur enn á lífi. Hinn 3. september 1955 kvæntist Gísli, Åse Hjørdis Skeie, f. 8 janúar 1935, d. 2000, og bjuggu þau í Stavanger í Noregi alla sína hjú- skapartíð. Þau eignuðust fjögur börn sem eru Geir, f. 9 apríl 1956, Laila, f. 26. apríl 1957, Ståle, f. 10. desember 1962. og Tor Gísli, f. 9. apríl 1968. Þau búa öll í Noregi. Útför Gísla fer fram frá Eiga- nes- kapellu í Stavanger í dag. pláss. Þetta hefur örugglega verið sann- kallað ævintýri. Árið 1955 kom hann í land í Stavangri einn sólríkan vordag og hitti þar unga norska konu, Åse, sem hann varð ástfanginn af og þau giftu sig sama ár. Það var svo ári seinna sem fyrsta barnið, Geir, kom og Gísli þá ennþá í siglingum. En eftir að annað barnið fæddist ákvað hann að nú væri tími til kominn að hætta þessum löngu útiverum sem voru vanalega sex mánuðir í burtu og einn mánuður í fríi. Þegar hann fór loksins að vinna í landi gegndi hann ýmsum störfum sem til féllu. Seinna fór hann í skóla til að fá réttindi sem „maskinist“ við Stavanger Maritim Skole. Í þá daga var það ekki auðvelt þegar maður hafði fjölskyldu á framfæri. Þegar olíuævintýrið í Noregi var að byrja fékk Gísli vinnu á birgða- bát í Norðursjónum. Um 1968 setti hann ásamt öðrum á stofn fyrirtækið Wetherford/lamb sem sérhæfði sig í þjónustu við olíuiðnaðinn. Hætti störfum þar 1978. Stofnsetti síðan annað alnorskt fyrirtæki, Stavanger Casing, sem einnig sérhæfði sig í þjónustu við olíuiðnaðinn. Hætti störfum þar 1983 þegar fyrirtækið var keypt upp af enskum aðilum. Eftir það vann hann sem ráðgjafi fyrir Statoil þar til fyrrverandi sam- starfsmenn hans réðu hann til að leiða fyrirtækið Nor Casing 1985– 1990. Eftir það vann hann hjá fyr- irtækinu Trans Ocean þar til hann varð að láta af störfum eftir vinnu- slys 1992. Kæri frændi, ég þakka þér fyrir allt það sem þú gerðir fyrir mig þeg- ar ég kom til Noregs 1979. Sú hjálp var ómetanleg. Megi guð blessa þig og fjölskyldu þína. Þinn frændi Örn Guðsteinsson, Noregi. Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti, netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist. Ef greinin er á disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauðsynlegt er að símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi með. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is.Einnig er hægt að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Síðumúla 24 • Sími 568 0606 Heimaskrifstofa 166.000,- Innilegar þakkir sendum við öllum þeim fjöl- mörgu sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför systur okkar, SIGRÍÐAR INGIBJÖRNSDÓTTUR fyrrv. aðstoðarskólastjóra Njarðvíkurskóla, frá Flankastöðum, Sandgerði. Fyrir hönd aðstandenda, Halldóra Ingibjörnsdóttir, Ólafur Ingibjörnsson. Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, INGIBJARGAR PÉTURSDÓTTUR, Efstalandi 6, Reykjavík. Jón Þorsteinsson, Þorsteinn Jónsson, Elva Andrésdóttir, Elínborg Jónsdóttir, Franklín Georgsson, Erna Jónsdóttir, Sveinn Sveinsson, Pétur Jónsson, Sigrún Sigurðardóttir, Jón Ragnar Jónsson, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær bróðir minn, ÞÓRÐUR GUÐMUNDUR VALDIMARSSON, Austurbrún 6, Reykjavík, sem lést á Landspítala við Hringbraut fimmtu- daginn 24. október, verður jarðsunginn frá Foss- vogskapellu í dag, þriðjudaginn 5. nóvember, kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á líknarstofnanir. Sverrir Örn Valdimarsson. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, GUNNAR GUÐMUNDSSON, Köldukinn 23, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 7. nóvember kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Heima- hlynningu Krabbameinsfélagsins eða líknardeild Landspítalans Kópavogi. Ólafía Albertsdóttir, Viðar Gunnarsson, Þuríður Jónsdóttir, María Gunnarsdóttir, Friðbert Guðmundsson, Sævar Björn Gunnarsson, Halla, Hanna, Kristín Lóa, Sigrún, Hildur Ýr, Helena og Eyþór.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.