Morgunblaðið - 05.11.2002, Síða 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
UNDIR yfirskini skipulagsbreytinga
hefur bæjarstjórnarmeirihluti
Blönduóss sagt umhverfis- og
íþróttafulltrúa bæjarins upp störfum.
Í sjálfu sér er ekkert út á slíka stjórn-
sýslu að setja nema fyrir þá sök að
starfsmaðurinn sem hér um ræðir er
bæjarfulltrúi og oddviti minnihlutans
í bæjarstjórn. Með uppsögninni er
bæjarfulltrúi flæmdur úr starfi, hann
og fjölskylda hans svipt framfærslu-
möguleika sínum og væntanlega
hrekjast þau burtu. Er það bara til-
viljun að bæjarfulltrúi var í umræddu
starfi og pólitískur andstæðingur
meirihlutans? Má einu skipta hvort
hér liggi að baki skipulagsbreyting-
ar, pólitískar hvatir, eða eitthvað
annað. Þetta eru fordæmanlegar að-
farir sem bitna á lýðræðislegum rétti
minnihlutans til að starfa.
Í sjálfu sér skiptir engu máli hvaða
stjórnmálaflokkar eiga hlut að máli,
hvorki sem þolendur eða gerendur. Í
stjórnmálum er vegið með rökum, en
menn leggja ekki hendur á andstæð-
inga sína. Enginn viti borinn maður
ræðst að heimili pólitísks andstæð-
ings, grýtir hús hans eða leggur fjöl-
skyldu hans í einelti. Slíkt myndi án
efa teljast lögbrot. Á sama hátt hlýt-
ur það að flokkast undir níðingshátt
að svipta pólitískan andstæðing
starfinu. Slíkt er eflaust löglegt en
ber vitni um siðleysi. Það er einnig al-
varlegt að um leið er vegið að starfi
stjórnmálaflokks og reynt að lama
starf hans í bæjarstjórn.
Árið 1991 var auglýst laust starf á
Blönduósi og Ágúst Þór Bragason
garðyrkjufræðingur sótti um og
fékk. Síðar var starfssviði hans
breytt og hann fékk titilinn umhverf-
is- og íþróttafulltrúi. Ágúst hefur alla
tíð sinnt starfi sínu af trúmennsku og
dugnaði og án nokkurra ávirðinga.
Árið 1994 var Ágúst kjörinn í bæj-
arstjórn fyrir hönd D-listans og hef-
ur setið þar síðan, síðustu fjögur árin
sem oddviti flokksins og jafnframt
forseti bæjarstjórnar. Þrátt fyrir 9%
fylgisaukningu flokksins í sveitar-
stjórnarkosningunum í vor urðu lykt-
ir mála að D-listinn er nú í stjórn-
arandstöðu. Við því er ekkert að
segja, þannig er lýðræðið.
Meirihlutinn í bæjarstjórn Blöndu-
óss, H-listinn, vinstrimenn og óháðir
og Á-listi Bæjarmálafélagsins Hjúka,
hefur samið nýtt skipurit fyrir bæ-
inn, eflaust þarft verk og nauðsyn-
legt. Af skarpskyggni sinni fattaði
meirhlutinn skyndilega að starf um-
hverfis- og íþróttafulltrúa var óþarft
og þess vegna var Ágústi Þór sagt
upp störfum. Í litlu bæjarfélagi er lít-
il von til að Ágúst Þór fái annað starf
við hæfi og þarf hann að flytjast
burtu. Það er mikil blóðtaka fyrir lít-
ið sveitarfélag þegar fimm manna
fjölskylda með börn á aldrinum fimm
til ellefu ára, flyst í burtu. Slíkar fjöl-
skyldur eru burðarásinn, framtíðar-
vonin. Svo talar meirihlutinn fjálg-
lega um að fjölga þurfi íbúum á
Blönduósi og fá unga fólkið til að setj-
ast þar að.
Á Blönduósi er kjörinn bæjar-
fulltrúi sviptur lífsviðurværi sínu og
getur þar með ekki sinnt þeim lýð-
ræðislegu skyldum sem hann var
kjörinn til. Um leið er höggi komið á
minnihlutaflokkinn. Fátt er svo með
öllu illt. Meirihlutinn losnar við kröft-
ugan mann úr bæjarmálunum, erf-
iðan andstæðing og getur andað létt-
ar. Þessu má einna helst líkja við
uppsögn trúnaðarmanns stéttar-
félags á vinnustað, sem tíðkast víst
ekki lengur.
Í ljósi þessa má spyrja hvort
stjórnmál á Íslandi hafi breyst. Vilj-
um við að meirihluti komist upp með
að klekkja á pólitískum andstæðingi
með því að hafa af honum starf og bú-
setu? Er ný Sturlungaöld runnin upp
þar sem drenglyndi er fyrir borð bor-
ið og hoggið hvar og hvenær sem lag
gefst? Helgar nú tilgangurinn með-
alið?
Meirihluti vinstrimanna í bæjar-
stjórn Blönduóss reynir ugglaust
endalaust að verja gerðir sínar með
því að fela sig á bak við skipulags-
breytingar eða skipurit sem bendir
bara til þess að þeir skilji ekki málið.
Fjölmargir Blönduósbúar fordæma
þetta og skiptir engu hvar í flokki
menn standa. Þeir sem á annað borð
hafa skilning á eðli lýðræðisins hljóta
að mótmæla. Bæjarstjórnarmeiri-
hlutinn hefur gerst sekur um vald-
níðslu, pólitískar ofsóknir gagnvart
minnihlutanum og komist hann upp
með þetta, hvers er þá næst að
vænta?
SIGURÐUR SIGURÐARSON,
atvinnuráðgjafi og
íbúi á Blönduósi.
Pólitískar ofsóknir
á Blönduósi
Frá Sigurði Sigurðarsyni:
KÆRI Moggi:
Simpson kemur víða við
veldur breyttum högum.
Morgunblaðið kemur ekki út
á mánudögum.
Mér verður hugsað til þessarar
vísu sem var á hvers manns vörum
um miðja síðustu öld, seinnipart-
urinn mun vera eftir Jóhannes
Kjarval. Nú leyfi ég mér að stæla
vísuna og segja sem svo:
Simpson, hún kom víða við
olli breyttum högum.
Morgunblaðið kemur ekki enn,
út á mánudögum.
Nú stendur yfir auglýsingaher-
ferð ykkar á Mogganum undir yf-
irskriftinni; minn staður, mín
stund. Málið er hins vegar það að
minn staður, mín stund er líka á
mánudögum, það ert bara þú sem
ennþá tekur þér frí eins og ungling-
ur sem skrópar í skólanum á mánu-
dögum.
Hvenær ætlar þú að verða stór
og haga þér eins og alvöru dagblað?
Ég hef tvisvar áður kvartað við
þig yfir þessu slugsi, en engin við-
brögð fengið.
MARTA RAGNARSDÓTTIR,
Miklubraut 5,
105 Reykjavík.
Frá tryggum áskrifanda
Marta Ragnarsdóttir skrifar: