Morgunblaðið - 05.11.2002, Side 49

Morgunblaðið - 05.11.2002, Side 49
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2002 49 INGVAR Ásmundsson náði af- ar góðum árangri á heimsmeist- aramóti skákmanna 60 ára og eldri sem lauk í Naumburg í Þýska- landi um helgina. Hann varð hálfum vinningi á eftir heimsmeistaranum og allt bendir til þess að í leiðinni hafi hann tryggt sér áfanga að alþjóðleg- um meistaratitli. Það er sjaldgæft að skák- menn á þessum aldri nái sínum fyrsta AM-áfanga og ljóst að Ingvar er í hópi þeirra elstu. Ingvar lauk mótinu með tveimur jafnteflum. Í áttundu umferð gerði hann jafn- tefli við hinn fræga rússneska stórmeistara Mark Taimanov og í lokaumferðinni gerði hann jafn- tefli við þýska alþjóðlega meist- arann Klaus Klundt. Ingvar fékk 8 vinninga á mótinu og lenti í 5.– 15. sæti ásamt mörgum þekktum meisturum. Fjórir skákmenn deildu fyrsta sæti á mótinu með 8½ vinning. Stigahæstur þeirra varð lettneski alþjóðlegi meistar- inn Josef Petkevitch, sem er því heimsmeistari öldunga 2002. Hann sigraði einnig á heims- meistaramótinu í hraðskák í þess- um aldursflokki, en það var haldið meðan á aðalmótinu stóð. Heims- meistari kvenna 60 ára og eldri varð Marta Litinskaja. Ólympíuskákmótið hálfnað Átta umferðum af 14 er nú lok- ið á Ólympíumótinu í skák. Í sjö- undu umferð gerði íslenska karla- liðið jafntefli við Portúgal, en kvennaliðið vann góðan sigur á sterku liði Makedóníu með tveim- ur vinningum gegn einum. Átt- unda umferðin gekk hins vegar ekki eins vel og kvennaliðið tap- aði 0-3 fyrir Mongólíu. Í sjálfu sér ekki óeðlileg úrslit þar sem Mongólarnir voru mun stigahærri en íslensku konurnar. Það munaði þó litlu að Guðfríður Lilja Grét- arsdóttir sigraði í sinni skák með kóngssókn eftir meistaralega skiptamunsfórn. Hún hélt betri stöðu alveg fram í síðustu leikina þegar hún lék ónákvæmt og tap- aði. Karlaliðið gerði jafntefli við Tajikistan í sömu umferð. Eftir átta umferðir er karlaliðið í 40.–51. sæti með 17½ vinning og í kvennaflokki er íslenska liðið í 52.–60. sæti með 11½ vinning. Ár- angur karlasveitarinnar er því nokkurn veginn í takt við styrk- leikann, en konurnar hafa náð betri árangri en búist var við. Eins og svo oft áður má þó reikna með að lokaumferðirnar reynist afdrifaríkar fyrir heildarárangur- inn. Þeir Hannes Hlífar Stefánsson og Helgi Ólafsson hafa staðið sig best íslensku keppendanna og Hannes er meðal þeirra 10 sem bestum árangri hafa náð á mótinu. Frammistaða hans svarar til 2.808 stiga, þannig að hann er að tefla af heimsmeistarastyrk- leika. Rússarnir virðast ætla að sigra á mótinu, en þeir eru nú efstir með 24 vinning og hafa 1½ vinn- ing í forskot á Ungverja og Kín- verja sem eru í öðru sæti. Í kvennaflokki er Georgía efst með 19 vinninga og hefur tveggja vinninga for- skot á Bandaríkin sem eru ein í öðru sæti. Eftirfarandi skák Hannesar Hlífars gegn fjórða sterk- asta skákmanni heims vakti verð- skuldaða athygli. Hvítt: Hannes Hlífar Stefánsson Svart: Adams (Englandi) Spænski leikurinn 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. 0-0 Be7 6. He1 b5 7. Bb3 0-0 8. a4 – Hannes hefur ekki áhuga á að tefla uppáhaldsafbrigði Adams, Marshall-árásina, sem kemur upp eftir 8. c3 d5 o.s.frv. 8. – Bb7 9. d3 He8 10. Rbd2 Bf8 11. Rf1 Ra5 12. Ba2 h6 13. Re3 c5 14. Rh4 d5 15. exd5 Rxd5 16. Dh5 – Til greina kemur 16. Dg4 og ekki er ljóst, hvor leikurinn er betri. 16. – c4 17. dxc4 Rf4 18. Dg4 h5 19. Dg3 bxc4 20. Rf3 – Auðvitað ekki 20. Rxc4? Re2+ 21. Hxe2 Dd1+ og mátar. 20. – h4 21. Dxh4 – 21. – Bxf3 Líklega hefur það runnið upp fyrir Adams, þegar hér var kom- ið, að staða hans er ekki góð. Hann hefur ef til vill ætlað að leika 21. – Rxg2, en eftir 22. Dxd8 Rxe1 23. Dxa5 Rxf3+ 24. Kf1 ráða liðsyfirburðir hvíts úrslitum. 22. Dxd8 Hexd8 23. gxf3 Hac8 24. Rg2 Rh3+ 25. Kf1 c3 Hvítur á peð yfir, en peðastað- an er veik. Svörtu mennirnir standa illa, riddararnir á h3 og a5 og peðin á e5 og c4, svo að vörnin er erfið hjá honum. 26. bxc3 Hxc3 27. Re3 Rc6 28. Hb1! – Hvítur hótar 29. Hb7 og vinnur þannig tíma til að skipta upp á hrókum. 28. – d7 29. Hb3 Hxb3 30. Bxb3 Rd4 31. Hd1 Hc7? Eftir 31. – d6 er vinningurinn ekki eins auðveldur fyrir hvít. 32. Rd5 Hb7 Sjá stöðumynd 33. Hxd4! exd4 34. Kg2 – Nú fellur riddarinn á h3 og Hannes er ekki í vandræðum með að innbyrða vinninginn eftir það. 34. – Rxf2 35. Kxf2 d3 36. Ke3 dxc2 37. Bxc2 Bc5+ 38. Ke2 Hd7 39. Bb3 Hd6 40. Bc4 Kf8 41. Bd2 Hc6 42. Kd3 Hd6 43. a5 Hc6 44. h3 Hg6 45. Rc7 Hg3 46. Bd5 Hxh3 47. Rxa6 Bg1 48. Rb4 Hh4 49. a6 Ke7 Mér sýndist, að Adams léki þennan leik viljandi til að losna úr þjáningunum. 50. Bg5+ og svartur gafst upp. Kjartan Maack sigraði á U-2000-mótinu Kjartan Maack bar sigur úr býtum á U-2000-móti TR eftir æsispennandi lokaumferð. Undir lok setunnar voru aðeins tvær skákir eftir, en það voru skákir þeirra Kristjáns Halldórssonar (með 4½ vinning) og Kjartans Maack (5½) annars vegar og Stef- áns Freys Guðmundssonar (4½) og Rafns Jónssonar (5) hins veg- ar. Aðrir keppendur gátu ekki blandað sér í baráttuna um fyrsta sætið. Svo fór að lokum að Kjartan þrálék á móti Kristjáni þegar hann sá að Rafn var kominn með tapaða stöðu. Með þessu varð Kjartan einn efstur með 6 vinn- inga. Lokastaðan: 1. Kjartan Maack 6 v. 2. Stefán Freyr Guðmunds- son 5½ v. 3.–8. Rafn Jónsson, Guðni Stef- án Pétursson, Kristján Halldórsson, Daníel Pét- ursson, Sigurjón Frið- þjófsson, Andrés Kol- beinsson 5 v. 9.–11. Rúnar Gunnarsson, Hjört- ur Jóhannsson, Helgi Hauksson 4½ v. 12.–18. Árni Þorvaldsson, Óskar Haraldsson, Grímur Dan- íelsson, Aðalsteinn Thor- arensen, Páll Sigurðsson, Valdimar Leifsson, Ingi Tandri Traustason 4½ v. 19.–24. Þorsteinn Magnússon, Atli Freyr Kristjánsson, Ægir Óskar Hallgrímsson, Þór- arinn Björnsson, Sigurður Sverrisson, Fannar Örn Hákonarson 3½ v. Vert er að benda sérstaklega á frammistöðu Sigurjóns Friðþjófs- sonar, en hann náði mun betri ár- angri en stigin (1.350) segja til um. Hann vann m.a. Pál Sigurðs- son (1.825) og Óskar Haraldsson (1.685), en einu töpin voru á móti Kjartani Maack og Daníel Péturs- syni (1.570). Hinn ungi og efni- lega Atli Freyr Kristjánsson (12 ára, 1.370 stig) náði einnig góðum árangri og vann m.a. Sigurð Sverrisson (1.915). Ingvar Ásmundsson með AM-áfanga? Daði Örn Jónsson Bragi Kristjánsson Ingvar Ásmundsson SKÁK Naumburg, Þýskalandi HEIMSMEISTARAMÓT ÖLDUNGA 20. okt.–3. nóv. 2002 RAFHLÖÐUBÚÐIN Rafborg ehf. hefur flutt í stærra húsnæði í Sunda- borg 3. Þar eru á boðstólum rafhlöður fyr- ir flestöll tæki og tól. Ef þær eru ekki til á lager er hægt að panta þær. Einnig er hægt að láta sérsmíða raf- hlöður ef þörf er á. Helsta vörumerk- ið er sem áður Panasonic. Rafborg var stofnuð árið 1967. Starfsmenn eru þrír og er opið frá kl. 9–18 alla virka daga yfir vetrarmán- uðina en yfir sumarið er lokað kl. 17, segir í fréttatilkynningu. Rafhlöðubúðin Rafborg flytur Fyrir flottar konur Bankastræti 11 • sími 551 3930 Jólamyndatökur Hverfisgötu 50, sími 552 2690 Fæst í apótekum og lyfjaverslunum ER NEFIÐ STÍFLAÐ? STERIMAR er náttúrulegur nefúði sem losar stíflur og léttir öndun. Fyrir 0-99 ára. G æ ð i á N e tt o v e rð i. .. ELBA gerð 21-623 stál: 4-kerfa ofn með blæstri og digitalklukku Nú 44.900,- stgr. Ofnar 10 gerðir frá 29.900,- ELBA gerð 17-400 stál: 4 gasbrennarar, þ.a. 1 tvöfaldur, elektrónísk kveiking. Nú 27.900,- stgr. Gasborð 8 gerðir frá 13.900,- Gas+raf 2 gerðir frá 24.900,- Rafborð 12 gerðir frá 9.990,- ELBA gerð HMC-614 stál: 60cm breiður, 3ja hraða, afköst 250/400/500 m3 Nú 23.900,- stgr. kolsíur innif. í verði Viftur 9 gerðir frá 6.900,- SUPER TILBOÐ OFNAR – HELLUBORÐ – VIFTUR ASKALIND 3 - KÓPAVOGI - SÍMI: 562 1500 E L B A e ld a vé la r — o fn a r — h e ll u b o rð — v if tu r g æ ð in ó tv ír æ ð ve rð ið f rá b æ rt …

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.