Morgunblaðið - 05.11.2002, Qupperneq 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SÖNGKONAN Emilíana Torrini
hefur verið valin til að syngja að-
allagið í Turnunum tveimur, ann-
arri myndinni sem gerð er eftir
Hringadróttinssögu-þríleiknum eft-
ir J.R.R. Tolkien. Lagið kallast
„Gollum’s Song“ og mun hljóma í
lok myndarinnar.
„Það var haft samband við marg-
ar söngkonur varðandi það að
syngja lagið. Það var mjög mikil
óvissa um hvort ég gæti gert þetta
því ég er alveg óþekkt,“ sagði Emil-
íana hæversklega í samtali við
Morgunblaðið í
gær og bætti við að
það hefði komið
sér mjög á óvart að
vera valin.
Írska söngkonan
Enya söng aðallag
fyrstu mynd-
arinnar, Föruneyti
hringsins, en Emil-
íana kom þá einnig
til álita. Hún var
fyrst kölluð í prufu
eftir að aðstand-
endur mynd-
arinnar heyrðu og
hrifust af plötu
hennar, Love In
The Time Of
Science. „Þetta
gerðist allt mjög hratt. Ég var varla
búin að læra lagið þegar ég þurfti
að fara í hljóðver og syngja það,“
segir hún.
Emilíana var kölluð aftur í hljóð-
ver og í síðustu viku kom svo í ljós
að hún var sú útvalda.
Ekki var það minna ævintýri fyr-
ir Emilíönu að taka upp lagið því
það gerði hún í hljóðverinu sögu-
fræga Abbey Road Studios í Lond-
on, en Emilíana býr þar í borg.
„Það var líka rosa gaman því Bítl-
arnir voru svo mikið þar. Ég var
voða montin af því og er búin að
vera í hálfgerðu hláturskasti síð-
an,“ segir hún.
Lesið bækurnar fjórum sinnum
Emilíana sagðist sjálf vera mikill
aðdáandi bóka Tolkiens. „Ég er bú-
in að lesa bækurnar svona fjórum
sinnum. Ég er rosalegur aðdáandi.
Þess vegna er þetta allt svona æð-
islegt. Þegar ég sá myndina í fyrra
hugsaði ég hvað ég vildi að ég gæti
tekið þátt í þessu. Þetta er eig-
inlega ósk, sem ég óskaði mér í bíó
á síðasta ári,“ segir Emilíana en í
stíl ævintýramyndarinnar, þar sem
allt er mögulegt, hefur óskin nú
ræst.
Lagið samið af óskarshöfundi
Howard Shore gerir tónlistina
fyrir Turnana tvo líkt og Föruneyti
hringsins en hann hlaut Ósk-
arsverðlaun fyrir tónlistina í fyrstu
myndinni í þríleik leikstjórans Pet-
ers Jacksons.
Emilíana segir „Gollum’s Song“
dramatískt lag og í hrárri stíl en
hefur einkennt tónlist myndarinnar
hingað til. „Ég held þeir hafi fengið
mig því ég syng eins og frekja,“
segir hún.
Föruneyti hringsins, fyrsta
myndin í þríleiknum, hlaut mjög
góðar viðtökur er hún var frum-
sýnd hér á landi fyrir síðustu jól en
alls sáu 86 þúsund manns myndina,
sem orðin er meðal vinsælustu
mynda sögunnar.
Önnur myndin, Turnarnir tveir,
verður frumsýnd hérlendis 26. des-
ember og sagðist Emilíana bíða
hennar með mikilli eftirvæntingu
líkt og svo margir aðrir.
Emilíana Torrini verður með í ævintýraheimi næstu
myndarinnar um Fróða og félaga en hún syngur
aðallag Turnanna tveggja.
Ósk í bíó sem rættist
Emilíana Torrini syngur aðallagið í Hringadróttinssögu
Morgunblaðið/Golli
SALURINN í Kópavogi var þéttset-
inn á útgáfutónleikum Valgeirs Guð-
jónssonar sl. sunnudagskvöld.
Áheyrendur virtust skemmta sér hið
besta, en tónleikarnir voru haldnir í
tilefni af útgáfu nýrrar plötu Val-
geirs, Skellir og smellir, sem geyma
á bestu og „best gleymdu“ lög tón-
skáldsins, er náði þeim merka áfanga
að verða fimmtugur fyrr á árinu.
Tveir góðir gestir, þau Helgi
Björnsson og Diddú, tóku lagið með
Valgeiri í Salnum og var ekki annað
að heyra en að áheyrendur kynnu vel
að meta framtakið. Söngkonan fékk
að minnsta kosti dúndrandi lófatak
að launum er hún rifjaði upp gamla
takta frá dögum Spilverks þjóðanna í
laginu „Nei sko“.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nei sko, sungu þau Valgeir og Diddú í Salnum í Kópavogi um helgina.
Fleiri smellir
en skellir í
Salnum
GÍSLI Helgason blokkflautuleikari
slær tvær flugur í einu höggi með tón-
leikum í Salnum í Kópavogi í kvöld en
tónleikarnir eru bæði útgáfu- og af-
mælistónleikar. Á tónleikunum verð-
ur kynnt efni af geisladiski Gísla, sem
kallast Flautað fyrir horn.
„Ég átti afmæli í vor en gat ekki
haldið upp á það. Ég ákvað þá að
halda upp á afmælið með því að gefa
út þennan disk og halda tónleika í
leiðinni. Mér finnst skárra að halda
tónleika heldur en að halda einhverja
veislu,“ segir Gísli, sem varð fimm-
tugur á árinu.
„Á disknum eru bæði nýjar og eldri
hljóðritanir,“ segir Gísli en diskurinn
gerir blokkflautuferli hans góð skil.
Vel á þriðja tug tónlistarmanna kom
að gerð disksins. Auk Gísla koma
fram á tónleikunum í kvöld belgíski
hörpuleikarinn Sophie Marie
Schoonjans, bassaleikari Stuðmanna,
Tómas Tómasson, og hinn þekkti tón-
listarmaður og píanóleikari Þórir
Baldursson.
Gísli hefur starfað að margvísleg-
um verkefnum sem tónlistarmaður en
hann leikur m.a. með þjóðlagasveit-
inni Islandica. Einnig hefur hann
stjórnað upptökum á „einni og einni
plötu“ eins og hann orðar það. „Svo
hef ég spilað þegar einhver hefur
nennt að hlusta á mig,“ segir hann.
„Síðan er ég væntanlega að fara
með norrænum kvæðahópi að spila á
hinum Norðurlöndunum og líklega
hér líka,“ segir Gísli. Hann er einnig
þátttakandi í verkefni á vegum Evr-
ópusambandsins varðandi kynningu á
tónlist blindra og sjónskertra þannig
að nóg er að gera hjá Gísla.
Gísli tekur virkan þátt í störfum að
málefnum blindra en hann er formað-
ur Blindrafélagsins. Því ætti ekki að
koma á óvart að allur ágóði af tónleik-
unum renni í sjóðinn Blind börn á Ís-
landi en tónleikarnir hefjast klukkan
20.30 í kvöld.
Morgunblaðið/Jim Smart
Gísli Helgason blokkflautuleikari
heldur afmælis- og útgáfutónleika í
Salnum í Kópavogi í kvöld til
styrktar blindum börnum.
Betra en að
halda upp á
afmælið
Gísli Helgason
blokkflautuleikari með
styrktartónleika í Salnum
Frá leikstjóra American Beauty. Eitt mesta
meistaraverk sem þú munt nokkurn tíman sjá.
FYRSTI OG SKELFILEG-
ASTI KAFLINN Í SÖGU
HANNIBAL LECTER
anthony
HOPKINS
edward
NORTON
ralph
FIENNES
Sýnd kl. 8. B. i. 16.
Gott popp styrkir
gott málefni
1/2 Kvikmyndir.com
USA Today
SV Mbl
DV RadíóX
Það
verður
skorað
af krafti.
Besta breska
gamanmyndin
síðan „Brid-
get Jones’s
Diary.“ Gam-
anmynd sem
sólar þig upp
úr skónum.
Sat tvær vikur
í fyrsta sæti í
Bretlandi. SK RadíóX
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.20. B. i. 16.
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 5.50 og 10.20.
Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
HL Mbl
Frá leikstjóra American Beauty.
Eitt mesta meistaraverk sem þú munt nokkurn tíman sjá
5, 7.30 og 10.
Sýnd kl. 5.30, 8, 9 og 10.30.B. i. 16.
Gott popp styrkir
gott málefni
Sýnd kl. 3.50. með ísl. tali.
1/2Kvikmyndir.comUSA Today
SV Mbl
DV
RadíóX
1/2Kvikmyndir.is
„DREPFYNDIN“
ÞÞ. FBL
Sýnd kl. 3.50 og 6.
Búðu þig undir nýja til-
raun í hrylling. Það geta
allir séð þig og það heyra
allir í þér. En það getur
enginn hjálpað þér!
Mögnuð hryllingsmynd.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Stranglega bönnuð innan 16 ára.
Stórskemmtileg
grínmynd frá
framleiðendum
The Truman
Show með
Óskarsverð-
launahafanum
Al Pacino í sínu
besta formi.
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
&'
"
10
$
%# !"#
!
()* +() 5$
(
0$%
"
3
"
6
($
0$%
/
3!
(
0
0
0
3$
1
0
"
3
"
(#
10
0
"
(#
(#$
(#%
&'!
()* +()
#$
"
2$
(%
-
(
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4741-5200-0002-4854
4548-9000-0059-0291
4539-8500-0008-6066
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA Íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
VISA ÍSLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.