Morgunblaðið - 05.11.2002, Síða 55

Morgunblaðið - 05.11.2002, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2002 55 STÓR STUND rann upp á sunnudag í huga milljóna barna á öllum aldri um gervallan heim er Harry Potter var heimsfrumsýnd á sérstakri há- tíðarsýningu í Lundúnum. Allar stjörnur myndarinnar, með Daniel Radcliffe, sjálfan Harry Potter, í broddi fylkingar, voru mættar til að sjá afraksturinn, að undanskildum Richard Harris sem lést á dögunum. Þótt ekki væri nema af múgæs- ingnum utan við Empire-kvik- myndahúsið á Leicester Square að dæma er eftirvæntingin gífurleg. Ungar stúlkur voru í meirihluta og kölluðu „Daniel! Daniel! Daniel!“ þegar aðalleikarinn gekk upp rauða dregilinn að kvikmyndahúsinu í fylgd með öðrum leikurum. Spurningin sem brennur á vörum allra er hvernig til hefur tekist. Og ef marka má blaðamenn og gagnrýn- endur breskra dagblaða er stysta svarið við því: Vel. Flestum virðist nefnilega bera saman um að dæmið hafi gengið upp, að nýja myndin gefi hinni fyrstu lítið eða ekkert eftir og sumir segja hana allt í senn beittari, skemmtilegri og meira spennandi. Þannig telur gagn- rýnandi The Telegraph að viturlegt hafi verið af Chris Columbus leik- stjóra að endurnota formúluna sem gat af sér eina af allra tekjuhæstu myndum sögunnar. Söguþræði ann- arrar bókarinnar sé aftur fylgt mjög rækilega en greinilegt sé að að þessu sinni séu allir sem að myndinni koma mun öruggari í sínu hlutverki, ekki einasta Columbus og handritshöf- undurinn Steve Kloves, heldur einn- ig krakkarnir þrír sem leika Harry, Rupert og Hermione. Stærsti munurinn á myndunum tveimur er að á meðan fyrri myndin fór tiltölulega rólega af stað og hófst á því að kynna sögupersónurnar og töfraveröld Harrys til sögunnar þá byrjar hamagangurinn og spennan strax í upphafi nýju myndarinnar. Að vísu hafa margir Potter- fylgjendur lýst yfir að önnur bókin í röðinni sé sú slakasta af þeim sem komnar eru en ekki virðist það ætla að koma niður á myndinni. Í ljósi meiri húmors, betri tækni- brellna og óhugnanlegri furðufyrir- bæra telur gagnrýnandi The Tele- graph því ljóst að myndin verði stórsmellur líkt og forverinn. Undir þetta tekur Lizzie Rushbridger í The Guardian sem segir myndina „myrk- ari, fyndnari og betri en forverinn“. Kenneth Branagh, nýi leikarinn í myndinni, þykir líka vera senuþjófur hinn mesti í hlutverki hins smeðju- lega Gilderoys Lockharts. Tim Dams sérfræðingur hjá fag- ritinu Screen International varar þó við of mikilli bjartsýni, bæði í ljósi þess að almenningur hljóti að vera að þreytast á öllum þessum framhalds- myndum og einnig vegna þess að svo margir hafi séð fyrstu myndina fyrir forvitni sakir fyrst og fremst, og sumir orðið fyrir vonbrigðum. Enn- fremur telja sumir að lengd mynd- arinnar eigi eftir að fæla einhverja frá en hún er 162 mínútur að lengd. Höfundur Potter-bókanna J.K. Rowling var að sjálfsögðu viðstödd frumsýningu myndarinnar og sagð- ist að henni lokinni hæstánægð með útkomuna og hældi sérstaklega hin- um unga Radcliffe fyrir túlkun hans á Potter. Og svo virðist sem flestir séu á einu máli um að Radcliffe geri Potter enn þá betri skil en í fyrstu mynd- inni. Þó eru uppi efasemdaraddir um hversu lengi hann muni passa í hlut- verkið. Virðast Englendingar reynd- ar hafa svo þungar áhyggjur af þessu að virðuleg dagblöð á við The Sunday Times hafa séð ástæðu til að fjalla um þetta hugsanlega vandamál í leiðara. Eru því uppi æ háværari raddir um að næsta mynd verði hans síðasta og hefur leikstjórinn Chris Columbus meira að segja skorað op- inberlega á Radcliffe að sjá til að svo verði, en Columbus sjálfur mun ekki leikstýra fleiri Potter-myndum, að eigin ósk. En hvað sem því líður mun Harry Potter-æðið sem hófst fyrir alvöru fyrir jólin síðustu í algleymingi á ný á næstu dögum og vikum. Harry Potter og leyniklefinn verður frum- sýnd 15. nóvember í Bretlandi en viku síðar hérlendis eða 22. nóv- ember. Forsala miða á frumsýning- arhelgina hófst á sunnudaginn var og að sögn Róberts Wesleys hjá Sambíóunum hafa nú þegar selst um 3500 miðar af þeim 36 þúsund sem í boði eru. Harry Potter og leyniklefinn var heimsfrumsýnd í Lundúnum um helgina Reuters Leikhópurinn mætti til sýningarinnar ásamt leikstjóranum Chris Columbus og J.K. Rowling höfundi. Þykir myrkari og kröftugri en fyrsta myndin Hverfisgötu  551 9000 Gott popp styrkir gott málefni www.regnboginn.is Sýnd kl. 5.20, 7.40 og 10. B. i. 16. 1/2Kvikmyndir.com USA Today SV Mbl DV RadíóX Stórskemmtileg grínmynd frá framleiðendum The Truman Show með Óskarsverð- launahafanum Al Pacino í sínu besta formi. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.  ÓHT Rás 2 Sýnd kl. 10.30. Einn óvæntasti spennutryllir ársins! 1/2Kvikmyndir.is Sýnd kl. 5.30 og 8. B. i. 16. 1/2RadíóX www.laugarasbio.is anthony HOPKINS edward NORTON ralph FIENNES FYRSTI OG SKELFILEGASTI KAFLINN Í SÖGU HANNIBAL LECTER 1/2 Kvikmyndir.is  Kvikmyndir.com  HK DV  SK RadíóX  SV Mbl  ÓHT Rás 2 Í Sweetwater fangelsinu er að finna dæmda morðingja og glæpamenn sem svífast einskis. Nú stefnir í blóðugt uppgjör tveggja manna í hrikalegum bardaga!! Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15. B. i. 16. . SV Mbl SK. RADIO-X                                  

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.