Morgunblaðið - 05.11.2002, Síða 56
56 ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
myndasögunum,“ bætir Simmons
við.
Þegar ferill Simmons er skoðaður
vekur það athygli að í flestum sín-
um hlutverkum hefur hann brugðið
sér í gervi skúrka, lögreglumanna
og annarra hörkutóla. Hann er því
inntur eftir því hvort hann líkist
sjálfur þessum persónum eða hvort
hlutverkavalið sé hrein tilviljun.
„Já, það er mjög athyglisvert
hvað ég hef leikið mikið af hörðum
nöglum og mönnum með völd, sér-
staklega í ljósi þess að ég var alltaf
algert blómabarn sem þráði frið á
jörðu og var fremur uppsigað við
hvers konar yfirvöld. Ætli þetta sé
ekki bara mín leið til að ná mér
niðri á þeim,“ segir Simmons og
skellihlær.
– Er Jameson eitthvað líkur þér í
raunveruleikanum?
„Nei, í rauninni ekki,“ svarar
Simmons. „Ég öskra eiginlega aldr-
ei á neinn. Einu skiptin sem ég
brýni raustina er þegar ég er einn
heima hjá mér og finn hvergi bíl-
lyklana, en það er í einu skiptin
sem ég æpi, og það er á sjálfan
mig.“
– Hvernig stóð á því að þér
bauðst starfið?
„Ég hafði unnið með Sam Raimi,
leikstjóranum, að síðustu myndum
hans tveimur, For the Love of the
Game og The Gift. Við vorum ágæt-
ir félagar og þegar hann tók að sér
Köngulóarmanninn og fór að velta
fyrir sér hlutverkaskipan kom ég til
greina sem Jameson. Ég fór svo á
fund með Sam og framleiðendunum
og hlutverkið var mitt,“ upplýsir
Simmons.
Með fullan munn af tönnum
Aðspurður hvort hann líkist hin-
um upprunalega Jameson í útliti
svarar Simmons neitandi og segir
útliti sínu hafa verið breytt mikið
fyrir tökur myndarinnar.
„Ég er sköllóttur sjálfur en
Jameson er með þessa fríkuðu flötu
hárgreiðslu og svo safnaði ég yf-
irvaraskeggi. Ég veit ekki hvort ég
ætti að vera að segja frá því, en ég
lét líka gera falskar tennur uppí
mig til að líkjast upprunalegu per-
sónunni sem mest. Það var fremur
EFTIR kurteislegar kynningar á
báða bóga þýðir ekkert annað en að
koma sér að efninu, enda Simmons
upptekinn maður. Hann er því beð-
inn að lýsa í nokkrum orðum per-
sónu sinni, herra Jameson.
„Já, hann er skvetta og mjög há-
vær maður. Hann er harður í horn
að taka en samt alls ekki vondur
maður. Hann er svona dæmigerður
harðstjóri sem vill að hlutirnir fari
eftir hans höfði,“ segir Simmons.
Hann tekur heilshugar undir þá
lýsingu að Jameson sé stöðluð
ímynd ritstjóra stórra dagblaða.
„Hann vísar einnig til fyrri tíma,
hann er þessi ágjarni og harðsvír-
aði ritstjóri sem gjarnan eru tengd-
ir sjötta og sjöunda áratugnum.
Það er auðvitað tíminn þegar hann
er skapaður upphaflega í teikni-
fyndin lífsreynsla að leika með
munninn fullan af þessum geysi-
stóru, skjannahvítu tönnum,“ rifjar
Simmons upp hlæjandi. „Bún-
ingadeildin hannaði líka á mig
kynstur af fínum fötum svo að ég
held að án alls þessa líkist ég
Jameson lítið sem ekkert fyrir utan
að við höfum báðir blá augu.“
– Telurðu að þú verðir framvegis
ímynd herra Jamesons í augum
aðdáenda?
„Það vona ég,“ svarar Simmons
að bragði. „Við höfum fengið mjög
góð viðbrögð við myndinni hér í
Bandaríkjunum, frá fjölmiðlum og
einnig almenningi. Ég held að við
höfum náð til mjög margra, líka
þeirra sem ekki voru aðdáendur
Köngulóarmannsins fyrir.“
– Varst þú sjálfur einn þeirra
aðdáenda þegar þú varst yngri?
„Ja, svona aðeins,“ svarar Simm-
ons en játar að hafa verið talsvert
meira gefinn fyrir hafnabolta á sín-
um yngri árum. „En þegar ég las
teiknimyndablöð voru það Ofur-
mennið, Leðurblökumaðurinn og að
sjálfsögðu Köngulóarmaðurinn,“
sem ég hélt mest upp á.
Skúrkarnir alltaf drepnir
– Er eitthvert annað hlutverk í
myndinni sem þú hefðir frekar vilj-
að leika?
„Þegar Raimi fékk þetta verkefni
vorum við að vinna saman að The
Gift. Ég hafði ekki hugmynd um þá
hver af þeim fjölmörgu skúrkum,
sem Köngulóarmaðurinn hefur bar-
ist við, myndi koma fram í mynd-
inni. Ég gekk til Raimis og bað
hann að leyfa mér að leika vonda
kallinn í myndinni,“ rifjar Simmons
upp. „Og ég geri það nú kannski að
einhverju leyti því Jameson er mik-
ið hörkutól. Kosturinn við hlut-
verkið mitt er líka sá að aðal-
skúrkarnir eru alltaf drepnir. Mín
persóna fær að lifa áfram og þar af
leiðandi að koma fram í framhalds-
myndunum.“
– Mun Jameson þá koma fram í
framhaldsmyndinni?
„Já, það er ég nokkuð viss um án
þess að ég geti gefið upp meira um
það mál að svo stöddu. Það eina
sem ég get sagt er að framhaldið
verður frumsýnt í maí árið 2004.“
Eins og kunnugt er fara þeir
Tobey Maguire og Willem Dafoe
með hlutverk erkióvinanna
Köngulóarmannsins og Græna
púkans. Simmons segir það hafa
verið frábæra reynslu að vinna með
þeim félögum.
„Við Tobey höfðum unnið stutt-
lega saman áður að The Ciderhouse
Rules og hann er mjög fínn og snið-
ugur strákur. Hann er ekki ólíkur
persónu sinni í myndinni. Willem er
líka mjög fínn, hann er alger orku-
bolti. Það var sífellt verið að reyna
að fá fyrir hann áhættuleikara í at-
riðinu þegar hann ræðst inn á skrif-
stofuna mína gegnum gluggann.
Við vildum gera öll okkar áhættu-
atriði sjálfir og skemmtum okkur
mjög vel yfir því,“ segir Simmons
hvergi banginn.
– Svo þú framkvæmir öll þín
áhættuatriði sjálfur?“
„Já, öll nema eitt. Aðstandendur
myndarinnar heimtuðu að láta
áhættuleikara sitja inni á skrifstof-
unni þegar glerrúðan splundrast
inn og yfir Jameson allan. En allt
annað var ég.“
– Nú fékk myndin fádæma góðar
viðtökur um allan heim þegar hún
kom út. Var það eitthvað sem þú
bjóst við?
„Ég vissi að myndin yrði góð og
að henni myndi ganga vel en aldrei
bjóst ég við að viðtökurnar yrðu
með þessu móti.“
Morðingi,
sálfræðingur og m&m
– Hefur líf þitt breyst að ein-
hverju leyti síðan myndin var frum-
sýnd?
„Ég vildi að ég gæti svarað þess-
ari spurningu játandi,“ svarar Sim-
mons. „Ég vildi að ég gæti sagt að
atvinnutilboðin streymdu inn. Þó að
ég sé kannski kominn með örlítið
þekktara andlit er ég enn bara
skapgerðarleikari sem þarf að fara
í áheyrnarpróf til að fá hlutverk.
– Ertu að vinna að einhverjum
myndum í augnablikinu?
„Já, ég er með fast hlutverk í
sjónvarpsþáttunum OZ (sem sýndir
eru á Stöð 2). Þar fer ég með hlut-
verk fanga, illskeytts morðingja,
sem situr í hámarksöryggisgærslu.
Ég fer einnig með hlutverk sál-
fræðingsins í sjónvarpsþáttunum
Law and Order (sem eru á Skjá
einum). Já og svo er ég með eitt
annað fast starf og það er röddin í
gula m&m-namminu í auglýsing-
unum fyrir sælgætið. Veit ekki
hvort þær eru sýndar á Íslandi.
Hann er mjög skemmtilegur,“ segir
Simmons og innir blaðamann eftir
því hvort sjónvarpsauglýsingar séu
sýndar á ensku á Íslandi.
Þegar hann er upplýstur um að
þær séu velflestar talsettar segir
hann upplýsingarnar um gula
m&m-ið þá harla ónauðsynlegar
fyrir landsmenn og þakkar pent
fyrir spjallið.
Fornir fjendur: Unnendur Könguló-
armannsins geta notið myndar-
innar á ný á mynddiski og -bandi.
Ritstjórinn harðskeytti er kröftuglega túlkaður af J.K. Simmons.
Skapgerðarleikar-
inn og skúrkarnir
Fyrir helgi kom út á mynddiski og -bandi ein vinsælasta mynd ársins, Köngulóarmaðurinn. Einhver litríkasta persóna myndarinnar
er ritstjórinn harðsvíraði J. Jonah Jameson, sem er leikinn af J.K. nokkrum Simmons. Birta Björnsdóttir komst að því að þar fer
hinn indælasti náungi er hún sló á þráðinn til hans og ræddi um velgengni myndarinnar, skúrkana og gult m&m.
J.K. Simmons leikur ritstjórann í Köngulóarmanninum sem kom út í gær á mynddiski og -bandi
02.11. 2002
11
7 6 9 7 5
2 6 1 7 2
15 21 22 33
3
30.10. 2002
5 6 8
23 34 38
16 35
Sexfaldur
1. vinningur
næsta laugardag
Tvöfaldur
1. vinningur
næsta miðvikudag
Sýnd kl. 8. Sýnd kl. 6. B.i. 12.
Sýnd kl. 8 og 10.20.
B.i. 14.
Sýnd kl. 5.45 með enskum texta,
8 og 10.15. B.i. 12.
Sýnd kl. 10.15. B.i. 16.
Kvikmyndir.com
Mbl
Sýnd kl. 6.
Yfir 45.000 áhorfendur
12 Tilnefningar til Eddu verðlaunanna.
Tilnefnd í öllum flokkum12
WITH
ENGLISHSUBTITLESAT 5.45
FYRSTI OG SKELFILEGASTI KAFLINN
Í SÖGU HANNIBAL LECTER.
Kvikmyndir.com
HK DV
SV Mbl
SK RadíóX
1/2
Kvikmyndir.is
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Bi. 16.
anthony
HOPKINS
edward
NORTON
ralph
FIENNES
LOKSINS - LOKSINS - LOKSINS
Loksins færðu að
kíkja bak við tjöldin og sjá það sem enginn
má sjá. Sjáðu eina umtöluðustu og einu bönnuðu
kvikmynd Íslandssögunnar.
1/2
HJ. MBL
"Frábær heimildarmynd,
tvímælalaust í hópi þess
áhugaverðasta sem gert
hefur verið á þessu
sviðI á Íslandi"
SG DV
„Vel gerð og
bráðskemmtileg“
TILNEFND
TIL EDDU
VERÐLAUNANNA
SEM BESTA
HEIMILDARMYND
ÁRSINS
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Það verður
skorað af krafti.
Besta breska gamanmyndin
síðan „Bridget Jones’s Diary.“
Gamanmynd sem sólar þig
upp úr skónum. Sat tvær vikur
í fyrsta sæti í Bretlandi.
E I N N I G S Ý N D Í L Ú X U S V I P
Sýnd kl. 5 og 7. Vit 460
SK RadíóX
Sýnd kl. 4, 6 og 8. Vit 448
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8, 9 og 10.10. Vit 461
Yfir 43.000
Bráðskemmtileg rómantísk gamanmynd sem hefur fengið frábærar viðtökur og er
nú þegar orðin vinsælasta mynd Reese Witherspoon frá upphafi vestanhafs.
Kvikmyndir.com
1/2
Kvikmyndir.is
SV. MBL
DV
Sýnd kl. 10.10. Bi. 16. Vit 453
Stundum er það sem að þú
leitar að.. þar sem þú skildir
það eftir.
ÞriðjudagsTilboð kr. 400