Morgunblaðið - 18.02.2003, Page 1
Mikið
í húfi
Dæmisaga um viðgerðir í fjöl-
býlishúsi Fasteignir 26
Tölvukubbar gera harða hríð að
venjulegu ljósaperunni Erlent 16
Leiknir
lagasmiðir
Yngstu höfundarnir voru þriðju í
forkeppni Evróvisjón Fólk 51
STOFNAÐ 1913 47. TBL. 91. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 2003 mbl.is
Leiðarlok
ljósaperunnar
ÍSLENSKA kvikmyndin Salt fékk Caligari-
verðlaunin á kvikmyndahátíðinni í Berlín
en hátíðinni lauk á sunnudaginn. Myndin
var tekin upp á Íslandi og er leikin á ís-
lensku af íslenskum leikurum. Höfund-
urinn, Bradley Rust Gray, er hins vegar
Bandaríkjamaður, sem búið hefur hér-
lendis í fimm ár ásamt konu sinni, So
Young Kim, en hún vann með honum að
myndinni. Salt keppti í svonefndum For-
um-flokki, sem tekur yfir nýstárlegar og
tilraunakenndar myndir, en 51 mynd önn-
ur var sýnd í þeim flokki.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Brad Gray og So Young Kim.
Salt fær verð-
laun í Berlín
Hlaut/51
gæti aðeins verið „allra síðasta úr-
ræðið“.
„Stjórnvöld í Bagdad ættu ekki
að gera sér neinar grillur. Þau
verða að afvopnast og sýna tafar-
laust fullt samstarf [við vopnaeft-
irlitslið Sameinuðu þjóðanna].
Íraksstjórn ein mun bera ábyrgð á
afleiðingunum, haldi hún áfram að
hafa vilja alþjóðasamfélagsins að
engu,“ lýstu leiðtogarnir yfir.
Í lokaályktun þeirra var þess
krafizt af Írökum að þeir hlíttu
settum skilyrðum tafar- og undan-
bragðalaust, en enginn dagsettur
frestur var settur til þess. Í yfirlýs-
ingunni var ekki að finna orðalag
sem fulltrúar Bretlandsstjórnar
höfðu lagt áherzlu á; það er að
„tíminn sé á þrotum“.
„Það [orðalag] gátum við ekki
sætt okkur við,“ tjáði þýzki kanzl-
arinn Gerhard Schröder frétta-
mönnum. „Þetta er auðvitað mála-
LEIÐTOGAR Evrópusambands-
ins sneru saman bökum í gær og
sendu frá sér hvassyrta ályktun,
þar sem því var meðal annars lýst
yfir að Íraksstjórn stæði frammi
fyrir „síðasta tækifæri“ sínu til að
afvopnast með friðsamlegum
hætti. Var í ályktuninni jafnframt
áréttað að ESB-ríkin stæðu þétt
við hlið bandamanns síns, Banda-
ríkjanna.
Í ályktuninni, sem leiðtogar
ESB-landanna fimmtán komu sér
saman um á löngum fundi sem lauk
í Brussel síðla kvölds, lýstu þeir yf-
ir ótvíræðum stuðningi við þær
kröfur um tafarlausa afvopnun
Íraka sem ráðamenn í Washington
og Lundúnum hafa sett fram af
mestri ákveðni að undanförnu. En í
henni var jafnframt tekið undir
með málflutningi Frakka og Þjóð-
verja um að láta bæri betur reyna á
friðsamlega lausn; beiting hervalds
vopnun þeirra í samræmi við álykt-
anir SÞ væri skýlaus af hálfu Evr-
ópusambandsins.
Slegið á ágreining
Í þeirri viðleitni að slá bæði á
djúpstæðan ágreining innan raða
ESB og við bandamanninn volduga
vestanhafs lýstu evrópsku leiðtog-
arnir ennfremur yfir velþóknun á
hernaðaruppbyggingu Bandaríkja-
manna í nágrenni Íraks, sem yki
þrýstinginn á Saddam Hussein
Íraksforseta að fara að kröfum SÞ.
„Við erum staðráðnir í að starfa
með bandamönnum okkar, einkum
og sér í lagi Bandaríkjunum, að af-
vopnun Íraka, í þágu friðar og stöð-
ugleika í þessum heimshluta,“
sögðu leiðtogarnir.
Með þessari ályktun náðu ESB-
leiðtogarnir áfangasigri að björgun
sameiginlegrar utanríkis- og ör-
yggismálastefnu sambandsins, en
óeiningin um Íraksmálið hafði
steypt henni í mestu kreppu sem
um getur frá því byrjað var að
reyna að ljá ESB styrkari rödd í al-
þjóðamálum.
miðlun.“ Hins vegar sagði Costas
Simitis, forsætisráðherra Grikk-
lands sem nú gegnir formennsk-
unni í ESB, að „tíminn ynni á móti
Írökum“. Krafan um tafarlausa af-
„Síðasta tækifæri“
Íraka til að afvopnast
Brussel. AP, AFP.
ESB lýsir samstöðu með Bandaríkj-
unum en stríð algjört lokaúrræði
Reuters
Blair hinn brezki gengur hjá er
Schröder hinn þýzki fær sér sæti
á leiðtogafundinum í gær.
ÍSLENSKIR ríkisborgarar með lögheimili
erlendis eiga rétt á að kjósa í alþingiskosn-
ingunum 10. maí ef innan við átta ár eru liðin
frá því að þeir fluttu lögheimili sitt frá Ís-
landi. Þeir
verða skráðir
í kjördæmi
þar sem þeir
voru síðast
með lögheim-
ili. Þeir sem
áttu lögheim-
ili í Reykja-
vík deilast
niður á
Reykjavíkur-
kjördæmin miðað við fæðingardag. Lands-
kjörstjórn hefur ákveðið að þeir sem eru
fæddir í fyrri hluta hvers mánaðar, þ.e. fyrir
15. hvers mánaðar, verði í suðurkjördæm-
inu, en þeir sem eru fæddir í síðari hluta
hvers mánaðar verði í norðurkjördæminu.
Landskjörstjórn hefur sent dómsmála-
ráðuneytinu bréf þar sem lagt er til að Graf-
arholtshverfi tilheyri norðurkjördæmi
Reykjavíkur. Að öðru leyti miðist skipting
borgarinnar milli kjördæmanna við Hring-
braut, Miklubraut og Vesturlandsveg. Með
því að færa Grafarholtshverfi úr suðurkjör-
dæmi í norðurkjördæmi verða kjördæmin
nánast jafnstór. Kjósendur í hvoru kjör-
dæmi fyrir sig verða rúmlega 42.000.
Þegar kjördæmaskipaninni var breytt á
Alþingi og ákveðið að skipta Reykjavíkur-
kjördæmi í tvennt var við það miðað að við
endanlega skiptingu kjördæmisins yrði leit-
ast við að hafa þau sem næst jafnfjölmenn.
Að mati landskjörstjórnar næst þetta mark-
mið laganna með því að færa Grafarholts-
hverfi úr suðurkjördæmi í norðurkjördæmi.
Þess má geta að íslenskir ríkisborgarar
sem átt hafa lögheimili erlendis í meira en
átta ár komast ekki á kjörskrá til þess að
kjósa í vor ef þeir eru þar ekki núna.
Kjördæmi
ræðst af fæð-
ingardegi
!
"#$
%
"%%%
#!$
&
'
( ()* )+,-##
NEW-York-búi rennir sér á gönguskíðum eftir
Times-torgi í miðborginni í gær. Snjóbyljir
gengu yfir norðausturhluta Bandaríkjanna síð-
asta sólarhring og var búizt við því að úrkoman í
New York-borg yrði allt að 60 cm jafnfallinn
snjór.
Mikil röskun varð á samgöngum af völdum
vetrarveðursins. Bílaumferð stöðvaðist víða að
mestu og flugvöllum var lokað. Neyðarástandi
var lýst yfir í sjö ríkjum og yfirvöld hvöttu fólk
til að halda sig heima við. Að minnsta kosti níu
dauðsföll voru rakin til veðurhamsins og veð-
urfræðingar vöruðu við því að lítið lát yrði á
honum næstu daga.
Flugleiðir felldu af þessum völdum niður flug
til Baltimore og Boston í gær. Jafnframt var
flugi frá þessum borgum til Íslands aflýst. Í
fréttatilkynningu frá Flugleiðum var þó gert ráð
fyrir að farþegar félagsins kæmust til þessara
tveggja borga samkvæmt áætlun síðdegis í dag.
Reuters
Á skíðum á Times-torgi
OLÍUVERÐ tók dýfu í
heimsmarkaðsviðskiptum
gærdagsins. Gerðist þetta í
beinu framhaldi af miklum
fjöldamótmælum helgarinn-
ar víða um heim gegn hern-
aðaríhlutun í Írak.
Verðið á fati af Norður-
sjávarhráolíu, til afgreiðslu í
apríl, féll á markaðnum í
Lundúnum um ríflega hálfan
Bandaríkjadollar, niður í rétt
tæpa 32 dollara. Í New York
hafði hráolíuverðið risið um
tugi prósentustiga síðustu
vikur og var á föstudag komið
í 36,80 dollara fatið. Markað-
urinn í New York var lokaður
í gær vegna frídags.
„Öflug mótmæli andstæð-
inga stríðs út um allan heim
hafa komið sterkum skila-
boðum til stjórnmálamanna,“
hefur AFP eftir Lawrence
Eagles, sérfræðingi hjá al-
þjóðlega fjármálaþjónustu-
fyrirtækinu GNI-Man. Þetta,
ásamt skýrslu yfirmanna
vopnaeftirlits SÞ til öryggis-
ráðsins fyrir helgi, sem virt-
ist ætla að verða til þess að
framlengja um sinn veru
vopnaeftirlitsmanna í Írak,
hefði sín áhrif á markaðina.
En Eagles og aðrir sér-
fræðingar segja þetta þó
sennilegast ekki verða til
þess að seinka verulega lík-
legu upphafi hernaðar í Írak.
Olíuverð
lækkar
Lundúnum. AFP.
♦ ♦ ♦