Morgunblaðið - 08.03.2003, Page 42

Morgunblaðið - 08.03.2003, Page 42
MINNINGAR 42 LAUGARDAGUR 8. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Guðfinna Torf-hildur Guðna- dóttir fæddist í Brekku á Reyðar- firði 7. desember 1928. Hún andaðist á Hjúkrunarheim- ilinu Ási í Hvera- gerði 26. febrúar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin Þorbjörg Einarsdóttir, f. í Bakkagerði við Reyðarfjörð 1894, d. 1984, og Guðni Þor- steinsson múrara- meistari, f. í Bæ í Lóni 1897, d. ár- ið 1985. Systkini Guðfinnu eru Eggert, f. 1914, Emil Hilmar, f. 1919, Eiríkur, f. 1921, Emma Kristín, f. 1922, Guðmundur, f. 1924, Gísli Einar, f. 1925, tvíbur- arnir Hörður Halldór og Kjartan Þorsteinn, f. 1928, Ásdís, f. 1931, Benedikta, f. 1933, Hulda, f. 1937, og Ásgeir, f. 1938. Eftirlifandi eru þau Ásdís, Benedikta og Ásgeir. Guðfinna giftist 26. desember 1979, þeirra barn er Aron Krist- inn, f. 1999, Einar Örn, f. 1991, og Guðfinna Sif, f. 1994. Guðfinna ólst upp á Reyðarfirði hjá foreldrum sínum og systkin- um. Um tíma var Guðfinna í fóstri hjá móðursystur sinni Guðfinnu Einarsdóttur og manni hennar Guðmundi Þorvaldi Gíslasyni í Bóndhól í Borgarfirði, en flutti síðan austur á ný, gekk í barna- skóla og vann ýmis störf. Árið 1946 flutti fjölskyldan búferlum suður og settist að á Selfossi en skömmu áður hafði Guðfinna flutt til Reykjavíkur. Þar starfaði hún m.a. á Elliheimilinu Grund. Hóf hún síðan nám við ljósmæðra- skóla Íslands en varð að hverfa frá námi sökum veikinda. Guð- finna flutti síðan á Selfoss, þar sem hún vann meðal annars í Tryggvaskála og í mötuneyti Kaupfélags Árnesinga. Sumarið 1952 réð hún sig sem kaupakonu að Brautartungu í Lundarreykja- dal með Margréti dóttur sína þá fárra mánaða gamla. Í Brautar- tungu var hún húsmóðir í tæp fimmtíu ár eða þar til þau hjónin fluttu að Bröttuhlið 11 í Hvera- gerði í ágúst 2001. Útför Guðfinnu verður gerð frá Lundarkirkju í Lundarreykjadal í dag og hefst athöfnin klukkan 14. 1952 Eðvarði Torfa- syni frá Brautar- tungu í Lundar- reykjadal, f. 14. júní 1919. Börn þeirra eru: 1) Margrét Krist- jánsdóttir, f. 1952, dóttir Kristjáns Jóns- sonar frá Litla Saurbæ í Ölfusi, f. 1922, Margrét er gift Helga Hannessyni, f. 1946, þau eiga tvo syni: Sævar Þór, f. 1973, í sambúð með Bryndísi Valdimars- dóttur, f. 1978, og Arnar Geir, f. 1978. 2) Sveinn Gunnar, f. 1953, kvæntur Önnu Eygló Rafnsdóttur, f. 1958, þeirra börn eru: Arnar Pálmi Pétursson, f. 1975, Eðvarð Jón, f. 1984, og Anna Margrét, f. 1993. 3) Hildur, f. 1956, gift Eiríki Sveinssyni, f. 1948. 4) Guðni, f. 1960, kvæntur Halldóru Ingimundardóttur, f. 1962, þeirra börn eru: Ingimund- ur Pétur, f. 1980, í sambúð með Ríkey Björk Magnúsdóttur, f. Elsku amma. Það er erfitt að trúa því að þú sért farin frá okkur. Þau voru ófá skiptin sem við bræðurnir komum í heimsókn í sveitina til ykkar afa og alltaf voru móttökurnar jafn frábærar. Það var ekkert betra í heiminum en að setj- ast niður, fá nýbakaðar kleinur og ískalda mjólk. Amma var alltaf svo glöð þegar allir voru samankomnir í sveitinni. En minningin um þig verður alltaf með okkur. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Við kveðjum þig með söknuði og þökkum þér fyrir allar góðu stund- irnar sem við áttum með þér. Guð geymi þig. Arnar Geir og Sævar Þór. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Mig langar að minnast systur minnar sem nú hefur lokið sinni jarðvist. Þakka henni samveru okk- ar, áhyggjulausa bernsku sem við áttum í stórum systkinahópi austur á Reyðarfirði, sem í minningunni er engu lík. Þar var næstum hægt að hlaupa á milli fjalls og fjöru. Síðan unglingsárin, sem mér finnst hafa verið áhyggjulítil. Þá vorum við búnar að skipta um aðsetur, fluttar á Selfoss, og hér var líka gott að vera, nema hvað vantaði fjallahring og sjó. Svo tók alvaran við, börn og makar, leiðir okkar skildi og hún flutti í Borgarfjörð en ég varð eftir hér á Selfossi. Við fjölskyldan nut- um sveitaverunnar hjá þeim. Ynd- islegra heimsókna til þeirra, veiði- ferða, berjaferða og alls þess sem sveitin bauð upp á. Síðan þegar börnin mín höfðu aldur til fóru þau til sumardvalar eitt af öðru. Alltaf voru allir velkomnir á þeirra stóra heimili, gestagangur var alltaf mjög mikill, enda í alfaraleið. Á sumrin þegar farið var um Uxahryggi þótti sjálfsagt að koma við í Brautar- tungu og þar var hjartarými þó að húsrými væri ekki alltaf mikið. Hún og hennar góði maður Eðvarð Torfason voru alltaf samstiga í að láta fólki líða vel. Fyrir þetta viljum við fjölskyldan nú þakka, um leið og við vottum eiginmanni og börnum innilegustu samúð okkar. Benedikta og fjölskylda. Þau urðu þrettán alls börnin hennar ömmu minnar, fjóra drengi missti hún mjög unga, þeir dóu úr barnasjúkdómum sem tíðir voru í þá daga. En níu börn komust upp, þau ólust upp í stórum glaðværum systkinahópi austur á Reyðarfirði. Oft hef ég heyrt þær systur minnast liðinna sæludaga fyrir austan. Börn og unglingar að leik, aldursmunur skipti ekki máli á þessum árum. Heimilið var stórt, margir munnar að metta og afi löngum stundum fjarri vegna vinnu sinnar. Við þær aðstæður þótti sjálfsagt að börnin tækju til hendinni og gengu þau til allra verka til að létta undir. Dídí var dugnaðarforkur og hafði hún amma það á orði að hún gengi eins og karlmaður til verka. Auk þess að hjálpa til inni, gæta systkina sinna og annast gegningar með ömmu, var hún í kaupavinnu eins og títt var og vann í sláturhúsinu. Dídí var sannkallað miðjubarn í systkina- hópnum, tengdi saman þau eldri og þau yngri. Hún var hláturmild, söng- elsk og hafði góða kímnigáfu. Dídi var ákveðin, á stundum föst fyrir, hún var umhyggjusöm og hafði sterka réttlætiskennd. Um tíma fór hún í fóstur til Guð- finnu móðursystur sinnar og nöfnu í Bóndhól í Borgarfirði. Þrátt fyrir gott atlæti í Bóndhól saknaði hún æskustöðvanna fyrir austan, for- eldranna og systkinanna og sneri heim á ný. Voru alla tíð kærleikar á milli hennar og Bóndhólsfólksins og heyrði ég oft minnast á manngæsku Guðmundar í Bóndhól. Yngsta systir Dídíar, Hulda Björg, var síðan alin upp frá unga aldri til fullorðinsára hjá þeim hjón- um í Bóndhól. Sem unglingsstúlka flutti hún til Reykavíkur og síðan á Selfoss. Minntist hún oft þessara liðnu ung- lingsára. Hún var lífsglöð stúlka, hafði unun af því að dansa og skemmta sér í góðra vina hópi. Hún naut sín vel innan um fólk og eign- aðist á þessum árum fjölda vina. Á Selfossárum sínum kynntist hún Kristjáni Jónssyni frá Litla Saurbæ í Ölfusi og eignaðist með honum dótturina Margréti. Þegar Margrét er fárra mánaða ræður Dídí sig sem kaupakonu að Brautartungu í Lundarreykjadal. Það reyndist þeim mæðgum mikið gæfuspor. Í Brautartungu bjó ungur bóndi, Eð- varð Torfason, ásamt móðurbræðr- um sínum, þeim Gunnari og Sveini Einarssonum. Þeir bræður héldu heimili með þeim Ebba og Dídí þar til þeir létust í hárri elli. Móður sína, Hildi Einarsdóttur, hafði Ebbi misst ári áður en Dídí kom í Brautartungu. Bóndinn ungi hafði nýlokið við að reisa nýtt einbýlishús og kaupakon- unnar ungu beið ærinn starfi. Minnt- ist hún oft þess dags er hún kom fyrst í hlað í Brautartungu, með kommóðuna sína, eina ferðatösku og barnið undir handleggnum. Í hlaðinu sátu konur úr sveitinni að þvo þvott í hvernum, sem þá var sið- ur. Brautartunga átti eftir að verða heimili hennar í hartnær hálfa öld. Í Ebba fékk hún Dídí mín umhyggju- saman og góðan eiginmann, sem reyndist henni vel. Hefur hann reynst Margréti sem besti faðir og er sérstaklega kært með þeim feðg- inum. Fljótlega bættust við fleiri börn, þau: Sveinn Gunnar trésmiður í Borgarnesi, Hildur sjúkraliði á Akranesi og Guðni bóndi í Brautar- tungu. Húsmóðir á stóru sveitaheim- ili var hlutskipti hennar, þar naut hún sín vel, hlúði að börnum sínum, eiginmanni og ekki hvað síst þeim bræðrum, Gunnari og Sveini. Með þeim bræðum og Dídí tókust miklir kærleikar og endurguldu þau Dídí og Ebbi þeim allt gott sem þeir höfðu sýnt þeim og börnum þeirra, með umönnun og kærleik. Mikill fjöldi barna átti þess kost að eiga sumardvöl í Brautartungu. Þau höfu einstakt lag á börnum og unglingum og með ástúð og um- hyggju tókst að laða fram jákvætt viðhorf og áhuga fyrir viðfangsefn- inu. Í ágúst 2001 yfirgefa þau sveitina sína og flytjast á Dvalarheimilið Ás í Hveragerði, það sem þau nutu stuðnings Margrétar dóttur sinnar sem býr í Hveragerði. Héldu þau heimili í Bröttuhlíð 11 og áttu þar saman yndislegan tíma og nutu stuðnings starfsfólks dvalarheimilis- ins. Heilsu hennar hrakaði svo mjög sl. haust að hún þurfti að dvelja á GUÐFINNA GUÐNADÓTTIR ✝ Margét ElínÓlafsdóttir fæddist á Eyrar- bakka 29. júlí 1929. Hún lést á Landspít- alanum við Hring- braut hinn 25. febr- úar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Ólafur Engil- bert Bjarnason, f. 13.1. 1893, d. 2.10. 1983, og Jenný Dag- björt Jensdóttir, f. 12.5. 1897, d. 2.12. 1964. Þau eignuðust 12 börn, þau eru: Sigrún, f. 1917, d. 2001, Bjarni, f. 1918, d. 1981, Sigurður, f. 1920, Ólafur, f. 1922, d. 2001, Eggert, f. 1924, d. 1980, Sigurður Bjarna- son Ólafsson, f. 1925, d. 1943, Guðbjörg, f. 1926, d. 1994, Mar- grét sem hér er minnst, Bryndís, f. 1930, Guðrún, f. 1934, Sigríður Dagný, f. 1939, og Áslaug, f. 1941. Hinn 25. desember 1949 giftist Margrét Ragnari Böðvarssyni, f. 6. janúar 1920 frá Eyrarbakka. Foreldrar hans voru Böðvar Friðriksson og Jónína Guðmunds- dóttir. Börn Mar- grétar og Ragnars eru: 1) Ólafur, f. 18.10. 1949, kvæntur Ásrúnu Jónsdóttur, þau eiga þrjú börn og þrjú barnabörn. 2) Jón Karl, f. 12.11. 1953, kvæntur Snjólaugu Kristjánsdóttur, þau eiga fimm börn og sex barnabörn. 3) Stúlka andvana fædd 3.9. 1962. Margét ólst upp í foreldrahúsum á Eyrarbakka. Hún starfaði í nokk- ur ár á saumastofu í Reykjavík, starfaði svo við ýmislegt ásamt heimilisstörfunum, síðast hjá Kaupfélagi Árnesinga á Eyrar- bakka á meðan heilsan leyfði. Hún var virkur félagi í Kvenfélagi Eyr- arbakka. Útför Margrétar fer fram frá Eyrarbakkakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Pabbi talaði við okkur á sunnu- dagskvöldi og sagði okkur að ömmu Möggu liði vel og tali um að fara heim eftir tvo, þrjá daga. Um nótt- ina varstu flutt suður, engan grun- aði að þú værir svona mikið veik en það var fljótt ljóst að hverju stefndi. Þú náðir samt að koma öllum á óvart áður en þú kvaddir alveg. Það var fastur liður þegar maður var yngri að koma á bakkann til ömmu og afa. Ég var fyrsta barna- barnið og eini strákurinn í hópnum og naut ákveðinna forréttinda vegna þess. Minningarnar eru ótal marg- ar, það var ýmislegt brallað í kjall- aranum, þar var oft mikið fjör. Ég tala nú ekki um úti í kofa eða um brunninn sem er fyrir utan hjá ykk- ur. Í einum af mörgum heimsóknum mínum til ykkar er mér sérstaklega eitt minnisstætt, það er þegar við fórum að sofa – þú varst búin að draga rúmið fram, ég lagstur upp í og þú á leiðinni upp í til mín að lesa fyrir mig þegar rúmið sporðreisist og þú rúllar niður á gólf og ég ofan á þig. Aldrei ætluðum við að geta staðið upp því við hlógum svo mikið. Aldrei kom maður að tómu húsi hjá ömmu, ófáar eru lopapeysurnar, sokkarnir og vettlingarnir sem hún hefur prjónað og svo ekki sé talað um hlaðborðin sem hún bauð alltaf upp á ef maður birtist. Ég verð að segja það, elsku amma, að það verður skrýtið að koma á bakkann vitandi það að þú sitjir ekki við eldhúsborðið að leggja kapal eins og maður var orðinn van- ur síðustu ár. Ég kveð þig með söknuði og þakklæti fyrir allt sem þú varst mér. Megi hið góða styrkja elsku afa og alla þá sem þig nú syrgja. Jón Ragnar. Margrét Ólafsdóttir, vinur okkar og félagi til margra ára, er horfin á vit feðra sinna. Kynnin hafa verið löng og góð. Hjá sumum meira en hálf öld. Á níunda áratugnum var kosin basarnefnd fyrir Kvenfélag Eyrar- bakka, eins og venja var. Að þessu sinni var Margrét í henni ásamt fleiri góðum konum. Þarna var unn- ið af kappi og svo mikilli gleði að úr nefndinni varð vinnuhópur sem heldur saman enn í dag. Oft var Margrét okkar hrókur alls fagnaðar. Ekki með hávaða eða látum, nei, hún læddi frá sér einni og einni glettinni athugasemd og hló sínum smitandi hlátri. Um leið rann úr höndum hennar prjónlesið jafn- vel heilu peysurnar, hreinustu lista- verk. Við hittumst til skiptis hver heima hjá annarri. Engum var í kot vísað hjá Margréti, á notalegu heim- ili þeirra Ragnars og hennar. Þar bar allt vott um fágaðan smekk og einstaka snyrtimennsku. Auk handverksins hafði Margrét áhuga á lestri góðra bóka, ekki síst um byggðir landsins, enda voru ferðalög hennar yndi. Þó voru litlu langömmubörnin hennar allra mesta yndi og þeirra hjóna beggja. Óðum þynnist stóri systkinahóp- urinn frá Þorvaldseyri. Það er lífs- ins gangur. Margir sakna vinar í stað nú á kveðjustund. Við þökkum af alhug samfylgdina. Guð blessi minningu mætrar konu og ástvini hennar alla. Handavinnuhópurinn. Mín elskulega frænka Magga er látin, svo allt of fljótt eftir stutta legu. Það vekur mann til svo margra spurninga og minningarnar hrann- ast upp þegar einhver sem manni er mjög kær fellur frá. Magga eða Margrét Ólafsdóttir móðursystir mín var miklu meira en móðursyst- ir, hún átti alltaf heima í næsta húsi við okkur á Eyrarbakka og þar átti ég mitt annað skjól fyrir utan æsku- heimili mitt. Það má nærri geta að um verulegan samgang var um að ræða á milli heimilanna þar sem þær bjuggu systurnar mamma og MARGRÉT ELÍN ÓLAFSDÓTTIR Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar, dóttir og systir, ÍSFOLD ELÍN HELGADÓTTIR, Sléttuvegi 9, áður Hraunbæ 66, lést á Landspítalanum miðvikudaginn 5. mars Björgvin Erlendsson, Helgi Jóhann Björgvinsson, Fannar Freyr Björgvinsson, Jóhanna Soffía Jóhannesdóttir, Monika Helgadóttir, Jóhannes G. Helgason, Sigurbjörg Jónsdóttir, Ásgerður Helgadóttir, Marteinn Stefánsson, Áslaug Hrönn Helgadóttir, Halldór Berg Jónsson. Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsing- um um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Formáli minn- ingargreina

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.