Morgunblaðið - 08.03.2003, Page 66

Morgunblaðið - 08.03.2003, Page 66
66 LAUGARDAGUR 8. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ STRAX með fyrstu mynd hans, ung- lingavandamálamyndinni Árans Åmål (Fucking Åmål) frá 1998, var það ljóst að þar var á ferð náungi sem maður vildi gefa nánari gaum í framtíðinni. Hann stóð undir væntingum og vel það er hann hann færði okk- ur Saman (Til- samman) fyrir þremur árum og nú er Lukas Moodysson bú- inn að gera þriðju mynd sína, Lilja að ei- lífu, mynd sem staðfesti áhuga manna á Moo- dysson er hún var frumsýnd í heimalandinu við móttökur sem vart eiga sér for- dæmi. En þótt fyrri myndir hans hafi vakið umtal fyrir djörf efnistök og óvenjuleg þá virka þær sem róm- antískar gamanmyndir við hliðina á Lilju. Þar tekur Moodysson líka á viðfangsefni sem margir telja löngu tímabært að einhver veki máls á, þ.e. illri meðferð og vanvirðingu í garð ungviðis fyrrum Sovétríkjanna og þá einkum þeirri hrottafengnu kynlífsþrælkun sem þetta ógæfu- sama unga fólk er miskunnarlaust hneppt í og þá gjarnan flutt til Vest- urlanda, með valdi, undir fölsku flaggi eða nauðug viljug, þar sem bíður þeirra jafnvel enn meira hel- víti er þau lenda í klóm óprúttinna einstaklinga sem gera sér mat úr blíðu þeirra. Sann- arlega eldfimt við- fangsefni sem eins og við mátti búast hefur fallið mönn- um misvel í geð. Í heimalandinu og í Austur-Evrópu hafa heyrst raddir manna sem telja að Moodysson alhæfi um of og dragi því upp ósanngjarna mynd, bæði af löndum sínum sem íbúum fyrrum Sovétríkjanna. En þeir eru fleiri sem fagnað hafa þessu framtaki hans en flestir hafa þó kos- ið að taka myndinni sem kvikmynda- listaverki fremur en einhverri áróð- ursmynd, og á þeim grundvelli verður ekki efast um snilldina sem myndin er. Ekki einasta að myndin er einhver sú átakanlegasta sem rekið hefur á fjörur kvikmyndahúsa í lengri tíma og beri öll merki kvik- myndagerðarmanns sem náð hefur fullum tökum á formi sínu heldur hefur maður sjaldan eða aldrei séð eins næman, tilfinningaþrunginn og það sem mest er um vert sannfær- andi leik hjá ungmennum og hjá hin- um svo til óreyndu Rússum, hinni 16 ára gömlu Oksönu Akinshinu, sem leikur jafnaldra sinn Lilju, og hinum 14 ára Artiom Bogucharskij, sem leikur 11 ára vin hennar. Kvikmyndagerðin er köllun Sjálfur er Moodysson 34 ára og löngu áður en hann spreytti sig á kvikmyndagerð sendi hann frá sér ljóðasafn, 17 ára að aldri. Í kjölfarið fylgdu nokkrar ljóðabækur og skáldsaga en ljóð eftir Moodysson hafa komið út í íslenskri þýðingu Gunnars Randverssonar. Moodysson brautskráðist frá Dramatiska Institutet, þar sem hann gerði nokkrar rómaðar stutt- myndir, áður en hann hóf samstarf við Memfis-kvikmyndafyrirtækið. Eftir verðlaunastuttmyndina Tala saman (Bara prata lit) gerði hann Árans Åmål, sem sló í gegn jafnt hjá gagnrýnendum sem almenningi, mynd sem Ingmar Bergman sagði „fyrsta meistaraverk ungs manns“. Saman var frumsýnd tveimur árum síðar og jók hróður Moodysson enn frekar. Árið 2001 kom svo út sjón- varpsþáttaröðin Nýja landið (Det Nya Landet) sem Moodysson var meðhöfundur að. Blaðamanni gafst kostur í vikunni að bera undir þenn- an Malmö-búa og fjölskyldumann nokkrar spurningar og vaknaði fyrst sú spurning hvað fékk hann til að vilja gera kvikmynd um eins erfitt viðfangsefni og Lilja að eilífu? „Ég geri þær myndir sem ég finn mig knúinn til að gera. Ég vel ekki myndirnar því myndirnar velja mig.“ – Hvernig undirbjóstu þig undir gerð myndarinnar, lagðistu í ein- hverjar rannsóknir á viðfangsefn- inu? „Ég rannsakaði ekkert sér- staklega fyrir þetta verkefni. Líf mitt er ein löng rannsóknarvinna.“ – Það er afar erfitt að horfa á þessa mynd, það hlýtur því að hafa verið erfitt að gera hana? „Að sumu leyti og að sumu leyti ekki. Það mátti samt heyra ófá hlátrasköllin við tökur á nokkrum af allra erfiðustu atriðunum. Þannig er nú bara eðli kvikmyndagerð- arinnar.“ – Ertu sjálfur tengdur viðfangs- efninu með einhverjum beinum hætti? „Við erum öll tengd þessu við- fangsefni með beinum hætti. Við er- um alltaf að gera okkur mat úr ör- birgð annarra jarðarbúa, mergsjúgum, misnotum og arðræn- um þá okkur til lífsfyllingar – að við höldum.“ – Það hljóta að hafa verið ein- hverjir sem reyndu að fá þá ofan af því að gera þessa mynd? „Nei. Ég er svo lánsamur að vera studdur heilshugar af framleið- endum mínum sem eru ekki í þessu fagi til að græða peninga. Sam- vinnan við þá hefur alltaf verið feiki- lega ánægjuleg og náin.“ – Hvaðan hafa háværustu gagn- rýnisraddirnar í garð myndarinnar hljómað? „Karlmenn hafa haft hærra en konur. Eldra fólk hefur haft hærra en það yngra. Þetta er eitthvað sem Vel ekki mynd- irnar því mynd- irnar velja mig Fáar kvikmyndir hafa slegið menn eins harkalega og sænska myndin Lilja að eilífu sem nú er sýnd á Norrænum bíódögum. Skarphéðinn Guðmundsson ræddi við leikstjóra hennar, hinn virta Lukas Moodysson, um hugsjónir og heimsins hörmungar. „Ég vildi komast eins nærri Lilju og ég gæti. Og til þess að takast það þurfti ég og vildi að ég, og um leið áhorf- endur, sæi heiminn alfarið með hennar augum – og það sem hún sér er nær allt í svartamyrkri.“ Lukas Moodysson er 33 ára gam- all, kvæntur tveggja barna faðir og býr og starfar í Malmö. Ljósmynd/Per-Anders Jörgensen-Memfis Film 2 Tilnefningar til Óskars-verðlauna:Aðalhlutverk karla: Jack Nicholson.Aukahlutverk kvenna: Kathy Bates. SV. MBL Kvikmyndir.com HK DV Tilnefningar til Óskar- sverð-launa þ. á. m. besta mynd 13 Sýnd kl. 6. Sýnd kl. 5.45. Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16. Stútfull af topp tónlist og brjálæðri spennu. Missið ekki af þessari mögnuðu mynd. Sýnd kl. 8. B.i. 16.  HJ MBL Powe rsýni ng kl. 1 0.  Ó.H.T. Rás2 Sýnd kl. 2.45. Sýnd kl. 2.45 og 4.10. Sýnd kl. 1.50 og 8. B.i. 12. Sýnd kl. 3.45 og 5.50. Miðasala opnar kl. 13.30 HUGSAÐU STÓRT Sýnd kl. 4. Bi. 12. kl. 8. Frábær mynd frá leikstjóranum Martin Scorsese Tilnefningar til Óskarsverðlauna, þ.á.m. besta mynd og besti leikstjóri 10  HJ MBL EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Sýnd kl. 10.10. B.i. 16. Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i 12. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20. B.i. 16. Sýnd kl. 1.40, 3.45, 5.50, 8 og 10.10. B.i. 12 ára Stútfull af topp tónlist og brjálæðri spennu. Missið ekki af þessari mögnuðu mynd. kl. 4. 13 Tilnefningar til Óskars- verðlauna þ. á. m. besta mynd SV. MBL HK DV ÓHT Rás 2Kvikmyndir.com Frá leikstjóra Boogie Nights. Rómantísk gamanmynd á mörkum þess að vera rómantísk gamanmynd! Ein eftirminnilegasta mynd ársins. Frumsýning  Kvikmyndir.com 6 Tilnefningar til Óskarsverðlauna, þ.á.m. besta mynd.  Ó.H.T. Rás2

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.