Morgunblaðið - 25.03.2003, Page 23
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS 2003 23
MÝRDÆLINGAR vígðu við hátíð-
lega athöfn nýja íþróttahúsið sitt
um síðustu helgi. Fyrsta skóflu-
stungan var tekin í desember árið
2001 og var fyrsti hluti hússins,
sem er kennsluhúsnæði, tekið í
notkun síðastliðið haust.
Húsið er alls um 1.020 fm að flat-
armáli, þar af er skólahúsnæðið
300 fm. Þar er körfuboltavöllur í
fullri stærð, blakvöllur, þrír bad-
mintonvellir og tennisvöllur. Þá er
merkt fyrir handboltavelli þó að
hann nái ekki fullri stærð. Einnig
er gert ráð fyrir líkamsræktar-
aðstöðu, ljósabekk og saunaklefa.
Búningsklefar og önnur aðstaða er
hönnuð með tilliti til þess að sund-
laug verði sett upp við húsið.
Bygging hússins er mjög kostn-
aðarsöm fyrir 500 manna samfélag.
Það er því ljóst að velvilji íbúanna
hefur hjálpað mikið því að gjafir til
hússins nema um 8 milljónum
króna í formi peninga, vinnu og
auglýsinga.
Á vígsluhátíðina mættu um 300
manns og bárust margar góðar
gjafir. Haraldur M. Kristjánsson
prófastur blessaði húsið og Stein-
þór Vigfússon formaður bygging-
arnefndar þess rakti gang fram-
kvæmdarinnar. Kvenfélögin á
svæðinu sáu um kaffiveitingar.
Eftir vígsluna lék Drangur úr Vík
körfuboltaleik við Hamar úr
Hveragerði en nokkrir af liðs-
mönnum Hamars eru aldir upp í
Drangi.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Árni Jón Elíasson, oddviti Skaftár-
hrepps, óskar Elínu Einarsdóttur,
oddvita Mýrdalshrepps, til ham-
ingju með húsið. Hann skoraði jafn-
framt á hreppsnefnd Mýrdals-
hrepps í vítaspyrnukeppni þegar
búið væri að byggja íþróttahúsið á
Kirkjubæjarklaustri.
Nýja
íþrótta-
húsið í
Vík vígt
Fagridalur
FÉLAGSLÍFIÐ í Lýsuhólsskóla í Staðarsveit
hefur verið sérlega líflegt í vetur og nem-
endur bryddað upp á ýmsum nýjungum.
Árshátíð Lýsuhólsskóla var haldin 22. febrúar
þar sem leiksýningar, ljóðaflutningur og tón-
list voru á dagskrá.
Auk þess var frumsýnd stuttmyndin Ráð-
gáta sem stúlkur í 7. til 10. bekk sömdu hand-
rit að og hafa unnið að í vetur. Myndin fjallar
um samskipti nemenda og dularfulla atburði í
skóla. Mjög góð aðsókn var að árshátíðinni.
Eins og í mörgum öðrum skólum var haldin
öskudagsskemmtun í Lýsuhólsskóla, þar sem
nemendur bjuggu sig í margra kvikinda líki
og skemmtu sér hið besta. Um miðjan mars
var svo skemmtikvöld þar sem skemmtiatriði
frá árshátíð voru endurflutt. Á þeirri sýningu
fóru nemendur á kostum enda orðnir öruggari
á sviði. Stuttmynd drengja í 8.–10. bekk,
Stubbalækjarvirkjun, var frumsýnd en hún
fjallar um náttúrufræðiverkefni sem hófst í
þemaviku í haust og stuttmyndin Ráðgáta
endursýnd.
Mikill skákáhugi hefur ríkt í skólanum und-
anfarnar vikur og eftir sýningu skemmtiatriða
og stuttmynda bauðst gestum að tefla og spila.
Líflegt félagslíf
nemenda á Lýsuhóli
Hellnar
Morgunblaðið/Guðrún Bergmann
Nemendur Lýsuhólsskóla í búningum sínum eftir leiksýningu sem þeir stóðu fyrir.