Morgunblaðið - 12.04.2003, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
McLOUIS HÚSBÍLAR
Stórkostleg opnunartilboð
Sölu- og kynningarsýning
Netsalan ehf. Garðatorgi 3, 210 Garðabæ
Sími 565 6241, 544 4210 - fax 544 4211, netf.: netsalan@itn.is
Heimasíða: www.itn.is/netsalan. Opið á virkum dögum frá kl. 10–18.
Lagan 251
aðeins kr. 3.990.000 stgr.
Lagan 410
aðeins kr. 4.170.000 stgr.
Opið í dag, laugardag frá kl. 10-16
Opið á morgun, sunnudag, frá kl. 11-16
Einnig bjóðum við upp á McLouis GLEN 6 metra húsbíl, verð 4.200.000,
og Sterling Benz Sprinter 316, 6,7 metrar, verð 5.500.000.
EFTIRLIT Í BAGDAD
Bandaríkjaher hyggst taka upp
eftirlit að nóttu til í hverfum Bagdad
til að reyna að koma á reglu og vinna
trúnað skelfdra íbúanna. Rauði
krossinn lýsti því yfir í gær að algjör
upplausn og stjórnleysi ríkti í Bagd-
ad og bregðast þyrfti við.
Samfylking með mest fylgi
Samkvæmt nýrri könnun Fé-
lagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morg-
unblaðið mælist Samfylkingin með
37,1% fylgi og Sjálfstæðisflokkurinn
með 33,1%. Framsóknarflokkurinn
er með 10,3% atkvæða og Frjáls-
lyndi flokkurinn fer upp fyrir Vinstri
græna, fær 8,9%, en Vinstri grænir
eru með 8,7%. Nýtt afl fær 1,1% at-
kvæða.
Grænmetið hækkar
Samkvæmt nýrri verðkönnun
Samkeppnisstofnunar hefur með-
alverð á nokkrum tegundum græn-
metis hækkað frá því í mars. Þannig
hækkaði meðalverð á papriku um
10–28%.
Aðalmeðferð frestað
Aðalmeðferð í stóra málverkaföls-
unarmálinu hefur verið frestað í
Héraðsdómi Reykjavíkur fram yfir
páska og reiknað með að hún hefjist
á nýjan leik í lok apríl með vett-
vangsgöngu um Kjarvalsstaði.
Stórtjón í Sandgerði
Tjón á fiskverkunarhúsi Jón
Erlingssonar í Sandgerði, sem
brann í fyrrinótt, er talið nema á
annað hundrað milljónum króna hið
minnsta. Grunur um eldsupptök
beinist að rafmagni.
L a u g a r d a g u r
12.
a p r í l ˜ 2 0 0 3
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Umræðan 44/47
Viðskipti 16/21 Skoðun 47/48
Erlent 22/28 Minningar 49/55
Höfuðborgin 29 Kirkjustarf 57/63
Akureyri 30 Bréf 66/67
Suðurnes 31 Myndasögur 64
Árborg 32 Dagbók 66/67
Landið 33 Staksteinar 62
Heilsa 34/35 Íþróttir 70/71
Neytendur 36/37 Fólk 72/77
Listir 38/39 Bíó 74/77
Forystugrein 40 Ljósvakamiðlar 78
Viðhorf 44 Veður 79
* * *
Kynningar – Morgunblaðinu í dag
fylgir auglýsingablaðið Orka og fram-
tíð þjóðar. Blaðinu er dreift um allt
land.
KAMFÝLÓBAKTERSÝKINGUM
í mönnum hefur fækkað um 80%
frá því árið 1999 og er sá árangur
fyrst og fremst þakkaður fyrir-
byggjandi aðgerðum sem ráðist
var í til að auka öryggi matvæla,
að því er fram kom á málþingi um
kamfýlóbakter í gær.
Talið er að fækkun sýkingartil-
fella þýði 130–260 milljóna króna
sparnað fyrir samfélagið árlega, að
sögn Sivjar Friðleifsdóttur um-
hverfisráðherra en hún flutti ávarp
á málþinginu. Hún benti á að í ná-
grannlöndunum væri litið til að-
gerðanna á Íslandi sem fyrirmynd-
ar á þessu stigi og gjarnan talað
um íslensku aðferðina.
Jarle Reiersen, dýralæknir ali-
fuglasjúkdóma hjá embætti yfir-
dýralæknis, segir að aðgerðirnar
sem gripið var til eftir faraldurinn
1999 hafi að mestu leyti verið á
framleiðslustigi kjúklinga. „Mörg
atriði koma þarna saman eins og
aukið eftirlit í framleiðslunni,
skyldumerkingar umbúða og
fræðsla til neytenda. Líklega
skiptir þó mestu máli að ákveðið
var að frysta allar afurðir sem vit-
að var að væru mengaðar til að
fækka sýkingum í mönnum.“ Hann
bendir á að aðgerðirnar séu enn í
stöðugri þróun enda sé afar mikið
í húfi.
Þótt sýkingartilfellum í mönnum
hafi fækkað hefur mengun ekki
minnkað í sláturhópum og eru nú
14–18% kjúklinga menguð, að sögn
Jarle. „Allir leggja sig fram en það
er ákaflega erfitt að koma í veg
fyrir að smit komist í kjúklingana.
Nú er svo komið að í Svíþjóð eru
til dæmis 10% kjúklinga menguð
og í Danmörku 40%.“
Árið 1999 voru skráðar kamfýló-
baktersýkingar 326 en 2002 voru
þær 74 vegna smits af innlendum
toga. Jarle bendir á að 1999 hafi
verið fulljóst að meginorsökin var
kjúklingar, núna hafi hins vegar
komið fram í máli lækna að vís-
bendingar séu um aðra orsaka-
valda sem tengist ekki kjúklinga-
neyslu eins og ómeðhöndlað
yfirborðsvatn og ógerilsneydd
mjólk.
Aðgerðir gegn kamfýlóbakter bera góðan árangur
Sýkingum í mönnum
hefur fækkað um 80%
ÞESSI glæsilegi kjóll er á meðal
þess sem sjá má á sýningunni Upp-
skeru 2003 sem haldin var í gær og
verður einnig í dag þar sem nem-
endur úr framhaldsskólum höfuð-
borgarsvæðisins sýna afrakstur
náms síns. Nemendurnir stunda all-
ir nám sem tengist hönnun, eins og
fatahönnun, klæðskurð, kjólasaum
og iðnhönnun. Markmiðið með há-
tíðinni er að kynna til leiks ungt og
hæfileikaríkt fólk á þessum sviðum
og kynna um leið námið. Þema há-
tíðarinnar er Regnboginn og var
regnbogakjóllinn samstarfsverk-
efni skólanna. Sýningin er haldin í
Borgartúni 19 en allur ágóði renn-
ur til samtakanna Regnbogabarna.
Í öllum regnbogans litum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
GERT er ráð fyrir að stofnanir og
fyrirtæki Reykjavíkurborgar ásamt
Vinnuskóla Reykjavíkur ráði um
4.500 nemendur til starfa í sumar.
Á fundi borgarráðs 25. febrúar sl.
var samþykkt að verja 150 milljón-
um króna til atvinnuátaks fyrir ungt
fólk. Samráðshópur varðandi sumar-
vinnu skólafólks hefur farið yfir mál-
ið og gerði í gær tillögu til borgar-
ráðs um ráðstöfun fjárveitingarinnar
vegna atvinnuátaksins, en hann
áætlar að hægt verði að ráða um 450
nemendur til viðbótarstarfa hjá
Reykjavíkurborg vegna aukafjár-
veitingarinnar. Um er að ræða leið-
beinendastörf og störf fyrir yngri
nemendur hjá Vinnuskólanum, störf
hjá leikskólum, í félagsþjónustunni,
hjá menningarstofnunum og í Ráð-
húsinu, hjá Gatnamálastofu, Um-
hverfis- og heilbrigðisstofu og ÍTR.
Þar fyrir utan liggur fyrir að
stofnanir og fyrirtæki borgarinnar
ráði um 1.100 nemendur og Vinnu-
skólinn um 3.000 yngri nemendur til
starfa í sumar, en nú hafa 1.980 nem-
endur 17 ára og eldri óskað eftir
sumarstarfi hjá vinnumiðlun skóla-
fólks. Í fyrra skráðu sig 2.695 manns
og voru 1.955 ráðnir.
4.500 sum-
arstörf hjá
borginni
MAÐURINN sem lést í bílslysi
á Sauðárkróki á fimmtudag,
þegar pallbifreið og malarflutn-
ingabifreið rákust saman, hét
Steindór Hlöðversson. Hann
var fæddur 26. maí árið 1980 og
bjó í foreldrahúsum í Laugar-
túni 25 á Svalbarðseyri. Hann
var ókvæntur og barnlaus.
Lést í
bílslysi
TVÆR þyrlur Varnarliðsins á Kefla-
víkurflugvelli fóru í gær til að sækja
slasaðan sjómann um borð í litháískt
fiskiskip, sem var statt 274 sjómílur
suðaustur af Keflavík. Umboðsmað-
ur litháíska fiskiskipsins Utena hafði
samband við Landhelgisgæsluna um
klukkan 13.30 í gær og óskaði eftir
aðstoð vegna skipverja um borð sem
hafði fótbrotnað og var með opið
beinbrot. Einn af skipverjum Utena
er læknanemi og gerði hann að
sárinu til bráðabirgða.
Svæðið sem Utena er statt á er á
björgunarsvæði björgunarmiðstöðv-
arinnar í Clyde í Skotlandi. Var
ákveðið að óska eftir því við Varn-
arliðið að það sækti slasaða skipverj-
ann. Tveimur tímum síðar var búið
að hífa hinn slasaða um borð í aðra
þyrluna og um kl. 20 lenti hún við
Landspítalann í Fossvogi.
Þyrlur sóttu
slasaðan
sjómann