Morgunblaðið - 12.04.2003, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 12.04.2003, Blaðsíða 24
STRÍÐ Í ÍRAK 24 LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ MÚGUR kveikti í byggingum, lét greipar sópa um banka og fleiri stofnanir í Mosul, stærstu borg Norður-Íraks, eftir að íraskir her- menn gáfust þar upp fyrir hersveit- um Bandaríkjamanna og Kúrda án þess að veita mótspyrnu. Fregnir hermdu þó að leyniskyttur hefðu skotið á bandaríska sérsveitarmenn þegar þeir nálguðust opinbera bygg- ingu í miðborginni. Peningaseðlar voru á víð og dreif á götunum eftir að múgurinn réðst inn í banka í miðborginni og fleiri stofn- anir, meðal annars háskólabókasafn þar sem sjaldgæf handrit eru geymd. Frá bænaturnum mosku í miðborg- inni gullu áskoranir um að fólkið hætti að eyðileggja borgina. Fólkið veifaði fánum Kúrdíska lýðræðis- flokksins. Nokkrum klukkustundum eftir uppgjöf írösku hersveitanna, sem áttu að verja Mosul, réðust banda- rískir sérsveitarmenn og hundruð Kúrda inn í borgina. „Hvers vegna komið þið svona seint?“ hrópuðu borgarbúar til bandarísku her- mannanna. Daginn áður náðu hersveitir Kúrda og bandarískir sérsveitar- menn olíuborginni Kirkuk á sitt vald og mættu þar nær engri mótspyrnu. Bandarískir fallhlífahermenn voru sendir til borgarinnar í fyrrakvöld og vernduðu í gær olíumannvirki og flugvöll borgarinnar. Sakaðir um svik Tyrkir óttast að Kúrdar leggi Mosul og Kirkuk undir sig til fram- búðar og stofni sjálfstætt ríki sem gæti ýtt undir vonir Kúrda í Tyrk- landi um að fá sjálfstæði. Tyrknesk stjórnvöld sögðust í gær vera að íhuga að fjölga hermönnum sínum við landamæri ríkjanna og gáfu til kynna að hernaðarhlutun í Norður- Írak kæmi til greina færu hersveitir Kúrda ekki úr borgunum. Áætlað er að um 5.000 tyrkneskir hermenn séu nú við landamærin. Varnarmálaráðherra Grikklands, Yiannos Papantoniou, hvatti í gær Bandaríkjamenn til að koma í veg fyrir að Tyrkir sendu hermenn yfir landamærin. „Verði Írak skipt verða afleiðingarnar mjög alvarlegar,“ sagði hann. Abdullah Gul, utanríkisráðherra Tyrklands, sagði að Kúrdar hefðu byrjað að flytja herlið sitt frá Kirkuk í gærmorgun og borgin væri nú á valdi bandarísku hersveitanna. Fimmtán eftirlitsmenn úr tyrkneska hernum hefðu verið sendir til Norð- ur-Íraks í samræmi við samkomulag við Bandaríkjastjórn. Tyrkneskir embættismenn sögðu að Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefði lofað í heim- sókn til Tyrklands í vikunni sem leið að herlið Kúrda fengi ekki að fara „yfir ákveðna línu“ umhverfis Kirk- uk og Mosul. „Augljóst er að þetta loforð hefur ekki verið efnt,“ sagði tyrkneska dagblaðið Radikal í gær. „Þetta viðhorf Bandaríkjamanna leiðir til deilna við tyrknesku stjórn- ina.“ Mumtaz Soysal, fyrrverandi utan- ríkisráðherra Tyrklands, sagði að at- burðirnir í Kirkuk og Mosul myndu leiða til trúnaðarbrests milli stjórn- valda í Tyrklandi og Bandaríkjunum. „Svo virðist sem það stefni í stofnun sjálfstæðs ríkis Kúrda á næstunni.“ „Þetta er villimennska“ Írösku hersveitirnar í Mosul gáf- ust upp eftir að yfirmaður þeirra hafði samband við bandaríska her- foringja í Norður-Írak. Frank Thorp, talsmaður bandarísku her- stjórnarinnar í Katar, fagnaði upp- gjöfinni en sagði að stuðningsmenn stjórnar Saddams Husseins kynnu að berjast í borginni eða í grennd við hana. Sunnan við Kirkuk gengu þúsund- ir íraskra hermanna í átt að Bagdad, eftir að hafa lagt niður vopn og losað sig við hermannabúningana. Þeir voru með lítið sem ekkert meðferðis, nokkrir voru jafnvel berfættir, og sögðu að það gæti tekið þá viku að komast til heimabæja sinna. Íbúar Mosul tíndu upp peninga á götum miðborgarinnar eftir að múg- ur réðst inn í bankann. Vopnaðir menn, líklega úr herliði Kúrda, fóru inn í bankann og skutu upp í loftið til að reka fólkið í burtu. „Þetta er villimennska,“ sagði einn íbúa Mosul um ránin og gripdeild- irnar í borginni. „Þetta eru ekki pen- ingar Saddams, heldur þjóðarinnar.“ „Ég á reikning í bankanum. Allir peningarnir mínir eru horfnir,“ sagði annar Mosul-búi. Fólk safnaðist saman við opinber- ar byggingar í miðborg Mosul og kveikti í myndum af Saddam Huss- ein. Margir gengu út úr byggingun- um með ýmiss konar ránsfeng, svo sem skjalaskápa og loftnet. Íkveikjur og gripdeild- ir í Mosul Tyrkir gefa í skyn að hernaðaríhlut- un í Norður-Írak komi til greina Mosul. AP, AFP. Reuters Íraskir Kúrdar í banka í Mosul eftir að múgur réðst inn í hann og lét greip- ar sópa um fjárhirslurnar. Peningar voru á víð og dreif á götum úti. SADDAM Hussein leit fyrst dagsins ljós í litlu þorpi nærri borginni Tikrit í Norður-Írak árið 1937. Nú bendir flest til þess að veldi hans verði greitt náðarhöggið í þeirri sömu borg 66 árum síðar. Með falli borganna Kirkuk á fimmtudag og Mosul í gær stendur Tikrit í raun ein eftir af ríki Saddams Husseins. Þessi borg, sem er um 150 kílómetra norður af Bagdad, var miðstöð valda Saddams Husseins, helsta vígi hans og Baath-flokksins. Hann kann að leynast þar en jafnframt kann að vera að hann hafi valið sér annað byrgi annars staðar í landinu sem hinsta felustaðinn – ef hann hefur þá ekki þeg- ar yfirgefið fósturjörðina. Tikrit verður hins vegar tekin. Spurningin er einungis sú hvernig það verður gert og hversu miklar mannfórnir það kostar. Loka- stig herfarar Bandaríkjamanna og Breta gegn stjórn Saddams forseta er að hefjast. Ógerlegt er að segja fyrir um hvenær Bandaríkjamenn og Bretar láta til skarar skríða gegn þessu vígi Saddams Husseins. Spádómar eiga tæpast við þegar slíkir atburð- ir gerast en engu að síður virðist mega færa ákveðin rök fyrir því að lokasóknin gegn Tikr- it kunni að „tefjast“ nokkuð. Nú hefur komið í ljós að Bretar og Banda- ríkjamenn ráða ekki yfir nægilegum liðsafla í Írak til að halda þar uppi „lögum“ og reglu á sama tíma og mótspyrna einstakra herflokka Íraka er upprætt og öryggi sveita innrásar- hersins treyst. Krafan um að Bretar og Bandaríkjamenn taki á sig skyldur hernáms- veldis magnast hins vegar með hverjum degi. Þrýstingurinn á eftir að aukast enn á næstu dögum. Þegar hefndarmorðin hefjast kann hann að verða nánast óbærilegur. Þegar horft er til þessa er ljóst að innrás- arherinn mun reyna að bregðast við. Almenn- ingur í Írak telur ekki, frekar en annað fólk, ríkjandi ástand sérlega heillandi birtingar- mynd frelsisins. Á hinn bóginn er vitað að liðsauki er á leið- inni. Trúlega ræðir hér alls um 100.000 manna bandarískan liðsafla. Þetta herlið hefur verið flutt sjóleiðina til landsins en upphaflega stóð til að þessi hluti innrásarhersins færi um Tyrkland inn í Norður-Írak. Eftir því sem næst verður komist ræðir hér um þungvopn- aðar bryn- og stórskotaliðssveitir. Uppgjöf Íraka í einhverju formi er vissu- lega hugsanleg en líklegra er að þetta herlið muni hafa hlutverki að gegna í Tikrit. Könnunarárásir? Vitað er að Bandaríkjamenn hafa látið sprengjum rigna yfir herafla Íraka umhverfis borgina á undanliðnum vikum og ætla má að loftárásir hafi frekar harðnað á síðustu dög- um. Reynslan úr þessu stríði og stríðinu 1991 kennir að slíkar árásir geta haft gríðarleg áhrif á staðan liðsafla sem að auki nýtur engr- ar loftverndar. Ekki er vitað hvort herliðið í kringum Tikrit getur samhæft aðgerðir sínar og lýtur beinni yfirstjórn. Ef miðað er við fyrri stig þessarar herfarar verður að telja það heldur ólíklegt. Sveitir Íraka í kringum þessa borg eru dauðadæmdar gefist þær ekki upp. Inni í borginni bíða vopnaðir liðsmenn Baath-flokksins og „Fedayeen Saddam“- sveitir. Þar ræðir um dyggustu stuðnings- menn stjórnarinnar og, sem ef til vill er mik- ilvægara, menn sem engu hafa að tapa. Þegar Bandaríkjamenn höfðu náð að safna saman nokkru liði við Bagdad-borg í fyrri viku hófu þeir að gera eins konar „könnunarárásir“ á liðsafla Íraka í nágrenni borgarinnar til að kanna styrk hans og viðbúnað. Afar líklegt er að sömu aðferð verði beitt við Tikrit á næstu dögum. Herförin gegn stjórn Saddams forseta hef- ur einkennst af gríðarlegum hraða, dirfsku og sveigjanleika og mun komast á spjöld sögunn- ar af þeim sökum. Vera kann að hvergi verði látið staðar numið og því ákveðið að ráðast beint gegn síðasta vígi forsetans og Baath- flokksins. Á hinn bóginn er það svo að ástandið í Bagdad og raunar fleiri borgum er með þeim hætti að ætla verður að herstjórn innrásarliðs- ins ákveði að það skuli njóta forgangs. Gera má ráð fyrir því að þau boð hafi þegar borist frá hinum pólitísku yfirboðurum herforingj- anna. Komi til lokauppgjörs í Tikrit kann það því að „tefjast“ um nokkra daga af þessum sökum. Endalokin nálgast í Tikrit Tikrit, heimaborg Saddams Husseins, stendur nú ein eftir af veldi hans. Ásgeir Sverrisson fjallar um lokauppgjörið sem vofir yfir. Rafstöðvarvegi 1a / 110 Reykjavík / Sími 588 0066 / Opið mán. - laug. frá kl. 13 - 18Íslensk húsgögn eftir Kristinn Brynjólfsson P L A Z A R A C E R M I L E S T O N E „Þetta eru ekki peningar Saddams heldur þjóðarinnar“ ÍBÚI MOSUL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.