Morgunblaðið - 12.04.2003, Blaðsíða 27
STRÍÐ Í ÍRAK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2003 27
ALI Khamenei, erkiklerkur og æðsti
leiðtogi Írans, lýsti því í gær yfir að
Íranar væru ánægðir að sjá á bak
Saddam Hussein, forseta Íraks.
Hann sagði hins vegar að Íranar litu
svo á að að áætlanir um að útnefna
bandarískan hershöfðingja land-
stjóra yfir Írak væru „árás á íslam“.
Þá skoraði Khamenei á íraska
stjórnarandstæðinga að taka ekki
þátt í „sögulegri hneisu“ með því að
eiga samstarf við hersveitir Banda-
ríkjanna og Breta í Írak.
Ólíklegt er að ummæli Khameneis
veki mikla lukku í Washington, en
grunnt hefur verið á því góða með
bandarískum og írönskum stjórn-
völdum. Íranar hafa hins vegar verið
í jafnvel enn minni vinskap við Sadd-
am Hussein, en sem kunnugt er áttu
Íran og Írak í stríði 1980–1988 og tal-
ið er að hundruð þúsunda manna hafi
fallið í þeim hildarleik.
„Afstaða okkar er sú sama og
írösku þjóðarinnar. Íraska þjóðin er
glöð að Saddam skuli hafa verið
steypt af stóli og við erum glaðir yfir
því líka,“ sagði Khamenei við bæna-
gjörðir í Teheran í gær.
Fordæmdi erkiklerkurinn áætlan-
ir Bandaríkjanna um að koma á fót
herstjórn í Bagdad. „Við álítum
þetta árás gegn íslam,“ sagði hann.
„Íraska þjóðin hefur ekki sloppið
undan einræðisstjórn Saddams til
þess eins að verða hlekkjuð á ný und-
ir enn viðameiri einræðisstjórn
Bandaríkjamanns.“
„Að eiga samstarf við erlendan
her er söguleg hneisa og ég ráðlegg
ykkur að vinna ekki með þessum er-
lendu herjum,“ sagði Khamenei og
beindi orðum sínum til leiðtoga
írösku stjórnarandstöðunnar. Hvatti
hann þá til að koma í veg fyrir varg-
öld í Írak sem Bandaríkjamenn gætu
nýtt sem afsökun til að halda kyrru
fyrir í Írak.
Khamenei sagði ennfremur að
George W. Bush Bandaríkjaforseti
og Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, hefðu verið að ljúga er
þeir sögðust hafa ráðist á Írak til að
frelsa írösku þjóðina. „Þeir eru að
gæta eigin hagsmuna,“ sagði hann
og fór fram á að hersveitir banda-
manna yfirgæfu Írak nú þegar. „Þið
hafið steypt Saddam af stóli þannig
að ef þið hafið lýðræði og frelsi í há-
vegum ættuð þið að fara heim núna.“
Khamenei fagnar falli Saddams
Fordæmir áætlanir Bandaríkja-
manna um skipan landstjóra yfir Írak
VINCENT Brooks, undirhershöfð-
ingi Bandaríkjanna, sagði í gær að
íraskir leiðtogar væru að reyna að
flýja land. Birtur hefur verið listi
með nöfnum 55 einstaklinga sem
Bandaríkjamenn vilja handtaka.
Brooks nefndi engin nöfn á blaða-
mannafundi í gær en sagði að her-
menn hefðu fengið þessa lista með
myndum af þeim sem eftirlýstir
eru. Raunar hafa hermenn fengið
afhentan sérstakan „spilastokk“,
eins og þann sem sést á myndinni,
til að auðvelda þeim að þekkja
mennina 55. Heldur Brooks hér á
spili sem geymir mynd af Quasay,
syni Saddams.
Þá sagði Brooks að verið væri að
prenta veggspjöld til að veita írösk-
um almenningi upplýsingar um
hvaða einstaklinga Bandaríkja-
menn vilji yfirheyra. Fram kom í
fréttum Sky News, að sennilega
væri búið að handtaka um þriðjung
þeirra 55 sem eftirlýstir eru en
óstaðfestar fréttir væru um að hátt-
settir íraskir embættismenn hefðu
reynt að komast inn í Sýrland og
einnig inn í Íran. Ekkert er vitað
um afdrif Saddams Husseins og
helstu aðstoðarmanna hans.
Reuters
Segja ráða-
menn reyna
að flýja
FJÖRUTÍU og átta óbreyttir borg-
arar, þ.á m. konur og börn, hafa beð-
ið bana í loftárásum Breta og Banda-
ríkjamanna í nágrenni við borgina
Hillah, sunnarlega í Írak, sl. sólar-
hring. 310 til viðbótar hafa særst. Þá
drápu bandarískir landgönguliðar
tvö írösk börn, og særðu ellefu til
viðbótar, er þeir hófu skothríð gegn
bifreið sem nálgaðist eftirlitsstöð í
Nasiriya í Suður-Írak.
Alls hafa 73 óbreyttir borgarar
fallið í sprengjuregni bandamanna á
Hilla frá því á mánudag. Sagði Murt-
ada Abbas, forstjóri sjúkrahússins í
Hilla, að sprengjuflugvélar banda-
manna hefðu gert árásir á íbúðar-
hverfi í suðurhluta Hilla, sem er um
80 km af Bagdad. Hefur reynst erfitt
að sinna öllum þeim, sem þurfa að-
hlynningu, á sjúkrahúsinu vegna
fjölda særðra og látinna.
Fréttamaður AFP sagði að sjá
mætti leifar klasasprengna á þeim
stað, þar sem sprengjur banda-
manna komu niður.
Missti öll ættmenni sín
Fimmtán meðlimir einnar fjöl-
skyldu biðu bana seint á mánudag
þegar bifreið þeirra var sprengd í
loft upp af flugskeyti frá Apache-
herþyrlu bandamanna ekki langt frá
Hilla. Lifði aðeins einn af, Razek al-
Kazem al-Khafaji, en hann kvaðst
hafa misst eiginkonu sína, sex börn
og foreldra sína, auk þriggja bræðra
sinna og eiginkvenna sinna. Hann
sagði fjölskylduna hafa verið að flýja
harða bardaga í Nasiriya.
48 óbreytt-
ir borgarar
féllu í Hilla
Tvö börn skotin til
bana í Nasiriya
Hilla. AFP.
♦ ♦ ♦