Morgunblaðið - 12.04.2003, Blaðsíða 69

Morgunblaðið - 12.04.2003, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2003 69 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ Frances Drake HRÚTUR Afmælisbörn dagsins: Afmælisbarn dagsins er fé- lagslynt og leggur góðum málefnum lið. Umburð- arlyndi þess mætti þó vera betra á stundum. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Misstu ekki sjónar á hlut- unum því áður en þú veist eru þeir horfnir og jafnvel fyrir fullt og allt. Reyndu ekki að blekkja samstarfs- fólk þitt. Naut (20. apríl - 20. maí)  Ekki þarft þú að hlaupa til þótt fólkið í kringum þig sé með einhver látalæti. Gerðu þér umfram allt far um að vera raunsæ(r). Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Hafðu augun hjá þér ef þú skrifar undir einhver skjöl. Ekki síður þarftu að þjálfa hugann og næra andann. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Því fylgir mikil ábyrgð að aðrir skuli leita til þín um ráð. Gott væri að gefa sér tíma til íhugunar. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú saknar gömlu skóla- daganna og langar til þess að mennta þig frekar. Þú þú færð tækifæri til þess fyrr en seinna. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Efasemdir um sjálfan þig eru óþarfar. Vertu hógvær og lærðu af þeim sem geta kennt þér. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Stattu við skoðanir þínar og láttu í þér heyra þegar þörf krefur. Öðruvísi kemstu ekki áfram í lífinu. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú ættir ekki að gera neitt í dag nema þú sért upp- lögð (-lagður) til þess. Þegar það er búið getur þú litið bjartsýn(n) fram á veg. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Vandamálin hverfa ekki þótt þú stingir þeim undir stól. Þú ættir frekar að vinna þeim fylgi. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Það er ástæðulaust að efast um allar þínar ákvarðanir. Gerðu það sem til þarf að koma þér í samt lag. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þér finnst þú verða að finna upp á einhverju til að fá útrás fyrir athafna- þörf þína. Reyndu að forð- ast allt slíkt og mundu að fæst orð bera minnsta ábyrgð. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Hlutirnir gerast hraðar í kringum þig en þér finnst þægilegt. Láttu það bara eftir þér að brosa út í bæði. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. ALSNJÓA Eilífur snjór í augu mín út og suður og vestur skín, samur og samur út og austur. Einstaklingur, vertu nú hraustur! Dauðinn er hreinn og hvítur snjór. Hjartavörðurinn gengur rór og stendur sig á blæju breiðri, býr þar nú undir jörð í heiðri. Víst er þér, móðir, annt um oss. Aumingja jörð með þungan kross ber sig það allt í ljósi lita, lífið og dauðann, kulda og hita. Jónas Hallgrímsson LJÓÐABROT ÁRNAÐ HEILLA 70 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 12. apríl, verður sjötug Hjördís Magnúsdóttir, Norðurbrún 1, Reykjavík. Í tilefni af af- mælinu tekur Hjördís á móti gestum í salnum Ás- byrgi á Broadway milli kl. 14.30 og 17 í dag. SETJUM okkur um stund í spor norðurs, sem telur sig eiga við nokkurn vanda að etja í sögnum: Norður ♠ 973 ♥ ÁKG62 ♦ KD107 ♣G NS eru í hættu, en AV ut- an. Norður er gjafari og vekur á einu hjarta. Makk- er svarar með einum spaða og vestur stekkur í þrjú lauf. Hvað á að segja? Svar makkers á einum spaða getur verið veikt og byggt á fjórlit, svo það væri óráðlegt að taka undir spað- ann. Dobl myndi sýna skiptingu af þessum toga, en heldur sterkari spil. Sennilega verður að passa. Þú gerir það og makker stekkur í fjóra spaða. Það er nefnilega það. Er tilefni til að reyna við slemmu? Norður ♠ 973 ♥ ÁKG62 ♦ KD107 ♣G Vestur Austur ♠ -- ♠ DG8 ♥ D1097 ♥ 543 ♦ 642 ♦ ÁG53 ♣Á109874 ♣D62 Suður ♠ ÁK106542 ♥ 8 ♦ 98 ♣K53 Spilið er frá Íslands- mótinu í Borgarnesi. Stökk vesturs í þrjú lauf er hug- djörf sögn og hafði þær af- leiðingar við borið að norð- ur stóðst ekki mátið að reyna við slemmu. Hann sá fyrir sér ÁK sjöunda í spaða og tígulásinn hjá makker og spurði um lyk- ilspil: Vestur Norður Austur Suður -- 1 hjarta Pass 1 spaði 3 tíglar Pass Pass 4 spaðar Pass 4 grönd Pass 5 hjörtu Pass 5 spaðar Allir pass Svarið var ekki hagstætt og sagnir féllu niður í fimm spöðum. Vestur kom út með laufás og suður lét kónginn í slaginn heima! Hann taldi að helsta hættan væri sú að vestur væri með áttlit í laufi og austur gæti yfirtrompað blindan. En hættan var af öðrum toga. Vestur spilaði laufi áfram og sagnhafi trompaði. Hann spilaði svo spaða á ásinn og gretti sig ógurlega. Beit svo á jaxlinn og svínaði hjartagosa. Tveir tíglar fóru niður í ÁK í hjarta og stungan á þriðja laufinu hélt, því vestur átti aðeins sexlit. Skondið spil. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson 60 ÁRA afmæli. Mánu-daginn 14. apríl er sextug Ester Bergmann Halldórsdóttir, kennari á Selfossi. Eiginmaður henn- ar er Sigurþór Jóh. Er- lendsson. Þau taka á móti gestum á Hótel Örk, Hvera- gerði, í dag, laugardaginn 12. apríl, kl. 20–23. 75 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 12. apríl, verður 75 ára Mál- fríður B. Jónsdóttir, Lauga- vegi 146. Hún verður að heiman í dag og næstu daga. 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. g3 c5 4. d5 exd5 5. cxd5 d6 6. Bg2 Be7 7. Rc3 h5 8. Rf3 Bg4 9. h3 Bxf3 10. exf3 Ra6 11. g4 Rd7 12. O-O Rc7 13. He1 Kf8 14. f4 hxg4 15. hxg4 Bf6 16. g5 Bxc3 17. bxc3 b5 18. a4 bxa4 19. Hxa4 Rb6 20. Hae4 Dd7 21. Df3 Df5 22. c4 He8 23. Hxe8+ Rxe8 24. De2 Dd7 25. f5 f6 26. g6 Rc8 27. Bf4 Hh4 28. Bg3 Hh8 29. Bf3 Rc7 30. De4 Ra8 31. Dc2 Rab6 32. He6 Hh6 33. Kg2 Hh8 34. Be2 Ra8 35. Db3 Rab6 36. Bd3 Hh5 37. Dd1 Hh8 38. Dg4 Dc7 39. De4 Dd7 40. Bh4 Dd8 41. Bc2 Hh6 Staðan kom upp á Dos Hermanas mótinu sem lauk fyrir skömmu á Spáni. Alex- ander Khalifman (2702) hafði hvítt gegn Daniel Campora (2505). 42. Bxf6! gxf6 43. He8+ og svartur gafst upp enda fátt um fína drætti eftir 43... Dxe8 44. g7+. Áskorendaflokkur Skákþings Íslands hefst í Faxafeni 12 kl. 14.00 í dag, 12. apríl. Alls verða tefldar níu umferðir og fjögur efstu sætin gefa rétt til þátttöku í landsliðsflokki. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira les- endum sínum að kostnaðarlausu. Til- kynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnu- dagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynn- ingum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk get- ur hringt í síma 569- 1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík 80 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 12. apríl, verður áttræð Hall- dóra K. Jónsdóttir, Skóla- stíg 14a, Stykkishólmi. Eig- inmaður hennar er Steinþór Viggó Þorvarðarson, fyrrv. vörubifreiðastjóri. Halldóra er að heiman í dag. Einmenningur hjá Bridsfélagi Akureyrar Þegar Stjórn Bridsfélags Akur- eyrar setti saman dagskrá vorsins 2003 var völva beðin að spá um úrslit þessa síðasta einmenningskvölds spilaársins 2002 - 2003. Svar völv- unnar var eftirfarandi: Völvan spáir Viggó titli vandi er um slíkt að spá Það gæti verið Gissur litli ef Gissur eldri situr hjá. Ekki hafði völvan rétt fyrir sér í þetta skipti, þar sem hvorki Gissur eldri né Gissur yngri mætti og Hans Viggó, sem þó leiddi mótið framan af, missti svolítið flugið í restina og end- aði rétt ofan við miðlung. Að venju voru ýmis fyrirtæki feng- in til að styrkja spilarana og verða þau í sviga með sínum mönnum. Staða efstu manna var: Ólína Sigurjónsdóttir (Almenna lögþjónustan og Íslensk Verðbréf) 24 Reynir Helgason (Verkfræðistofa Sigurðar Thor og VÍS) 15 Páll Árdal (Útgerðarfélag Akureyringa) 12 Soffía Guðmundsdóttir (Toyota og Tannverk) 12 Hermann Huijbens (Heilsuhornið) 11 Næst verður spilað í Hamri á sunnudagskvöld, að venju hefst spilamennskan kl. 19:30. Síðan verð- ur spilað lokaumferðin í Halldórs- mótinu á þriðjudaginn og verður byrjað stundvíslega kl. 19:30. Bridsfélag Hafnarfjarðar Hinn 7. apríl heimsóttum við Hafnfirðingar bridsdeild Barð- strendinga/kvenna. Svo virðist sem þessi félög hafi ekki sterkan heima- völl, því nú unnu Gaflarar eftir tap í Hafnarfirði. Sigur okkar var þó ekki nógu stór til að vinna upp tapið fyrr í vor. Leikar fóru þannig að bridsdeild Barðstrendinga/kvenna hlaut 252 stig en Bridsfélag Hafnarfjarðar 286. Við Hafnfirðingar þökkum in- dælar móttökur og sérstakar þakkir fá keppnisstjórar fyrir framtakið. Mánudaginn 14. apríl hefst þriggja kvölda Monrad-Barometer, spilað kl. 19.30 að Flatahrauni 3. Bridsfélag Hreyfils Vortvímenningurinn stendur sem hæst og spila 16 pör í tveimur riðlum. Staðan í N/S riðlinum er þessi: Daníel Halldórss. – Ragnar Björnss. 35 Hlynur Vigfúss. – Ómar Óskarss. 30 Kári Sigurjónss. – Guðm. Magnúss. 22 Staðan í A/V riðlinum: Jón Sigtryggss. – Skafti Björnss. 37 Einar Gunnarss. – Ágúst Benediktss. 36 Árni Kristjánss. – Birgir Kjartanss. 30 Næsta mánudagskvöld verður spilaður eins kvölds páskatvímenn- ingur með páskaeggjum í verðlaun en síðasta umferðin í vortvímenn- ingnum verður eftir páska. Hafnfirðingar höfðu betur Spilarar í Bridsfélagi Hafnarfjarð- ar komu í heimsókn til Bridsdeildar Barðstrendinga/kvenna sl. mánudag og voru þeir að endurgjalda þannig heimsókn Barðstrendinga frá því í mars. Spilaðir voru tveir 16 spila leikir á 9 borðum og greinilegt að mikil var baráttan um sigurinn. Hafnfirðingar voru grimmari í þess- ari viðureign og náðu forystu 145– 125 eftir fyrri leikinn. Barðstrend- ingar og konur freistuðu þess að minnka muninn í síðari hálfleik, en Hafnfirðingar stóðu fastir á sínu og höfðu aukið forystuna þegar yfir lauk. Lokatölur 286-252. Þess má geta að Barðstrendingar/konur höfðu betur í sinni heimsókn til Hafnfirðinga þannig að segja má að gestrisnin hafi ráðið ríkjum í þessum viðureignum félaganna sem vonandi verða að árlegum viðburði. Hjá Barðstrendingum er nú einu kvöldi ólokið í Butler-tvímenningi félagsins og verður það spilað mánudaginn 14. apríl nk. Bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði Glæsibæ mánud. 31. mars 2003. Spilað var á 10 borðum. Meðalskor 216 stig. Árangur N-S: Margrét Margeirsd. – Halla Ólafsdóttir 251 Albert Þorsteinsson – Bragi Björnsson 246 Oddur Jónsson – Ægir Ferdinandsson 245 Eysteinn Einarsson – Magnús Oddsson 245 Árangur A-V: Júlíus Guðmundss. – Hilmar Valdim. 270 Gunnar Pétursson – Kristján Samúelss. 250 Alda Hansen – Jón Lárusson 237 Haukur Guðmundsson – Örn Sigfússon 237 Tvímenningskeppni spiluð fimmtud. 3. apríl. Spilað var á 12 borðum. Meðalskor 216 stig. Árangur N-S: Júlíus Guðmundss. – Rafn Kristjánss. 264 Sæmundur Björnss. – Olíver Kristóf. 243 Björn E. Pétursson – Gunnar Hersir 240 Árangur A-V: Birgir Sigurðsson – Alfreð Kristjánss. 243 Elín Jónsdóttir – Soffía Theódórsdóttir 241 Ásta Erlingsdóttir – Sigurður Pálsson 236 Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson Skagamenn eiga sína fulltrúa í úrslitum Íslandsmótsins í sveitakeppni sem fram fer um bænadagana. Flestir spilaranna hafa spilað áður í úrslitum, þó ekki undanfarin ár. Sveitin heitir Skaginn hf. og þeir voru hógværir fé- lagarnir sem spiluðu síðasta leikinn. Talið frá vinstri: Þorgeir Jósepsson, Tryggvi Bjarnason, Bjarni Guðmundsson og Karl Alfreðsson. Með þeim í sveitinni eru Viktor Björnsson og Alfreð Viktorsson. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Stuttar og síðar kápur sumarúlpur, heilsársúlpur, regnúlpur, ullarjakkar, hattar og húfur Opið virka daga frá kl. 9-18 Laugardaga frá kl 10-15 Mörkinni 6 - Sími 588 5518
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.