Morgunblaðið - 12.04.2003, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 12.04.2003, Blaðsíða 39
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2003 39 Sýnum í dag, laugardag kl. 10-17 nýja sendi- og pallbíla með loftpúðafjöðrun Iveco Daily UPPBOÐ á einu af málverkum Söru Vilbergsdóttir fór fram í Gall- eríi Landsbankans á vefnum á dög- unum. Hæsta boð í málverkið, Hjörð, var 100 þús. kr. og ánafnaði Sara félaginu Samhjálp andvirði kaupverðsins. Málverk Söru eru nú til sýnis í húsakynnum Landsbankans á Laugavegi 77 auk þess sem hægt er að skoða verkin í galleríinu á vefn- um landsbanki.is. Sýning þessi er níunda einkasýn- ing Söru en einnig hefur hún tekið þátt í fjölda samsýninga hér á landi sem og erlendis. Sara Vilbergsdóttir myndlistarmaður afhendir forsvarsmanni Samhjálpar, Heiðari Guðnasyni, gjafabréfið, 100 þúsund krónur. Með þeim á myndinni eru Hendrikka Waage, umboðsmaður listamanna, og Hermann Jónasson, forstöðumaður Sérbankaþjónustu Landsbankans. Sara styrkir Samhjálp það oft mjög fyndið, sérstaklega þeg- ar á leið sýninguna og spennan magnaðist. Þó datt leikurinn um of niður á köflum. Leikarahópurinn stóð þó oft ágætlega undir ýktum farsa- og sápuóperustíl og nokkrir leikarar sýndu góða takta í þá átt. Þór Jóhannesson í hlutverki fulltrú- ans skar sig þó frá öðrum því hann hvíldi alltaf mjög vel í margræðu hlutverkinu. Í pínulitlu leikhúsi Vesturports er þrekvirki hjá Stúdentaleikhúsinu að setja á svið svo margbrotið verk með ótal persónum. Raunsæisleg sviðs- myndin er dæmi um þetta, öllu var haganlega fyrir komið og óvæntar lausnir birtust. Þrengslin gerðu þó lýsinguna erfiða og andlitin þess vegna of oft í skugga eins voru skipt- ingar of hægar. Það er þó hjóm eitt hjá þeim krafti sem birtist hér í öllu sínu veldi eins og svo oft áður hjá Stúdentaleikhúsinu og er einkenn- andi fyrir áhugaleiklistina sem blómstrar nú sem aldrei fyrr. Mómó hjá iðnnemum Nýtt leikfélag iðnskólanna í Hafn- arfirði og Reykjavík ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur heldur byrjar feril sinn með hreinni og tærri leikarasýningu. Leikstjór- inn velur heimspekilegt verk fyrir lítt reyndan hópinn sem hann treystir til að leika á stóru, djúpu sviði, án leik- myndar. Notuð er aðferðin hluti fyrir heild; fáir leikmunir, stílfærðir bún- ingar og förðun. Úr verður sýning sem heldur athyglinni frá upphafi til enda með hjálp fyrirtaks tónlistar. Með leikarasýningu er átt við að hópurinn hefur ekki leikmyndina að MORÐÓÐUR, siðblindur rakari í London á nítjándu öld sem myrti við- skiptavini sína og bjó til úr þeim kjöt- bökur handa almenningi er viðfangs- efni Stúdentaleikhússins. Valið á verkinu er góðra gjalda vert því grín- leikrit og -kvikmyndir þar sem blóðið rennur sem mest og víðast hafa verið þó nokkuð vinsæl meðal yngra fólks. Sweeney Todd er verk um mannlega bresti og merkilega vel heppnað grín þar sem það byggist á sönnum og skelfilegum atburðum. Háskólanem- ar sýna okkur hér eins konar „splatt- er“, en svo eru þau verk nefnd sem ýkja og færa í stílinn blóð og aðra lík- amsvessa þannig að útkoman verður fjarska óraunveruleg. Til þess að gera þetta leikrit spennandi þarf að fara út í öfgar með hádramatískan og ofurrómantískan stílinn. Þetta nýtir leikstjórinn Frið- rik Friðriksson sér prýðilega og varð styðjast við. Þegar lagt er upp með sýningu af þessu tagi eru það tengsl leikaranna í hópnum sem skipta mestu máli. Víkingur hefur unnið gott verk með hópnum sem var sem ein manneskja í hópsenum og skipt- ingum en á köflum var þetta næstum eins og dansleikhús. Þegar svo mikil áhersla er lögð á hópinn verður óhjá- kvæmilegt að ekki er hægt að vinna eins mikið með einstaklinga og fram- sögn. Þó sýndu nokkrir leikarar ag- aðan leik en þar fór fremst Guðríður Björk Guðlaugsdóttir í hlutverki Mómóar. Auk þess að hvíla vel í hlut- verkinu á hófstilltum nótum féll útlit hennar einstaklega vel að Mómó, hún var framandi og dularfull. Vigdís Másdóttir var glæsileg sem ólétt kona í hlutverki Meistara Hora og vel til fundið að kvengera meistara tím- ans. Aðrir voru í tiltölulega stórum hlutverkum og stundum fleiri en tveimur og léku meira og minna prýðilega. Skáldsagan Mómó eftir Michael Ende er dásamlegt, heimspekilegt ævintýri með sterkan boðskap til vestrænna manna um að gleyma sér ekki í lífsgæðastressi heldur muna að leika sér við vini sína, segja þeim sög- ur og umfram allt að hlusta. Þennan boðskap tekst Leikfélagi iðnskólanna að færa fram með sýningu sinni en því miður fara þau þá leið að breyta endinum. Þeir sem vilja sjá leikrit með boðskap ættu að drífa sig í Tjarnarbíó til iðnnemanna og skoða sýninguna en lesa svo bókina og dæma sjálfir um hvor endirinn er betri. Hryllingskómedía og leikrit með boðskap LEIKLIST Stúdentaleikhúsið Höfundur: Christopher Bond. Þýðandi: Davíð Þór Jónsson, leikstjóri: Friðrik Frið- riksson, lýsing og leikmyndahönnun: Sig- urður Kaiser, leikmyndasmiður: Þór Jó- hannesson. Frumsýning í Vesturporti, 21. mars, 2003. SWEENEY TODD Hrund Ólafsdóttir Leikfélag Iðnskólanna Leikgerð eftir skáldsögu Michael Ende: Margita Ahlin, Jonas Falk, Ingmar Glanzelius og Eva Person. Þýðandi: Jór- unn Sigurðardóttir. Leikstjóri: Víkingur Kristjánsson. Tónlist/hljóð: Arnór Heiðar Sigurðsson. Ljós: Haraldur og Hjálmar Karl Ragnarsson. Frumsýning í Tjarn- arbíói, 27. mars, 2003. MÓMÓ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.