Morgunblaðið - 12.04.2003, Blaðsíða 21
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2003 21
699kr.
Páskakrýsi
299kr.
Páskaliljur í potti
(ath. keramikpottur fylgir ekki)
990kr.
Sýpris 100-120 sm
Verð áður
2.790 kr.
blómstrandi páskar
299kr.
Blómstrandi
páskagreinar, 2 stk.
99kr.
Ís & málsháttarpáskaegg
(aðeins í Sigtúni og Akureyri)
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
B
LO
2
07
90
04
/2
00
3
SAMRÁÐSNEFND landssam-
banda ASÍ telur fullkomlega óeðli-
legt að á sama tíma og um 6.000
manns eru á atvinnuleysisskrá hér
á landi sé gengið út frá því fyr-
irfram að ekki verði hægt að manna
fyrirhugaðar framkvæmdir við
byggingu Kárahnjúkavirkjunar að
mestu leyti með íslensku vinnuafli.
Samráðsnefnd vegna Virkjunar-
samnings, sem skipuð er fulltrúum
Rafiðnaðarsambands Íslands, Sam-
iðnar og Starfsgreinasambands Ís-
lands, sendi í gær frá sér frétta-
tilkynningu, í tilefni af fréttum í
fjölmiðlum af kynningarfundi
Landsvirkjunar og Impregilo 9.
apríl, sl. Þar segir að vegna fyr-
irhugaðra framkvæmda við bygg-
ingu Kárahnjúkavirkjunar vilji
samráðsnefndin taka eftirfarandi
fram:
„Í fréttum kemur fram að fyr-
irtækið þurfi að flytja inn stóran
hluta starfsmanna og tvær ástæður
gefnar upp fyrir því. Í fyrsta lagi er
gefið til kynna að það þurfi að
flytja inn stóran hóp starfsmanna
vegna sérþekkingar og í öðru lagi
verði ekki hægt að fá nægt vinnuafl
hér á landi. Í þessu sambandi er
rétt að horfa til þess að íslensk fyr-
irtæki hafa verið aðalverktakar við
virkjunarframkvæmdir hér á landi
til marga ára og byggt upp góða
verkþekkingu meðal íslenskra
starfsmanna. Eina sem er frá-
brugðið við Kárahnjúkavirkjun er
tæknin við gangagerð en gert er
ráð fyrir að bora í stað þess að
sprengja.
Önnur ástæðan sem upp er gefin
er að íslenskur vinnumarkaður sé
svo smár að hann beri ekki svo
miklar framkvæmdir sem gert er
ráð fyrir. Nefndin vill benda á að
um 6.000 manns eru á atvinnuleys-
isskrá í dag og því verður að telja
fullkomlega óeðlilegt að gefa sér
fyrirfram að ekki verði hægt að
manna fyrirhugaðar framkvæmdir
að mestu leyti með íslensku vinnu-
afli. Samráðsnefndin bendir á að
sækja þarf um atvinnuleyfi fyrir
starfsmenn utan EES og forsendan
fyrir slíkum leyfum er að öll störf
verði auglýst fyrst á Íslandi. Einnig
vil samráðsnefndin benda á að laun
og önnur ráðningarkjör starfs-
manna fara eftir ákvæðum Virkj-
unarsamningsins sem tekur til allra
framkvæmda á svæðinu. Í því sam-
bandi skiptir þjóðerni starfsmanna
engu máli.
Reykjavík 10. apríl 2003
Rafiðnaðarsamband Íslands
Samiðn
Starfsgreinasamband Íslands.“
Samráðsnefnd landssambanda ASÍ gagnrýnir innflutning vinnuafls vegna Kárahnjúka
Óeðlilegt að reikna ekki
með íslensku vinnuafli
SIGURÐUR Arnalds verkfræðing-
ur, sem sér um almannatengsl vegna
Kárhnjúkavirkjunar fyrir Lands-
virkjun, segir að Landsvirkjun hafi
áætlað að hlutur íslensks vinnuafls
við Kárahnjúkavirkjun yrði mjög
hár. Það séu hins vegar í gildi frjálsir
samningar og frjáls viðskipti. Ítalska
fyrirtækið Impregilo sé á evrópska
efnahagssvæðinu og kjósi að nýta
sitt reynda vinnuafl við það sem sé
sérhæft og vandasamt, sérstaklega
varðandi það að reka hinar þrjár
flóknu borvélar sem notaðar verða.
Impregilo hafi byggt margar virkj-
anir og það sé eðlilegt að fyrirtækið
vilji nýta fastan starfskraft frá ein-
um vinnustað til annars.
Sigurður segir að þrátt fyrir þetta
séu framundan fjölmörg stór verk-
efni. Engin ástæða sé því til að óttast
áhrif þess að margir útlendingar
vinni við Kárahnjúkavirkjun. Frá-
leitt sé að halda því fram að þeir Ís-
lendingar sem geta lyft hendi fái
ekki vinnu á þeim uppgangstíma
sem sé framundan. Þá segir Sigurð-
ur að öllum reglum um atvinnuleyfi
fyrir hið erlenda vinnuafl verði að
sjálfsögðu fylgt.
Að sögn Sigurðar bauð Impregilo í
þetta verk á ákveðnu verði en náði
ekki samningum til að mynda við Ís-
lenska aðalverktaka og Ístak um
undirverktöku. Það hafi hins vegar
tekist við Arnarfell á Akureyri, sem
muni útvega Íslendinga til verksins.
Í öðru lagi ætli Impregilo að ráða ís-
lenskt starfsfólk í margvísleg störf,
en þær ráðningar séu ekki hafnar.
Ljóst sé hins vegar að hlutfall út-
lendinga í þeim hluta verksins sem
nú er að hefjast vinna við, sem er um
helmingur heildarverksins, verði
hærra en Landsvirkjun gerði ráð
fyrir í upphafi.
Sigurður Arnalds
hjá Landsvirkjun
Eðlilegt að
Impregilo
nýti fastan
starfskraft
♦ ♦ ♦
RÁÐHERRANEFND um einka-
væðingu hefur ákveðið að gengið
verði til viðræðna við Framtak fjár-
festingarbanka hf., BM Vallá ehf.,
Björgun ehf. og Steypustöðina ehf.
um kaup á Sementsverksmiðjunni hf.
Í fréttatilkynningu frá Fram-
kvæmdanefnd um einkavæðingu
segir að ákvörðunin byggist á tillögu
framkvæmdanefndar um einkavæð-
ingu og mati MP Verðbréfa hf. á
þeim fimm tilboðum sem bárust í
verksmiðjuna þann 28. mars. Ráð-
gert er að viðræður hefjist nú þegar.
Sala Sements-
verksmiðjunnar
Viðræður
hefjast við
fjóra aðila