Morgunblaðið - 12.04.2003, Blaðsíða 36
NEYTENDUR
36 LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MEÐALVERÐ á papriku hefur
hækkað um 10–28% frá 11. mars,
samkvæmt nýjustu verðkönnun
Samkeppnisstofnunar á ávöxtum og
grænmeti. Meðalverð á kílói af
rauðri papriku, sem hefur hækkað
mest, var 265 krónur 11. mars en 338
krónur 8. apríl síðastliðinn.
Meðalverð á kílói af rauðri papriku
8. apríl í fyrra var 403 krónur, sam-
kvæmt eldri verðkönnun stofnunar-
innar og hafði þá lækkað um 8% frá
því í febrúar sama ár.
„Samkeppnisstofnun hefur í rúmt
ár gert mánaðarlegar verðkannanir
á grænmeti og ávöxtum til þess að
fylgjast með verðþróun á þessum
vörum.
Fyrsta verðkönnunin var gerð í
febrúar 2002 fyrir afnám tolla á
grænmeti og náði til 11 matvöru-
verslana á höfuðborgarsvæðinu.
Meðalverð úr þeirri könnun hefur
verið haft til viðmiðunar þegar
verðþróun á þessum markaði hefur
verið metin. Í febrúar síðastliðnum
birti stofnunin niðurstöður sem
sýndu meðal annars að afnám tolla
hefði leitt til verulegrar verðlækkun-
ar og aukinnar samkeppni á græn-
metismarkaði jafnframt því að örva
samkeppni á ávaxtamarkaði,“ segir í
niðurstöðum Samkeppnisstofnunar.
Í töflunni er birt meðalverð á
nokkrum tegundum af ávöxtum og
grænmeti eins og það var hinn 8.
apríl síðastliðinn og borið saman við
meðalverð í verslunum 11. mars síð-
astliðinn. Einnig er meðalverð í febr-
úar 2002 haft til hliðsjónar í töflunni
sem birt er á heimasíðu Samkeppn-
isstofnunar (www.samkeppni.is).
Rétt er að taka fram að verð á
grænmeti og ávöxtum er sveiflu-
kennt og ræðst meðal annars af verði
á erlendum mörkuðum, uppskeru og
árstíma.
Eins og sjá má í töflu er meðalverð
á grænmeti og ávöxtum í flestum til-
vikum mun lægra nú en það var í
febrúar 2002, en svipað og það var í
síðasta mánuði.
Lækkanir hafa orðið á meðalverði
í einhverjum tilvikum. Meðalverð á
bláberjum hefur til að mynda lækkað
um 5% og á bláum, grænum og rauð-
um vínberjum um 5–7%. Meðalverð
á mangói hefur líka lækkað um 4%
og um 2–3% á eplum.
Árstíðabundnar sveiflur
Meðalverð hefur hækkað milli
mánaða á fleiri tegundum en papr-
iku. Innfluttar agúrkur hafa til að
mynda hækkað um 8% og íslenskir
tómatar um 4%. Hvítlaukur hefur
hækkað um 10%, bökunarkartöflur
um 12% og perlulaukur og blaðlauk-
ur um 26% og 38%, svo fleiri dæmi
séu tekin.
Eiður Jóhannsson rekstrarstjóri
Ávaxtahússins segir ástæðu fyrir
verðhækkun á papriku þá, að hol-
lensk paprika hafi verið að koma á
markað í stað spænskrar papriku
sem verið hafi á boðstólum um skeið.
Eiður segir verð oft breytast þegar
viðskipti færist milli tegunda og
ræktunarsvæða og „þá rjúki verðið
oft upp“, eins og tekið er til orða.
Segir hann að í mörgum tilfellum
hafi verslanir jafnað þessar verð-
sveiflur út og sjálfar tekið á sig
hækkanir.
Íslensk paprika er ekki á markaði
á þessum árstíma og jafnframt er lít-
ið til af íslenskum tómötum, segir
Eiður ennfremur.
Eggert Gíslason framkvæmda-
stjóri Mötu ehf. tekur undir með
rekstrarstjóra Ávaxtahússins og
segir að þegar viðskipti færist á milli
svæða sé framboð ekki nóg til þess
að anna eftirspurn til þess að byrja
með, sem ýti undir hækkanir. Segir
hann verð á íssalati til að mynda hafa
hækkað mikið á erlendum mörkuð-
um að undanförnu. „Þessar sveiflur
jafna sig síðan út á einhverjum vik-
um,“ segir hann.
Bjarni Finnsson forstöðumaður
ávaxta og grænmetis hjá BÚR segir
nauðsynlegt að bera saman verð í
sömu vikum og sömu mánuðum milli
ára til þess að leggja mat á sveiflur.
Einnig þurfi að taka veðurfar inn í
myndina. Kuldakast á Spáni hafi til
að mynda hækkað verð á íssalati til
muna að undanförnu. Bjarni segir
áhrifa vegna páska einnig gæta í
verði erlendis þegar eftirspurn vaxi
20–30% í sumum vöruflokkum.
Telur hann samkeppni enn mjög
öfluga í ávöxtum og grænmeti milli
verslana hérlendis.
Meðalverð hækkar á nokkr-
um tegundum grænmetis
!"!"#
$
% ! "$!
&
'& %
%$ $"!
&
&))* + $
,) $
,) -#
#
,)
$"
.
)*
$
.
)* /* $ *
0+/+
1
+ $
1
%
1* % $ /
* %
1* %
$
+% $
-
"
2*
3 2*
+ 2* !
+ 2*
$"
+ 2* 2
&4 $ + *
&4 $ $
5%
+ *
5%
$
&/#6
#
3 %
.$ %$
.$ !$ $
7/+
7/+
$ $
82*
39 $
9 $
0
9 $ $
$
0
9 $ $
$
0
9 $
$"
0
9 $
$"
0+
:
2
:
$ $ /* $ *$
;
)
!
;
)
$
;
)
$"
;
)
#
*
;* $
$ $
3
"
$ $
<
$"
$ $
$ $
* *+
#$
$ $
* *
/*))
#
$ $
7. .
"
7. &
2
* =$
9
( )
!"!
&
>
>
>
>
>>
>
!"&
'&
45.
-13
-2/
--2
-60
-40
-0.
015
00.
0/-
-43
-34
-16
.26
0 333
4.0
15-
4.0
0/5
044
3/.
-62
4.4
065
-01
0.2
-16
/-
0//
-.6
-22
01-
-3.
012
002
05.
24
0.3
434
446
4/0
2.0
04.
.1
031
0-2
261
-26
226
- 534
062
062
4-1
!
*$ "!
'&
+$ "!
'&
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#.
#.
#.
#.
#.
#.
#.
#.
#.
#.
#.
#.
#.
#.
#.
#.
#.
#.
#.
#.
#.
#.
#.
#.
#.
#.
#.
.
#.
#.
#.
#.
#.
#.
#.
*(
#.
#.
#.
#.
#.
#.
#.
#.
#.
#.
#.
*#
#.
#.
.
.
.
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
VERSLANIR 10–11 verða opnar til
miðnættis á skírdag og laugardag-
inn 20. apríl, samkvæmt tilkynningu
frá versluninni. Þrjár sólarhring-
sverslanir 10–11 verða opnar frá
miðnætti á föstudaginn langa og
páskadag.
Hæsta verð 6 sinnum hjá 11–11
Í verðkönnun Morgunblaðsins á
páskaeggjum sem birt var í blaðinu
síðastliðinn fimmtudag misfórst
merking á hæsta verði á Strumpa-
eggi númer 4 í verslunum 11–11.
Hæsta verð á fyrrgreindu eggi í
könnuninni var 1.429 krónur og var
aðeins merkt sem slíkt hjá 10–11.
Eggið kostaði líka 1.429 krónur hjá
11–11 og hæsta verð því líka í þeirri
verslun, sem fyrr segir. Fyrir vikið
var hæsta verð í sex tilvikum hjá
11–11, ekki fimm sinnum.
Opið lengur hjá 10–11
Glitnir kemur flér í samband vi› rétta bílinn
Kirk jusand i 155 Reyk javík g l i tn i r . i s s ími 440 4400 G l i tn i r er h lut i a f Í s landsbanka
G l i t n i r e r h l u t i a f Í s l a n d s b a n k a K i r k j u s a n d i 1 5 5 R e y k j a v í k g l i t n i r . i s s í m i 4 4 0 4 4 0 0