Morgunblaðið - 12.04.2003, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 12.04.2003, Blaðsíða 30
AKUREYRI 30 LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ Ný sending  Kápur  Jakkar  Hörfatnaður  Bolir  Jakkapeysur  Buxur  Samkvæmisfatnaður Krónunni, 2. hæð, sími 462 3505, Hafnarstræti 97, 600 Akureyri. Opið í dag frá kl. 10-16 Til sölu er hluti úr jörðinn Jarðbrú í Svarfaðardal ásamt íbúð í tvíbýlishúsi, kjallari og hæð, byggt 1936 og 1955, alls 240 fm, hesthúsi, 223 fm hlöðu, 765 fm og geymslu 28 fm. Landið sem fylgir er um 9 ha að stærð og að hluta ræktað. Jörðin er í 6 km fjarlægð frá Dalvík og aðeins 1 km í Húsabakkaskóla. Þá eru aðeins 2 km. í 9 holu golfvöll. Nánari upplýsingar eru veittar hjá eiganda, Þorsteini á Jarðbrú í símum 466 1618 og 867 5678 og Búnaðarsambandi Eyjafjarðar, Óseyri 2, 603 Akureyri á skrifstofutíma í síma 460 4477 og þangað skulu tilboð í eignina berast fyrir 26. apríl 2003. Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. JÖRÐ TIL SÖLU hækkað sig á lista yfir samkeppnis- hæfni þjóða, er nú í 12. sæti af 80 og það sé einkum að þakka traustri efna- hagsstjórn og góðum starfsskilyrð- um. Helstu styrkleikar landsins eru á sviði upplýsinga- og samskiptatækni, góðar opinberar stofnanir, tæknimál og lítið skrifræði en á meðal veikleika landsins nefndi hún að staða fyrir- tækjaklasa væri ekki sterk, vinnu- markaður væri miðstýrður, fá einka- leyfi og mikill vaxtamunur. Í máli Valgerðar Sverrisdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, kom m.a. fram að víða erlendis hefði um- fjöllun um byggðamál breyst og um- fjöllun um atvinnumál færst frá um- ræðu um einstakar atvinnugreinar til umfjöllunar um einstök svæði og SAMKEPPNISHÆFNI svæða og fyrirtækja var rædd á ráðstefnu á Akureyri í gær, en ráðstefnan byggð- ist á stefnumörkun og áherslum iðn- aðar- og viðskiptaráðherra, Valgerð- ar Sverrisdóttur, á sviði byggðamála og samkeppnishæfni sem m.a. kemur fram í nýlegri byggðaáætlun. Unnið hefur verið að ýmsum verk- efnum er miða að því að efla byggða- kjarna á Eyjafjarðarsvæðinu á veg- um verkefnisstjórnar sem sem ráðherra skipaði í kjölfar samþykkt- ar byggðaáætlunar. Á ráðstefnunni kom fram bæði hjá fulltrúum OECD og World Economic Forum, þeim Alejandro Aurrecoech- ea og Fionna J.M. Paua að umfjöllun um efnahags- og atvinnumál er í meira mæli að þróast frá því að vera umfjöllun um einstakar atvinnu- greinar á landsvísu yfir í umfjöllun um einstök svæði. Slíkt geri auknar kröfur til íbúa svæðanna, en einstök svæði keppi nú í auknum mæli hvert við annað um hylli fólksins. Sérstak- lega var fjallað um svonefnt LEED- verkefni innan OECD á sviði byggða- mála, en Háskólinn í Reykjavík er að- ili að verkefninu. Verkefnið snýr sérstaklega að uppbyggingu og sam- starfi ýmissa aðila á kjarnasvæðum. Nefnd voru á ráðstefnunni nokkur dæmi um það sem vel hefði tekist til varðandi kjarnasvæði og árangur þeirra, m.a. Kísildalinn í Bandaríkj- unum og svipuð dæmi eru til um góð- an árangur einstakra svæða í Evr- ópu. Fram kom í máli Fionnu Paua að Ísland hefði á undanförnum árum byggðakjarna. „Þetta gefur sterka vísbendingu um að byggðamál eru ekki eitthvað sem er „gamaldags“ heldur er starf á þessu sviði mikil- vægur hlekkur í samræmdri og skil- virkri umfjöllun um efnahags- og skipulagsmál og hagþróun einstakra svæða og landa. Alþjóðavæðing og samstarf óháð landamærum skiptir sífellt meira máli,“ sagði Valgerður. Nefndi hún nokkur dæmi sem unnið hefði verið að til að auka samkeppn- ishæfni atvinnulífsins og auðvelda að- lögun þess að þróun og kröfum al- þjóðavæðingar og mætti sjá árangurinn m.a. í aukinni erlendri fjárfestingu hér á landi í ýmsum greinum og útrás íslenskra fyrir- tækja. Ráðstefna um samkeppnishæfni svæða og fyrirtækja Svæði keppa í auknum mæli hvert við annað Morgunblaðið/Kristján Fjölmenni var á ráðstefnu um samkeppnishæfni svæða og fyrirtækja. TVEIR menn voru stöðvaðir í vikunni vegna gruns um fíkniefnamisferli. Við rann- sókn málsins fundust fimm grömm af hassi og sex grömm af ætluðu amfetamíni heima hjá öðrum þeirra. Við- urkenndi hann að eiga efnin og að hafa selt fíkniefni und- anfarið auk þess að neyta slíkra efna sjálfur. Að öðru leyti var vikan ró- leg hjá lögreglu á Akureyri og lítið um óhöpp, eða alls fimm og öll slysalaus og eignatjón í lágmarki. Helst er nefnt í dagbók lögreglu að ökumenn eigi erfitt með hraðastillinn í góða veðrinu, en sjö ökumenn voru staðnir að of hröðum akstri í vikunni. Fundu hass og ætlað amfetamín RÚMLEGA 20 nemendur í iðn- og verknámsskólum víðs vegar um landið tóku þátt í smíðakeppni í tréiðngreinum og í keppni í málm- suðu, sem fram fór á vegum Iðn- menntar í Verkmenntaskólanum á Akureyri fyrir helgina. Davíð Þór Jónsson frá Iðnskólanum í Reykja- vík stóð sig best í málmsuðu- keppninni og Hjálmar Jónsson frá Fjölbrautaskóla Suðurlands í smíðakeppninni. Aðeins ein stúlka tók þátt, Anna Katrín Svavardóttir frá Verk- menntaskóla Austurlands, en hún keppti í smíðum. Í smíðakeppnina mættu 10 nemendur frá jafn- mörgum skólum til leiks en í málmsuðukeppninni voru kepp- endur 12 talsins, frá sex skólum. Auk þess að sigra í samanlagðri keppni, sigraði Davíð Þór í log- suðu, hann varð í öðru sæti í hlífðargassuðu og í þriðja sæti í pinnasuðu. Andri Þór Kristinsson frá Borgarholtsskóla sigraði í pinnasuðu og Vigfús Þráinn Bjarnason frá Iðnskólanum í Hafn- arfirði sigraði í hlífðargassuðu. Í öðru sæti í smíðakeppninni varð Guðni Sigurbjörn Sigurðsson frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja og í þriðja sæti varð Guðmundur K. Gunnarsson frá Fjölbrautaskól- anum í Breiðholti. Tómas Ingi Olrich mennta- málaráðherra afhenti verðlaun í lok keppninnar. Smíða- og málmsuðukeppni verknámsnemenda víðsvegar af landinu Morgunblaðið/Kristján Þátttakendur í málmsuðukeppninni voru ein- beittir á svip er þeir munduðu logsuðutækin. Anna Katrín Svavarsdóttir frá Verkmenntaskóla Austurlands var eina stúlkan í keppninni. Þrír efstu nemendurnir í smíðakeppninni, f.v. sigurvegarinn Hjálmar Jónsson, Fjölbrautaskóla Suðurlands, Guðni Sig- urbjörn Sigurðsson, Fjölbrautaskóla Suðurnesja, og Guð- mundur K. Gunnarsson, Fjölbrautaskólanum Breiðholti. Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra afhendir Davíð Þór Jónssyni frá Iðnskólanum í Reykjavík sigurlaunin. Davíð Þór og Hjálmar stóðu sig best FJÖGUR verktakafyrirtæki sendu inn tilboð í gatnafram- kvæmdir á Akureyri, annars vegar í endurbyggingu Geislagötu og hins vegar í framkvæmdir í Bjarkarlundi og Grenilundi. Í hvoru tilfelli var aðeins eitt tilboðanna undir kostnaðaráætlun. Skila- dagur þessara verka er 31. maí nk. G.V. Gröfur ehf. áttu lægsta tilboð í endurbyggingu Geislagötu, rúmar 6,8 millj- ónir króna, eða um 94% af kostnaðaráætlun. Hafnar- verktakar ehf. áttu hæsta til- boðið, tæpar 13 milljónir króna, eða 178% af kostnað- aráætlun, sem hljóðaði upp á rúmar 7,2 milljónir króna. G. Hjálmarsson ehf. átti lægsta tilboð í framkvæmdir í Bjarkarlundi og Grenilundi, um 20,8 milljónir króna, eða um 91% af kostnaðaráætlun. G.V. Gröfur áttu hæsta tilboð í verkið, 25,6 milljónir króna, eða um 112% af kostnaðar- áætlun, sem hljóðaði upp á 22,7 milljónir króna. Gatnafram- kvæmdir að fara í gang Reynir Katrínar myndlistarmaður opnar sýningu á verkum sínum í versluninni Aldadín, Brekkugötu 3b á Akureyri í dag, laugardaginn 12. apríl kl. 13. Á sýningunni eru á milli 40 og 50 verk, olíumálverk og vatnslitamyndir unnar á árunum 2001 til 2003. Reynir hefur áður haldið 34 einkasýningar, m.a. í Noregi þar sem hann bjó og starf- aði sem myndlistarmaður í 7 ár, Frakklandi og Reykjavík svo dæmi séu tekin, en þetta er fyrsta sýning hans á Akureyri. Sýningin stendur fram yfir miðjan maí og er opin á sama tíma og verslunin, eða frá kl. 11 til 18 virka daga og á laug- ardögum. Undirbúningsfundur að stofnun Stangveiðifélags Akureyrar verð- ur haldinn í dag, laugardaginn 12. apríl, kl. 15 á Hótel KEA. Tilgang- urinn með stofnun félagsins er að efla samkennd meðal veiðimanna á Akureyri, fá þá til að sameina krafta sína í einu stóru félagi, stuðla að auknu félagsstarfi meðal veiðimanna, bæta umgengni við náttúruna, efla unglingastarf og horfa til þess að taka á leigu veiði- svæði í náinni framtíð að því er fram kemur í frétt um stofnun fé- lagsins. Í DAG SMS FRÉTTIR mbl.is Fermingarhárskraut Skarthúsið, s. 562 2466, Laugavegi 12
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.