Morgunblaðið - 12.04.2003, Blaðsíða 34
HEILSA
34 LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
A
LÞJÓÐAHEILBRIGÐISDAGURINN var
7. apríl síðastliðinn og var hann helgaður
heilbrigði barna með það að markmiði að
tryggja þeim heilbrigt umhverfi, en á
hverju ári látast um fimm milljónir barna
0–14 ára, aðallega í þriðja heiminum.
Hér á landi eru lífslíkur frá getnaði til fæðingar
með því sem best gerist í heiminum. En þegar í heim-
inn er komið eru slys á börnum hérlendis algeng og mun algengari ef
miðað er við hinar Norðurlandaþjóðinar. Talið er að um 20.000 börn og
unglingar slasist árlega hér á landi og eru heima- og frítímaslys lang-
stærsti slysaflokkurinn. Á eftir koma skólaslysin í yngri aldurshópunum
og íþróttaslysin fara síðan að síga fram úr þeim fjölda upp úr 10 ára aldri
og umferðarslysum fer síðan hratt fjölgandi frá 15 ára aldri (sjá mynd).
Mjög margt er hægt að gera til að fyrirbyggja þessi slys, en svo virðist
sem foreldrar komist langt á þeirri hugsun að ekkert komi fyrir hjá þeim
og einhvern veginn virðast íslenskir foreldrar treysta börnum sínum mun
betur til að passa sig sjálf en foreldrar í nágrannalöndunum.
Hvað er til ráða?
Í tengslum við heimilið, þar sem slysin eru flest, þarf að horfa gagn-
rýnum augum á umhverfið og gera það „barnvænna“ þannig að börnin
geti leikið sér án þess að það hafi slysahættu í för með sér. Þeim þarf að
setja skýrar línur um hvað er leyfilegt og hvað ekki og standa alltaf við
þær. Margar öryggisvörur eru til sem hægt er að nota til að fyrirbyggja
slysin, eins og hlið á stigaop, hlífar á borðshorn, festingar fyrir bönd á
rimlagardínum, hlífar á eldavélar, takka þeirra og ofna og svo mætti lengi
telja.
Varðandi skóla- og íþróttaslys geta foreldrar unnið að slysaforvörnum
með því að gera athugasemdir við það sem þeim finnst vera ábótavant í
umhverfi barnanna, t.d. við leiktæki, íþróttaaðstöðu eins og laus mörk o.fl.
Í umferðinni þurfa foreldrar að vera til fyrirmyndar og gæta þess að
börnin noti réttan öryggisbúnað, sama hvort um er að ræða hjól, línu-
skauta, hjólabretti, hlaupahjól eða bíl.
Munum gamla góða málsháttinn sem stendur alltaf fyrir sínu: „Seint er
að byrgja brunninn, þá barnið er dottið ofan í“.
Sigrún A. Þorsteinsdóttir.
Slysavarnafélagið Landsbjörg.
Frá Landlæknisembættinu.
Heilsan í brennidepli
Slys á börnum
Slys á börnum
eru algengari
hérlendis en
hjá hinum
Norðurlanda-
þjóðunum
…til a› fullkomna
augnabliki›
TÍMI TIL A‹ FERMAST
FERMINGARTILBO‹
kringlan
sími 588 7230
w w w . l e o n a r d . i s
ver› kr.9.400 ver› kr.4.950
ver› kr.4.750
ver› á›ur kr.9.500
ver› kr.7.250
ver› kr. 7.800 ver› kr. 7.800 ver› kr. 5.300
ver› á›ur kr.14.500
ver› á›ur kr.9.900ver› á›ur kr.18.800
UNNT er að hægja á þróun blöðru-
hálskirtilskrabbameins með heil-
brigðum lífsstíl sem felst m.a. í því að
viðhalda réttri líkamsþyngd, hreyfa
sig reglulega, og fara reglulega í
skimun á blöðruhálskirtli. Þetta eru
niðurstöður bandarískra vísinda-
manna við háskólann í Texas sem á
sex ára tímabili rannsökuðu sjúk-
linga með krabbamein í blöðruháls-
kirtli. Rannsóknin var kynnt nýlega
á vefsíðunni health-news.co.uk.
Rannsóknin leiddi í ljós að meiri
líkur eru á að krabbamein í blöðru-
hálskirtli þróist hraðar hjá sjúkling-
um sem eru of þungir, hreyfa sig
sjaldnar en tvisvar í viku og fara ekki
í árlega skimun á blöðruhálskirtli. Á
hinn bóginn er þróunin mun hægari
hjá þeim sem halda þyngdinni í
skefjum, stunda reglulega líkamsæf-
ingar og fara reglulega í skimun.
„Niðurstöður okkar eru jákvæð
vísbending um hvernig hugsanlega
megi halda krabbameini í blöðru-
hálskirti í skefjum,“ segir dr. Mfon
Cyrus-David, prófessor í faraldurs-
fræðum við háskólann í Texas.
Rannsóknin er með þeim fyrstu
þar sem leitast er við að mæla áhrif
lífsstíls á krabbamein í blöðruháls-
kirtli hjá þeim sjúklingum sem hafa
fengið meðferð.
Morgunblaðið/Kristinn
Áhrif lífsstíls á
krabbamein í
blöðruhálskirtli
ER NEFIÐ STÍFLAÐ?
Fæst í apótekum
og lyfjaverslunum
STERIMAR
Skemmir ekki slímhimnu
er náttúrulegur
nefúði sem losar stíflur
og léttir öndun.
Fyrir 0-99 ára.
Klapparstíg 44
Sími 562 3614
Verð 450 kr. og 795 kr.
5 stærðir
Páskaeggjamót