Morgunblaðið - 12.04.2003, Page 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2003 9
Sportlegir jakkar og buxur
Litir: hvítt, svart og sand
stærðir 36—56
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—16
Í páskafríið
Gallafatnaður, bolir
og peysur
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00.
RAÐGREIÐSLUR
Frábært úrval
Gott verð
10% afsláttur m.v. staðgreiðslu
Sími 861 4883
á handhnýttum, austurlenskum gæðateppum
á Grand Hóteli, Sigtúni, Reykjavík
Sölusýning
í dag, laugardag 12. apríl, kl. 12-19 og
á morgun, sunnudag 13. apríl, kl. 13-19
skart og perlur
skólavörðustíg 12
á horni bergstaðastrætis
sími 561 4500
Handsmíðaðar
fermingargjafir
Hör - hör - hör
Buxur, pils, jakkar
Fyrir flottustu fljóðin
Bæjarlind 12,
Kópavogi, sími 544 2222
Opið: mán.-fim. frá kl. 10-18.30
fös. frá kl. 10-19.30 - lau. frá kl. 10-16.30
Hágæða undirföt fyrir
dömur á öllum aldri
Hafnarstræti 97 • Akureyri • sími 461 1209 • Póstsendum
Ný sending
af drögtum, margir litir
Toppar 20%
Gallabuxur 15%
Páskaleikur í gangi
Augustsilk
Augustsilk
Opið í dag frá kl. 13 -17 í Síðumúla 35 – 3. hæð
Útsala – Útsala
Silkipeysur frá kr. 1.900
Mikið úrval í „small“
Silkináttfatnaður frá kr. 1.900
Flottir dúkar og pashminur
Engin kort
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið í dag kl. 10-14
Blússur á ungu stúlkuna
Svartar og hvítar
stúdentadragtir
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
EFSTI maður á framboðslista
Frjálslynda flokksins í Suðvestur-
kjördæmi, Gunnar Örn Örlygsson,
fékk á síðasta ári sex mánaða dóm,
þar af þrjá mánuði skilorðsbundna,
fyrir bókhaldsbrot, brot á lögum
um umgengni um nytjastofna sjáv-
ar og stjórn fiskveiða. Guðjón Arn-
ar Kristjánsson, formaður flokks-
ins, segir að forystumönnum
flokksins hafi verið vel kunnugt um
þennan dóm, en telji Gunnar hæfan
frambjóðanda.
Dæmdur fyrir að hafa keypt
þorsk af ýmsum sjómönnum
Gunnar var dæmdur í Héraðs-
dómi Reykjaness í júlí í fyrra fyrir
að hafa frá febrúar til nóvember
1999 keypt af ýmsum sjómönnum
flakaðan og óflakaðan þorsk sem
svarar til 324,4 tonna af þorski úr
sjó sem hann flutti frá borði og kom
undan vigtun við löndun í íslenskum
höfnum. Gunnar lét vinna aflann og
flutti úr landi fyrir samtals rúmar
44 milljónir króna. Gunnar er einnig
sakaður um að hafa í 28 skipti til-
greint ranglega fiskitegundir, sam-
tals 25 tonn af keilu sem hann til-
greindi sem steinbít í útflutnings-
skýrslum. Þá var hann fundinn
sekur um brot á bókhaldslögum þar
sem hann hefði ekki varðveitt bók-
haldsgögn eða fært bókhald fyrir
fyrirtæki sitt. Gunnar var dæmdur í
sex mánaða fangelsi, þar af þrjá
mánuði óskilorðsbundna í þrjú ár
haldi hann almennt skilorð. Hann
var jafnframt dæmdur í tveggja
milljóna króna sekt og til að greiða
allan sakarkostnað.
Í dómnum segir að við ákvörðun
refsingar verði að hafa í huga að
rannsókn á málinu hafi hafist eftir
að Gunnar greindi frá broti sínu í
fjölmiðlum.
Hæfur frambjóðandi
Guðjón Arnar Kristjánsson, for-
maður Frjálslynda flokksins, og
Margrét Sverrisdóttir, fram-
kvæmdastjóri flokksins, segja að
forystu flokksins hafi verið full-
kunnugt um þennan dóm þegar
framboðslistinn var ákveðinn.
Kannað hafi verið hvort Gunnar
væri kjörgengur og í ljós hafi komið
að svo væri.
Margrét sagðist telja Gunnar
mjög hæfan frambjóðanda þrátt
fyrir að hann hafi fengið þennan
dóm. Gunnar væri eins og fleiri
mjög ósáttur við lögin um stjórn
fiskveiða og vildi ná fram breyt-
ingum á þeim. Hún tók fram að þótt
Frjálslyndi flokkurinn væri á móti
kvótakerfinu mælti hann ekki með
því að menn brytu lögin.
Ef Gunnar nær kjöri á Alþingi
þarf hann væntanlega að hverfa af
þingi meðan hann tekur út dóminn.
Varamaður hans mun þá taka hans
sæti. Guðjón Arnar sagði að Gunnar
myndi væntanlega taka út sinn dóm
í samfélagsþjónustu. Hann minnti á
að Gunnar væri ekki eini frambjóð-
andinn sem hefði fengið dóm og
benti á dóm sem sjávarútvegsráð-
herra fékk nýlega í héraðsdómi.
Dæmi væru einnig um að sitjandi
þingmenn hefðu fengið á sig fang-
elsisdóma.
Frambjóðandi fékk
þriggja mánaða dóm