Morgunblaðið - 12.04.2003, Side 20

Morgunblaðið - 12.04.2003, Side 20
FYRIRTÆKIN Icedan og Ísfell- Netasalan hafa verið sameinuð formlega í alhliða þjónustufyrirtæki í sjávarútveginum, Ísfell ehf. Höf- uðstöðvar Ísfells eru á Fiskislóð í Reykjavík, útibú er í Hafnarfirði og dótturfyrirtæki í St. Johns í Kan- ada. Ísfell rekur fjórar framleiðsluein- ingar veiðarfæra undir nafninu Ís- net á landsbyggðinni, þ.e. í Hafn- arfirði, Þorlákshöfn, á Sauðárkróki og Akureyri og er auk þess meðeig- andi í Netagerðinni Höfða á Húsa- vík. Starfsmenn Ísfells og Ísnets eru alls 65 talsins og heildarvelta hérlendis er áætluð 1,5 milljarðar króna. Hólmsteinn Björnsson er framkvæmdastjóri heildsölustarf- semi fyrirtækisins en Ólafur Stein- arsson er framkvæmdastjóri fram- leiðslustarfseminnar. „Starfsemi Ísfells er vafalaust sú umfangsmesta á sínum sviðum hér- lendis og tekur til framleiðslu veið- arfæra, vörusölu og þjónustu, allt frá handfærum upp í stærstu flot- troll sem þekkjast. Fyrirtækið er m.a. í nánu samstarfi við Selstad AS í Noregi og Rofia í Þýskalandi um þróun, sölu og þjónustu veið- arfæra, einkum togveiðarfæra. Ís- fell, Icedan Ltd Kanada, Selstad og Rofia mynda þannig þéttriðið þjón- ustunet á Norður-Atlantshafi. Sölustarfsemi Ísfells skiptist í togveiðisvið, netaveiðisvið, króka- veiðisvið, iðnaðar- og rekstrar- vörusvið og björgunarvörusvið,“ segir í frétt frá Ísfelli. Ný stjórn hefur verið kjörin fyrir Ísfell ehf. Hana skipa Pétur Björns- son, formaður, Hans Petter Selstad, varaformaður, Daníel Þórarinsson, Baldur Guðnason og Pétur Reim- arsson. Veiðarfærafyrir- tæki sameinast VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 20 LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ Ný Puma ilmvötn fyrir stelpur og stráka NETABÁTURINN Sjöfn EA 142 kom til hafnar á Húsavík á dögunum og landaði þar afla sínum sem síðan var sendur á fiskmarkað. Það ætti svo sem ekki að vera í frásögu fær- andi, en þó. Svokallaðir vertíðar- bátar af stærri gerðinni sem róa með þorskanet á vetrarvertíð eru nefnilega að verða harla fáséðir á Húsavík. Þeir bátar sem róa með þorskanet frá Húsavík eru allir af minni gerðinni, sá stærsti á þessari vertíð er 29 brúttórúmlestir. Það er úgerðarfyrirtækið Hlaðir ehf. á Grenivík sem á og gerir Sjöfn- ina út, báturinn hefur verið á vertíð í Breiðafirði í vetur eins og undan- farin ár og fiskað allvel. Sjöfnin er 254 brúttórúmlestir að stærð, smíð- uð í Boizenburg í Austur-Þýskalandi fyrir Þorbjörn hf. í Grindavík. Bát- urinn hét lengst af Hrafn Svein- bjarnarson GK 255 og síðar Sig- urður Þorleifsson GK 256 á meðan hann var í eigu Þorbjarnarins. Frið- þjófur hf. á Eskifirði keypti síðan bátinn og nefndi hann Sæljón SU 104 og Sjafnar nafnið fékk hann þegar hann komst í eigu Grenvík- inga. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Stærri netabátar fáséðir Húsavík. Morgunblaðið. SJÓMENNT, fræðslusjóður sjó- manna, vinnur nú að undirbúningi fræðslunámskeiða fyrir undirmenn á fiskiskipum. Sjómennt er ætlað að treysta stöðu sjómanna á vinnu- markaði með því að gefa þeim kost á að efla og endurnýja þekkingu sína og gera þá hæfari til að takast á við ný og breytt verkefni. Að Sjómennt standa Landssamband íslenskra út- vegsmanna, Samtök atvinnulífsins og Sjómannasamband Íslands. Skipuð hefur verið sérstök verk- efnisstjórn til að greina þarfir og undirbúa fræðslu fyrir undirmenn á fiskiskipum. Helgi Kristjánsson, verkefnissjóri, segir að þegar sé haf- in undirbúningur að náminu, þar sem lögð verði áhersla á að auka þekkingu undirmanna á siglingu skips, veiðarfærum, öryggismálum, meðferð afla og almennt það sem varðar líf og heilsu sjómanna. Helgi segir markmiðið með starfs- menntuninni fyrst og fremst að gera sjómenn ánægðari og betri starfs- menn en ekki síður að vekja áhuga þeirra á frekara námi. Starfsmennt- unin verður að öllum líkindum í formi námskeiða og geta sjómenn sótt um styrki til Sjómenntar vilji þeir sækja námskeiðin. Helgi segir að væntanlega verði fræðslan undir umsjón Sjómannaskólans í Reykja- vík, sem menn sjái fyrir sér í fram- tíðinni sem fræðslu- og menntasetur íslensks sjávarútvegs. Þar verði und- ir sama þaki vél og skipstjórnar- menntun en vonandi einnig menntun til handa undirmönnum á fiskiskip- um. „Það er til mikið af fræðsluefni fyrir slíka menntun, meðal annars hjá Rannsóknastofnun fiskiðnaðar- ins varðandi meðferð og frágang afla.. Eins hafa framhaldsskólarnir kennt sitthvað varðandi veiðarfæri og veiðarfæragerð. Markmiðið er hinsvegar að koma þessari fræðslu í fastari skorður og gera hana mark- vissari,“ segir Helgi. Starfsfræðsla fyrir undirmenn NORSKU bræðurnir Torleif J. Hellesöy og Öysten Hellesöy hafa verið sýknaðir af ákærum um ólög- lega meðferð á ríkisstyrk að upp- hæð um 140 milljónir íslenzkra króna. Saga málsins er sú, að skipa- smíðastöð þeirra bræðra, Th. Hellesöy Skipsbyggeri, skrifaði undir smíðasamning á skipi fyrir Samherja. Skipasmíðastöðin varð gjaldþrota árið 2000, en ári áður tók skipasmíðastöðin Kleven smíða- samninginn yfir. Ákæran var byggð á því að bræð- urnir hafi ekki látið vita um viðbót- arsamning, sem ákværuvaldið telur að hafi leitt til þess að samingurinn frá í desember 1997 hafi ekki verið bindandi um áramótin. Ríkisstyrkir til skipasmíðastöðva voru síðan felldur úr gildi á árinu 1998. Hérðsdómur í Bergen taldi samn- inginn hins vegar lagalega bindandi og að bræðurnir hafi aldrei reynt að svindla í málinu. Rétturinn reyndist í einu og öllu sammála verjanda bræðranna, um að smíðasamning- urinn og þar með samningurinn um ríkisstyrkinn hafi verið bindandi, þrátt fyrir viðbótarsamninginn af því að hvorugur samningsaðila hafi getað rift samningnum án þess að hinn aðilinn ætti þá rétt á bótum. Því til stuðnings leggur rétturinn áherzlu á það að Samherji hafi greitt Hellesöy bætur, þegar smíði skipsins var flutt til Kleven. Bræðurnir lýsa ánægju sinni með niðurstöðuna í norskum fjölmiðlum og telja afar ólíklegt að norska ríkið áfrýi dómnum. Samherji var á sínum tíma kraf- inn um endurgreiðslu á styrknum á sömu forsendum og bræðurnir voru ákærðir. Sú krafa fellur væntanlega niður í kjölfarið, verði málinu ekki áfrýjað. Sýknaðir af ákæru um svindl NÚ ER unnið að því að koma öllum upplýsingum, innlendum og erlendum, sem til eru um dýpi á Ís- landsmiðum í einn tölvutækan gagnagrunn, sam- keyra grunnana og sannreyna gæði gagnanna með samanburði. Þannig má nýta mun betur upplýs- ingar sem ýmsir aðilar hafa safnað til mismunandi nota, en hafa til þessa ekki nýst sjófarendum beint. Meðal þeirra eru opinberar mælingastofnanir af ýmsu tagi, en einnig skipstjórar á fiskiskipum sem samþykkt hafa að leggja dýpisgögn í grunninn og Síminn sem safnað hefur upplýsingum í tengslum við lagningu sæstrengja. Að verkefninu standa Sjávarútvegsstofnun Há- skóla Íslands, Landhelgisgæsla Íslands og Radíó- miðun ehf., en verkefnið hefur hlotið styrki frá Rannís undanfarin 2 ár. Ætlunin er ekki að standa að nýjum mælingum eða búa til vísindalega hárná- kvæmar upplýsingar, þetta kemur því ekki í stað þess starfs sem unnið er hjá Sjómælingum Land- helgisgæslu Íslands eða öðrum rannsóknaraðilum. Heldur er verið að safna í einn grunn þeim gögnum sem til eru og gera þau aðgengileg og notendavæn fyrir sjófarendur, útgerðir, skipstjóra, fiskimenn, rannsóknarmenn og aðra þá sem þurfa á upplýs- ingum um hafdýpi að halda. Sérstök áhersla er lögð á að safna og tölvutaka upplýsingar um festur og flök, sem verið geta til trafala og skaðað veiðarfæri. Sérfræðingur, Mr. Pierre Gareau, frá hugbún- aðarfyrirtækinu Helical Systems í Kanada er að kenna starfsmönnum verkefnisins að nota Helical- hugbúnað, sem er sérstaklega hannaður til að vinna með gífurlegt magn upplýsinga úr mismunandi grunnum. Hægt er að halda utan um gögn úr hverj- um grunni, sía út óeðlilegar mælingar, bera saman gögnin og sýna útkomuna í þrívídd frá öllum hlið- um. Samræmdur gagnagrunnur um dýpi í lögsögu Íslands Morgunblaðið/Golli Hafsbotninn skoðaður. Með samræmdum gagnagrunni um hafdýpið fást mun meiri og fjölbreyttari upplýsingar en áð- ur var hægt að nálgast á einum stað.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.