Morgunblaðið - 12.04.2003, Síða 22
ERLENT
22 LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
tilbo›!frábær
Tilbo›in gilda í verslunum Símans út apríl e›a á me›an birg›ir endast.
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I
Y
D
D
A
•
N
M
0
9
2
2
4
/
sia
.is
me›mmsgetur›u sentmyndir oghljó›úr gsm-símanumflínum í annansíma
1.000 kr. á mánu›i í
12 mánu›i vaxtalaust
tilbo›sver›: 13.980 kr.
WAP, GPRS o.fl.
sony ericsson t200
léttkaup
útkr.1.980
léttkaup
1.500 kr. á mánu›i í
12 mánu›i vaxtalaust
nokia 3510i
tilbo›sver›: 19.980 kr.
MMS, WAP, GPRS, LITASKJÁR,
FJÖLTÓNA HRINGING o.fl.
MMS
útkr.1.980
mms -fljónustaner eingönguí bo›i hjásímanumgsm
ÞÝSKIR lögreglumenn ráðast inn í
strætisvagn í miðborg Berlínar í
gær þar sem vopnaður maður hélt
tveim í gíslingu. Ræninginn fékk
skot í öxlina og var yfirbugaður, en
gíslana sakaði ekki.
Ræninginn tók vagninn á sitt vald
í gærmorgun eftir að hafa við annan
mann rænt banka í suðurhluta borg-
arinnar. Hinn bankaræninginn flýði
á hlaupum, en mun hafa náðst. Um
20 manns voru í vagninum er banka-
ræninginn réðst um borð og neyddi
bílstjórann til að aka um borgina og
setja út farþegana, einn af öðrum.
Eftir um það bil klukkustund
tókst lögreglunni að stöðva vagninn
og eftir rúmlega þriggja klukku-
stunda umsátur var ráðist til atlögu.
Ræninginn hafði skömmu áður skot-
ið sig í fótinn fyrir slysni. Hann hafði
áður komist í kast við lögin og tvisv-
ar setið inni.
AP
Mannræningi
yfirbugaður
RÚSSAR hafa gripið til ráðstafana til
að tryggja öryggi þjóðarinnar vegna
vaxandi spennu á Kóreu-skaga.
Alexander Losjúkov, aðstoðarut-
anríkisráðherra Rússalands, greindi
frá þessu í gær og vísaði til þess að
kjarnorkuáætlanir Norður-Kóreu-
manna hefðu gert að verkum að slík-
ur viðbúnaður væri nauðsynlegur.
„Við höfum neyðst til að huga að að-
gerðum í varnarskyni til að tryggja
hagsmuni okkar, og svo ekkert sé
dregið undan, til að verja þann hluta
þjóðar okkar sem býr nærri kóresku
landamærunum fari svo að alvarleg
átök brjótist út á þessu svæði,“ sagði
ráðherrann. Kvað hann viðeigandi
ráðuneyti hafa fengið fyrirmæli um
að huga að slíkum ráðstöfunum en
skýrði ekki nánar í hverju þær kynnu
að felast.
Nálgast „rauða strikið“
Rússar hafa reynt að miðla málum
í deilunni sem blossaði upp í október í
fyrra þegar Bandaríkjamenn greindu
frá því að stjórnvöld í Norður-Kóreu
hefðu gangsett á ný kjarnorkuáætlun
sína með því að framleiða auðgað
úraníum sem nýta má til framleiðslu
gjöreyðingarvopna.
Losjúkov sagði í gær að deilan
væri að færast á sífellt alvarlegra
stig. Hún væri tekin að nálgast
„rauða strikið“ sem kynni að hafa í
för með sér „óviðráðanleg viðbrögð“.
Síðla árs í fyrra hófu stjórnvöld í
Norður-Kóreu að reka á ný umdeilt
kjarnorkuver í Yongbyon en þar er
unnt að framleiða plúton til notkunar
í kjarnorkuvopnum. Eftirlitsmenn
Alþjóðakjarnorkustofnunarinnar
voru í kjölfarið reknir úr landi.
Bandaríkjamenn hafa krafist þess
að Norður-Kóreumenn loki kjarn-
orkuverinu áður en viðræður um frið-
samlega lausn deilunnar verði hafn-
ar. Stjórn Kim Jong-il, leiðtoga
Norður-Kóreu, hefur hins vegar farið
fram á tvíhliða viðræður við Banda-
ríkjastjórn án tafar.
Bandaríkjastjórn telur að Norður-
Kórea ráði yfir einni eða tveimur
kjarnorkusprengjum og geti fram-
leitt nokkrar til viðbótar innan sex
mánaða miðað við þá kjarnorkuáætl-
un sem stjórnvöld þar fylgja nú.
Rússar óttast
átök í Norð-
ur-Kóreu
Gripið til ráðstafana til að verja
íbúa nærri landamærunum
Moskvu. AFP.
KÚBVERSK stjórnvöld sögðust í
gær hafa komið í veg fyrir flugrán í
innanlandsflugi. Hefðu fimm menn
verið handteknir fyrir að reyna að
ræna flugvél á Ungmennaeyju á
Kúbu.
Í yfirlýsingu sem Kúbustjórn
sendi til þarlendra fjölmiðla sagði að
fimm manns hefðu tekið AKM-47-
riffil af hermanni nálægt La Fe á
Ungmennaeyju og flúið í bíl. Tveim-
ur klukkustundum síðar hefðu árás-
armennirnir verið handteknir á bíla-
stæði á flugvelli eyjunnar. Í fórum
þeirra hefðu verið riffill, tveir hnífar
og lóð. Kváðust yfirvöld vera að leita
að vitorðsmönnum fólksins.
Flugráni af-
stýrt á Kúbu?
Havana. AFP.
FJÖGURRA ára viðleitni Nígeríu-
manna til að innleiða lýðræði í landi
sínu nær hámarki í dag, laugardag,
þegar fram fara fyrstu frjálsu kosn-
ingarnar í landinu í 20 ár.
Mikil spenna hefur ríkt í Nígeríu á
undanliðnum dögum enda óttast
margir að ofbeldi og svik muni ein-
kenna kosningarnar. Erfiðlega hefur
gengið að dreifa kjörgögnum og ólgu
hefur víða orðið vart.
Þingkosningarnar fara fram í dag
en um næstu helgi verða forseti og
ríkisstjórar kjörnir. Fjögur ár eru lið-
in frá því að herinn í landinu fól Olus-
egun Obasanjo, fyrrum herforingja,
að gegna embætti forseta í kjölfar
kosninga sem herinn stjórnaði.
Á kjörskrá er 61 milljón manna og
kosið verður á 120.000 stöðum. Kjós-
endur hafa fengið sérstök skilríki af-
hent til að taka þátt í kosningunum en
vitað er að þau hafa víða ekki komist
til skila. Óttast því margir að svik
muni setja mark sitt á kosningarar
sem fréttaskýrendur telja sérlega
mikilvægar.
Búist er við því að flokkur Obas-
anjos forseta, Lýðræðisflokkur alþýð-
unnar, fái meirihluta í báðum deildum
þingsins. Auk hans taka 29 flokkar og
samtök þátt í kosningunum en í kosn-
ingunum 1999 fengu aðeins tveir
þeirra að bjóða fram lista.
Frjálsar kosning-
ar í Nígeríu
Ótti við ofbeldi og kosningasvik
Lagos. AFP.