Morgunblaðið - 12.04.2003, Page 23
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2003 23
fylgirinne
ign
völdumsímum *
3.000kr. fla› kostarekkert a›sendamms-skeyti fyrstum sinn!
* 500 kr. inneign á mánu›i í sex mánu›i.
nokia 5100
MMS, WAP, GPRS, LITASKJÁR,
INNBYGGT VASALJÓS, HITAMÆLIR,
FJÖLTÓNA HRINGING o.fl.
útkr.580 léttkaup
3.000 kr. á mánu›i í
12 mánu›i vaxtalaust
tilbo›sver›: 36.580 kr.
MMS
2.000 kr. á mánu›i í
12 mánu›i vaxtalaust
sony ericsson t68i
tilbo›sver›: 28.980 kr.
MMS ,WAP, GPRS, LITASKJÁRo.fl.
léttkaup
MMS
útkr.4.980
RÚMLEGA 1.500 manns voru
teknir af lífi í 31 landi í heiminum
í fyrra, þar af tveir þriðju í Kína,
að því er mannréttindasamtökin
Amnesty International greindu
frá í gær. „Í mörgum tilvikum
var um að ræða skýlaust brot á
alþjóðlegum viðmiðum um beit-
ingu dauðarefsingar,“ sagði í til-
kynningu frá samtökunum.
Þau hvöttu mannréttindanefnd
Sameinuðu þjóðanna til að láta
afdráttarlaust til skarar skríða
gegn dauðarefsingum og leggja
bann við aftökum. Að minnsta
kosti 3.248 manns hafi verið
dæmdir til dauða í 67 ríkjum í
fyrra.
Eitt þúsund og sextíu aftökur
fóru fram í Kína í fyrra, 113 í Ír-
an og 71 í Bandaríkjunum, og
eru þetta rúmlega 80% allra af-
takna sem vitað er um í heim-
inum.
Meðal þeirra sem líflátnir voru
í Bandaríkjunum voru þrír ung-
lingar – afbrotamenn sem höfðu
verið yngri en 18 ára er þeir
frömdu brotið sem þeir voru
dæmdir til dauða fyrir. Bandarík-
in eru eitt af fáum ríkjum heims
þar sem heimilt er að taka af lífi
afbrotamenn á unglingsaldri.
Rúmlega 1.500 líf-
látnir á síðasta ári
Genf. AFP.
LÖGREGLAN í Serbíu hefur
handtekið tvo háttsetta ráðgjafa
Vojislavs Kostunica, fyrrverandi
forseta Júgóslavíu gömlu, að sögn
útvarpsstöðvarinnar B-92. Menn-
irnir eru taldir hafa tengst morð-
inu á Zoran Djindjic, forsætisráð-
herra Serbíu, 12. mars í Belgrad.
Serbnesk stjórnvöld telja sig nú
hafa upplýst hverjir stóðu að
morðinu á Djindjic.
Hinir handteknu eru Rade Bul-
atovic, er áður var ráðgjafi Kost-
unica í öryggismálum, og Aca
Tomic hershöfðingi, áður yfirmað-
ur öryggisgæslu hersins. Lögregl-
an segir að mennirnir tveir hafi átt
fundi með morðingjum Djindjic,
þeim Milorad Lukovic og Dusan
Spasojevic. Einnig hafi Bulatovic
gefið rangar upplýsingar er hann
var spurður af lögreglunni en ekki
útskýrt í hverju rangfærslurnar
hefðu falist.
Alls hafa um 2.700 manns verið
handtekin í sambandi við rann-
sóknina á morðinu og er gert ráð
fyrir að 700 þeirra verði hugs-
anlega ákærðir. Lukovic er sagður
hafa skotið forsætisráðherrann af
löngu færi.
Unnu saman gegn Milosevic
Kostunica og Djindjic unnu sam-
an að því að steypa Slobodan Mil-
osevic af stóli forseta Júgóslavíu
árið 2000 en síðar slettist upp á
vinskapinn og hatrömm valdabar-
átta hófst milli þeirra. Djindjic
vildi auka samstarf við vestræn
ríki en Kostunica er eindreginn
þjóðernissinni og tortryggir vest-
ræna ráðamenn.
Kostunica missti embættið 4.
febrúar sl. er nýtt sambandsríki
Serbíu og Svartfjallalands tók við
af Júgóslavíu. Hann hefur vísað
því á bug að flokkur hans, DSS,
hafi verið flæktur í morðið á
Djindjic.
Ráðgjafar Kost-
unica handteknir
Serbnesk stjórnvöld telja upplýst
hverjir stóðu að morðinu á Djindjic
Belgrad. AFP.
SÆNSKA þingið samþykkti í gær
að nema úr lögum síðustu forrétt-
indi aðalsins í landinu. Þótt þetta
breyti í raun litlu fyrir þá 26.500
Svía sem hafa blátt blóð í æðum
hefur þetta táknrænt gildi, en
sænski aðallinn hefur notið lög-
bundinna forréttinda í 700 ár.
Breytingin í gær, sem samþykkt
var einróma, ógildir lög frá 1723
sem tryggja aðalsmönnum réttindi
til að yfirgefa landið án þess að
þurfa fyrst að biðja konunginn um
leyfi og að þeir muni fá konunglega
hjálp lendi þeir í því að verða stríðs-
fangar.
Breytingin tekur gildi fyrsta júlí.
Síðasti Svíinn sem var aðlaður var
landkönnuðurinn Sven Hedin, 1902,
en sænski konungurinn hefur ekki
haft heimild til að aðla fólk síðan
1974.
Meðal frægra Svía af aðalsættum
eru kvikmyndaleikarinn Max von
Sydow, óperusöngkonan Anne Sof-
ie von Otter, Carl Bildt, fyrrverandi
forsætisráðherra, og Michael
Treschow, stjórnarformaður fjar-
skiptafyrirtækisins Ericsson. Dag
Hammarskjöld, sem var fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, var einnig af aðalsættum.
Forréttindin farin
Stokkhólmi. AFP.