Morgunblaðið - 12.04.2003, Side 26
ERLENT
26 LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
SÝNILEG tákn um alræði Saddams
Husseins í Írak eru, eða öllu heldur
voru, ekki eingöngu styttur og mynd-
ir á öllum hugsanlegum stöðum held-
ur einnig geysimiklar hallir og minni
bústaðir um landið allt. Húsin eru lík-
lega yfir hundrað í allt. En einn af
„bústöðunum“ er nú á reki við höfnina
í Basra. Borgin er við Shatt el-Arab
vatnaleiðina þar sem fljótið Tígris
rennur í Persaflóa.
Snekkja Saddams Husseins, Al-
Mansur [Sigurvegarinn], er hvorki
meira né minna en 7.359 tonn og var
smíðuð í finnskri skipasmíðastöð árið
1982. Er hún sögð vera eitthvert
stærsta, fullkomnasta og íburðar-
mesta skip sinnar tegundar í heim-
inum. Breskar flugvélar gerðu harða
sprengjuárás á snekkjuna í upphafi
átakanna og ollu miklu tjóni en hún
sökk ekki. Finnar hafa vandað til
verksins. Heimahöfn Al-Mansur er í
einu raunverulega hafskipahöfn
Íraks, Umm Qasr. En Saddam lét
flytja hana til Basra rétt áður en
stríðið byrjaði og taldi hana verða
öruggari þar. Það gekk ekki eftir.
Snekkjan var skráð sem herskip,
reyndar stærsti farkostur íraska flot-
ans, þótt hún gegndi engu hlutverki í
flotanum en 120 menn úr sérdeildum
Lýðveldisvarðarins, úrvalssveitum
forsetans, voru í áhöfninni. Skipið var
ávallt til reiðu ef leiðtoganum þókn-
aðist að fara um borð.
Fréttamaður breska ríkisútvarps-
ins, BBC, fór nýlega út skipið þar sem
það liggur mannlaust og illa laskað
skammt utan við höfnina. Sjónarvott-
ar sögðu að alls hefðu lent á því 16
sprengjur og flugskeyti meðan Bret-
ar sátu um Basra. Bretar vildu full-
vissa íbúana um að veldi Saddams
væri að hrynja og reyndu þess vegna
að granda tákninu.
Marmari, gull
og silfur
Fréttamaðurinn taldi nokkra fiski-
menn á að skjóta sér út í flakið á
litlum báti. Nafnið er enn vel læsilegt
á skipsskrokknum en fátt minnir nú á
það hver eigandinn var, hálf-brennd-
ur fáni Íraks hangir enn við hún á
skökku mastri. Um borð var enn
hægt að sjá að hvergi hafði verið neitt
til sparað. Rándýrar og stundum of-
hlaðnar skreytingar voru í híbýlum
forsetans og gesta hans, notaður hef-
ur verið marmari og harðviður, víða
sést gull og silfur.
Fyrir miðju var stór salur með
glerþaki þar sem hægt var að halda
miklar veislur en nú er glerið brotið.
Þær örfáu rúður sem enn eru heilar í
snekkjunni eru allar úr skotheldu
gleri. Aðeins fimm íbúðir eru í skip-
inu. Leynilegur stigi liggur úr einka-
stofu Saddams niður í rými þar sem
hægt er að varðveita lítinn kafbát er
hægt var að skjóta út úr skipinu.
Leiðtoginn gætti þess að eiga undan-
komuleið, hvar sem hann hélt sig.
Enginn lyfjaskortur
í Al-Mansur
Miðhluti skipsins er nánast horf-
inn, þar hefur lent geysiöflug
sprengja. Einnig hefur oft komið upp
eldur og því liggur þykkt sótlag yfir
þeim hlutum sem enn eru lítt
skemmdir. Litið var inn í baðherbergi
með stóru Jacuzzi-baðkari, fótlaug og
röð af öflugum ljósaperum, svonefnd-
um fegurðarljósum, umhverfis stóran
spegil. Sótið þakti allt.
Annars staðar var stórt herbergi
með haug af flauelsklæddum borð-
stofustólum, ofan á hauginn hafði ver-
ið fleygt tennisborði. Og loks fann
fréttamaðurinn vistarveru sem virtist
vera einkaskurðstofa Saddams Huss-
eins. Tækin voru greinilega fyrsta
flokks og í birgðageymslu var gnægð
af lyfjum sem sem almennir borgarar
í Írak hafa fengið lítið af síðan 1991.
Allt benti til þess að birgðirnar hefðu
legið óhreyfðar árum saman.
Forseta-
snekkjan er
7.000 tonn
Reuters
Skemmtisnekkja Saddams Husseins, Al-Mansur, á reki við Basra fyrr í vikunni, illa löskuð eftir sprengjur Breta.
Í snekkju Saddams var lítill kaf-
bátur sem forsetinn gat notað ef
hann þyrfti að flýja úr skipinu
MÖRGUM hefur komið á óvart hve
miklu munaðarlífi æðstu ráðamenn
Íraka hafa lifað, samtímis því sem
þjóðin bjó við sult og seyru og börn
þjáðust af vannæringu og lyfja-
skorti. Myndir af heimilum sem
æstur múgur í Bagdad hefur ráðist
inn í staðfesta sögusagnir sem ár-
um saman hafa verið á kreiki.
Smekkur manna á borð við Tar-
iq Aziz, aðstoðarforsætisráðherra
og einn af nánustu samstarfs-
mönnum Saddams Husseins síð-
ustu áratugina, er greinilega afar
vestrænn. Hann les bækur og horf-
ir á kvikmyndir sem Vestur-
landamenn þekkja, allt er þetta
harla kunnuglegt. Þess skal þó
getið að Aziz er kristinn og brýtur
því engin trúarleg bönn með því að
neyta áfengis.
En hinir valdamennirnir eru
nær allir múslímar að nafninu til
þótt efast megi um trúarhitann
enda Baath-flokkurinn verald-
legur flokkur. Þegar breskir her-
menn könnuðu vígi Efnavopna-Alis
í Basra varð þar vart þverfótað
fyrir viskíflöskum og öðru áfengi
sem smyglað hefur verið frá Vest-
urlöndum. Og hvergi virðist hafa
verið sparað neitt í tækjum eða
húsbúnaði í vistarverum ráða-
manna þótt landið væri í reynd
gjaldþrota.
Tekjurnar af olíusmygli og í
stöku tilfellum af sölu til útlanda á
mjólkurdufti og lyfjum, sem erlend
hjálparsamtök höfðu sent til ír-
askra barna, hafa verið drjúgar.
Engum hefur fundist ástæða til að
spara.
Í algleymi neyslu-
hyggjunnar
GERI menn ráð fyrir að Saddam
Hussein sé enn á lífi og staðráðinn í
að berjast til þrautar hvar er þá lík-
legt að síðasta virkið verði? Sérfróðir
menn um málefni Íraks segja að það
sé borgin Tikrit, heimaborg Sadd-
ams. Ætlunin var að sögn heimildar-
manna að bandarísk herdeild réðist
inn í Írak frá Tyrklandi og legði
áherslu á að taka Tikrit sem er við
Tígrisfljótið eins og Bagdad. Fall
Tikrit yrði svo mikill álitshnekkir að
stjórn Saddams myndi riða við og
baráttuþrek Írakshers bíða óbætan-
legt tjón. En Tyrkir neituðu að
hleypa bandaríska liðinu um land sitt
og því varð að breyta áætluninni.
Tikrit er ekki ein af stærstu borg-
um Íraks, íbúatalan aðeins um
250.000 með úthverfum en hún hefur
samt verið mikilvæg valdamiðstöð
undanfarna áratugi. Saddam Huss-
ein hefur kallað Tikrit heimaborg
sína og kennt sig við hana. Ekki að
ástæðulausu: Enginn þekkti fæðing-
arþorpið al-Ouja, rétt utan við borg-
ina en Saladín soldán og stríðshetja
er sagður hafa fæðst í Tikrit 1238.
Saddam Hussein al-Tikriti, sem er
óskilgetinn og af bláfátækum smá-
bændum og ræningjum kominn,
reyndi að varpa ljóma á sjálfan sig
með því að tengja sig við fyrirmynd-
ina Saladín.
Heimaborg æðstu
ráðamanna
Flestir af æðstu ráðamönnum í
Baath-flokknum og stjórnkerfi
Saddams eru einnig frá Tikrit. For-
setinn hlóð auk þess háum embætt-
um á sitt nánasta venslafólk, syni,
hálfbræður og aðra, í trausti þess að
hefðbundin tryggð araba við sína
nánustu gerði þeim ókleift að snúast
gegn forsetanum með uppreisn eða
tilræði. Ættbálkatengsl hafa víða
rofnað í Írak með flutningum fólks í
stórborgirnar en sagt er að þau séu
enn afar mikil í Tikrit.
Tikrit var hálfgerður útnári þar til
Sadam varð áhrifamikill í Írak á átt-
unda áratugnum. Og þegar hann
hrifsaði forsetaembættið 1979 hófust
umskipti sem eiga sinn þátt í að
flestir telja hann eiga tryggan stuðn-
ing flestra borgarbúa. Þaðan komu
auk þess flestir af liðsmönnum Lýð-
veldisvarðarins og einkum sérsveita
varðarins, mennirnir sem Saddam
treysti best. En spyrja má hvort
þessir menn vilji enn berjast fyrir
hann eftir að hafa séð bandamenn
kremja undir sér íraskar hersveitir á
öllum vígstöðum.
Qusay Hussein, syni Saddams, var
fyrir skömmu falið að stjórna vörn
Tikrit-svæðisins. Margir hafa sagt
líklegt að Saddam ákveði að berjast
og falla fremur en láta taka sig til
fanga eða flýja land. Byggjast slíkar
vangaveltur m.a. á því að honum sé
svo annt um eftirmæli sín í heimi
araba að hann muni fremur kjósa
dauðann en vansæmd. Annað sterk-
asta aflið í lífi hans á eftir sjálfri
valdafíkninni, óskin um að halda lífi,
muni víkja þegar jafnvel forsetinn
geri sér ljóst að valdaskeið hans sé á
enda.
Efnavopnin falin í Tikrit?
Vestrænir leyniþjónustumenn
álíta að þegar búið verði að taka
Tikrit-svæðið fái menn innsýn í til-
raunir Íraka til að búa til gereyðing-
arvopn. Eigi þeir enn slík vopn sé
sennilegast að þau séu varðveitt þar,
líklega í geysimiklu neti af neðan-
jarðargöngum og byrgjum undir
borginni. Enn aðrir segja að þessi
vopn hafi jafnvel verið flutt til
geymslu í ofurvenjulegum íbúðar-
húsum sem menn treysti að verði
ekki skotmark í loftárásum banda-
manna.
Eitt er ljóst: séu þau til staðar eru
þau varla í hinum frægu höllum
Saddams sem vopnaeftirlitsmenn
Sameinuðu þjóðanna fengu að skoða
lauslega 1998. Þeir komust að raun
um að mörg af þessum feiknastóru
hallarsvæðum voru vel víggirt en
sumar byggingarnar nánast mann-
lausar og þar var ekkert af tækjum
eða skjölum, ekki fór milli mála að
búið var að fjarlægja allt slíkt.
Ef hallirnar hafa verið miðstöðvar
fyrir tilraunir með gereyðingarvopn
var a.m.k. búið að fjarlægja öll um-
merki. Athyglisvert þótti að í einni
höllinni skammt frá Bagdad var eng-
in skjöl eða tölvur að finna þótt
hvergi sé nokkuð sparað í öðrum
búnaði í þessum glæsihöllum. Allt
slíkt hafði verið fjarlægt.
Stærsta og íburðarmesta forseta-
höllin í Írak er á Tikrit-svæðinu og
nær hallarsvæðið allt yfir fjóra fer-
kílómetra. Um er að ræða nokkrar
byggingar auk minni bústaða fyrir
gesti og lífverði, á landareigninni eru
auk þess nokkrir búgarðar. Mann-
virkin á hallarsvæðinu hafa verið í
byggingu síðan 1991 og er smíðinni
ekki að fullu lokið. Sagt er að íburð-
urinn í Tikrit-höllinni sé enn meiri en
í höllunum sem þegar er búið að her-
nema og líkist helst því sem sagt er
frá í Þúsund og einni nótt. Hvar-
vetna séu rándýrar kristalljósakrón-
ur, antikhúsgögn og gulli, veggmál-
verk skreytt loft.
Vonbrigði á afmælishátíð
Saddam hefur varið stórfé í að
endurbæta Tikrit sem bandamenn
gerðu miklar loftárásir á í stríðinu
1991. Baiji, ein af stærstu olíuhreins-
unarstöðvum Íraks, er rétt hjá Tikrit
og þegar menn aka áleiðis til borg-
arinnar batna vegir skyndilega í
grennd við hana. Þegar komið er inn
í miðborgina blasa við ný og glæsileg
moska, snyrtilegar breiðgötur og að
sjálfsögðu aragrúi af myndum og
styttum af leiðtoganum, eftirlætis-
syni borgarinnar, Saddam Hussein.
Sjúkrahúsin eru búin tækjum sem
ekki sjást í öðrum borgum í landinu,
skólarnir hafa oft lokkað til sín kenn-
ara frá Bagdad með yfirboðum.
Að sögn heimildarmanna er enn
ríkjandi svo mikill smábæjarbragur í
Tikrit að séu menn teknir tali segjast
þeir yfirleitt þekkja eða hafa þekkt
fjölskyldu forsetans. Lengi vel hélt
hann upp á afmælisdag sinn, 28. apr-
íl, í borginni með mikilli viðhöfn að
viðstöddum tugþúsundum fagnandi
Íraka og tiginna gesta frá útlöndum.
En í fyrra brá svo við að þegar for-
setabifreiðin með skyggðu rúðurnar
stöðvaðist steig ekki forsetinn út
heldur frændi hans og náinn sam-
verkamaður, Ali Hassan al-Majid,
öðru nafni „Efnavopna-Ali“.
Hræðsla Saddams við tilræðismenn
fór vaxandi með árunum og er fullyrt
að hann hafi ekki einu sinni þorað að
gefa færi á sér í sjálfri Tikrit.
Reuters
Íraskur hermaður í Tikrit, skömmu
eftir að stríðið hófst 20. mars.
Heimaborgin naut
góðs af einræðinu
Saddam Hussein kennir
sig við borgina Tikrit,
hann fæddist í smáþorpi
skammt frá henni.
Kristján Jónsson segir
frá heimaborg íraska
leiðtogans.
! " #
$"%# '("&# !#
)&*+#"#!#
,-.*
/"%# #
,&-.