Morgunblaðið - 12.04.2003, Qupperneq 29
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2003 29
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna alþingiskosninganna
10. maí er hafin. Kosið er hjá sýslumönnum og hreppstjórum
um land allt, sendiráðum og mörgum ræðismönnum erlendis.
Í Reykjavík er kosið í Skógarhlíð 6, virka daga frá kl. 9-15.30
og laugardaga og sunnudaga frá kl. 10-14.
Utankjörstaðaskrifstofan veitir allar upplýsingar og aðstoð við
kosningu utan kjörfundar. Einnig er hægt að nálgast upplýs-
ingar á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins www.xd.is og á upplýs-
ingavef dómsmálaráðuneytisins www.kosningar2003.is.
Sjálfstæðisfólk! Látið okkur vita um
stuðningsmenn sem ekki verða heima á kjördag,
t.d. námsfólk erlendis.
Utankjörstaðaskrifstofa
Sjálfstæðisflokksins
Valhöll, Háaleitisbraut 1, 3. hæð,
105 Reykjavík – Símar 515 1735 og 515 1736
Bréfasími 515 1739 – Farsími 898 1720
Netfang: oskar@xd.is
KRAKKARNIR á Mánaborg kunna
bæði að búa til moltu og pappír úr
efni sem annars færi í súginn. Þeir
passa upp á að fara sparlega með
sápu og blöð og skordýr eru meira
en velkomin í heimsókn enda garð-
urinn við leikskólann ekki sleginn til
að gera hann sem vistlegastan fyrir
þessar litlu lífverur. Börnin vita allt
um árstíðirnar og heimsækja fjör-
una á Seltjarnarnesinu reglulega.
Mánaborg er nefnilega umhverf-
isvænn leikskóli og fékk viðurkenn-
ingu fyrir ötult starf að umhverf-
ismálum á ráðstefnu Staðar-
dagskrár 21 á dögunum. Í umsögn
dómnefndar segir að Mánabrekka
hafi verið í fararbroddi leikskóla á
Íslandi við starf að umhverf-
ismálum. Þannig hafi skólinn sér-
staklega gert umhverfis- og nátt-
úruvernd að leiðarljósi í
uppeldisstefnu sinni og sett skýr
markmið í þeim efnum ásamt áætl-
unum til að framfylgja þeim mark-
miðum.
Guðbjörg Jónsdóttir, aðstoð-
arleikskólastjóri á Mánabrekku,
sagðist í samtali við Morgunblaðið
vera ákaflega ánægð með þennan
heiður. „Það var mjög hvetjandi að
fá þessa viðurkenningu og við mun-
um halda ótrauð áfram í þessari
vinnu,“ sagði hún.
Leikskóli fékk viðurkenningu
fyrir umhverfisstörf
Seltjarnarnes
ÚRSKURÐARNEFND skipu-
lags- og byggingamála hefur úr-
skurðað að stöðva skuli fram-
kvæmdir við niðurrif hússins að
Stakkahlíð 17, þar sem áformað er
að byggja tvílyft fjölbýlishús, á
meðan kæra vegna byggingarleyf-
is er til meðferðar hjá nefndinni.
Þetta er í annað sinn sem nefndin
stöðvar framkvæmdir við húsið en
í fyrra skiptið afturkallaði skipu-
lags- og bygginganefnd Reykja-
víkur byggingarleyfið, sem úr-
skurðurinn náði til, en veitti þegar
nýtt leyfi fyrir framkvæmdunum.
Málið á sér talsverðan aðdrag-
anda en í ágúst í fyrra samþykktu
borgaryfirvöld breytingu á aðal-
skipulagi sem fól í sér að um-
ræddri lóð yrði breytt í íbúðarlóð í
stað verslunarlóðar áður.
Samhliða vinnu við breytingu á
aðalskipulaginu var unnið að til-
lögum að endurbyggingu hússins,
sem fyrir var á lóðinni, en um er
að ræða gamalt verslunarhús þar
sem félagsheimilið Drangey var til
húsa um árabil. Horfið var frá því
að endurbyggja húsið sem íbúðar-
húsnæði heldur ákveðið að rífa
það og reisa í staðinn tvílyft fjöl-
býlishús með 10 íbúðum. Skipu-
lags- og bygginganefnd Reykja-
víkur veitti síðan byggingarleyfi
fyrir slíku húsi í október sl.
Kæra á kæru ofan
Íbúar í grennd við húsið kærðu
veitingu leyfisins til úrskurðar-
nefndar skipulags- og bygginga-
mála en þeir töldu að ekki hefði
verið tekið nægjanlegt tillitit til
sjónarmiða þeirra. M.a. væri húsið
of hátt, sömuleiðis nýtingarhlutfall
lóðarinnar auk þess sem ekki hafi
legið fyrir samþykkt deiliskipulag
af reitnum áður en byggingarleyf-
ið var veitt.
Í lok janúar sl. úrskurðaði
nefndin að stöðva skyldi niðurrif
hússins enda taldi hún líkur á því
að byggingarleyfið yrði ógilt þar
sem það hefði verið veitt áður en
breytingin á aðalskipulaginu tók
gildi.
Í kjölfarið afturkallaði skipu-
lags- og bygginganefnd leyfið á
fundi sínum en veitti nýtt leyfi á
sama fundi og vísaði til þess að nú
hefði umrædd breyting á aðal-
skipulagi gengið í gegn.
Í framhaldinu vísaði úrskurð-
arnefndin kæru íbúanna frá, þar
sem hin kærða ákvörðun frá í
október hafði verið felld úr gildi.
Íbúarnir brugðust þá við með því
að kæra veitingu hins nýja bygg-
ingarleyfis.
Sem fyrr segir hefur úrskurð-
arnefndin nú ákveðið að stöðva
framkvæmdir á ný, meðan hin
nýja kæra er til meðferðar hjá
henni.
Niðurrif í Stakkahlíð stöðvað
Hlíðar
SKIPULAGSSJÓÐUR Reykjavík-
urborgar hefur keypt gamalt versl-
unarhúsnæði að Sólheimum 29–33 í
Reykjavík fyrir 123 milljónir króna.
Formaður skipulags- og bygginga-
nefndar segir ástæðu kaupanna þá að
verið sé að greiða fyrir skipulagsmál-
um á svæðinu og auðvelda uppbygg-
ingu á reitnum. Sjálfstæðismenn
gagnrýna hins vegar að kaupverðið
sé of hátt og að ómögulegt sé fyrir
borgina að fá þá peninga til baka
nema með mjög háu nýtingarhlutfalli
reitsins.
Að sögn Steinunnar Valdísar Ósk-
arsdóttur, formanns skipulags- og
bygginganefndar Reykjavíkur, er
byggingin á sömu lóð og Sólheimar
35 og á sínum tíma, þegar hugað var
að uppbyggingu á reitnum, hafi það
valdið vandræðum, m.a. vegna mót-
mæla frá íbúum að Sólheimum 35.
Þannig hafi ekki verið hægt að ná
fram neinum skipulagsáætlunum
varðandi reitinn en hugmyndin er að
byggja íbúðarhúsnæði á honum.
„Í mikilli niðurníðslu“
„Við keyptum hvort tveggja og
ætlum að fara í uppbyggingu og
skipulagningu þarna þó ekki sé
ákveðið hvenær það verður,“ segir
hún. „Í raun vorum við með þessu að
höggva á hnút til að ná fram upp-
byggingu á reitnum en hugsunin með
Skipulagssjóði er m.a. sú að hann geti
keypt eignir vegna skipulags síðar.“
Steinunn segir kaupverðið hafa
verið 123 milljónir króna. „Á sínum
tíma var þetta kjarninn í hverfinu og
blómleg starfsemi sem fór þar fram
en þetta er núna í mikilli niður-
níðslu.“
Hún segir rétt að borgin geti ekki
komið út á sléttu með kaupin miðað
við það nýtingarhlutfall sem er í gildi
fyrir lóðina. „En við höfum verið að
tala um að þarna megi hugsanlega
auka nýtingarhlutfallið með samein-
ingu lóðarinnar og fá þannig meiri
verðmæti út úr henni. Og þó að það
skipti auðvitað máli þá finnst mér líka
mikilvægt að við ætlum að þétta
þarna byggð og fá eitthvað sem er til
fegurðar og yndisauka fyrir hverfið.“
Hættulegt fordæmi
Hanna Birna Kristjánsdóttir,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins,
segir forsendur vanta fyrir kaupun-
um. „Við teljum þessi kaup einfald-
lega ekki skynsamleg auk þess sem
þau eru fordæmisgefandi. Meirihlut-
inn heldur því fram að kaupin séu
gerð vegna þess að þarna hafi mál
verið komin í skipulagslegt óefni. Því
miður er staðan þannig víðar í borg-
inni og því hljótum við að spyrja
hvort gripið verði til sömu aðgerða í
þeim tilvikum. Við gagnrýndum kaup
borgarinnar á Stjörnubíósreitnum
með sömu rökum.“
Að mati Hönnu Birnu var verðið
einnig of hátt og hún segir að ólíklegt
sé að borgin nái þeim verðmætum út
úr kaupunum sem hún lagði í þau.
„Ef það á að gerast þarf að byggja
þarna mjög hátt hús og hafa hátt nýt-
ingarhlutfall og þegar málið var rætt
í borgarráði voru menn á því að ólík-
legt væri að það myndi gerast enda
yrði varla sátt um slíkt hús.“
Borgin kaupir gamalt verslunarhús
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Steinunn Valdís segir að eitt sinn hafi blómleg atvinnustarfsemi farið fram
í húsnæðinu en núna sé það í niðurníðslu.
Kaupverðið 123
milljónir króna
Heimar
FJÖLSKYLDUHÁTÍÐ verður
haldin í Bláfjöllum í dag. Opið verður
í Kóngsgili og í stólalyftu í Suðurgili
auk þess sem barnamót verður hald-
ið í Eldborgargili. Þá verða leiktæki
við Bláfjallaskála og í Eldborgargili
og blús leikinn af miklum móð við
Bláfjallaskála.
Að sögn Loga Sigurfinnssonar,
framkvæmdastjóra skíðasvæða höf-
uðborgarsvæðisins, fylltust starfs-
menn þar bjartsýni eftir að snjóaði í
um tíu tíma í fyrradag. Ofan í þetta
frysti þannig að aðstaða til skíðaiðk-
unar er með ágætum. Var unnið við
það í allan gærmorgun að ýta til snjó
og troða til að fá sem bestar aðstæð-
ur fyrir hátíðarhöldin í dag.
Reyndar segir Logi ekki hafa
vantað snjó í fjöllin eftir áramót en
hins vegar hafi veðrið verið að stríða
skíðamönnum enda ekki fýsilegt að
skella sér á skíði í slagveðursrign-
ingu og roki eins og hefur verið áber-
andi að undanförnu. Hvað varðar
daginn í dag þá var veðurútlit ágætt í
gær: hæg suðvestlæg átt, skýjað
með köflum og stöku él.
Til að vera viss um veður og að-
stæður er fólk hvatt til að hringja í
upplýsingasíma skíðasvæðanna sem
er 570 7711 áður en lagt er af stað til
fjalla eða skoða heimasíðu svæð-
anna, www.skidasvaedi.is.
Blús og barnaleiktæki í fjöllunum
Bláfjöll