Morgunblaðið - 12.04.2003, Síða 32

Morgunblaðið - 12.04.2003, Síða 32
SKÁTAÞING var haldið á Selfossi dagana 21.–23. mars sl. Um 70 skátar af öllu land- inu ræddu málefni hreyfing- arinnar en að þessu sinni voru það fræðslumál sem voru í brennidepli. Auk þeirra var m.a. fjallað um samskipti stjórnar og skátafélaganna, starf sveitarforingja og margt fleira. Mikill samhugur og eldmóður ríkti meðal þing- gesta sem endurspeglar þróttmikið starf í hreyfing- unni. Kynning á skátamótum sumarsins var sérstakur liður á þinginu en þau eru hvorki fleiri né færri en sjö talsins, þar af er eitt alþjóðlegt mót sem dreifist yfir mestallt land. Á aðalfundi BÍS voru eft- irfarandi skátar kosnir í stjórn: Margrét Tómasdóttir var endurkjörin sem aðstoð- arskátahöfðingi til þriggja ára. Sesselja G. Halldórsdótt- ir var kjörin sem meðstjórn- andi í stjórn BÍS til þriggja ára. Auk þess voru eftirtaldir skátar kosnir í formannsemb- ætti: Einar Þór Hafberg var kjörinn sem formaður Al- þjóðaráðs til þriggja ára. Jón Ingvar Bragason var kjörinn sem formaður Fræðsluráðs til þriggja ára. Sonja Kjartans- dóttir var kjörin formaður Starfsráðs til þriggja ára. Skátahreyfingin er stærsta friðarhreyfing í heimi. Skáta- þing samþykkti eftirfarandi ályktun um stríðsátök: „Skátahreyfingin á Íslandi, félagi í alþjóðasamtökum skáta, tekur undir ályktanir alþjóðasamtaka skáta og harmar styrjaldarátök sem jafnan leiða miklar hörmung- ar yfir börn og ungt fólk og hvetur aðila til þess að leita allra leiða til þess að ná friði.“ Skátar harma stríðs- átök Selfoss ÁRBORGARSVÆÐIÐ 32 LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÍBÚAÞING var haldið í Hveragerði á dögunum undir yfirskriftinni „Um- hverfi fjölskyldunnar“. Til þingsins mættu 110 manns, en áður hafði verið unnið með tæplega 80 nemendum úr grunnskólanum, þannig að alls lögðu nær 200 Hvergerðingar sitt af mörk- um við að skapa framtíðarsýn með það að leiðarljósi að Hveragerði hafi „ótvíræða forystu sem fjölskyldu- vænn útivistar- og heilsubær“ svo notuð séu orð eins þátttakanda. Margar hugmyndir voru viðraðar og greinilegt að íbúum er umhugað um að bærinn hafi góða ásýnd og að vel sé hlúð að öllum aldurshópum. Niðurstöður þingsins voru kynntar á opnum fundi á þriðjudagskvöld af verkefnastjóranum Sigurborgu Kr. Hannesdóttur. Á þinginu kom fram að íbúum finnst ásýnd bæjarins ábótavant í ýmsum atriðum, s.s. frá- gangi í iðnaðarhverfi, á opnum svæð- um, götum og göngustígum og ónýt gróðurhús eru til lýta. Íbúar skynja að fréttir af fíkniefnamálum og póli- tískum ágreiningi hafa skaðað ímynd bæjarins út á við. Hvergerðingar eru sér meðvitandi um að það er í þeirra valdi að breyta þessu og er fullur hug- ur í bænum til að taka á þessum mál- um með samstilltu átaki íbúa, félaga- samtaka og fyrirtækja. Frá 1. ágúst nk. verður komið á fót nýju starfi íþrótta- og æskulýðsfull- trúa og var það eitt af markmiðum þingsins að kalla eftir hugmyndum um þau verkefni sem hann ætti að sinna. Þátttakendur töldu nauðsyn- legt að mótuð verði stefna um starfið og verkefna- og kostnaðaráætlun í framhaldi af því. Meðal verkefna verði síðan að samræma bæði fé- lagsstarf barna og það forvarnastarf sem þegar er unnið í bænum. Leggja þurfi áherslu á að koma upp samastað fyrir unglinga og bæta íþróttaaðstöð- una, en jafnframt að auka tómstunda- möguleika þeirra sem ekki finna sig í íþróttastarfi. Talið var mikilvægt að stefna að því að auka samveru kyn- slóða og að efla enn frekar samstarf við nágrannasveitarfélögin á sviði íþrótta- og æskulýðsmála. „Fólkið skemmtilegt af því við þekkjumst svo vel“ Fyrir þingið var unnið með grunn- skólanemum og kynntu fulltrúar þeirra niðurstöður sínar á þinginu. Fram kom ánægja með skólann. Yngri börnin lýstu því yfir að það væri gott að búa í Hveragerði, vegna þess hvað bærinn er rólegur og hægt að ganga allt sem þau þurfa að fara. Þau nefndu það sérstaklega að „fólkið er skemmtilegt út af því að við þekkj- umst svo vel“. Eldri krakkarnir tóku í sama streng og fagna því að búið er að opna félagsmiðstöðina eftir langt hlé. Þau kvarta undan því að íþróttahúsið sé alltof lítið og eiga sér óskir um gervi- grasvöll og litla körfu- og fótboltavelli og síðast en ekki síst um línuskauta- og hjólabrettasvæði. Þau tóku sér- staklega fram að umhverfið og nátt- úran í Hveragerði væri mjög falleg og að í bænum væru margar náttúru- lífsperlur. Perlur Hveragerðis – best varðveitta leyndarmálið? Á íbúaþinginu fögnuðu þátttakend- ur því að fá tækifæri til að tjá hug- myndir sínar og skoðanir og þeirri stefnu bæjarstjórnar að auka samráð við íbúa. Fjölmargar hugmyndir komu fram um skemmtilega mögu- leika og sóknarfæri varðandi útivist- arsvæði og heilsubæinn Hveragerði. Þegar allt þetta hefur verið tekið saman kemur í ljós að unglingarnir í grunnskólanum hittu naglann á höf- uðið þegar þau sögðu að „í Hvera- gerði eru fjölmargar náttúrulífsperl- ur“. Óvíða eru jafn margir einstakir staðir innan bæjarmarka, en þeir eru hins vegar vel faldir og í sumum til- fellum er aðgengi að þeim ekki nægi- lega gott. Það má því segja að það séu vel varðveitt leyndarmál sem í reynd eru eitt helsta sóknarfæri Hvergerð- inga. Þar ber helst að nefna góða sund- laug, lystigarð og hverasvæði inni í miðjum bænum, Varmána, þar sem hægt er að skipuleggja skemmtilega gönguleið og e.t.v. baðaðstöðu, Ham- arinn og svæðið sunnan undir honum, þar sem gæti orðið framtíðar „Kjarnaskógur“ Hvergerðinga og Ölfusárdal, þar sem hafin er skóg- rækt og áformað er að framtíðar íþróttasvæði Hvergerðinga verði. Um 200 manns tóku þátt í íbúaþingi í Hveragerði sem haldið var í síðustu viku Þingað um umhverfi fjölskyldunnar Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir Hvergerðingar fjölmenntu og hlýddu á niðurstöður íbúaþingsins. Hveragerði BÖRNIN í Vallaskóla á Selfossi tóku fyrstu skóflu- stunguna að nýrri skólabygginu í Suðurhverfi á Sel- fossi í gær. Byggingin ver nýlega boðin út og lægst- bjóðandi var JÁ-Verktakar á Selfossi og var verksamningur við þá undirritaður við þetta tækifæri. Verkið snýst um byggingu 1. áfanga Grunnskóla í Suð- urbyggð Selfoss. Byggingin er 2.833 m2 að stærð á tveimur aðalhæðum auk þriðju hæðar sem geymir tæknibúnað í litlu rými. Verkið snýst um að verktaki skili fullinnréttuðu og frágengnu húsi tilbúnu til notk- unar og eru verklok áætluð 16. júlí 2004. Áætlaður verktakakostnaður er um 365 mkr. Gert er ráð fyrir að í heild verði grunnskólabyggingin um 5.800 m2 og að seinni áfangi verði byggður fyrir árið 2007. Auk þess er áformað að byggja sambyggt íþróttahús og sund- laug í seinni áföngum. Auk íþróttahúss og sundlaugar eru uppi áform um að í tengslum við skólabygginguna verði byggður leikskóli. Þorvaldur Hafsteinsson, for- seti bæjarstjórnar, lýsti sérstakri ánægju bæjaryf- irvalda með þennan áfanga að framkvæmdir væru að hefjast við hina nýju skólabyggingu. Aðalhönnuðir skólans eru Á Stofunni – arkitektar, Hilmar Þór Björnsson og Finnur Björgvinsson. Burð- arþol og lagnir hannaði Hönnun hf. Raflagnahönnun var á hendi Rafhönnunar hf. Lóðarhönnun annaðist Landform/Oddur Hermannsson landslagsarkitekt. Verkefnastjóri verkkaupa er Kristján Stefánsson sem annaðist verkefnisstjórnun og eftirlit með hönnunar- vinnunni ásamt framkvæmda- og veitusviði Árborgar. Eftirlit með verkframkvæmdum verður í höndum Verkfræðistofu Suðurlands. Fyrsta skóflustungan tekin að nýjum skóla í Suðurbyggð Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Nemendur Vallaskóla á Selfossi tóku fyrstu skóflustunguna með bros á vör og mörkuðu með henni upphaf framkvæmdanna við grunnskólann í Suðurbyggð á Selfossi. Selfoss HVERAGERÐISBÆR hefur úthlutað lóðinni að Sunnumörk 2 í Hveragerði til verktakafyrirtæk- isins Sveinbjörn Sigurðsson ehf. Lóðin er stað- sett hægra megin við Breiðumörk (aðalgötu bæj- arins) þegar komið er inn í bæinn. Fyrir nokkru síðan var lóðin auglýst og í kjöl- farið bárust í hana 3umsóknir. Það var ákveðið á bæjarráðsfundi þann 3. apríl að úthluta lóðinni til SS verktaka. Fyrirtækið hyggur á byggingu verslunar- og þjónustuhúss á tveimur hæðum við Sunnumörk. Grunnflötur hússins verður rúmlega þrjú þúsund fermetrar. Á neðri hæðinni er fyr- irhuguð verslunar og þjónustustarfsemi en efri hæðin er hugsuð fyrir skrifstofuhúsnæði. Ráð- gjafi og hönnuður SS verktaka í verkefninu við Sunnumörk verður Vektor – hönnun og ráðgjöf. Orri Hlöðversson, bæjarstjóri í Hveragerði, segir að ánægja sé á meðal forsvarsmanna bæj- arins með úthlutunina. Hvergerðingar hafa lengi bundið við það vonir að unnt yrði að hefja bygg- ingu verslunarmiðstöðvar á lóðinni og með til- komu SS verktaka er stigið stórt skref í þá átt. Verkefni af þessari stærðargráðu er mikilvægt fyrir Hveragerði, en með tilkomu hússins kemur ekki aðeins til mikil hækkun á þjónustustigi á svæðinu heldur verður þarna til einn stærsti vinnustaður bæjarins. Sveinbjörn Sigurðsson, byggingameistari, hefur stundað verktöku í eigin nafni síðan 1942 og býr því að einum lengsta sam- anlagða starfsaldri iðnaðarmanns á Íslandi. Á fyrstu áratugunum sérhæfði fyrirtækið sig í smíði hefðbundinna íbúðarhúsa, en í seinni tíð hefur áherslan verið lögð á opinberar byggingar og mannvirki á borð við brýr, leikskóla, sund- laugar og menningarstofnanir. Ef áætlanir SS og Vektors ganga eftir munu framkvæmdir við bygginguna hefjast síðla sumars eða snemma í haust. Verslunar- og þjónustulóð úthlutað við Suðurlandsveg Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir Sunnumörk 2, séð frá Suðurlandsveginum. Hveragerði

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.