Morgunblaðið - 12.04.2003, Page 33
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2003 33
gert eitthvað betur heldur en það
er. Á Dalvíkursvæðinu höfum við
starfrækt framfarafélag í eitt ár og
erum aðallega að reyna að ýta und-
ir þá sem fyrir eru í félagsskap,
með mismunandi áherslum eftir
því hvaða félög eru starfandi.“
Sveinn segir samtökin Lands-
byggðin lifi vera þverpólitísk sam-
tök. „Það er engin pólitík og við
styðjum jafnt stóriðju á Austur-
landi sem framreiðslu á berjavíni í
Svartaskógi. Við teljum að þetta
eigi brýnt erindi nú þegar allt er
að vakna til lífsins á Austurlandi
og þegar farið er út í stórar fram-
kvæmdir verður líka að hugsa um
minni staðina sem hafa ýmislegt
fram að færa.“
Deildir í samtökunum Lands-
byggðin lifir eru nú um 14 talsins
og nokkrar eru í burðarliðnum.
ÍBÚAR í Fellabæ á Fljótsdalshér-
aði stofnuðu á dögunum Framfara-
félag Fellahrepps. Félagið hyggst,
eins og nafnið ber með sér, stuðla
að framförum í mannlífinu og verð-
ur aðildarfélag að samtökunum
Landsbyggðin lifir, en það er
hreyfing fólks á Íslandi sem vill
örva og efla byggð um land allt.
Anna Sigríður Karlsdóttir, Vign-
ir Elfar Vignisson og Egill Guð-
laugsson eru stofnendur Framfara-
félagsins og buðu þau til
stofnfundarins þeim Sveini Jóns-
syni frá Kálfskinni og Ragnari
Stefánssyni jarðskjálftafræðingi.
Ragnar sagði frá starfi aðildar-
félags nyrðra og Sveinn kynnti
landssamtökin.
Sveinn sagði í samtali við Morg-
unblaðið að samtökin hefðu verið
stofnuð til að örva hjartsláttinn í
dreifbýlinu. „Þetta er með nokkuð
öðrum hætti en tíðkast, því þarna
er byrjað á því að stofna lands-
samtök til að leggja landinu lið og
síðan hugað að því að stofna undir
þeim aðildarfélög vítt og breitt um
landið,“ sagði Sveinn.
„Ætlun okkar er að gera mann-
lífið betra, skemmtilegra og við-
burðaríkara heldur en það hefur
verið í dreifbýlinu. Það er þó auð-
vitað misjafnt á milli staða hvernig
landið liggur og hvaða möguleika
við höfum, en við getum alls staðar
Framfara-
félag í Fellum
Egilsstaðir
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Í stjórn framfarafélagsins sitja (f.v.) Sólveig Dögg Guðmundsdóttir, Vignir
Elfar Vignisson, Heiðveig Agnes Helgadóttir, Anna Sigríður Karlsdóttir
og Egill Guðlaugsson.
ÞAU er södd og sælleg fyrstu
lömb þessa vors hjá Guðbrandi
Sverrissyni, bónda á Bassastöð-
um í Kaldrananeshreppi, sem
voru borin 2. apríl. Ærin sem er
þriggja vetra var einnig tví-
lembd á síðasta vori. Gróður er
fyrr á ferðinni nú en oftast áður.
Haginn grænn kemur því til með
að taka vel þessum fyrstu vor-
boðum sveitanna þetta árið.Morgunblaðið/Arnheiður
Fyrstu
lömbin
fædd
Strandir
ⓦ
Hafið samband
við umboðsmann,
Pál Pétursson
í síma 471 1348
og 471 1350
Blaðbera vantar
á Egilsstöðum
Blaðbera vantar í nokkur
hverfi á Egilsstöðum og
í Fellabæ. Þurfa að geta
sinnt starfinu fyrir há-
degi og byrjað sem allra
fyrst.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
20
84
3
0
4/
20
03
Nýbýlavegi 2 • 200 Kópavogi • S 570 5300 • www.arctictrucks.is
Þú upplif ir það sem aðrir gera ekki.
Sle›adagar
um helgina
Ekki missa af
draumasle›anum!
Frábær t i lboð á notuðum sleðum, páskat i lboð á nýjum sleðum
og t i lboð á fy lgihlutum.
Láttu draumasleðann ekki s leppa frá þér - komdu um helgina.
Opið Nýbýlavegi og hjá Toyota Akureyr i
laugardag kl . 12-16 og sunnudag kl . 13-16.