Morgunblaðið - 12.04.2003, Síða 35
HEILSA
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2003 35
Spurning: Hvað er millirifjagigt, af
hverju stafar hún og hvað er til
ráða?
Svar: Millirifjagigt getur verið af
ýmsum toga en um er að ræða
verki í síðu eða brjóstkassa sem
versna við djúpa öndun eða aðrar
hreyfingar. Oftast er um að ræða
festumein í festingum millirifja-
vöðva en festumein er bólga á
staðnum þar sem sin festist við
bein. Svipuð einkenni og við festu-
mein geta einnig stafað af stirð-
leika í liðamótum þar sem rifbeinin
tengjast hryggnum, við þursabit
eða brjósklos í brjóst- eða háls-
hrygg. Öndun er af tvennum toga,
kviðöndun sem stjórnast af þind-
inni og brjóstöndun sem stjórnast
af millirifjavöðvum. Við millirifja-
gigt getur brjóstöndun orðið svo
sársaukafull að viðkomandi grípur
til kviðöndunar eingöngu. Hægt er
að villast á millirifjagigt og ýmsum
öðrum verkjum og má þar nefna
hjartaöng vegna kransæða-
sjúkdóms, vélindabakflæði eða
aðra sjúkdóma í vélinda, goll-
urshúsbólgu og brjósthimnubólgu.
Mikilvægt er að fá rétta sjúkdóms-
greiningu til að hægt sé að beita
viðeigandi meðferð. Eins og áður
segir er festumein algengasta
ástæðan fyrir millirifjagigt en um
sömu eða náskyld fyrirbæri hafa
verið notuð heitin vöðvabólga,
vöðvagigt og upp á síðkastið er al-
gengast að kalla þetta vefjagigt.
Vefjagigt (fibromyalgia) er ná-
skyld síþreytu (chronic fatigue
syndrome) og oft er erfitt að
greina þar á milli. Um orsakir
vefjagigtar og síþreytu er lítið vit-
að, stundum kemur þetta í kjölfar
veikinda eins og veirusýkinga,
stundum eru til staðar langvarandi
truflanir á svefni og stundum byrj-
ar þetta eftir slys. Sumir telja að
vefjagigt og síþreyta séu bandvefs-
sjúkdómar en aðrir að þetta sé af
sálrænum toga. Þegar búið er að
útiloka aðra sjúkdóma er fyrsta
skrefið í meðferð að fræða sjúk-
linginn um sjúkdóminn, útskýra að
ekki sé um hættulegan eða illkynja
sjúkdóm að ræða, að þetta sé ekki
tóm ímyndun og að margir aðrir
séu haldnir þessum kvilla. Með-
ferðin er einstaklingsbundin og
oftast þarf að prófa sig áfram til
að finna það sem hentar hverjum
og einum. Stundum þarf að taka á
atriðum í lífi sjúklingsins eins og
reykingum, óhóflegri áfengis-
neyslu, slæmum matarvenjum,
miklu vinnuálagi og slæmum
svefnvenjum. Þeim sem reykja
getur batnað mikið við að hætta.
Verkjalyf gagnast venjulega lítið
en þunglyndislyf og jafnvel svefn-
lyf í stuttan tíma gera stundum
verulegt gagn. Slökun er alltaf til
góðs og nudd og hitameðferð geta
oft gert gagn. Lykilatriði í með-
ferð sjúklinga með vefjagigt og sí-
þreytu er hæfileg líkamsþjálfun
með það að markmiði að auka lík-
amlegt þrek. Mikilvægt er að fara
sér ekki of geyst því að þá getur
ástandið versnað. Gott er að byrja
með sundi, léttum gönguferðum
eða leikfimi og teygjuæfingum.
Þetta þarf svo að auka hægt og ró-
lega eins og hentar hverjum og
einum. Rannsóknir hafa sýnt ótví-
rætt gagn af líkamsþjálfun hjá
sjúklingum með vefjagigt eða sí-
þreytu. Langtímahorfur eru yfir-
leitt góðar og flestir geta losnað
við óþægindin að miklu eða öllu
leyti ef þeir fá viðeigandi meðferð.
Hvað er millirifjagigt?
Magnús Jóhannsson læknir svarar spurningum lesenda
Brjóstöndun
getur orðið
sársaukafull
Lesendur Morgunblaðsins geta spurt lækn-
inn um það sem þeim liggur á hjarta. Tekið
er á móti spurningum á virkum dögum milli
klukkan 10 og 17 í síma 5691100 og bréfum
eða símbréfum merkt: Vikulok. Fax 5691222.
Einnig geta lesendur sent fyrirspurnir sínar
með tölvupósti á netfang Magnúsar Jóhanns-
sonar: elmag@hotmail.com.
Fermingargjafir
Skarthúsið, s. 562 2466, Laugavegi 12
Nýr listi
www.freemans.is
Mörkinni 3, sími 588 0640.
Opið mán-fös kl.11-18 - lau kl. 11-15
Brúðkaupsgjafir
Br
úð
ar
gj
af
al
is
ta
r
Fermingarskartgripir
Skarthúsið, s. 562 2466, Laugavegi 12
Moggabúðin
Músarmotta, aðeins 450 kr.
mbl.is
VIÐSKIPTI
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
KR
I
20
83
7
0
4/
20
03
Kringlan er…
…fjölbreyttari
Afgreiðslutími
verslana:
Mánudag til
miðvikudags
10.00 til 18.30
Fimmtudag
10.00 til 21.00
Föstudag
10.00 til 19.00
Laugardag
10.00 til 18.00
Sunnudag
13.00 til 17.00
Veitingastaðir
og Kringlubíó eru
með opið lengur á
kvöldin.
Kringlan er yfir 150 verslanir,
veitingastaðir og þjónustuaðilar.
Hverri verslunarmiðstöð er nauðsyn að geta boðið fjölbreytt úrval í
vöru og þjónustu. Með tilkomu nike - konur og börn, sem staðsett
er á 2. hæð í suðurhluta Kringlunnar, er enn aukið á fjölbreytnina í
Kringlunni. nike - konur og börn selur fyrsta flokks íþróttafatnað.
Við bjóðum nike - konur og börn, hjartanlega velkomna.