Morgunblaðið - 12.04.2003, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 12.04.2003, Qupperneq 45
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2003 45 ÞAÐ hefur margt færst til betri vegar í samgöngumálum á minni stuttu ævi. Í því sambandi má t.d. nefna göngin til Ólafsfjarðar, sem sjálfstæðismenn börðust fyrir, Vest- fjarðagöngin sem Halldór Blöndal opnaði, lagningu bundins slitlags á hringveginn milli Akureyrar og Reykjavíkur og síðast en ekki síst Hvalfjarðargöngin. Einnig hefur grettistaki verið lyft með fækkun einbreiðra brúa sem aukið hefur ör- yggi vegakerfisins. Nú hefur verið unnið um skeið að háleitum mark- miðum vegaáætlunar og miðar þeirri vinnu vel. Samgöngur milli Austfjarða og Mið-Norðurlands hafa stórbatnað með auknum vega- bótum og ljóst að allir þeir þéttbýlis- kjarnar, þar sem 200 manns eða fleiri búa, verða árið 2014 tengdir með bundnu slitlagi við Hringveg- inn. Þegar þar að kemur verður af nógu að taka í frekari samgöngu- bótum. Það er augljóst að vegur sá sem nú liggur milli Mið-Norður- lands og Reykjavíkur mun ekki þola til langframa þá umferð sem um veginn fer. Endurgerð áðurnefnds vegar mun kosta óheyrilega mikla fjármuni og hljóta menn þess vegna að leita ann- arra hagkvæmra leiða til að liðka fyrir sívaxandi umferð. Fram hefur komið framúrstefnuleg hugmynd Halldórs Blöndals um veg yfir Stórasand, að loknum göngum undir Vaðlaheiði sem koma í kjölfar ganga til Siglufjarðar, sem menn ættu að gefa betri gaum og dæma ekki úr leik að óhugsuðu máli. Því ekki er rétt að láta málstaðinn gjalda máls- hefjandans, sé mönnum eitthvað í nöp við hann. Vegur yfir Stórasand er upplagt framhald af vegi, sem nú þegar er inni á vegaáætlun, um Kaldadal. Vegur um Stórasand gæti leyst áætlaðan veg um Kjöl af hólmi. Þar sem fyrirsjáanleg stytting milli tveggja áðurgreindra landshluta er meiri og hagkvæmari vegna vegar um Stórasand en um Kjöl. Akstur milli Akureyrar og Reykjavíkur eftir vegi um Stóra- sand og Kaldadal tæki um þrjá og hálfan tíma (307 km), sú leið er 82 km styttri en núverandi hringvegur. Þessi vegagerð myndi nýtast Skag- firðingum, t.a.m. yrði leiðin frá Sauðárkróki til Reykjavíkur 19 km styttri um Stórasand en eftir Hring- veginum. Með Vaðlaheiðargöngun- um yrði vegurinn um Akureyri milli Reykjavíkur og allra þeirra staða sem eru fyrir austan Vaðlaheiði 97 km styttri en hann er í dag. Nú standa jarðgöng milli Fáskrúðs- fjarðar og Reyðarfjarðar fyrir dyr- um og má þá nefna að með göngum undir Vaðlaheiði, hefðu Fáskrúðs- firðingar um skemmri veg að fara til Reykjavíkur um Norðurland (608 km) en um Suðurland (662 km). Þannig væru 636 km frá Stöðvarfirði til Reykjavíkur um Akureyri en það eru 634 km í dag frá Stöðvarfirði til Reykjavíkur um Suðurland. Verði vegurinn um Kaldadal ófær að vetri til má fara af Arnarvatnsheiðinni of- an í Borgarfjörð, þannig yrði leiðin milli Akureyrar og Reykjavíkur um 14% styttri (55 km) en leiðin eftir núverandi vegarstæði. Hugmyndum þeim sem hafa kom- ið fram um styttingu á Hringveg- inum, um Svínvetningabraut og í Skagafirði (samtals um 19 km og kosta um 1,4 milljarða króna) má líkja við skammtímalausnir þar sem í slíkum hugmyndum um styttingu felast engar lausnir sem leitt geta til aukins burðarþols hringvegarins og með þeim er meginvandinn enn óleystur. Vegur í framhaldi af vegi um Kaldadal um Stórasand, sunnan Blöndulóns og niður Gilhagadal er um 112 km langur. Slík vegagerð myndi kosta um 3,7 milljarða króna, með þessum vegi væri heildarstytt- ing leiðarinnar millum Akureyrar og Reykjavíkur um 82 km. Næstu skref sem tekin verða í samgöngumálum, að uppfylltum markmiðum núverandi vegaáætlun- ar og í kjölfar jarðganga undir Vaðlaheiði, hljóta að tengjast ákvörðun og uppbyggingu vegar yfir Stórasand. Næstu skref Eftir Arnljót Bjarka Bergsson „Vegur um Stórasand gæti leyst áætlaðan veg um Kjöl af hólmi.“ Höfundur er í 17. sæti á lista Sjálf- stæðisflokksins í Norðaustur- kjördæmi. Laugavegi 87 Sími 511 2004 www.dunogfidur.is Mörkinni 3, sími 588 0640. Opið mán-fös kl.11-18 - lau kl. 11-15 Brúðkaupsgjafir Br úð ar gj af al is ta r
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.