Morgunblaðið - 12.04.2003, Page 47
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2003 47
ÞJÓÐIN hefur eignast nýjan rík-
isfjölmiðil. Þetta er frétta- og upplýs-
ingavefur sem heitir star.is og er rek-
inn af iðnaðarráðuneyti, Lands-
virkjun og fleiri aðilum sem mynda
STAR, opinbera undirbúningsnefnd
fyrir virkjun og álver fyrir austan. Ef
menn opna star.is og velja „allar frétt-
ir“ kemur í ljós að hann lýtur ein-
kennilegum lögmálum. Hér er dæmi:
„Andstæðingar Kárahnjúkavirkjunar
beita lygum og ósannindum“. Undir
fyrirsögninni er birt opið bréf sem á
að „vekja athygli á þeirri lygaþvælu
sem spunnin er gegn virkjuninni við
Kárahnjúka“. Guðmundur Páll Ólafs-
son náttúrufræðingur er sakaður um
„lygar“ þegar hann bendir á tengsl
Kárahnjúkavirkjunar við mögulega
virkjun Jökulsár á Fjöllum. Lygar
Guðmundar Páls eru sagðar „hlið-
stæðar lygar og Kolbrún Halldórs-
dóttir alþingismaður hafði uppi í
Kastljósi þegar hún talaði um lón-
stæðið sem eldvirkt svæði“. Lygi er
meiðandi orð og yfirleitt ætla menn
fólki mismæli eða misskilning í opin-
berri umræðu en hér er því ekki að
heilsa. Star.is hafði áður fjallað um
Guðmund Pál og námskeið hans um
náttúrufar norðan Vatnajökuls með
orðunum: „Endurmenntunarstofnun
HÍ í áróðursstríði gegn Kárahnjúka-
virkjun!“ Með námskeiði Guðmundar
er Háskólinn sagður hafa „lagt sitt af
mörkum í áróðri gegn Kára-
hnjúkavirkjun“. Þar er á ferðinni gróf
atlaga opinberra aðila að málfrelsi,
starfsheiðri og lífsafkomu fræði-
manns og rithöfundar. Star.is hefur
að engu þær reglur sem gilda um rík-
isfjölmiðla sem samkvæmt lögum
skulu halda í heiðri lýðræðislegar
grundvallarreglur og mannréttindi
og frelsi til orðs og skoðana. STAR
getur eflaust komið í veg fyrir svona
„áróður“ í framtíðinni með því að
verða „bakhjarl“ Háskólans. Afhend-
ing íslensku tónlistarverðlaunanna
varð ýmsum vettvangur til að tjá and-
stöðu sína við fyrirhuguð virkjunar-
áform. Það verður star.is langsótt til-
efni niðrandi orða um Ögmund
Jónasson(!) sem kom hvergi nærri at-
höfninni: „Hugsið ykkur andköfin í
Ögmundi með tilheyrandi upphlaupi í
ræðustól Alþingis utan dagskrár!“
Enginn er skrifaður fyrir þessum um-
mælum, ekki heldur fyrirsögninni:
„Vinstri-græn örvænting í þingsölum.
– Vinstri-grænir á Alþingi fóru illa út
úr útvarps- og sjónvarpsumræðunni
um þá tillögu sína að bera framtíð há-
lendisins norðan Vatnajökuls undir
þjóðaratkvæði.“ Má fjölmiðill iðnað-
ANDSTÆÐINGAR
KÁRAHNJÚKA-
VIRKJUNAR
BEITA LYGUM OG
ÓSANNINDUM
Eftir Andra Snæ
Magnason
„Menn
hljóta að
spyrja hverj-
ir skrifa
þennan
nafnlausa áróður, hvað
hann hefur kostað þjóð-
ina og hvaða stjórn-
málamenn bera ábyrgð
á þessari hræðilegu
þróun.“
SJÁ SÍÐU 48
ÉG hefi lengi alið þann draum
með mér, að jafnaðarmenn á Íslandi
gætu sameinast í einum sterkum
flokki eins og á hinum Norðurlönd-
unum. Klofningur jafnaðarmanna á
Íslandi hefur komið í veg fyrir að
jafnaðarmenn hér hefðu jafnmikil
áhrif og þeir hafa í Vestur-Evrópu.
Nú hillir undir það, að þessi draum-
ur sé að rætast. Skoðanakannanir
síðustu mánuði hafa sýnt, að Sam-
fylkingin getur fengið mikið fylgi í
næstu þingkosningum. Ef það
gengur eftir hefur myndast hér stór
og sterkur jafnaðarmannaflokkur
eins og á hinum Norðurlöndunum.
Ljóst er að ef Vinstri grænir hefðu
borið gæfu til þess að taka þátt í
sameiningu jafnaðarmanna hefði
hér myndast 40–45 % flokkur.
Tilkoma Samfylkingarinnar og
mikill stuðningur við hana ger-
breytir hinu pólitíska landslagi. Áð-
ur hefur Sjálfstæðisflokkurinn einn
haft sérstöðu og alltaf getað valið
sér samstarfsflokka og oftast ráðið
mestu um myndun ríkisstjórnar.
Nú mun Samfylkingin væntanlega
geta myndað ríkisstjórn og valið sér
samstarfsaðila. Framsókn hefur
getað leikið þann leik í stjórnar-
myndunum að halla sér ýmist til
hægri eða vinstri eftir hentugleik-
um og hefur jafnvel getað fengið
stól forsætisráðherra eftir mikinn
kosningaósigur eins og gerðist t.d.
1978. Ljóst er, að Framsókn hefur
ætlað að leika þennan leik á ný nú,
þar eð flokksþing Framsóknar sam-
þykkti að sækjast eftir forsætisráð-
herranum í næstu ríkisstjórn! Sú
ráðagerð heppnast ekki.Samfylk-
ingin býður sjálf fram forsætisráð-
herraefni, Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur.
Í undanförnum alþingiskosning-
um hafa talsmenn Framsóknar-
flokksins sagt kjósendum, að þeir
gætu treyst flokknum, hann væri
áreiðanlegur og traustur flokkur.
Framsókn væri kletturinn í hafinu.
En hver er reynslan í þeim efnum?
Hefur Framsókn staðið við kosn-
ingaloforð sín? Hefur flokkurinn
reynst stefnu sinni um samhjálp og
félagshyggju trúr? Lítum aðeins á
staðreyndir málsins.
Í síðustu alþingiskosningum lof-
aði Framsóknarflokkurinn barna-
kortum, sem áttu að tryggja hverju
einasta barni 30 þús. kr. barnabæt-
ur á ári (verðlag 1999).Barnakortin
komu aldrei. Og barnabætur hafa
lækkað mikið en ekki hækkað. Í síð-
ustu kosningum lofaði Framsókn
skattalækkun. En skattar almenn-
ings, tekjuskattar einstaklinga, hafa
hækkað þegar tekið er tillit til
skattleysismarka, sem ekki hafa
fylgt launaþróun. Félag eldri borg-
ara hefur sýnt fram á það með töl-
um, að skattar aldraðra og lág-
tekjufólks hafa hækkað í tíð
núverandi ríkisstjórnar. Lífeyrir
aldraðra og öryrkja hefur rýrnað í
samanburði við almenna launaþró-
un í landinu þrátt fyrir loforð
Framsóknar og ríkisstjórnarinnar
um að tryggja kjör þessara hópa.
Smánarbætur aldraðra og öryrkja
eru skattlagðar. Félagslega hús-
næðiskerfið hefur verið lagt í rúst:
Verkamannabústaðir og aðrar fé-
lagslegar íbúðir lagðar niður. Hinu
rangláta kvótakerfi, sem gerir þá
ríku ríkari og fátæku fátækari, hef-
ur verið viðhaldið. Kvótakóngar fá
óáreittir að selja kvóta sína og fara
út úr greininni með milljarðagróða.
Og þannig mætti áfram telja.
Framsóknarflokkurinn hefur ekki
staðið við kosningaloforð sín frá síð-
ustu alþingiskosningum. Framsókn
hefur heldur ekki reynst trú stefnu
sinni um samhjálp og félagshyggju.
Framsókn hefur lagt meiri áherslu
á að halda völdum, vera í stjórn
með Sjálfstæðisflokknum og
tryggja Framsóknarmönnum emb-
ætti en að framkvæma stefnu sam-
hjálpar og félagshyggju.
Framsóknarflokkurinn er því
ekki flokkur trausts og áreiðan-
leika. Hann er flokkur svikinna
kosningaloforða. Hann er flokkur,
sem hefur svikið upphaflega stefnu
sína um samhjálp og félagshyggju.
Það er ekki unnt að treysta slíkum
flokki. Gegnum árin hefur Fram-
sókn einnig reynst alger henti-
stefnuflokkur.
Framkoma forustu Framsóknar-
flokksins við Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur í Reykjavík afhjúpaði
Framsókn sem flokk valdníðslu og
kúgunar. Það átti að kúga Ingi-
björgu Sólrúnu til þess að hætta við
framboð til varaþingsætis í Reykja-
vík vegna þess að formaður flokks-
ins ætlaði að bjóða sig fram í
Reykjavík. Ingibjörgu Sólrúnu voru
settir afarkostir, þröngir tímafrestir
þegar tími var nægur og þannig átti
að kúga hana og brjóta niður. En
hún lét ekki kúga sig. Hún taldi það
mannréttindi að mega bjóða sig
fram til Alþingis en hún var
reiðubúinn til þess að gegna emb-
ætti borgarstjóra út kjörtímabilið
og því bauð hún sig aðeins fram í
varasæti. Framsókn, undir forustu
Halldórs Ásgrímssonar, krafðist
þess, að Ingibjörg Sólrún hætti við
framboðið. Ingibjörg Sólrún lét
ekki kúga sig til þess en kaus held-
ur að standa upp úr stól borgar-
stjóra. Með því sýndi hún mikið
hugrekki. Reykvíkingar geta „þakk-
að“ Framsóknarflokknum bola-
brögðin gegn Ingibjörgu Sólrúnu í
kosningunum 10. maí n.k. Reykvík-
ingar geta gert varamannssætið að
aðalsæti. Þeir geta gert Ingibjörgu
Sólrúnu að þingmanni Reykvíkinga.
Sameining jafnaðar-
manna að veruleika?
Eftir Björgvin
Guðmundsson
„Tilkoma
Samfylking-
arinnar ger-
breytir hinu
pólitíska
landslagi.“
Höfundur er fv. borgarfulltrúi
Alþýðuflokksins.
! !
" !
$% &%
' ( % )% &
& Steypusögun
Vegg- og gólfsögun
Múrbrot
Vikursögun
Malbiksögun
Kjarnaborun
Loftræsti- og lagnagöt
Hreinlæti og snyrtimennska
í umgengni
BT-SÖGUN
Sími 567 7544 • Gsm 892 7544
SKOÐUN