Morgunblaðið - 12.04.2003, Side 65

Morgunblaðið - 12.04.2003, Side 65
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2003 65 ● MIKE A. Ambrose, fram- kvæmdastjóri Evrópusambands flugfélaga, segir að yfirstjórn Evr- ópusambandsins hafi í fyrsta sinn í síðusta mánuði haft samband við sig til að kanna hvað stjórnvöld geti hugsanlega gert til að koma til að- stoðar flugfélögum ef kæmi til stríðs milli Bandaríkjamanna og Íraks. Segir hann það fagnaðarefni að ríkisstjórnir telji það skyldu sína að styðja við flugfélög á erf- iðleikatímum. Framkvæmdastjórinn kvaðst hafa fengið þessa spurningu formlega frá ESB í síðustu viku og sagðist hafa bent á nokkur atriði sem stjórnvöld gætu haft í huga í þess- um efnum. Í fyrsta lagi að þau yrðu flugfélögum bakhjarl ef trygginga- félög felldu niður stríðstryggingar sem hafa verið í gildi, að ekki verði gefnar út nýjar og íþyngjandi reglur sem hefðu kostnað í för með sér fyrir félögin og að ríkisstjórnir tækju þátt í kostnaði við hugsanlegar nýj- ar aðgerðir til að fyrirbyggja hryðju- verkastarfsemi. Í ávarpi sínu á ráðstefnunni gerði Mike A. Ambrose einnig að umtals- efni hugmyndir um refsilaust um- hverfi þegar flugslysarannsóknir eru annars vegar, þ.e. refsilaust svo framarlega sem sýnt þyki að menn hafi ekki viljandi framið einhver brot. Er þetta gert í því skyni að fá fram sem mestar upplýsingar um slys og atvik verði mönnum ekki refsað með því að slíkar upplýs- ingar yrðu hugsanlega notaðar í málaferlum. Sagði hann ESB hafa sett fram tillögur um slíkt refsilaust umhverfi en síðan fallið frá þeim sem hann sagði miður. Hrósaði hann Danmörku fyrir að hafa lögfest hjá sér refsilaust umhverfi að þessu leyti og sagði mikilvægt að vinna að því að fá ESB til að sam- þykkja einnig tillögur þess efnis. Vill refsilaust umhverfi ● EINS og lesendur eflaust þekkja ber flugmönnum að hætta störfum við 60 til 65 ára aldur eft- ir því í hvaða landi þeir starfa. Það er langt frá því að starfsgeta þeirra sé þar með búin og þeir búa yfir mikilli reynslu og þekkingu sem fleiri ættu að geta fengið að- gang að. Á ráðstefnunni á dög- unum kom berlega í ljós að nokkrir fyrirlesaranna eru flugmenn á eft- irlaunum sem hafa tekið upp ýmis verkefni á sviði flugöryggis og ráð- gjafar. Varla þurfa flugmenn að halda áfram störfum launanna vegna en eftir áratuga starf við flug á ýms- um tegundum véla, í ýmsum lönd- um, við ólíkar aðstæður og í fagi þar sem gífurleg tækniþróun hefur orðið er ljóst að slíkir starfsmenn eiga mikið í reynslubankanum. Vilja þeir gjarnan að aðrir njóti vaxtanna úr slíkum banka. Hérlendis tíðkast gjarnan að ungir flugmenn hefji starfsferil sinn á því að kenna flug. Ekkert er við það að athuga og sá sem er ferskur úr námi veit vel hvaða at- riði á að leggja áherslu á við flug- nemann. Ekkert væri því hins veg- ar til fyrirstöðu að flugmaður á eftirlaunum kæmi við sögu í flug- kennslu. Íslenskir flugmenn hafa yfirleitt byrjað starfsferil sinn í inn- anlandsflugi í einhverjum mæli og síðan stundað þotuflug milli landa. Geta þeir því bæði bent á ýmsa pytti sem flugnemar ættu að var- ast varðandi veðurfar, flugleiðir yfir landinu og meðhöndlun á vél sinni. Þetta gerist helst í dag á hinum reglulegu flugöryggis- fundum. Svona nokkuð strandar hins veg- ar trúlega mest á kjara- og að- stöðumálum. Flugskólar hafa varla burði til að ráða reynda menn sem notið hafa þokkalegra kjara sem ráðgjafa. Mætti hugsa sér að yf- irvöld gætu með einhverjum hætti komið hér við sögu og komið á ný- skipan í þessum efnum. Margir ráðgjafar EFNT verður til viðamikillar skemmtidagskrár í reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkróki um páskana, nánar tiltekið laugardags- kvöldið 19. apríl kl. 21. Þar koma fram Karlakórinn Heimir, Jóhann- es Kristjánsson eftirherma, Óskar Pétursson frá Álftagerði, Djákninn frá Myrká, söngelsk grunn- skólabörn úr Skagafirði, hesta- menn og fleiri. Páll Dagbjartsson, skólastjóri og formaður Karlakórsins Heimis, segir að á dagskrá skemmtikvölds- ins verði blanda af söng, hestasýn- ingum og gamanmálum þar sem áhersla verði lögð á að höfða til allrar fjölskyldunnar. „Hér í Skagafirði ákváðum við á síðasta ári að reyna að setja upp dagskrá í héraði sem samanstæði af mismunandi viðfangsefnum þannig að þeir sem hygðu til ferðalaga um páskana gætu fundið eitthvað við sitt hæfi, ekki síður hér en á öðrum stöðum á landsbyggðinni. Hug- myndin er að þetta verði árlegur viðburður,“ segir Páll en þar sem snjóinn vantar í hlíðar Tindastóls telur hann að skíðaáhugafólk verði að huga að öðrum viðfangsefnum að þessu sinni, m.a. þeim að njóta flutnings á menningar- og skemmtiefni. Að sögn Páls hefur það komið í ljós að reiðhöllin Svaðastaðir er hið ágætasta sönghús og sameinar því mjög vel helstu einkennin sem Skagfirðingar eru hvað þekktastir fyrir, þ.e. hesta og söng. Óskar frá Álftagerði verður kynnir kvöldsins, auk þess að syngja með Heim- ismönnum og einn síns liðs. Páll segir að kórinn muni flytja lög um hesta, menn, ástir og vín og allt þar á milli og Jóhannes eftirherma muni bregða sér í gervi allra helstu fyrirmenna þjóðarinnar. „Við von- umst til þess að þessi nýbreytni í menningarlífi Skagfirðinga falli öll- um vel í geð, gestum sem heima- mönnum,“ segir Páll en byrjað verður á að selja aðgöngumiða í Svaðastöðum frá kl. 15 á laug- ardaginn. Skagfirsk reið- og söng- skemmtun um páskana Karlakórinn Heimir flytur lög um hesta, konur og vín og allt þar á milli á skemmtikvöldinu á Sauðárkróki um páskana. Morgunblaðið/Kristján Óskar Pétursson frá Álftagerði verður kynnir kvöldsins og tekur einnig lagið. Göngugarpar ÍT-ferða munu ganga á Trölladyngju, á morgun, sunnu- daginn 13. apríl. Mæting er kl. 10.30 við Hafnarfjarðarkirkjugarð. Á MORGUN Málþing um langvarandi verki verður haldið þriðjudaginn 29. apríl nk. í Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði. Á málþinginu greinir fagfólk Heilsustofnunar frá rann- sóknum og aðferðum, sem notaðar eru í Heilsustofnun, til að lina verki og auka lífsgæði. Dagskrá málþings um langvarandi verki er að finna á heimasíðu www.hnlfi.is og er skráning hafin í síma og heilsu@hnlfi.is Röndóttir páskar í Hvalfirði er heitið á páskatilboði Hótels Glyms í Hvalfirði og hefst það fimmtu- daginn 17. apríl. Boðið verður uppá sælkeramatseðil, skipulagðar gönguferðir, söng, sagnir, nudd, heita potta o.fl. Gisting fyrir tvo í eina nótt, með morgunverði og kvöldverði kr.16.900, í tvær nætur 27.900 og í þrjár nætur 37.900. Stutt er í níu holu golfvöll og í ná- grenninu eru tvær sundlaugar. Á NÆSTUNNI Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík standa fyrir ýmsum viðburðum í dag, laugardaginn 12. apríl. Í Öskjuhlíðinni fer fram páska- eggjaleit kl. 13, á vegum sjálfstæð- isfélaganna í Nes- og Melahverfi og Hlíða- og Holtahverfi. Leitin hefst við Perluna þar sem Skóla- lúðrasveit Seltjarnarness leikur. Einnig verður andlitsmálning og leiktæki o.fl. Í Laugardalnum, við gömlu þvotta- laugarnar norður af Skautahöllinni, verður einnig páskaeggjaleit með svipuðu sniði og hefst hún kl. 15. Á sama tíma verður opnuð kosn- ingaskrifstofa ungs fólks í Austur- stræti (gamla Hressó) en þar opna einnig sjálfstæðisfélögin í Aust- urbæ – Norðurmýri og Vestur- og Miðbæ sínar kosningaskrifstofur. Boðið verður uppá veitingar og ýmis skemmtiatriði, m.a. munu Selma og Hansa skemmta gestum. Fjögur sjálfstæðisfélög opna sam- eiginlega kosningaskrifstofu í Glæsibæ kl. 16, þau eru sjálfstæð- isfélögin í Laugarnesi, Langholti, Háaleiti og Smáíbúða-, Fossvogs- og Bústaðahverfi. Flutt verða tón- listaratriði, kaffiveitingar, ávörp og leiktæki fyrir börnin. Gönguferðir á vegum Vinstri- grænna í Reykjavík og nágrenni hafa verið skipulagðar á næstu sunnudögum fram að kosningum. Á morgun, sunnudaginn 12. apríl, verður leikinn ratleikur við Elliða- vatn. Mæting er við Selásskóla kl. 14. Eftir gönguna verður hægt að fá léttar kaffiveitingar. Formenn stjórnmálaflokkanna í heimsókn í Fíladelfíu Formenn og fulltrúar stjórnmálaflokkanna heimsækja Hvítasunnukirkjuna Fíladelfíu á morgun, sunnudaginn 13. apríl, og sitja fyrir svörum á samkomu í Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu að Hátúni 2 í Reykjavík. Samkoman hefst kl. 16.30 þar sem gospelkór Fíladelfíu leiðir sönginn. Prestur safnaðarins, Vörður Leví Traustason, enda samkomuna með stuttri hugleiðingu. Þetta er í fyrsta sinn sem Hvítasunnukirkjan Fíladelfía býður til stjórnmála- fundar á opinberri samkomu. Allir velkomnir. Samkomunni verður út- varpað á Lindinni fm 102,9 á höf- uðborgarsvæðinu, Ísafirði og Höfn, fm 88,9 á Suðurlandi og fm 103,2 á Akureyri, 106,5 á Siglufirði og Ólafsfirði, 104,5 á Húsavík. Almennur fundur í Alþýðuhúsinu í Hafnarfirði verður haldinn mánudaginn 14. apríl kl. 20, á veg- um Samfylkingarinnar í Hafn- arfirði. Guðmundur Árni, Rann- veig, Þórunn og Katrín, fjórir efstu menn Samfylkingarinnar í Suð- vesturkjördæmi, sitja fyrir svörum. Lúðvík Geirsson bæjarstjóri stjórnar umræðum. STJÓRNMÁL ANTIKSALAN ehf., er ný antik- verslun sem verður opnuð um helgina í Skúlatúni 6, í Reykjavík. Eigendur verslunarinnar eru hjónin Ragnar Bernburg og Berta Kristinsdóttir. Verslunin leggur áherslu á antikhúsgögn frá Frakklandi og víðar frá 19. öld. M.a: útskorna bókaskápa, borð- stofuhúsgögn, stóla, klukkur, kertastjaka, og silfurmuni. Í tilefni opnunarinnar verður opið í dag, laugardaginn 12., og á morgun, sunnudaginn 13. apríl, kl. 12–17 báða dagana, en verslunin verður opin alla virka daga kl. 10–17, segir í fréttatilkynningu. Antiksalan – ný verslun MÓTORHJÓLASÝNING verður hjá Bernhard hf., Vatnagörðum 24, um helgina. Kynntar verða 2003 árgerð- irnar af götu- og torfæruhjól- um ásamt fjórhjólum og fleiru. Þarna verða öll torfæruhjól sem Honda framleiðir um þessar mundir, eins og mot- orcrosshjólin CR85, CR125, CR250 og fjórgengishjólið CRF450. Endúróhjólin eru til í mörgum stærðum, m.a. XR50 sem hentar 6 ára börn- um. XR100 er fyrir unglinginn og XR250, XR400 og XR650 fyrir fullorðna. Götuhjólin eru líka nokkur á sýningunni, eins og t.d. Superblackbird, Shad- ow og svo ofurvespan Silver- wing. Keppnislið Honda verða kynnt og liðsmenn þess verða á staðnum til að gefa góð ráð. Nýjustu motocross myndirnar verða sýndar á breiðtjaldi, segir í fréttatilkynningu. Honda-umboðið, Bernhard hf., býður alla velkomna á laugardag og sunnudag og er opið 12–16 báða dagana. Mótor- hjóla- sýning hjá Bern- hard hf. EFTIRFARANDI yfirlýsing hefur borist frá SVÞ – Samtökum versl- unar og þjónustu: „SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu mótmæla ætlun landbún- aðarráðherra að festa í sessi opin- bera verðstýringu á landbúnaðar- vörum. Einnig ásökunum sem felast í orðum hans um að smásöluversl- unin hafi náð tökum á kjötmarkaði og dreymi um að ná svipuðum tök- um á mjólkurvörumarkaði. Landbúnaðarráðherra ítrekaði kröftuglega þá skoðun sína á aðal- fundi Landssambands kúabænda að frjáls verðlagning ógni mjólkuriðn- aðinum og vill að samningur um op- inbera verðákvörðun á heildsölu- verði mjólkurvara verði fram- lengdur til 7–10 ára. Þessi yfirlýsing gengur þvert á álit samkeppnisráðs sem beindi þeim tilmælum til land- búnaðarráðherra í október 2002 að heildsöluverðlagning á búvöru verði gefið frjálst eins fljótt og auðið er og eigi síðar en 30. júní 2004. Í áliti samkeppnisráðs (álit sam- keppnissráðs) kemur fram að opin- ber verðálagning stangist á við sam- keppnislög en þar sem sérákvæði búvörulaga ganga framar sam- keppnislögum getur ráðið ekki að- hafst að öðru leyti en að beina þess- um tilmælum til landbúnaðarráð- herra. Í niðurstöðum álitsgerðar samkeppnisráðs segir einnig að virkri samkeppni stafi veruleg hætta af samráði afurðastöðva í mjólkuriðnaði sem felist í verðtil- færslu og samningum um verka- skiptingu afurðastöðva í mjólkuriðn- aði. Ástæða þess að samkeppnisráð ályktaði í málinu var beiðni SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu um að skorið væri úr um hvort opinber verðákvörðun á landbúnaðarafurð- um stæðust samkeppnislög. Yfirlýsingar landbúnaðarráðherra um að viðhalda áframhaldandi op- inberum stuðningi við landbúnaðinn eru ótrúlegar í ljósi álits nýlegrar skýrslu OECD um helmingi meiri framleiðslustyrki í landbúnaði hér á landi en að meðaltali í öðrum ríkjum sem eiga aðild að stofnuninni. Ráð- herrann sagði á fundi kúabænda að íslensk stjórnvöld hafi mótmælt til- lögum alþjóðaviðskiptastofnunar- innar WTO um minni afskipti rík- isins af landbúnaði. Því verður vart trúað að stjórnvöld ætli sér að festa í sessi opinbera verðstýringu á land- búnaðarvörum og hindra frjáls við- skipti sem hvarvetna hafa leitt til lægra matarverðs. Vandamál landbúnaðarins eru ekki runnin undan rifjum smásölu- verslunarinnar og er slíkum ásök- unum vísað til föðurhúsanna.“ Mótmæla opinberri verðstýringu á land- búnaðarvörum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.