Morgunblaðið - 12.04.2003, Side 66
66 LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
VILTU læra meira? Skortir þig
kjark?Viltu efla sjálfan þig? Í dag 12.
apríl er alþjóðlegur dagur ITC (Int-
ernational Train-
ing in Commun-
ication). ITC er
alþjóðlegur fé-
lagsskapur karla
og kvenna á öllum
aldri og er óháður
litarhætti, trúar-
brögðum, stjórn-
málaskoðunum
eða búsetu. Á Ís-
landi eru í dag
starfandi 10 deildir og eru reyndar
flestar hér á höfuðborgarsvæðinu .
Ein deild er starfrækt á Norðurlandi
og fyrir austan fjall eru starfandi 2
deildir. Markmið ITC er að stuðla að
auknum sjálfsþroska einstakling-
anna og auka hæfni þeirra í fé-
lagslegum samskiptum og hópvinnu,
með námi sem byggt er upp á þjálfun
og æfingum á deildarfundum.
Í ITC er fólk úr öllum stéttum
þjóðfélagsins, á öllum aldri, mismun-
andi langt komið með nám og allir
stefna að sama markmiði en með
mismunandi áherslum. Hjá ITC geta
allir ráðið sínum hraða í náminu og
hver einstaklingur getur óskað eftir
hvað hann vill leggja mesta rækt við
af námsefninu. Það er langtíma-
markmið að ná sem bestu sjálfsör-
yggi og sjálfstrausti því það er hlut-
ur sem gerist ekki allt í einu.
Fundir eru haldnir tvisvar í mán-
uði yfir veturinn og eru um leið
kennsla í fundarstjórn, fundarsköp-
um og framkomu í ræðustól sem gef-
ur aukið sjálfstraust og hæfni til að
geta tjáð sig með frjálslegri og vin-
samlegri framkomu. Hjá ITC hafa
margir þekktir einstaklingar í ís-
lensku þjóðlífi stigið sín fyrstu skref
í ræðustólnum, til dæmis þingmenn
og ýmsir kunnir athafnamenn. Árið
2002 var Vigdís Finnbogadóttir kos-
in af ITC,samskiptajöfur ársins en
hennar athafnir og fallegu fram-
komu þarf ekki að kynna fyrir Ís-
lendingum.
Það er oftast þráin til að öðlast
sjálfþroska og efla sjálfan sig í
mannlegum samskiptum sem hvetur
fólk til að vinna með ITC. Vera í ITC
stuðlar að batnandi heimi og aukinni
góðvild meðal mannkyns. Það eru
allir velkomnir á fundi hjá ITC án
nokkurra skuldbindinga. Margir
hafa ákveðið að ganga til liðs við
samtökin eftir eina heimsókn á fund
en fólk getur einnig komið nokkrum
sinnum til að kynnast betur starfs-
háttum deildanna.
Vefsíðan okkar er:www.simnet.is/
itc Vefpóstur:itc@simnet.is
ÁSTA L. JÓNSDÓTTIR,
útbreiðslustjóri landssamtaka
ITC á Íslandi.
Þjálfun fyrir alla
Frá Ástu L. Jónsdóttur
Ásta L. Jónsdóttir
ÚR ÞINGSÖLUM þjóðarinnar
berst sá samhljómur á 4 ára fresti,
að nú skuli sinnt þeim lægst launuðu,
óvinnufæru og
ósjálfbjarga. Allir
fulltrúar þjóðar-
innar láta þó sem
þeir viti ekki að
stjórn heima-
hjúkrunar hefur
enn eina ferðina
sagt starfskonun-
um stríð á hend-
ur. Skyndilega
teljast þær hafa
of mikil fríðindi. Forstjórar fá frið þó
mánaðarhlunnindi þeirra séu á við
ársstyrki kvennanna og þeir hreyfi
ekki bíla sína. Styrkur fyrir að nota
eigin bíl í vinnunni gerir heimhjúkr-
unarkonum starfið þægilegra fyrir
utan að vera bærilegra fjárhagslega.
Starfsemin er nú í uppnámi og ljóst
að stjórn heimahjúkrunar hefur litla
eða enga þörf fyrir að standa með
starfskonunum.
Samstarfsörðugleika, sem varað
höfðu um tíma hjá Strætó sf., leysti
núverandi forstjóri vel fyrir alla.
Ólíkt forstjóra heimahjúkrunar er
hann vinsæll beggja vegna borðsins.
Stjórn heimahjúkrunar virðist
leggja mun meiri áherslu á stærð-
fræðilegar og kuldalegar reikni-
kúnstir, en skilning fyrir velferð
þeirra sem vinna og njóta. Forstjóri
heimahjúkrunar hefur greinilega til-
einkað sér kalt mat þar sem reiknað
er út hvað hægt er að komast af með
lítinn tíma á sjúkling. Starfskonurn-
ar eru því á stöðugum þeytingi vit-
andi það, að þó enginn megi njóta
þjónustu lengur en útreikningar
segja, spila öldrun og veikindi ólík-
indarullu. Slæmt er ef hjúkrunar-
fræðingur fjarlægist grunnhugsun
hjúkrunar og breytir því sem lærðist
í þurra stærðfræði.
Fyrir fjöldann sem á allt sitt undir
heimahjúkrun, er stjórn hennar
kvalræði. Hvorki stjórn heimahjúkr-
unar né öðrum er til góðs að skipu-
leggja starfsemina eins og bóndi á
heljarþröm mundi hugsanlega gera í
örvæntingu til að bjarga búi sínu frá
gjaldþroti.
Kona með einstæða umönnunar-
hæfileika fyrir leikskólabörn varð að
hætta námi því hún gat ekki lært
algebru. Í hvaða hlutverki var
heimskinginn? Það er ógerlegt að
nota ógrundaðar reiknikúnstir á
mannlegar þarfir. Stjórn heima-
hjúkrunar hefur valdið starfsfólki og
sjúklingum miklum kvíða með sí-
felldum breytingum í þokukenndum
tilgangi.
Lára Magnúsdóttir, mikið fötluð
og aðdáanlega hugrökk, lýsir vel í
blaðaviðtali hræðslu við mannaskipti
í heimahjúkrun og að lenda á stofn-
un. Vonandi vakna stjórnvöld og
gera vel við heimahjúkrunarkonurn-
ar. Hver veit hver verður næsti
skjólstæðingur þeirra?
ALBERT JENSEN,
Sléttuvegi 3, Reykjavík.
Varnarstríð heima-
hjúkrunarkvenna
Frá Alberti Jensen
Albert Jensen